Lögberg - 15.07.1948, Page 2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 15. JÚLÍ, 1948
HANNES J. MAGNÚSSON
Hinn óþekkti hermaÖur
Réttum tveimur árum eftir að
heimsstyrjöldinni lauk, var sú
ákvörðun tekin af brezkum
stjórnarvöldum að láta grafa upp
lík einhvers óþekkts hermanns,
er fallið hafði á vesturvígstöðv-t
unum, og jarðsetja það með mik-
illi viðhöfn -í enskri mold.
Hinn 11. nóvember árið 1920
var svo kistan með jarðneskum
leyfum hins óþekkta hermanns
flutt til Westminster Abbey og
jarðsett þar í viðurvist ýmissa
helztu stórmenna Englands. —
Sami siður var síðar upp tekinn
í öðrum þeim löndum, sem stærst
ar fórnir höfðu fært í þessum
blóðugasta sorgarleik veraldar-
sögunnar, sem þá þekktist.
Síðan þetta gerðist, er svo á
hverju ári, á vopnahlésdaginn
11. nóvember, lagður blómsveig
ur á gröf hins óþekkta hermanns.
í sumum löndum er eldur látinn
loga á gröfinni dag og nótt og
heiðursvörður haldinn um hana
eins og helgan stað.
Þótt þetta séu harla litlar yf-
irbætur fyrir allar hinar blóð-
ugu syndir heimsstyrjaldarinnar,
vilja þjóðirnar þó væntanlega
sýna með þessu, að þær vilji ekki
aðeins heiðra minningu þeirra
manna, sem bera hin stóru og
þekktu nöfn, heldur einnig allra
hinna, milljónanna, sem hvíla
nú í hinum nafnlausu gröfum,
og á tíðum í framandi mold.
Það hefir skapazt sú hefð í
okkar herskáa heimi að telja það
helzt til hetjuskapar, sem stend-
ur í sambandi við styrjaldir og
vígaferli. Mennirnir, sem skrif-
að hafa veraldarsöguna, hafa
lagt grundvöllinn að þessu mati
á hetjulundinni.
Nöfn herkonunga og yfirgangs
manna, sem lögðu undir sig lönd
og þjóðir blóðugir til axla, skipa
stærst rúm á blaðsíðum sögunn-
ar, og oft miklu meira en trúar-
hetjum og siðspekingum er þar
úthlutað, sem báru þó blys sann
leikans og réttlætisins fram fyrir
mannkynið. Svo hefir fjarlægð-
in í tíma og rúmi sveipað eins
konar ævintýralegum frægðar-
ljóma um þessa menn, sem ungir
menn öld eftir öld hafa látið
blekkjast af. Við þetta mat á
hetjumenninu eigum við að
miklu leyti að búa enn í dag.
Við íslendingar höfum þó haft
ástæðu til að mynda okkur
raunsannari skoðanir í þessum
efnum en ýmsar aðrar þjóðir. —
Þjóð, sem setið hefir á friðarstóli
í margar aldir, hlýtur að leggja
annað mat á hetjudáðir en styrj
aldarþjóðir. Okkar stríð hefir
verið háð við grimm og óblíð
náttúruöfl, því er okkur tamast
að meta hetjur og hreystiverk
eftir einhvérjum fangbrögðum
við náttúruöflin, íslenzkar stór-
hríðar eða úfinn sjó. Sízt skal úr
því dregið, að á þeim vígvelli
hafi mörg hetjudáðin verið unn
in, og ég skal játa, að það þarf
hugrekki til að horfast í augu
við dauða eða limlestingu á víg-
vellinum, en því má heldur ekki
gleyma, að það þarf stundum
engu minna hugrekki og hetju-
lund til að berjast við alla þá
erfiðleika, vonbrigði og ósigra
sem mannlegt líf svo oft er mót-
að af. Það er ritað og rætt um
hetjudáðir hermannanna á víg-
völlunum. Blöð og útvarp styrj-
aldarþjóðanna halda þeim afreks
verkum mjög á lofti. En það er
miklu hljóðara um konu her-
mannsins og allar þær miklu
fórnir, sem hún verður að færa,
og þrekraunir, sem hún verður
að vinna í þögulli baráttu fyrir
lífi sínu og barna sinna. Eg þori
ekki að segja, hvort er meiri
hetja, maðurinn, sem berst á
vígvöllunum, eða konan, sem
ef til vill berst alein heima víð
0
allar þær ógnir og bölvun, sem
styrjaldir skapa.
