Lögberg - 22.07.1948, Síða 8
8
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 22. JÚLÍ, 1948
Or borg og bygð
Buses frá Winnipeg og Gimla á
íslendingadaginn 2. ágúsl, n.k.
Þau taka fólk á eftirgreindum
stöðum kl. 9 og kl. 10 að morgn-
inum, miðað við fljóta tímann:
1. Valor Road og Sargent
2. Dominion og Sargent
3. Arlington og Sargent
4. McGeé og Sargent.
Notið tækifærið. Margir hafa
undanfarið kvartað undan að
Buses hafa ekki verið fengin
undanfarið. Notið þau nú. — Ef
ekki, þá verða þau ekki fengin
oftar og þá þýðir ekki að kvarta
við nefndina um það. Munið
einnig, að inngangur í garðinn
er seldur með farmiðunum og
munið, að fargjaldið er $2.10 og
aðgöngumiðar í garðinn 50 sent
fyrir fullorðna en frítt fyrir
börn innan tólf ára.
Miðasölu með Buses verður
lokað föstudaginn 30. júlí. —•
Síðasta Bus fer frá Gimli kl. 12
á miðnætti. Miðar til sölu í
Björnssons Book Store, 702
Sargent Avenue og The *Elic-
trician, 685 Sargent Avenue.
♦
Mr. Bjarni Kolbeins, er ný-
lega kominn hingað til borgar,
ásamt frú sinni, úr heimsókn frá
íslandi; komu þau hjón hingað
til lands með S. S. Tröllafossi;
þau dvöldu heima síðan í ágúst
mánuði í fyrra, að undantekinni
mánaðardvöl á Englandi, en þar
er frú Kolbéins fædd. — Bjarni
kom hingað vestur um haf 1913,
fór brátt til Vancouver og þar
hefir hið rausnarlega og gest-
rsina heimili þeirra hjóna jafn-
an staðið. Bjarni er Húnvetn-
ingur að uppruna; þau hjón
höfðu ósegjanlega ánægju af
dvölinni á íslandi; þau dvöldu
hér í borginni í gistivináttu
þeirra Mr. og Mrs. Ásmundur P.
Jóhannson, en eru nú lögð af
stað vestur til hinnar fögru
Kyrrahafsstrandar.
♦
Ungfrú Hrefna ólafsdóttir frá
Knarrarnesi í Vogum kom til
borgarinnar í fyrri viku, í stutta
heimsókn; hún starfar í þjón-
ustu sendiherra-hjónanna, Hon.
Thor Thors og frú Ágústu
Thors, Washington. — Ungfrú
Hrefna á ættingja í Minnedosa
og brá sér þangað í kynnisför.
•f
Frú Kristrún Sigmundsson
frá Arlington, Virginia, er ný-
lega lögð af stað til íslands í
tveggja mánaða heimsókn; hún
er fædd og uppalin í Reykjavík,
systir Sveins prentara Oddsonar
hjá The Viking Press Ltd., hér í
borg og þeirra OddsoA-bræðra;
frú Kristrún er hin mesta ágætis
kona, og var því viðbrugðið, hve
rausnarlega hún jafnan tók á
móti íslenzku námsfólki, er til
Bandaríkjanna leitaði meðan á
stríðinu stóð; hún fór heim með
Tröllafossi, hinu mikla og fagra
skipi Eimskipafélags Islands.
f
Magnús Markússon skáld er
nýfluttur frá Ste. 24 Dorothy
Apts., og á nú heima að 704
Langside Street. Sími 88 118.
Nú er fullráðið að Dr. Richard
Beck flytji ræðu á sunnudaginn
kemur við afhjúpun á minnis-
varða Jóhanns Magnúsar Bjarna
sonar skálds, sem fram fer í
Elfros.
•f .
Frú Jónasína Jóhannesson,
sem um langt áraskeið hefir átt
heima á Simcoe Street, og er
vinmörg hér í borg, lagði af
stað vestur til Burnaby, B. C., á
laugardaginn 'var, og ráðgerði að
dvelja þar framvegis hjá dóttur
sinni og tengdasyni.
