Lögberg - 15.07.1948, Síða 3
LÖGBERG FIMMTUDAGINN, 15. JÚLÍ, 1948
3
SLYSAVARNAFÉLAG ÍSLANDS TUTTUGU ARA
Business and Professional Cards
Slysavarnaíélag íslands varð
20 ára í lok janúarmánaðar s. 1.
Það er einhver þaríasti félags-
skapur, sem hér hefir starfað á
undanförnum áratugum. Mikill
og góður árangur hefir náðzt af
störfum þess, sem orðin eru
margþætt. Hér verða raktir
nokkrir helztu þættir í þróunar-
sögu félagsins.
Slysavarnafélag íslands var
stofnað 29. jan. 1928. Stofnfélag-
ar voru 128 talsins, þar af 14
konur. 25 stofnfélaganna gerðust
strax ævifélagar. Aðdragandi að
félagsstofnuninni var sá, að
Fiskifélag íslands og skipstjóra-
félagið “Aldan” boðuðu til
fundar 8. des. 1927 til að ræða
björgunarmál, þ. e. skipströnd og
druknanir við strendur landsins
og varnir gegn þeim. Á þeim
fundi var kosin fimm manna
nefnd til að undirbúa stofnun
Slysavarnafélags er næði til
allra landsmanna. — í nefndina
voru kosnir Geir Sigurðsson,
skipstjóri, Guðmundur Björns-
son, landlæknir, Sigurjón Á.
Ólafsson formaður Sjómannafé-
lags Reykjavíkur, Þorsteinn
Þorsteinsson skipstjóri og Jón E.
Bergsveinsson yfir-síldarmats-
maður.
Fyrsti fundurinn
Að loknum undirbúningi boð-
aði nefndin til fundar í Bárubúð
29. janúar. Á þeim fundi var
Siysavarnafélag Islands stofnað,
félag, sem nú hefir skráð innan
sinna vébanda nærri 6. hvern
landsmanna. I fyrstu stjórn fé-
lagsins voru kosnir þeir Guð-
mundur Björnsson forseti, Magn
ús Sigurðsson bankastjóri, gjald
keri, og Geir Sigurðsson skip-
stjóri. Meðstjórnendur voru
kosnir Þorsteinn Þorsteinsson
skipstjóri og Sigurjón Á. Ólafs-
son og hefir hinn síðarnefndi átt
sæti í stjórninni óslitið frá stofn-
degi. — Jón E. Bergsveinsson
var stuttu síðar ráðinn erindrelíi
fyrir félagið og hefir gegnt því
starfi síðan.
Núverandi stjórn
Núverandi stjórn Slysavarna-
félags Islands er skipuð eftirtöld
um mönnum: Forseti Guðbjart-
ur Ólafsson, hafnsögumaður,
varaforseti Sigurjón Á. Ólafsson,
alþm., gjaldkeri Árni Árnason
kaupm., ritari Friðrik V. ólafs-
son skólastjóri, meðstjórnend-
ur: Frú Guðrún Jónasson,, frú
Rannveig 'Vigfúsdóttir og Ólafur
Þórðarson skipstjóri, og enn-
fremur fyrir hönd landsfjórðung
anna, Finnur Jónsson fyrv. ráð-
herra fyrir Vestfirði, Gísli
Sveinsson sendiherra, fyrir Suð-
urland, Óskar Hólm Seyðisfirði,
fyrir Austfirði og Steindór
Hjaltalín Siglufirði, fyrir Norð-
lendingafjórðung.
Skömmu eftir að félagið var
stofnað, skeði hið hörmulega
strand, er togarinn “Jón forseti”
fórst. Félagið var þá ekki búið
að eignast nein tæki, en öll lík-
indi bentu til þess, að hægt
hefði verið að bjarga öllum
mönnunum, ef fluglínutæki
hefðu verið til á staðnum, þetta
varð til þess að ýta undir
marga að ganga í félagið og
styrkja það.
Deildir úli á landi
Fyrsta félagsdeildin, sem stofn
uð var út um land, var slysa-
varnadeildin “Sigurvon” í Sand
gerði, er stofnuð var að tilhlutan
Björns Hallgrímssonar umboðs-
manns félagsins í Sandgerði. —
Stofnendur voru 77. Þetta fyrsta
ár voru einnig stofnaðar félags-
deildir á Akranesi, í Hafnarfirði,
Sandi undir Jökli og Eyrabakka
og Stokkseyri. Þessum deildum
hefir farið sífjölgandi ár frá ári,
þangað til nú að tala deildanna
er orðin 128 og varla er sú byggð
á landinu, sem ekki hefir slysa-
varnadeild innan sinna vébanda.
