Lögberg - 15.07.1948, Page 1
PHONE 21 374
_ i ^ViV ^cxean*'*
fHo&£2'$S2>*
^ yX3"B- ^ A Complele
Cleaning
Inslilulion
PKONE 21 374
iot
VieA
■;derers
ljaU' ^ A Complete
« Cleaning
4
Instilution
61. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN 15. JÚLÍ, 1948
NÚMER 29
TIL KAUPENDA
LÖGBERGS OG HEIMSKRINGLU
Útgeíendur íslenzku vikublaðanna, Lögbergs og Heims-
kringlu, viðurkenna að þeir séu í þakklætisskuld við þá sem
hjálpað haía til að gjöra það mögulegt að þau séu send viku-
lega til kaupenda hér í álfu og til íslands; í þakklætisskuld
við þá; sem sent hafa ljóð, skemiilegar og fróðlegar ritgerðir,
og ekki sízt fréttabréf frá bygðum íslendinga hér. Þessi
fréitabréf eru efnisviðurinn í brúnni sem blöðin hafa bygt
milli bygðanna.
Útgefendurnir finna til þess að þeir eru í þakklætisskuld
við kaupendur blaðanna sem borga þau og hjálpa til að út-
breiða þau. Án þeirrar hjálpar væri als ekki hægt að gefa
þau út. —
Eins og allir kaupendur blaðanna vita, þá er verðbólga
hér svo að mest all sem fólk kaupir er nú frá 1 /3 til x/2 hærra
i_verði. Útgáfukostnaður blaðanna hefir hækkað að sama
skapi, og úigafa þeirra hefir verið slórkostlegt tap fyrir út-
geíendur síðastliðna 12—14 mánuði, og hefði verið það svo
árum skifti ef ekki hefði komið drengileg hjálp frá stjórn
íslands. —
Útgefendur beggja blaðanna hafa haft marga samtals-
fundi um þetta síðastliðið ár. Þeir allir viðurkendu og vissu
að verð blaðanna yrði að hækka að miklum mun, ef inntekíir
ætlu að jafnast á við útgjöld, því $5.00 nú, hrökkva ekki
lengra en $3.00 áður. En þeir vissu líka og viðurkendu að marg
ir kaupendur blaðanna hefðu ekki úr miklu að moða, og
væri það flesl gamalt fólk og það væri einmitt þeir kaup-
endur, sem blöðin vildu sízt missa, var því afráðið að hækka
ekki verð blaðanna að svo stöddu. En til að minka að noklcvu
útgáfukostnaðinn, var afráðið að annaðhvert blað, eftir
miðjan ágúst, verði aðeins fjórar síður, en aðra hverja viku
átta síður eins og að undanförnu, og þessu sé svo hagað til
að þá vikuna sem Lögberg sé fjórar síður, sé Heimskringla
átta, og vikuna sem Heimskringla er 4 síður sé Lögberg 8.
Umgetningar, fréttir og endurprentun takmörkuð í fjögurra
blaðsíðu blöðunum, og sagan aðeins hálf blaðsíða, en í átta
blaðsíðu blöðunum, sé sagan heil síða og endurprentun eins
og hefir verið. Það eru margir sem kaupa og lesa bæði blöðin
cg með þessu fyrirkomulagi fá þeir 12 blaðsíður vikulega.
Þessi sparnaður er ekki nægilegur til þess að inntektir
og útgjöld mætist, og biðja því úlgefendur beggja blaðanna
velunnendur þeirra og kaupendur að hlaupa undir bagga
og hjálpa til með því að borga ef þeir skulda, og með því að
reyna að útvega nýja kaupendur. Ef þetta heppnast þarf ekki
að hækka verð þeirra. Ef það heppnast ekki verður verð-
hækkun að koma seinna.
Góðir íslendingar, hjálpið íslenzku blöðunwm ykkar —
beztu vinunum sem íslendingar eiga hér í álfu.
Winnipeg, 30. júní, 1948
Dr. P. H. T. Thorlakson Sveinn Thorvaldson, M. B. E.
forseti The Columbia Press Ltd. forseti Viking Press Ltd.
