Lögberg - 03.05.1948, Page 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 3. MAÍ, 1948
5
ÁIIUSA/HÁL
l\VI:NNA
Rtístjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON
Miss Inez Bjarnarson
Þessi glæsilega, unga náms-
stúlka var nýlega kosin forseti í
félagi ungra kvennstúdenta —
Beta Gamma Chapter of Sigma
Kappa sorority — við Manitoba
háskólann. Hún er dóttir þeirra
Mr. og Mrs. B. Bjarnarson í
bænum Langruth við Manitoba-
vatn. PYænka hennar, Miss
June Bjarnarson, dóttir þeirra
Mr. og Mrs. V. Bjarnason í
Langruth var kjörin ritari í
sama félagsskap.
♦ ♦ ♦
Bendingar um hvernig á að aga börn
Eftir Gladys Bevans
Vinkona kvennasíðunnar
sendi þessa smágrein, og er
ég henni þakklát fyrir það.
Ungum mæðrum væri holt
að taka til athugunar bend-
ingar þessa uppeldisfræð-
ings; þær virðast vera skyn-
samlegar. — Greinin er laus-
lega þýdd. — I. J.
Hvernig ferðu að því að fá
börnin til þess að gera það sem
er bæði þeim og þér fyrir beztu?
Er rödd þín og framkoma skip
andi, þegar þú segir þeim að
gera hitt og annað?
Hótar þú að segja föður þeirra
eftir þeim þegar þú ert í vand-
ræðum með þau?
Gengur þú á eftir þeim og
dekrar við þau til þess að fá þau
til að hlýða þér?
Hótarðu þeim refsingu ef þau
gegna ekki?
Eða mútar þú þeim með smá-
gjöfum til þess að hlýða þér
tafarlaust?
Ertu sjálfri þér ósamkvæm —
leyfir þeim að gera það í dag
sem þú refsar þeim fyrir á
morgun?
Eða verður þú yfir þig reið
þegar þú getur ekki stjórnað
þeim og gerir eitthvað, sem þú
sérð eftir, þegar þú ert búin að
stilla geð þitt aftur?
Allar þessar uppeldis aðferðir
eru rangar; þær eru rangar fyr-
ir margra hluta sakir.
Þær eru rangar vegna þess að
þegar til lengdar lætur eru þær
árangurslausar; þær hafa ef til
vill áhrif í bili, en þú munt
standa í sama stríðinu við börn-
in í hvert skifti.
Þær eru rangar vegna þess að
með þeim gefur þú til kynna
uppgjöf.
Og þessar uppeldisaðferðir eru
rangar vegna þess að þær draga
úr valdi þínu yfir börnunum og
virðingu þeirra fyrir þér. Böm-
in verða að bera virðingu fyrir
þér, þau þarfnast skapfestu og
hyggni af þinni hálfu.
Hinar réttu uppeldisaðferðir
eru algerlega gagnstæðar þess-
um, sem nú hefir verið lýst. Ef
þú athugar þetta vandlega, munt
þú sjá að það er rétt.
í fyrsta lagi, ástæðan fyrir
því að börnin verða að læra að
hegða sér samkvæmt fyrirsögú
þinni er sú, að það er þeim fyrir
beztu — fyrir heilsu, vellýðan
og skapgerð þeirra.
í öðru lagi, þau verða að læra
hegðun sem er í samræmi við
annað fólk því þau eru mann-
eskjur í samfélagi við aðra
menn — unga og gamla — og
verða að læra að taka hæfilegi
tillit til þeirra. Þú skýrir þeim
ekki frá þessum tveim grund-
vallar-atriðum, en hefir þau
sjálf stöðugt í huga sem takmark
uppeldisins. — Hinar réttu
uppeldisaðferðir eru þessar:
Þá varast að endurtaka orð
þín; náðu fyrst athygli barnsins
ins og segðu því svo hvað þú
viljir að það geri.
Þú hefir taumhald á skapi
þínu, jafnvel þótt þú sért þreytt
og gröm.
Þú ert sjálfri þér samkvæm,
svo barnið viti hvers það má
vænta frá þér.