Sum héruðin, svo sem Akranes
og nærliggjandi sveitir, hafa sett
metnað sinn í að láta ekki finn-
ast hjá sér utanfélaga í Slysa-
varnafélagi íslands. Á Akranesi
sjálfu eru nú starfandi 3 deildir,
karla-, kvenna- og unglingadeild,
með samtals 1460 félögum. Tvær
nýjar deildir, “Faxi” í Innri
Akraneshreppi og “Bjargmundur
í Skilamannahreppi, voru stofn-
aðar með hverju einasta manns-
barni í hreppunum.
Öiulir forusíumenn
í flestum deildunum stajrfa
konur og karlar jöfnum hönd-
um, en 1930 var fyrsta Kvenna
deild Slysavarnafélags íslands
stofnuð í Reykjavík, og nú eru
starfandi 19 kvennadeildir víðs-
vegar um landið ,og hafa kon-
urnar í þeim deildum reynzt
mjög ötular og stórvirkar í fjár-
söínun og vinna að framgangi
félagsins á allan hátt.
Félagið hefir borið gæfu til að
eiga marga ötula forvígismenn,
sem unnið hafa að útbreiðslu fé-
lagsins með ráðum og dáð, og
þó sennilega engan fremri en sr.
Jón Guðjónsson prest að Akra-
nesi, sem stofnað hefir fleiri fé-
lagsdeildir en nokkur annar.
Almennar vinsældir
Félagið hefir frá byrjun átt
miklum og almennum vinsæld-
um að fagna, þeix eru víst fæstir
íslendingar, sem komnir eru til
vits og ára, sem ekki hafa veitt
því stuðning á einn eða annan
hátt. Strax og félagið tók til
starfa, erfði það ýmsa sjóði, er
stofnað hafði verið til í slysa-
varnaskyni, svo sem fé það,
rúmar 4 þús. krónur, er safnað
hafði verið til kaupa á björgunar
bát í Reykjavík, eftir að Reyk-
víkingar höfðu orðið að horfa á
kútter “Ingvar” farast fyrir aug-
unum á sér með allri áhöfn á
Viðeyjarsundi, án þess að geta
nokkuð aðhafst.
Stjórnendur gamla þilskipa-
ábyrgðarfélagsins í Reykjavík
létu sjóðeign þess, tæpar 18
þús. krónur, renna til félagsins,
og margir einstaklingar hafa
gefið félaginu stórgjafir, bæði
fyrr og síðar. Landsbanki Is-
lands hefir tvisvar ánafnað fé-
laginu 50 þús. króna gjöf á hátíð
legum tímamótum sínum, Al-
þingi, Reykjavíkurbær og ýms-
ar tryggingastofnanir hafa
styrkt félagið allverulega og
gera enn með árlegum fjárfram-
lögum, en aðaltekjur sínar fær
félagið með fjáröflunarstarf-
semi félagsdeildanna og með
sölu merkja og samúðarkorta.
Tekjur félagsins hafa aukizt
með hverju ári og mest hefir
tekjuaukningin orðið síðustu
árin. —
Á 5 ára afmælinu voru árs-
tekjurnar kr. 27.857,25.
Á 10 ára afmælinu voru árs-
tekjurnar kr. 56.968,74.
Á 15 ára afmælinu voru árs-
tekjurnar kr. 119.501,80. Á 20 ára
afmælinu voru árstekjurnar
kr. 720.699,71.
Á 15 ára afmæli félagsins námu
skuldlausar eignir félagsins kr.
476.951,29, en nema nú krónur
1.667.132,82, að frádreginni ár-
legri fyrningu. Er þá ekki með
talið það fé, sem er í vörslu
hinna ýmsu deilda og ákveðið
hefir verið að verja í vissu
augnamiði, svo sem til smíði
björgunarskipa fyrir Vestfirði
og Norðurland. Það er ósk allra
sem slysavarnastarfseminni
unna að félagið þurfi aldrei að
skorta fé til kaupa á nýjum
björgunartækjum né til að við-
halda þeim tækjum sem það á
fyrir.