Einar P. Jónsson Stefán Einarsson
ritstjóri Lögbergs ritsijóri Heimskringlu
FER TIL JAPAN
Mrs. Dora S. Lewis
Hin víðmenta, íslenzka kona,
Mrs. Dora S. Lewis, prófessor í
heimilishagfræði við Hunter
College í New York, er nú á leið
til Tokyo til þess að takast á
hendur, fyrir hönd Amerískra
hernámsvalda í Japan, fræðslu-
málastjórastarf, varðandi endur-
skipulagriingu skólakerfisins í
landinu.
Ur borg og bygð
Áttatíu ára
Ráðherraembætti
fyrirhugað
Þess er getið í nýlegum fregn-
um frá Ottawa, að Ralph May-
bank sé fyrirhugað ráðherra-
embætti í sambandsstjórninni
jafnskjótt og ráðuneytið verður
endurskipað að afstöðnu flokks-
þingi Liberala, er senn fer í
hönd; ekki er þess getið hvaða
stjórnardeild Mr. Maybank muni
veita forustu; flestum, sem til
þekkja, mun koma saman um
það, að Mr. Maybank sé fyllilega
hæfur til ráðherratignar, hann
er ágætlega máli farinn og elju-
maður með afbrigðum.
Dánarfregn
Þann 7. þ. m., andaðist á
Lundar Kristbjörg Stefania
Maria Jónsdóttir, Howardson. —
Hún var fædd á Möðrudal á
Hólsfjöllum, 3. febrúar 1866. —
María sál. giftist Guðmundi Ho-
vardssyni frá Gauksstöðum í
Jökuldal, 3. október 1888. Þau
hjónin komu til Canada 1905 og
settust að í Sigluness-héraðinu;
til Lundar komu þau 1923. Mann
sinn misti hún 1942. Börnin, sem
lifa móður sína, eru: Jón að
Lundar; Gunnlaugur og Sigurð-
ur í Winnipeg; einnig lifa systir
sína þessi hálfsystkini: Aðal-
björg í Winnipeg; Björn að Oak
Point; Stefán að Vogar og Frið-
rik Fljótsdal í Detroit. Fimm
barnabörn og tvö barna-barna-
börn lifa ömmu sína. — María
sál. var jarðsungin af séra Skúla
Sigurgeirssyni, s.l. fimtudag frá
lútersku kirkjunni í Lundar.
♦
Edward Breckman, að Lundar,
andaðist snögglega á Eiriksdale
spítalanum, 4. þ. m. Hann skilur
eftir sig ekkju og þrjú börn. —
Dóttir hans, Mrs. Val Thorlak-
son, býr á Gimli; Gordon
Douglas, er heima og Jón Ed-
ward er í sumarfríi sínu í Camp
Borden Zul., þar sem hann fæst
við heræfingar — C. O. T. C. —
Hinn framliðni var víðþektur og
á mikið og margþætt starf að
baki sér. Hans verður nánar
minst. — Einnig lifa hinn látna,
ein systir og tveir bræður: Miss
Karitas, í Vancouver, Gunnlaug-
ur Magnús, í Winnipeg og Hall-
dor Kristinn til heimilis í Ste.
St. Marie, Ont. Edward heitinn
var jarðsunginn af séra Skúla
Sigurgeirssyni, 8. þ. m., frá lút
ersku kirkjunni f Lundar, að
fjölmenni viðstöddu.
♦
GefiS íil Sunrise Lulheran
Camp
Miss Vala Janasson, Winnipeg,
$10.00; séra Kolbeinn Simunds-
son, Seattle $20.00. — Til
Childrens Trust ftind: Mrs. Jóna-
sína Benson, Gimli, $10.00,
minningu um elskaða systir
Kristínu Helgason; Dr. og Mrs.
Scribner, Gimli, $5.00; Miss S
Stefansson, Gimli, $1.00. — Með
innilegu þakklæti.
Anna Magnússon,
Box 296, Selkirk, Man.