Eins x)g okkur verður venju-
veraldarsögunnar, svo hættir
okkur einnig til að meta sam
ferðamennina eftir alinmáli
auðs, metorða og mannaforráða,
eftir því hve hátt þá ber í þjóðfé
laginu og hve samfél. hefir feng
ið þeim mörg virðuleg störf. En
þegar dýpra er skyggnzt í hið
mikla völundarhús, sem við nefn
um þjóðlíf, hljótum við að viður
kenna, að það eru ekki fyrst og
fremst þessir menn, sem eru
hinar eiginlegu máttarstoðir
menningarinnar, þótt ekki beri
að vanmeta störf þeirra. Nei —
það eru hinar óteljandi, nafn-
lausu hetjur, sem skrá sögu sína
í sand hinna óbrotnu, daglegu
starfa. Það eru hetjur hversdags
lífsins.
Það eru ekki herforingjarnir
sem vinna styrjaldirnar, þótt svo
sé oft látið í veðri vaka. Það eru
óþekktir, nafnlausir menn, sem
oft falla og gleymast, en ryðja
þó brautina til sigurs um leið.
Þannig er því einnig háttað í
hinni miklu sókn mannkynsins
til meiri menningar og þroska
Mikilmennin kveikja að vísu
ljósin, en svo kemur alltaf ein-
hver óþekkt hönd, eða óþekktar
hendur, sem bera þau fram
gegnum aldirnar. Vegur kristn-
innar og annarra andlegra menn
ingarstrauma hefir ekki legið
gegnum hallir þjóðhöfðingjanna
eða annarra valdamanna þjóðfé-
laganna, nei, þeir voldugu menn
ingarstraumar hafa valið sér
hinar þögulu leiðir mannfélags-
ins. Þar eru hinar óþekktu hetj-
ur hversdagslífsins að skapa ver
aldarsögu, sem ef til vill verður
aldrei skráð, en er þó uppistað
an í hinum mikla og margþætta
vef menningarinnar, sem kom-
andi kynslóðir bera gæfu til að
njóta.
Eg hefi aldrei kynnzt neinum
manni, sem unnið hefir nokkrar
hetjudáðir á almennan mæli
kvarða, en ég hefi kynnzt fjölda
mörgum konum og körlum, sem
ég hika þó ekki við að telja hetj-
ur.
Eg þekkti eitt sinn gamla konu
Hún var búin að ljúka löngu og
miklu dagsverki, þegar ævikvöld
ið kom. Hún var búin að ala
upp mörg börn og meðal annars
átti hún son fátækan, er hafði
fyrir mörgum börnum að sjá.
Kraftarnir.leyfðu nú ekki leng
ur neina vinnu, en syninum fá-
tæka vildi hún hjálpa, og það
gerði hún með þeim hætti, að hún
dró af matnum sínum, þegar
þess var kostur, og sendi hann
til fátæku sonarbarnanna, þegar
ferð féll. Hún drakk kaffið sitt
sykurlaust, en safnaði sykur-
molunum og sendi þá sömu leið-
ina.
Þetta var ein hin kærleiksrík-
asta kona, sem ég hefi þekkt, og
eru þær þó margar og víðar. —
Þessa konu set ég á bekk með
Helgu Haraldsdóttur og Auði
Vésteinsdóttur, þótt hún ynni
engin sambærileg þrekvirki.
Myndu þær ekki verða marg-
ar íslenzku alþýðukonurnar,
sem myndu hækka og stækka í
augum okkar, ef við þekktum
kjör þeirra og hvernig þær bregð
ast við þeim, og myndi það vera
nokkur- stétt í landi voru, fyrr
eða síðar, er þjóðfélagið standi
í meiri þakkarskuld við en þess
ar íslenzku alþýðukonur, þessar
nafnlausu hetjur, sem í yfirlæt
islausri þögn, og oft umkomu-
leysi, hafa byggt upp grunn
samfélagsins án viðurkenning-
ar og án þakka?