Björgunartæki
I fyrstu lét félagið sig aðallega
varða sjóslysin, sem þá voru hér
ískyggilegust allra slysa. Ein-
hver fyrsta samþykktin, sem fé-
lagið gerði, var að skora á ríkis-
stjórnina að “útbúa hin nýju
varðskip sín fullkomnum björg-
unarbátum er fljótlega mætti
setja út og ekki gætu sokkið,
eins að hafa um borð hjúkrunar-
útbúnað og næg meðöl handa
sjúkum mönnum”. “Einnig að
vinna að því, að sjómenn á
smærri bátunum tækju upp
þann sið að ganga jafnan í
björgunarvestum, er þeir færu á
sjó”. — En það er sorgleg stað-
reynd, að þótt liðin séu 20 ár
sjoan þessar samþykktir voru
fyrst gerðar, þá hefir hvorugri
þeirra verið ennþá fullnægt. —
Varðskipin eru ennþá ekki út-
búin þeim fullkomnustu björg-
unarbátum, sem þekkjast og sjó-
menn róa enn á smærri bátum,
án þess að hafa sundbelti með
sér, hvað þá heldur að hafa sund
belti á sér meðan þeir eru á sjón-
um. En þetta hvorutveggja hefði
áreiðanlega sparað mörg manns
líf ef því hefði verið framfylgt.
En árangurinn af annarri
slysavarnastarfsemi félagsins
hefir verið giftudrjúgur. Dauðs-
föll af skipsströndum, sem áður
voru svo tíð hér á landi, eru nú
næstum úr sögunni, og má það
að mestu þakka björgunarstöðv-
um Slysavarnafélags Islands, er
komið hefir verið fyrir víðast
hvar þar sem búast má við að
skip strandi, og einnig þeim
auknu öryggistækjum, sem skip-
in sjálf eru útbúin með, oft og
tíðum fyrir tilstilli Slysavarna-
félags Islands.
Árangursríkl starf
Á fyrsta aldarfjórðungi þess-
arar aldar er talið að um 377
skip ýmissa þjóða hafi strandað
hér við land og af áhöfnum þess
ara skipa er talið að 1960 hafi
farizt. En á þeim 20 árum, sem
liðin eru frá því Slysavarnafé-
lag íslands var stofnað, hafa
þessi hlutföll snúizt alveg við.
Síðan 1928 er talið að hér við
ströndina hafi farizt 155 skip,
með um 2031 manna áhöfn. Af
þessum rúmum tvö þúsund
skipbrotsmönnum drukknuðu
(Frh. af bls. 2)
um við ekki trúmennsku og þegn
skap. Á meðan við kunnum ekki
að meta það, sem ve 1 er gert,
hvorki í orði eða verki, ölum við
okkur aðeins upp duglitla miðl-
ungsmenn. Við þurfum að hrista
af okkur þennan smáborgara-
skap, að þora ekki, eða vilja ekki
viðurkenna neitt, sem vel er
gert hjá náunganum. Það er
menningu okkar fjötur um fót,
og í slíku andrúmslofti eru eng-
in vaxtarskilyrði fyrir áhuga,
þegnskap og skyldurækni.
Mannkyn allt er nú statt á
Heljardalsheiði ískaldrar járn-
og stálmenningar. Spekingar og
spámenn deila um, hvað gangi að
heiminum, deila um áttirnar.
Hver vill halda sína götu, en á
meðan týnast menn úr hópnum
og farast. Sumir hrópa á nýtt
skipulag, sem muni bjarga heim
inum og menningu hans, og sá
hópur er fjölmennur. Aðrir láta
sér detta í hug, að gott skipulag
komi því aðeins að gagni, að til
séu góðir og þroskaðir menn, sem
geta framkvæmt það.
183, en 10 urðu úti af vosbúð og
kulda, en öllum meginþorra
þessara manna, eða samtalsl841
var bjargað úr bráðri hættu, þar
af 356 beinlínis með tækjum
Slysavarnafélags Islands og fyr-
ir atbeina björgunarsveita þess.
Hinir eru þó miklu fleiri, sem
télagið hefir orðið að liði með
því að kalla til hjálp og liðsinna
á annan hátt. Það mun aldrei
véfengt að það starf, sem félagið
hefir unnið í þeim efnum er ó-
metanlegt.