-f
Jón Valdimar Eylands, sonur
þeirra séra Valdimars og frú
Lilju Eylands, sem dvalið hefir
árlangt á íslandi, ásamt foreldr-
sínum og systkinum, kom hingað
flugleiðis aðfaranótt síðastliðins
sunnudags; bar hann landi og
þjóð söguna hið bezta.
Séra Valdimars og fjölskyldu
mun von hingað frá New York
þann 27. þ. m.
-f
Síðastliðið fimtudagskvöld
varð Gísli Markússon Blöndal
fyrir bifhjóíi, er maður að nafni
Arthur G. Reynolds ók: og beið
Gísli bana af árekstrinum; slysið
vildi til á mótum Arlington og
Home stræta, og var Gísli þá á
heimleið úr byggingu þjóðrækn-
isfélagsins á Home Street, þar
sem áður var Jóns Bjarnasonar
skóli, en þar skemti hann sér tíð
um við spil á kvöldin. Gísli var
82ja ára að aldri, hæglátur og
vinsæll maður; hann var föður-
bróðir óperusöngkonunnar víð-
kunnu, Maríu Markan-östlund
hann lætur eftir sig þrjár dætur,
og er ein þeirra Mrs. R. Bowley.
Útför Gísla fór fram síðastliðinn
þriðjudag.
-f
Ungfrúrnar, Guðný Halldórs-
dóttir frá Reykjavík óg Elise
Meygr frá Oslo, eru um þessar
MESSUBOÐ
Fyrsta Lúterska Kirkja
Guðsþjónustur í Fyrstu lút-
ersku kirkju eftir sumarfríið,
verða fluttar sem hér segir: —
íslenzk messa sunnudaginn 8.
ágúst, kl. 7 e. h. — Ensk messa
sunnudaginn 12. sept., kl. 11 f.h.
f
Argyle presíakall
Sunnudaginn 25. júlí, á 9.
sunnud. eftir Trínitatis: Baldur,
kl. 11 f. h. — Grund, kl. 2,30 f.h.
— Glenboro kl. 7,00 e. h. — Séra
E. H. Fáfnis prédikar við þessar
þrjár guðsþjónustur. — Allir
boðnir velkomnir.
Eric H. Sigmar.
, -f
Gimli prestakall
25. júlí: Ensk messa að Gimli,
kl. 11 f.h. — Messa að Húsavick
kl. 2 e. h. — Allir boðnir og
velkomnir.
Skúli Sigurgeirson.
Árborg-Riverton prestakall
25. júlí: Víðir, ensk messa kl.
2 e. h. — Árborg, íslenzk messa
kl. 8 e. h. — 1. ágúst: Framnes,
messa kl. 2 e. h. — Riverton, ís-
lenzk messa kl. 8 e. h.
B. A. Bjarnason.
f
Ensk guðsþjónusta, ferming
og altarisganga í Concordia-
kirkju, sunnudaginn 25. þ.m., kl.
I eftir hádegi.
s. s. c.
f
Lúterska kirkjan í Selkirk
Messa byrjar á ný sunnudag-
inn, 8. ágúst. — Ensk messa kl.
II árd. — íslenzk messa kl. 7
síðdegis. Fólk vinsamlega beðið
að veita þessu athygli.
S. Ólafsson.
mundir staddar í borginni. Þær
komu frá Berkley, California,
þar sem þær hafa stundað nám
við háskólann og eru á heimleið.
Guðný er dóttir Halldórs Thor-
steinssonar útgerðarmanns og
konu hans frú Ragnhildar Péturs
dóttir frá Háteigi, Reykjavík. —
Ungfrúrnar eru til heimilis hjá
Mr. Finni Johnson, meðan þær
dvelja hér í borginni.
f-
Dáinn er að heimili sínu í
Blaine, Washington, Áskell
Brandsson, 72 ára gamall. Hann
dó snögglega af hjartabilun. Var
því fráfall hans vinum og vanda
mönnum sárt og sviplegt harms
efni. Hann nefndi sig ætíð Kela
Brandsson og með því nafni var
hann þektur. Hans verður nán-
ar minst síðar. A. E. K.
f
Hinn 9. júlí andaðist að heim-
ili sínu í Blaine, Ingibjörg
Dorotea Erlendsdóttir, Kárason.
Hún var fædd í Reykjavík, 14.
marz, 1876. Foreldrar: Erlendur
Hannesson og María Gísladóttir.