Þú ert glaðvær og örugg í við-
móti og lætur barnið finna að
þú teljir það sjálfsagt að það
geri það sem þú ætlast til af því,
vegna þess að þið eruð vinir.
Þú biður barnið kurteislega
að gera hitt og annað en skipar
því ekki.
Ef þú þarft að segja barninu
að þú refsir því, ef það gerir
þetta eða hitt, stattu þá við orð
þín, en þó aðeins ef hirtingin er
réttlát. Breyttu ákvörðun þinni,
ef hún er óréttlát eða þú hefir
gert hana til að svala, reiði
þinni.
Málrómur þinn er ávalt vin-
gjarnlegur og þú ert brosmild og
sýnir, velþóknun yfir því sem
þau gera vel. Á þessu þrífast
börnin.
Þú finnur sem minst að við
bömin og jagast aldrei við þau.
Niðurlag greinarinnar um
Francis frá Assisi birtist í næsta
blaði.
GISLI HALLSON
Minningarorð
Eftir hérumbil þriggja ára
vanheilsu og nokkurra' mánaða
sáran sjúkdóm, lézt bóndinn
Gísli Hallson á heimili sínu í
Vogarbygð, í grend við Mani-
tobavatn, miðvikudaginn 21.
apríl. —
Gísli var fæddur að Hræreks-
læk í Hróarstungu, í Norður-
Múlasýslu, á íslandi, 2. ágúst
1884. Foreldrar hans voru þau
hjónin Eiríkur Hallson og Anna
Magnússon. Hann ólst upp með
foreldrum sínum. Árið 1902
fluttist hann með foreldrum sín-
um og systkinum til Canada. —
Systkini hans voru: Sigríður,
kona Páls Guðmúndssonar í
Grunnavatnsbygð og Winnipeg.
Niels í Winnipeg og á Lundar,
og Stefán Pétur, að Oak View.
Þau voru öll dáin á undan Gísla.
Eftir að Gísli kom til þessa
lands, átti hann víst ávalt heima
í grend við Manitoba-vatn. —
Hann stundaði fiskiveiðar í ein
20 ár, var afbragðs fiskimaður.
Hinn 17. marz 1922 kvæntist
hann Guðrúnu Vigfússon, ætt-
aðri af Seyðisfirði, á Islandi. Þau
settust að á bújörð, sem hann
hafði þá eignast í Vogabygðinni.
Eins og hann hafði stundað
veiðiskapinn af áhuga og lægni
meðan hann var fiskimaður,
eins lagði hann mikla rækt við
búskapinn eftir að hann varð
bóndi. Hann var í röð hinna
beztu bænda, enda var hann í
hvívetna hinn mesti eljumað-
ur, gekk að sérhverju verki með
óskiftum kröftum, góðri athug-
un, frábærri samvizkusemi og
vandvirkni. Þau hjónin samein-
uðu krafta sína í búskapnum;
farsæld og blessun varð árang-
urinn af atorku Og hyggindum,
vel unnu starfi þeirra. Heimili
þeirra var ávalt í Vogar-bygð.
En það var ekki búskapurinn
einn, sem þau gáfu máttarstoðir,
heldur einnig sérhvert annað
gott málefni, sem þeim var unt
að styðja.
Þau hjónin eignuðust fimm
börn. Hið elzta þeirra, Stefán
Pétur, dó 17 ára. Hin börnin eru:
Arnold, Eiríkur, Anna, og Her-
bert Gísli. Þau eru enn í heima-
húsum, mannvænleg og unn-
andi því sem er nytsamt og gott.
Gísli var um 8 ára að aldri, er
hann kom frá föðurlandi sínu.
Hann hélt samt trygð við það
alla æfi, þótt hann væri einnig
trúr kjörlandi sínu. Hann hafði
sérstaka unun af því að lesa ís-
lenzkt mál, bæði í blöðum og í
bókum.
Hann var sannur maður. Hæg-
ur var hann, stiltur, frábitinn því-
að láta á sér bera. Eins og ljós-
ið, sem lýsir, og blómið, sem ang
ar, fá dýrð sína af því, sem þau
eru en ekki af því að sýnast, eins
var það hugarfar hans að lifa
sannleikann í orði og verki, með
öllu því göfgi sem tilheyrir sönn-
um manni.