57 björgunarsiöðvar
Félagið á nú og rekur samtals
57 björgunarstöðvar við strend-
ur landsins, þar af eru 16 skip-
brotsmannaskýli með góðum
hjúkrunarútbúnaði, sem að j
mestu má þalcka umhyggju!
kvennadeildanna og frábærum1
dugnaði þeirra að safna fé í
þessu skyni. Tvær stöðvar eru
útbúnar með mótorbjörgunar-
bátum og 9 með brimróðrabát-
um. Þá eru 22 stöðvar útbúnar
1. flokks fluglínutækjum.
Björgunarsveitir félagsins á
hinum ýmsu stöðum eru kunn-
ar fyrir hin ýmsu björgunaraf-
rék sín, má þar nefna Grinda-
vík, Sandgerði, Vík í Mýrdal og
víða austur með ströndum, Ak-
urnesinga, Snæfellinga og síðast
en ekki sízt Barðstrendinga, er
gátu sér verðskuldaða frægð
fyrir björgunarafrek sín og
íórnarlund við Látrabjarg.
Sæbjörg
Félagið á einnig björgunar-
skipið Sæbjörgu, sem hefir ver-
ið umbyggð og sett í ný og afl-
mikil vél og mun vera eitt full-
komnasta skip sinnar tegundar,
að styrkleika og öllum útbúnaði.
Þau átta ár, sem björgunarskipið
Sæbjörg hefir unnið að björg-
unarstörfum hér við Faxaflóa,
aðstoðaði hún samtals 224 skip
með samtals um 1257 manna á-
höfn, oftast í óveðrum og undir
verstu kringumstæðum og verð-
ur sú hjálp, sem skipið er búið
að veita íslenzkri útgeið og ís-
lenzkum sjómönnum vart metin
til fjár.
Félagið hefir stöðugt verið að
færa út verksvið sitt, og telur sér
engar slysavarnir óviðkomandi,
hvort sem er á sjó eða landi,
þannig hefir félagið kappkostað
að koma á víðtækri fræðslu í
hjálp í viðlögum og umferða-
menningu á vegum úti.
Sjómannablaðið Víkingur ósk-
ar Slysavarnafélaginu allra
heilla. Megi störf þess blessast
og bera heillaríkan árangur fyr-
ir land og lýð.
Sjómannablaðið Víkingur.
En það sem spekingum er
hulið, er smælingjum stundum
opinberað. Hinn fyrirlitni Hóla-
biskup, sem alþýðan sæmdi þó
hinu mesta tignarheiti, sem tung
an á, gefur hér skýrt svar. For-
dæmi hans á Heljardalsheiði,
hetjulund og fórnarþel, er lex-
ían, sem okkar hjartakalda menn
ing þarf að nema. Það er fórnar
og hetjulund hans og ósvikin
skyldutilfinning, sem bjargaði
litlu stúlkunum, og það er slíkt
hugarfar og ekkert annað, sem
getur bjargað okkar áttavilltu
menningu ofan af þeirri Heljar-
dalsheiði, sem hún er nú stödd á:
Það verða ekki peningar, ekki
skipulagið eitt, ekki einvaldsherr'
arnir, sem drottna nú yfir hálf-
um heiminum, sem koma menn-
ingu okkar aftur á réttan kjöl,
það verða miklu fremur menn
með hugarþeli Guðmundar góða.
Það verða hetjur hversdagslífs-
ins. —
Á gröf þess óþekkta hermanns
eiga kynslóðir framtíðarinnar að
leggja heiðurskrans sinn.
Stígandi.
SELKIRK METAL PRODUCTS LTD.
Reykháfar, öruggasta eldsvörn,
og ávalt hreinir. Hitaeining, ný
uppfynding, sparar eldiviö,
heldur hita.
KEIjHY sveinsson
Simi 54 358.
187 Sutherland Ave., Winnípeg.
S. O. BJERRING
Canadian Stamp Co.
RUBBER & METAL STAMPS
NOTARY & CORPORATE SEALS
CELLULOID BUTTONS
324 Smilh St. Winnipeg
Office Ph. 95 668 Res. 404 319
NORMAN S. BERGMAN, B.A., LL.B.
Barrister, Solicitor, etc.