Jón Ttrausti hefir á ógleyman-
legan hátt reist þeim óbrotgjarn
an minnisvarða, þessum nafn-
lausu alþýðukonum í öllu sínu
umkomuleysi og mikilleika í
senn. Halla í Heiðarhvammi er
glæsilegur fulltrúi íslenzkra al-
jýðukvenna, sem verður stærst
lega starsýnast á hin stóru nöfn og ógleymanlegust í hinum
mestu erfiðleikum. En Halla í
Heiðarhvammi er ekki aðeins
hin íslenzka alþýðukona. Hún er
ímynd þeirrar þrautseigju, trú-
mennsku, en- jafnframt þess
stórlætis, sem hefir orðið þess
valdandi, að íslenzka þjóðin hef
ir aldrei gefizt upp. Eg efast um,
að saga hinnar íslenzku alþýðu-
konu hafi nokkurn tíma verið
verið skráð af meiri skilningi og
þekkingu en Jón Trausti hefir
gert í Heiðarbýlissögum sínum
Fyrir nokkrum áratugum var
fjölmenn stétt í þessu landi, sem
nú er að hverfa með öllu, en það
voru hinir svonefndu vinnu-
menn og vinnukonur. En það var
eins og kunnugt er verkafólk,
sem var á sama heimilinu. Sum-
ir, sem mesta tryggð sýndu þess
um heimilum, sáu þar fleiri en
eina kynslóð koma og hverfa. í
æsku minni kynntist ég nokkr-
um konum og körlum úr þessari
stétt, og eftir því sem árin hafa
liðið, hefi ég betur kunnað að
meta þetta fólk. Það hefir stækk-
að í augum mínum og vaxið að
manngildi. Nöfn þessara karla
og kvenna komust aldrei í blöð-
in. Þau unnu, engin stórvirki á
almennan mælikvarða. Þau lifðu
alla ævi í þögn án nokkurrar op-
inberrar viðurkenningar. Heim-
ur þeirra var eldhúsið, fjósið eða
beitarhúsin, en ég efast um, að
nokkur þjóðhöfðingi eða hefðar-
maður í hinum æðstu sætum
þjóðanna þyldi samanburð við
þetta óbrotna alþýðufólk að
þegnskap og trúmennsku við all-
ar skyldur lífsins. Þessar ó-
þekktu hetjur hversdagslífsins,
voru á sínum 'tíma salt þjóðfé-
lagsins, því að sé það nokkuð
sem öðru fremur gerir þjóð
sterka og hamingjusama, þá
er það þetta að allir þegnar
hennar geri skyldu sína. — Sú
dyggð er móðir allra annarra
dyggða.
Einhver myndi á nútímamáli
nefna fólk þetta hina kúguðu
stétt, og stundum, ef til vill, með
einhverjum rétti. Eg efast þó
um, að verkafólk nútímans lifi
heilbrigðara og farsælla lífi. Og
án þess að á nokkurn sé hallað,
efast ég um, að það hverfi með
stærjra pund yjfir landamærin
miklu, og ég efast loks um, að
það greiði ættlandi sínu betur
uppeldisskuldina en þessir trúu
þjónar hins liðna tíma gerðu,
en með því áliti er ekki verið
að kasta neinum steinum að
verkalýð nútímans.
Eg hefi oft hugsað um það, hve
komast mætti hjá miklu böli í
heiminum, ef þeir, sem völdin
hafa og ýfirtökin í þjóðfélaginu,
væru svolítið örlátari á réttmæta
viðurkenningu fyrir vel unnin
störf, ekki aðeins í orði, heldur
einnig á borði. Auk þess sem
slík viðurkenning er einn hinn
mesti aflvaki bæði í lífi einstakl
inga og þjóða, myndi hún brúa
Dað djúp óvildar, tortryggni og
jafnvel h'aturs, sem ríkir á milli
Deirra, sem vinna og veita vinnu.
þróttamaðurinn, sem er að
ceppa að marki, veit, hvaða gildi
Dað hefir að fá viðurkenningu
og hvatningu. Glöggur og reynd-
ur kennari veit, hve máttugt
uppeldismeðal það er að veita
réttmætá viðurkenningu fyrir
það, sem vel er gert. Það hefir
hjálpað mörgum nemanda til að
komast yfir þröskuld, sem hon-
um áður fannst óyfirstíganlegur.