Gísli var góður maður, frábæri
lega óeigingjarn og velviljaður.
Aldrei var hann í orðasennu við
fólk, en lagði út á betri veg það
sem mátt hefði telja orsök til að-
finslu. Hann var ljúfmenni við
þá sem hann uirngekkfet. Ætíð
var hann fús til, eftir bezta
mætti, að hlaupa undir bagga
þar sem þörf var á hjálp.
Sérstaklega var Gísli um-
hyggjusamur um heimili sitt,
hýsti það prýðilega og efldi hag
þess og unað á allan hátt, sem
honum var unt. Ástvini sína
elskaði hann af einlægu og heitu
hjarta. Alt vildi hann á sig
leggja og sjálfum sér um alt
neita, þeim til gagns og gleði.
Gísli var kristinn maður í
hjarta og breytni. Hann var trúr
vorri lútersku kirkju alla æfi. “í
gegnum Jesú helgast hjarta” leit
hann hið himn^ska og fagra. Frá
Frelsaranum fékk hann hugar-
far kærleikans, það hugarfar,
sem Páll postuli lýsir, er hann
segir: “Hver og einn líti ekki ein
ungis til þess sem hans er held-
ur líti og sérhver til þess sem
annara er”. Fíl. 2:4. Það hugar-
far setti fegurðarblæ á líf hans.
Þessi góði og vinsæli maður
var jarðsunginn af séra Rúnólfi
Marteinssyni, sunnudaginn 25.
Varastöðin við
Elliðaárnar tengd við
bœjarkerfið í gær
Kostar 19 miljónir króna, en er
þó aðeins þáttur í stærra kerfi.
I gær tengdi borgarstjórinn í
Reykjavík varastöðina við Ell-
iðaárnar við bæjarkerfið. Við-
staddir voru margir gestir og
sýndi borgarstjóri og rafmagns-
stjóri þeim mannvirkið, sem
kostar nú um 19 milljónir króna.
Stöðvarhús nýju stöðvarinnar
við Elliðaár er mikil bygging, um
24 þúsund rúmmetrar. Stöðin
gengur ekki fyrir vatnsafli, held
ur kolum eða olíu, eftir því sem
henta þykir. Eru vélar stöðvar-
innar þannig gerðar, að auðvelt
er að breyta um brennsluefni
með lítilli fyrirhöfn og nota það
sem hagkvæmast er á hverjum
tíma. Fyrst um sinn verður
stöðin kynnt með olíu.
Smíði þessarar stöðvar hefir
dregizt nokkuð á langinn, frá
því sem upphaflega var ákveðið,
og gerir hún nú lítið meira en
fullnægja allri rafmagnsþörf
bæjarbúa og snerpa á hitaveit-
unni. En gert er ráð fyrir, að við-
bótarvirkjun Sogsins komist til
framkvæmda, eftir tvö ár og
bætist þá við orka, sem er jafn-
mikil og orka þessarar nýju
stöðvar, Ljósafossstöðvarinnar
og Elliðaárstövarinnar gömlu,
allra til samans. ÞeSsi nýja vara-
stöð er því aðeins einn áfangi á
langri leið til að sjá bæjarbúum
fyrir nægu rafmagni, sem mjög
hefir skort á að undanförnu.
Kostnaður við nýju stöðina
hefir farið gífurlega fram úr á-
ætlun. Upphaflega var gert ráð
fyrir að stöðin myndi kosta átta
milljónir, en hún kostar orðið
nítján.
Vélar stöðvarinnar eru amer-
ískar, og hafa amerískir sérfræð
ingar haft umsjón með uppsetn-
ingu þeirra.
Tíminn, 8. apríl.
Nœr 60 þús. dollara
undir bréf til íslands
Fyrir nokkrum dögum síðan
fékk séra Jóhann Hannesson
bréf frá Kína. — Það var um
tvær vikur á leiðinni.