Alvarlegar horfur
Þegar blaðið fer í pressuna, er
nn alt á huldu um það, hvort als
iierjar járnbrauta verkfalli í
Canada verði afstýrt eða eigi; —
töðugir fundir hafa daglega ver
,ð haldinn milli aðila, með það
fyrir augum að miðla málum, en
fram að þessu hefir alt komið
fvrir ekki; elleftustundar sátta-
til raunir standa nú yfir.
Dr. Pétur Jakobsson frá Is-
landi, er staddur hér um slóðir
um þessar mundir ásamt frú
sinni, og munu þau hjón bregða
sér norður til Lundar í heim-
sókn til ættingja og e. t. v. víðar.
Dr. Pétur er bróðir Áka Jakobs-
sonar fyrrum ráðherra; foreldr-
ar þeirra dvöldu eitt sinn í
Winnipeg, og mun Dr. Pétur, er
hann var drengur, hafa borið
Lögberg til kaupenda í Winni-
peg- —
Gefur kost á sér
til forustu
Landbúnaðarráðherra sam-
bandsstjórnarinnar, Mr. James
G. Gardiner, hefir gert lýðum
Ijóst, að hann sé fús til að taka
að sér forustu Liberalflokksins,
er Mr. King lætur af henni að
afstöðnu flokksþinginu, sem
hefst í Ottawa í byrjun næsta
mán.; tjáist Mr. Gardiner hafa
fengið áskoranir úr öllum fylkj-
um í þessa átt. Mr. Gardiner er
65 ára að aldri og á langan og
litbrigðaríkan stjórnmálaferil að
baki.
Thomas Fuller: “Stærilæti og
fátækt virðist ekki eiga samstöðu
í tilverunni, en eru þó býsna oft
samfara hvort öðru”.
\ innur sér mikinn námsframa
...*>■
v.. *.
$pi
Guðrún Eggertsdóitir Borgfjörð
Veglegt samsæti var haldið
fyrir Guðrúnu Eggertsdóttir
Borgfjörð frá Árborg, þann 26.
júní hjá dóttur og tengdasyni
hennar, Mr. og Mrs. S. O. Jónas-
son, 370 Arlington St., hér í borg
í tilefni af 80 ára afmæli hennar.
Voru þar um 60 manns að óska
henni til lukku með daginn; tvær
systur hennar voru viðstaddar.
Mrs. Paul Reykdal og Mrs. Dýr-
finna Elding, öll systkinabörn og
vinir. Var henni afhent budda
með peningum í.
Guðrún Eggertsdóttir Borg-
fjörð var fædd í Fróðhúsum
Stafholtstungum í Borgarfirði þ.
26. júní 1868. Voru foreldrar
hennar Eggert Jónsson og Sigríð-
ur Jónsdóttir kona hans, bæði
látin fyrir mörgum árum. Hún
átti 9 systkini, 4 bræður, sem
allir eru látnir: Guðjón, Jón,
Árni og Halldór; 5 systur: Halla
Lundal, látin; Helga Paulson,
Vancouver, B.C.; Dyrfinna Eld-
ing og Kristín Reykdal hér í bæ,
og Sigríður Sigurðson, Swan
River, Man.
Guðrún kom til þessa lands
árið 1888 og giftist Jóni Magnús-
syni Borgfjörð, 16. desember
1889 og settust þau að í Árborg,
Man., og búa þar enn.
Þau eignuðust 10 börn, 9 eru á
h'fi, 4 dætur og 5 synir: Magnús-
ína Helga Jónasson, Riverton,
Man.; Sigríður Martha Kristján-
son, Geraldton, Ont.; Dýrfinna
Olson, Spokane, Washington;
Lára Halldóra Jónasson, Winni-
peg; Eggert Júlíus, Geraldton,
Ont.; Árni Wilfred, Árborg;
Guðni Edward, Winnipeg; Paul
Valdimar og Magnús, heima.
Þau ei^a 23 barnabörn og 11
barna-barna-börn.