Eg veit ekki, hvort hin harð-
vítuga, pólitíska flokkabarátta
eða einhver stirðbusaskapur í
skapgerð okkar veldur því, að
við íslendingar eigum ákaflega
erfitt með að viðurkenna nokk-
uð það, sem vel er gert. Þegar
við höfum ekki ástæðu til að
finna að, þá þegjum við. það er
okkar viðurkenning. Þessi þumb
araháttur er búinn að drepa á-
hugann hjá mörgum nýtum
starfsmanni í æðri sem lægri
stöðum þjóðfélagsins, og hann á
eftir að orka seiðdrepandi á marg
an áhugamanninn, hvort held-
ur það er maður, sem vinnur and
leg störf, eða verkamaður við hin
daglegu störf þjóðfélagsins. — Á
heimili, þar sem húsbóndinn
þakkar aldrei starf hjúa sinna,
verður aldrei vel unnið. — í
kennslustofu, þar sem sjaldan
eða aldrei er lofuð frammistaða
nemendanna, skapast aldrei
vinnugleði eða skólahugur og
þjóðfélag, sem lætur lof eða last
vera bundið við pólitíska flokks-
þjónustu, eignast fáa þegnskap-
armenn. Slíkt er skipulögð skoð-
anakúgun og hættulegri viður-
kenning en sjálf þögnin. — Þar
verður allt starf bundið við pen-
inga, metorð og allskonar hlunn
indi. Það er undarlegt, hvað við
erum sparir á réttmætt þakklæti
og viðurkenningu, og þó kostar
það ekki neitt. Stundum þó ef til
vill það að brjóta af okkur viðj-
ar einhverra hleypidóma og
þurrka ofurlítið af pólitískum
gleraugum okkar. En vanþakk-
lætið og þögnin eru miklu dýr-
ari, því að þau draga úr afköstun
um á öllum sviðum þjóðfélagsins
og ala upp eintóma miðlungs-
menn, eða minna en það.
En ég var að tala um hetjurn-
ar. Eg þekkti eitt sinn mann, sem
árum saman þjáðist af sjúkdómi,
er hann vissi, að var ólæknandi.
Eg dáðist að sálarró hans og
æðruleysi. Jafnvel þeir, sem
voru heilbrigðir og áttu við með
læti að búa, gátu sótt til hans
styrk og þor. Hann gat brosað í
sínum líkamlega vanmætti, þeg-
ar aðrir æðruðust út af smámun
um. Sál hans var hert í deiglu
erfiðleika og þjáninga. Þennan
mann set ég á bekk með Þor-
móði Kolbrúnarskáldi, sem dró
örina glottandi út úr brjósti sínu.
Fáir þekkja sögu þessara nafn-
lausu hetja, sem berjast á víg-
stöðvum sjúkdómanna, Sjúk-
dómarnir eru heimsböl, en jafn-
vel í skjóli þeirra skapast hetj-
ur, sem geta fyllt börn meðlæt-
isins aðdáun. Söguöld vor íslend
inga er rík af hetjudáðum. Yfir
þeirri öld hvílir glæsilegur
frægðar- og hetjuljómi. En það
er mikið vafamál, að fleiri hetj-
ur hafi verið uppi á söguöld en
jafnvel svartasta niðurlægingar-
tíma þjóðarinnar. 1 hinum mikla
nafnlausa val þeirra, sem fallið
hafa í baráttunni við ís og hung-
ur, eld og kulda, áþján, nauðir
svartadauða, hvílir mörg hetjan,
sem engar sögur fara af.
Við göngum á kumblum þess-
ara kynslóða með þeim óljósa
grun, að þarna hvíli kúgaðar og
lítilsigldar kynslóðir, og þökk-
um ef til vill hamingjunni fyrir,
að við erum ekki eins og þessir
voluðu forfeður okkar.
En: “Vittu, þótt heimskinginn
hræki á þann svörð, þar Hjálm-
ar frá Bólu er grafinn í jörð, að
konungur liggur þar liðinn”. —
Undir þessum grónu kumblum
hvílir mörg hetjan, margur nafn
laus konungur í nafnlausu ríki.
Án þrautseigju og hetjulund-
ar þessara nafnlausu forfeðra
okkar værum við nú í dag ekki
sjálfstæð menningarþjóð. — Svo
órjúfandi böndum er nútíðin
tengd fortíðinni, og hver einasta
þjóð, sem slítur þau bönd, sem
tengja hana við fortíð sína og
sögu, verður útlendingur í sínu
eigin landi.