Það, sem þó var öllu merki-
legra við þetta bréf, var burðar-
gjaldskostnaðurinn. Þetta var
einfalt bréf fyrir flugpóstþjón-
ustu. Það var póstað í Mið-Kína
og þurfti sendandi að greiða 59
þús. kínverska dollara fýrir bréf-
ið. —
Séra Jóhann sagði, að láta
muni nærri að þessi gífurlega
upphæð, samsvari rúmlega ein-
um amerískum dollara.
Mbl., 9. apríl.
Anna Borg hlýtur
viðurkenningu
Anna Borg Reumert leikkona
hefir hlotið viðurkenningu frá
Sjóði Tagea Brandt. — Voru
henni veittar 10.000 kr., og hefir
hún látið svo um mælt að hún
myndi helzt vilja fara til Frakk-
lands til að læra frönsku og
kynna sér leiklist þar, eða ef til
vill til Englands eða Bandaríkj-
anna.
Úr sjóði þessum var veitt fjór-
um konum fyrir sérstklega fræki
lega frammistöðu á sviði lista eða
vísinda. Er hér um að ræða mik-
inn heiður fyrir hina íslenzku
leikkonu. Mbl., 16. marz.
apríl. Ákveðið var, að kveðju-
málin væru flutt í kirkjunni að
Vogar, sem honum þótti vænt
um, en fyrir miklar rigningar og
ófæra vegi reyndist það ókleift.
Fór því aðalathöfnin fram á heim
ilinu, og var furða, hve margir
voru viðstaddir. Fólk kom jafn-
vel frá Oak Point og Lundar.
Um þennan mann eru dýrmæt
ar endurminningar.
Rúnólfur Marteinsson.
“Jóni forseta” hleypt
af stokkunum
Á skírdag var nýjum íslenzk-
um togara hleypt af stokkunum
í skipasmíðastöð Cook Welton og
Gemmell Ltd., í Beverley. Eig-
andi togarans er Alliance h. f.
Togara þessum var gefið nafn
ið “Jón forseti”, en það nafn bar
fyrsti togarinn, sem smíðaður
var fyrir Islendinga, og átti
Alliance hann. Kristín, dóttir
Guðmundar Jörgenssonar, for-
stjóra í Hull, skírði skipið. Var
margt manna viðstatt þá athöfn.
Skipið er 180 fet að lengd, eða
5 fetum lengra en flestir hinna
nýju togara, 30 fet á breidd og 16
að dýpt. Gert er ráð fyrir að það
verði tilbúið -seinni hlutann í
júní mánuði.
Skipstjóri á “Jóni forseta”
verður Guðmundur Markússon.
Mbl., 6. apríl.
Handbók um ísland
á ensku komin út
Handbók um ísland á ensku
er nýlega komin út hér, og er
útgefandinn Árbók Islands h. f.
Er þetta í fyrsta skipti, sem ár-
bókin kemur út síðan 1940, og
hafa nýir eigendur nú tekið við
verkinu. Fyrsta bindið af árbók-
inni kom út 1907, útgefið af
Sveini Björnssyni, núverandi
forseta. Síðan tók Vilhjálmur
Finsen við verkinu.
Hilmar Foss hefir séð um út-
gáfu bókarinnar, og er hún 655
síður með fjölbreyttum upplýs-
ingum um land og þjóð, sérstak-
lega hvað viðvíkur verzlun allri
og öðrum atvinnuvegum lands-
manna.
Alþýðubl., 25. marz.
Flóðin vestanlands
Svo hefir lækkað í Rauðánni
síðustu tvo sólarhringa, að
Winnipeg er talin úr hættu af
völdum vatnavaxta; á hinn bóg-
inn er Assiniboine-áin ófrýni-
legri en áður, einkum hjá
Brandon, þar sem horfurnar eru
síður en svo glæsilegar; hefir
fjöldi fólks í þeim bæ flúið
heimili; þó er ástandið ískyggi-
legast í bænum Minnedosa;
flóðgarður Minnedosa-árinnar
sprakk í fyrradag, áin flæddi um
bæinn, og sumstaðar var vatnið
þar yfir fjögur fet.
I Saskatchewan er flóðhættan
sögð að mestu um garð gengin,
og einnig víðasthvar í Alberta.