617 Mclntyre Block
WINNIPEG CANADA
447 Poriage Ave. Winnipeg
Manitoba Fisheries
WINNTPEG, MAN
T. Bercoritr.h, fmmkv.stj.
Verzla i heildsölu með nýjan og
frosinn flsk.
303 OWENA STREET
Skrifst.sinit 25 355 Heima 66 462
DR. A. V. JOHNSON
Dentlst
606 SOMERSET BUILDING
Telephone 97 932
Home Teiephone 202 398
Taisími 95 826 Heimilis 53 893
DR. K. J. AUSTMANN
SérfrœOingur i augna, eyrna, nef
og kverka sjúkdómum.
209 Medical Arts Bldg.
Stofutíml: 2.00 til 5.00 e. h.
DR. ROBERT BLACK
Sérfræöingur í augna, eyrna,
nef og hdlssjúkdómum.
401 MEDICAL ARTS BLDG
Graham and Kennedy St.
Skrifstofusimi 93 851
Heimasími 403 794
EYOLFSON’S DRUG
PARK RIVER, N. DAK.
Islenzkur lyfsali
F61k getur pantaö meöul og
annaö meö pðsU.
Fljót afgreiösla.
A. S. B A R D A L
848 SHERBROOK STREET
Selur Ukkistur og annast um Ot-
farir. Allur öthúnaður sá beztl.
Ennfremur selur hann allskonar
minnisvarða og legsteina.
Skrifstofu talsfmi 27 324
Heimilis talsimi 26 444
Geo.^. Waldren, M. D.
Physician and Surgeon
Cavalier, N. D.
Office Phone 95. House 108.
PHONE 94 981
H. J. H. PALMASON
and Company
Chartered Accountants
219 McINTYRE BLOCK
Winnlpegt Canada
Phone 49 469
Radio Service Speclalists
ELECTRÖNIC LABS.
B. THORKELSON, Prop.
The most up-to-date Sound
Eguipment System.
130 OSBORNE ST., WINNIPEG
JOHN A. HILLSMAN.
M.D.. Ch. M.
627 Medical Arts. Bldg.
Office-99 349 Home-403 233
PHONE 87493
Dr. S. J. Jóhannesson
SUITE 7 VINBORG APTS.
594 Agnes St.
Viötalstimi 3—5 eftir hádegl
DR. E. JOHNSON
304 EVELINE STREET
Selkirk, Man.
Offlce hrs. 2.30—6 p.m.
Phones: Office 26 — Res. 230
Offlce Plione Res Phone
94 762 72 409
Dr. L. A. Sigurdson
528 MEDICAL ARTS BLDG.
Office Hours: 4 p.m.—6 p.m.
and by appolntment
Drs. H. R. and H. W.
TWEED
Tannlœknar
406 TORONTO GEN. TRUSTS
BUILÐING
Cor. Portage Ave. Og Smlth St.
PHONE 96 952 WINNIPEG
Dr. Charles R. Oke
Tannlœknir
For Appointments Phone 94 908
Office Hours 9—6
404 TORONTO GEN. TRUSTS
BUILDING
283 PORTAGE AVE.
Winnipeg, Man.
SARGENT TAXI
PHONE 34 555
For Quick Reliáble Service
J. J. SWANSON & CO.
LIMITED
308 AVENUE BLDG WPG
Fasteignasalar. Leigja hús. Ot-
vega peningalán og elds&byrgö
bifreiðaábyrgð, o. s. írv.
PHONE 97 638
Andrews, Andrews,
Thorvaldson and
Eggertson
Lögfrœöingar
209BANK OF NOVA SCOTIA BG
Portage og Garry St.
Simi 98 291
GUNDRY PYMORE
Limited
British Quality Fish Netting
58 VICTORIA ST„ WINNIPEG
Phone 98 211
Manager T. R. THORVALDBON
Your patronage will be appreclated
CANADIAN FISH
PRODUCERS, LTD.
J. H. PAOE, Managing Director
Wholesale Distributors of Frash
and Frozen Fish.
311 CHAMBERS STREET
Office Ph. 26 328 Res. Ph. 73 917
G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir.
Keystone Fisheries
, Limited
404 SCOTT BLOCK SIMI 96 227
Wholesale Distributors of
FRESH AND FROZEN FISH
Hinn óþekkti hermaður