Fornaldardýrkun, sem veldur
því, að menn horfa miklu meira
aftur en fram getur að vísu orð-
ið að sjúkdómi, en saga og
reynsla fortíðarinnar er þó sá
eini grundvöllur, sem hver þjóð
verður að byggja menningu sína
og tilveru á. Og þó er megin-
hluti sögunnar óskráður, saga
hins óþekkta hermanns. Hirð-
stjórar og höfuðsmenn, biskupar
og prestar, þeir voru ekki sjálfir
þjóðin, þótt margir þeirra ynnu
mikið og gott menningarstarf.
Þjóðin var hinn nafnlausi fjöldi
sem vann hörðum höndum að
framleiðslu verðmætanna.
— Það er til standmynd í einu
listasafni Parísarborgar, sem
þessi saga er um:
Eitt sinn, þegar listamaðurinn
var að vinna við myndina, kom
svo mikið frost, að hann óttaðist
að myndin yrði ónýt, en hann
hafði ekki ráð á að kveikja upp
í vinnustofu sinni. Með því að
myndin var nú fullgerð, en leir-
inn ekki fullþurr, tók hann sæng
urföt sín og vafði þeim um mynd
ina til að verja hana frostinu.
Næsta morgun fannst lista-
maðurinn helfrosinn í rúmi sínu
en listaverkinu, lífshugsjón hans
var borgið.
Þessi maður var meiri og göf-
ugri hetja en samlandi hans,
Napóleon mikli, þótt hann með
blóðugu ofbeldi gæti lagt undir
sig mikinn hluta Evrópu.
Þessi saga um lietamanninn
leiðir hugann hingað heim til Is-
lands aftur. Hún minnir á aðra
hetjudáð, sem unnin var af ís-
lenzkum manni.
— Eitt sinn var Guðmundur
Arason, síðar biskup, á ferð vest
ur yfir Heljardalsheiði um há-
vetur og var að fara á fund
Brands biskups á Hólum. Margt
manna slóst í för með honum að
vanda, bæði karlar og konur. En
þegar upp á heiðina kom, skall á
blindhríð með hörkufrosti. Eftir
ráðum Guðmundar var þá snúið
við, og varð það til að bjarga lífi
m^rgra, en þó tvístraðist hópur-
inn, og sumir urðu úti. — Með
Guðmundi voru tveir lærisvein-
ar hans, börn að aldri, og tvö
stúlkubörn. Annar sveinninn
lenti í vatni og kól til bana á
skammri stund. Önnur litla stúlk
an gafst upp, en þá fór Guðmund
ur úr kyrtli sínum, vafði utan
um stúlkuna og gróf hana síðan
í fönn. Nokkru síðar gáfust einn
ig hin börnin tvö upp. Guð-
mundur lagðist þá niður með
þau í faðminum og vafði um þau
klæðum sínum, en allir aðrir
reyndu að komast til bæja og
bjarga lífi sínui
Daginn eftir var komið að
leita þeirra. Var þá sveinninn
andaður í fangi Guðmundar, en
báðar stúlkurnar voru lifandi og
óskemmdar.
Sagan gerir sums staðar frem-
ur lítið úr karlmennsku og hetju
lund Guðmundar biskups Ara
sonar. En á Heljardalsheiði birt
ist hann sem hetja.
Menn geta unnið hetjudáðir
fyrir margra hluta sakir. Sumir
vinna þær fyrir metnaðar sakir,
t. d. ganga á kaðli yfir Nigara-
fossinn. En það er aðeins eitt,
sem gerir menn að sönnum hetj-
um: það er ást á hugsjónum, ein-
staklingum eða ættjörðinni. Það
er kærleikur í einhverri mynd.
Eg býzt ekki við, að Guðmund-
ur Arason hefði reynzt frábær
hermaður á vígvelli, en sú mikla
og heita glóð, sem vermdi allt
hans dapra líf, var fórnarlundin
og kærleikurinn, og það var sú
innri glóð, sem kom honum til
að bjóða dauðanum byrginn úti
í íslenzkri , öræfastórhríð til að
bjarga tveimur barnslífum.
“Án vegabréfs vors hjarta er
leiðin töpuð”, segir Einar Bene-
diktsson einhvers staðar. Hetj-
urnar í ríki friðarins stefna eftir
því vegabréfi, en ekki eftir nein
um járnhörðum skipunum. Þær
spyrja ekki um gróða eða tap,
ekki peninga, metorð né mann-
virðingar.