Hafís á siglingaleið
Veðurstofunni bárust laust eft
ir hádegi í gær fréttir frá Brúar-
fossi, þar sem sagt er að hafísjak
ar sjáist hálfa sjómílu út af
Barða og að breiðir ísjakar séu
upp við land á siglingaleið frá
Sauðanesi til Stiga. Austur af
Stigahlíð eru einnig jakar á
strjálingi.
Mbl., 10. apríl.
ÍSLAND ÁFANGI I
HNATFTLUGI
Flugmaður frá Nýja-Sjálandi,
sem gera ætlar tilraun til að
setja nýtt hraðamet kringum
hnöttinn í eins manns flugvél,
mun koma við hérna í næstu
viku. Hann leggur af stað frá
London og gerir ráð fyrir að
vera 11% sólarhring í ferðalag-
inu.
Mbl., 9. apríl.
SKOPSÖGUR
Hreppstjóri nokkur var alger-
lega mótfallinn böðum. — Nú
vildi kvenfólkið í kvenfélagi
sveitarinnar og unglingarnir í
ungmennafélaginu fyrir hvern
mun koma upp einhvers konar
opinberu baði. Hreppstjóri mót-
mælti, sagði að þetta yrði allt of
kostnaðarsamt og auk þess bein
línis heilsuspillandi. En þegar
hann fékk engu um þokað,
hreytti hann úr sér:
“Jæja, baðið þið ykkur þá,
bölvaðir sóðarnir ykkar, ekki
mun af veita að bleyta á ykkur
gæsahúðina og drekkja mesta
bitvarginum”.
Hrólfur, gamall drykkjurútur,
lendir eitt sinn í kaupavinnu
uppi í afdal, þar sem ekki fæst
deigur dropi. Einhverju sinni
nær karl þó í hálf-flösku af tré-
spíritus, en honum er algerlega
ráðið frá að leggja vökvann sér
til munns, því að þá muni hann
missa sjónina.
Hrólfur — um leið ög hann
sýpur á flöskunni: — “O, ég held
maður hafi nú séð það, sem mað
ur þarf að sjá, þegar maður er
kominn á minn aldur. Skál!”
■f
Bensi var á labbi niðri í bæ
eina nótt fyrir skömmu og sá
þá, hvar Keli lá augafullur und-
ir húsvegg og svaf. Þá varð
Bensa þetta að orði:
“Svona verð ég á sunnudags-
nóttina kemur, því þá er árshá-
tíðin okkar”.
Samtíðin.
Á málverkasýningu hjá Rock-
well Kent yrðir kona ein á hann
og sagði með fyrirlitningu: —
Þetta á að vera engill, segið þér.
en það líkist bara ekki neinum
engli”.
“Frú”, sagði Kent, “hafið þér
séð engil?”
. . . NÚ ÞEGAR
Afbragðs hitavél
FYRIR HEIMILI
3-5 herbersi (4,500 Ctii>. I't.).
ÓDÝR — HAGKWÆM
Brennir smsestu og ó-
dýrustu vestan kolum
(meðal kostn. $4 á tonn)
meðal kostn. við hitun
fyrir smáheimili $38 á
árstíð.
SJÁLFVIRK - OG MJÖG
AUÐMEÐFARIN
Sjálfvirk geymsla leggur I
hitavólina. Engir partar
fara ár lagi yfir kuldakafl
ann. Minni fyrirliöfn, þv (
ekki þarf að kveikja upp
nema einu sinni á ári.
Eidhólf fylt tvisvar á dag
fyrirhafnarlítið.
FULLKOMIÐ-SAMÞÉTT
Nær liita hetur úr kolum
en aðrar vélar á markaði.
Samþétt og smá, kemst
fyrir 4 ft. háum, 2 ft.
breiðum og 3 feta djúpum
kiefa. Kemst fyrir í
snuesl u kjöllurum og hol-
um; nothæft fyrir pípu-
og svo að segja pípulausar
hitavélar. Auðkomið fyr-
ir. Þýngd um 300 pd.
FINMÐ FMBOÐSMANN E»A
PANTIÐ BEINT