Guðrún er frábær dugnaðar-
og fremdar kona og yfirleitt sér-
lega vel gefin. Hún er fórnfús og
góð móðir og fyrirmynd á heim-
ili sínu, sem hún stjórnar ennþá
og vinnur að þrátt fyrir háan
aldur og alvarleg veikindi.
er
Fróðleg og falleg bók
John Burwell Hillsman:
Eleven Men And A Scal-
pel. — The Columbia
Press Limited, Winnipeg,
1948. — Útgefandi frú
Margaret B. Hillsman.
Hér er um fróðlega og fallega
bók að ræða, er fljótt nær sterk-
um tökum á huga lesandans, og
ber til þess einkum tvennt; í
fyrsta lagi það, hve viðkvæmt
efni það er, sem bókin fjallar
um, en í öðru lagi hitt, hve stíll-
inn er sviphreinn og fagur.
Höfundur þessarar bókar er
íslendingum að góðu kunnur,
sem mannkostamaður og ágætur
skurðlæknir; hann er líka tengd
ur þeim, með því að kona hans
Margaret, er dóttir hins ágætasta
höfðingja, sem uppi hefir verið
með Vestur-íslendingum, Dr. B.
J. Brandssonar og eftirlifandi
ekkju hans, frú Aðalbjargar
Brandson.
Bók þessi skiptist í stutta kafla
þar sem höfundur hennar, sem
var herlæknir í síðasta veraldar
stríði, lýsir hinum geigvænlegu
styrjaldarátökum og þeim fjöl-
þættu aðgerðum til linunar
þjáningum, sem margbrotin
tækni á sviði læknavísinda hefir
sífelt verið að finna upp; bókin
er svipmerkt hlýjum mannúðar
anda áhugasams læknis, sem
veit hvað hann vill og hikar
heldur ekki við að framkvæma
það; í bókinni er getið tákn-,
rænna fyrirbrigða upp á flónsku
legt stærilæti, svo sem í ljós kom
unglings-hermaður, þýzkur,
er orðið hafði fyrir því að kúlu-
brot höfðu rifið opinn á honum
magann, vildi ekkert með blóð-
innsprautingu hafa að gera, sem
þó hefði getað bjargað lífi hans,
vegna þess, að blóðið, sem
yrði notað, væri enskt blóð;
víða bregður höfundur upp ljós-
um og sálrænum myndum af
hugprýði og viljaþreki her-
manna, sem ekki láta bilbug á
sér sjá, þótt þeir vissulega eins og
aðrir menn, unni lífinu og óttist
hættuna eins og aðrir dauðlegir
menn. Þessari ljóshugsuðu bók
lýkur með svofeldum orðum,
sem hér eru birt í íslenzkri þýð-
ingu:
“Eg hefi verið vitni að dauð-
daga fjölda manna; hefir slíkt
jafnan runnið mér til rifja, um
leið og ég fann til ófullkomleg-
leika míns; ég hefi líka sann-
færst um það, að allir menn ótt-
ast hættuna; sá, sem þykist ekk-
ert óttast, er annaðhvort fífl eða
lygari; ég hefi sannfærst um, að
hugrekki er fólgið í því, að mað-
ur geri skyldu sína þrátt fyrir
það, þó hann finni til ótta; ég
hefi lært allverulega að þekkja
samferðamenn mína, og það
hefir borgað sig”.
Þessi prýðilega bók, sem vafa-
laust marglr vilja eignast, kost*
ar í snyrtilegu bandi, aðeins
$2.50 og fæst í Björnsson Book
Store, 702 Sargent Avenu, Winni
peg Man. —
Margir Islenzkir stúdentar
heiman um haf, sem stund,að
hafa nám á amerískum háskól-
um undanfarin ár, hafa getið sér
ágætt orð, og með þeim hætti
orðið landi sínu og þjóð til sæmd
ar á erlendum vettvangi Fram-
arlega í þeim hópi stendur Ein-
ar I Siggeirsson, en hann hefir
nýlokið prófi með miklu lofi á
Landbúnaðarháskólanum —
State Agricultural College — í
Fargo, Norður Dakota.