Við höfum átt og eigum enn
marga karla og konur með hug-
arfari Guðmundar góða, en þó
óttast margir, að þessi gullforði
okkar sé að ganga til þurrðar að
sama skapi sem krónunum í
landi okkar fjölgar. Margir ótt-
ast, að við séum að ala hér upp
þjóð, sem leggur mælikvarða
peninganna á flesta hluti. Með
Gullveigu hélt óhamingjan inn-
reið sína í ríki guðanna. Pening
arnir eru góðir þjónar, en hættu
legir húsbændur, og í ríki pen-
inganna, ríki eigingirninnar fæð
ast engar hetjur.
Það, sem einkennir mjög hina
síðustu tíma, er óvenjulega skjót
röð stórfenglegra atburða. Mann
kyn allt spyr með eftirvæntingu:
Hvað kemur næst? Ungir og aldn
ir hlusta með eftirvæntingu og
oft kvíða eftir hinum stórbrotnu
tíðindum að utan. Það er eins og
einhver ómótstæðilegur kraftur
togi hugina í eina átt, út á við
Ekkert þykir fréttnæmt, sem
gerist hið innra. Þeir atburðir,
sem þar gerast, eru svo smáir, að
þeir hverfa í skugga hinna. Eg
veit ekki, hvort menn hafa gert
sér grein fyrir þeirri menningar-
legu hættu, sem hér er í uppsigl
ingu. Líf manna er samanslung-
ið úr óteljandi smámunum,
hversdagslegum atburðum og
hversdagslegum skyldum, og
það er ekki hægt að hlaupa frá
þeim, án þess að eyða verði í þá
þróun, sem mannlegu lífi er ætl-
að að taka, og ég held, að það
þurfi engan spámann eða sjáanda
til að verða þess var, að þessi
flótti hugans út á við er farinn
að losa um mörg bönd, sem áður
voru traust. Lítilsvirðing á smá-
mununum er upphaf rótleysis. —
Sá, sem kann ekki að meta augna
blikið, lærir aldrei að fara vel
með tímann. Maðurinn, sem fyrir
lítur eyrinn eða krónuna, kann
aldrei með fé að fara. Maðurinn
sem fyrirlítur hin smærri hlut-
verk og skyldur, er ekki líkleg-
ur til að verða trúr hinum
stærri. Og ég verð að segja, að ég
óttast, að sú kynslóð, sem nú er
að alast upp, sé einmitt að mót-
ast af þessu viðhorfi til líðandi
stundar. Stóru atburðirnir geta
verið eins og nokkurs konar
krydd á hversdagsleikann, en
hið einfalda og óbrotna líf er nú
samt, þegar öll kurl koma til
grafar, hið eftirsóknarverðasta í
öllum sínum einfaldleik og fjöl-
breytni í senn. Lífið fær ekki
ljóma sinn og gildi að utan. Það
fer eftir því, með hvers konar
augum við horfum á dásemdir
þess. Þess vegna verðum við að
varðveita hina innri sýn okkar,
ekki síður en hina, sem út á við
snýr, ef við eigum ekki að bíða
við það menningarlegt tjón.
Og eitt er víst: Menning okkar
og farsæld, siðmenning framtíð-
arinnar, verður að miklu leyti
komin undir því, hvaða mat við
leggjum á þessa hluti. Hvaða mat
við leggjum á manngildið. Hvaða
mat við leggjum á hetjulundina.
Á meðan almenningur hyllir her
mennsku og herfrægð, verða til
stríð, með allri þeirri bölvun,
sem þeim fylgir. Á meðan öll á-
róðurstæki þjóðanna keppast við
að gera þá menn að mestum hetj
um, sem flestum mannslífum
granda, er kynt undir glóð ó-
friðar og blóðsúthellinga. Á
meðan við íslendingar hugsum í
stéttum og flokkum, og viður-
kennum það eitt vel gert, sem
flokksmaður okkar gerir, rækt-
(Frh. af hls. 3)
KAUPENDUR LÖGBERGS OG
HEIMSKRINGLU Á ISLANDI
Gerið svo vel að senda mér sem fyrst greiðslu fyrir
yfirstandandi árgang, kr. 25.00 fyTÍr hvort blað.
Dragið ekki að greiða blöðin. Það léttir innheimtuna.
Æskilegt að gjaldið sé sent í póstávísun. Þeir sem
eiga ógreidda eldri árganga, eru vinsamlega beðnir
að snúa sér til mín.
BJÖRN GUÐM UNDSSON
Mávahlíð 37, Reykjavík.