Einar er sunnlenzkur að ætt,
fæddur 26. ágúst 1921 í Smiðs-
húsum á Eyrarbakka, sonur Sig-
geirs Bjarnasonar og konu hans
Guðrúnar Guðjónsdóttir. Fram-
an af árum vann hann við ýms
störf til sjós og lands. Stundaði
síðan bóklegt og verklegt nám
við Landbúnaðarskólann á Hól-
um í Hjaltadal og útskrifaðist
þaðan með fyrstu -einkunn 1938.
Því næst var hann við verklegt
nám í hálft annað ár við tilrauna
stöðina á Sámsstöðum í Fljóts
hlíð og árið 1940 hélt hann áfram
verklegu námi við Garðyrkju-
stöðina á Reykjum í Mosfells-
sveit. Starfaði síðan við Garð-
yrkju Reykjavíkurbæjar.
Sumarið 1944 fór Einar til
Bandaríkjanna og hóf nám við
Landbúnaðarháskóla Norður
Dakota-ríkis. Útskrifaðist þaðan
7. júní í ár með Bachelor of
Science-prófi í landbúnaðarvís-
indum, með sérgrein í ræktunar
fræði, og hlaut við vorprófin á-'
gætiseinkunn í öllum náms-
greinum.
Samhliða bóklega náminu
stundaði hann á sumrin verk-
legt nám við Tilraunastöð Norð-
ur Dakota-ríkis í Fargo og Lang-
don. Ferðaðist ennfremur um
Vestur-Canada sumarið 1946, til
að kynnast kanadiskum landbún
aði, meðal annars við fylkishá-
skólana í Saskatchewan og
Manitoba.
Á Landbúnaðarháskólanum
hlaut Einar eftirfarandi verð
laun: jarðræktar-gullbikarinn
fyrir nám í ræktunarfræði og
Norður-Dakota fjármannsstáf-
inn fyrir nám í sauðfjárrækt.
Einnig vann hann fyrstu verð-
laun og $50.00 í ritgerðarsam-
keppni, sem efnt var til af hálfu
háskólans, en 700 stúdentar voru
þátttakendur. Ennfremur var
hann kjörinn félagsmaður
“Alpha Zeta Honorary Fraterni-
Einar I. Siggeirsson
ty” í landbúnaði, en sá heiður
fellur aðeins í hlut framúrskar-
andi námsmönnum. Hann var í
stjórn Náttúrufræðifélags há-
skólans 1947—1948 og í fram-
kvæmdarnefnd Landbúnaðarsýn
ingar skólans 1948. Hann stund-
ar nú framhaldsnám á háskólan
um með það fyrir augum að
ljúka meistaraprófi í landbún-
aðarfræðum og hefir verið sett-
ur aðstoðar grasafræðingur við
Tilraunastöð ríkisins í sambandi
við skólann.
Einar Siggeirsson á 'því auð-
sjáanlega yfir óvenjulega glæsi-
legan námsferil að líta, og að því
skapi aðdáunarverðari, þegar
minni er borið, að hann hefir
stöðugt orðið að vinna fyrir sér
jafnframt námi sínu, enda hefir
hann stundað það af slíkri kost-
gæfni og dugnaði, að til fyrir-
myndar má teljast. Hefir hann
einnig unnið sér vináttu og virð-
ingu kennara sinna og námsfé-
laga og annara, sem hafa kynnst
honum. Má því fyllilega ætla, að
íslenzkur landbúnaður eignist
hinn nýtasta og ágætasta starfs-
mann þar sem Eihar er, þegar
hann, að loknu námi, heldur aft-
ur til ættlandsins, enda hefir
hann fullan áhuga á því að
helga ættjörðinni starfskrafta
sína og láta hana njóta ávaxt-
anna af víðtæku bóklegu og
verklegu námi sínu. Vinir hans
og velunnarar fagna yfir unnum
sigrum hans og óska honum fram
haldandi brautargengis í námi og
starfi. — *
Richard Beck