Hún fluttist með mógur sinni til
Canada 1900, að föður sínum
látnum. Fluttist vestur að hafi
1905 og bjó fyrst á Pomt Roberts
og síðar í Bellingham. Giftist
1907 eftirlifandi manni sínum,
Guðbjarti Kárasyni, úr Stranda-
sýslu. Þau eignuðust þrjá syni:
Maríus Ágúst, dáinn 1937, mesta
efnismanni, Halldór Karl, á
kennaraskólanum í Bellingham
og Erlendur Helgi, vinnur á inn-.
flutninga- og tollgæzlu skrif-
stofunni í Blaine. Meðal annara
náinna skyldmenna eru Hall-
dóra, Bertína, Hel'ga — Mrs.
Fergusson og Jóhannes, öll
systkini og búa í Vancouver, B.C.
A. E. K.
f
Laugardaginn 17. júlí voru gef
Manitoba Birds
COWBIRD—Molthrus Ater
Distinction. A small Blackbird, with short, sparrow-like
bill. Male is jet black-with metallic reflections and a seal-
brown head. Female is uniform ashy-brown, lighter on
throat. Western females show a faint striping below that
is less apparent in eastern specimens. Juveniles are simi-
lar to females, but more light-buffy with many soft, brok-
en, dark stripes below, and all feathers edged with buffy
ochre.
Field Marks. A small Blackbird, with dark eyes and short
bill; no decided markings anywhere. Notes: a harsh rattle
and a grating squeak.
Nesting. Eggs laid in nests of other, usually smaller birds.
Entirely parasitic. Once the foster-parents accept the in-
truding egg they do not make any difference between it
and their own. It hatches a few hours earlier than other
eggs and consequently is stronger and is able to monopo-
lize the food from, and finally hoist the rightful occupants
from the nest.
Economic Slalus. From a study of their food, Cowbirds
would seem to be purely useful birds. They consume large
amounts of weed seeds and harmful insects.and only small
quantities of waste grain and wild fruit. However, as
practically every Cowbird raised to the fledgling stage
means the elimination of nestful of other Species, puts a
different value on their activities.
This space coniribuied by
Shea'i Winnipeg Brewery Limiied
MD212
in saman í hjónaband í Fyrstu
Lútersku kirkjunni í Winnipeg,
af séra Sigurði Ólafssyni, Gilberi
Raymond Tryggvi Ámundsson,
Selkirk, Man., og Guðrún Elanor
Olive Johnson, sama staðar. Við
giftinguna aðstoðuðu Mrs. Helga
S. Gregory, og Mr. Clifford S.
Ámundson, bróðir brúðgumans.
Meðan á skrásetningu stóð
sungu þær Mrs. Th. Thorvaldson
og Mrs. Gíslason. Brúðguminn
er sonur hjónanna Ágúst Ámund
son og Stellu May Stefánson,
sem bæði eru dáin. Brúðurin er
dóttir Mrs. Clöru S. Johnson,
Selkirk og látins eiginmanns
hennar, Oliver J. Johnson. Að
giftingar athöfn afstaðinni, var
setin vegleg veizla á Royal
Alexandra hóteli af 60 vinum og
vandamönnum. Þar sungu Mrs.
Th. Thorvaldson og Miss Thor-
valdson, og naut fólk þar ánægju
legrar stundar frameftir kvöld-
inu. —
Frá Sumarbúðum Bandalags
Lúterskra Kvenna
Fyrsti hópur barna hefir nú
dvalið í sumarbúðunum á þessu
sumri. Börn á aldrinum 6—10
ára. Þennan tíma dvöldu nálægt
sextíu manns, að starfsfólki
meðtöldu. Miss Jennie Johnson
kenslukona frá Winnipeg hafði
aðalumsjón með öllu starfi og
leysti það verk af hendi af mik-
illi snild. Fimm konur frá
Winnipeg höfðu á hendi alt starf
í eldhúsi og borðstofu: Þær Mrs.
S. O. Bjerring, Mrs. G. Jóhanns-
son, Mrs. J. Gillies, Mrs. V.
Pelink og Mrs. Helga Johnston.
Mrs. W. Olson, einnig frá Minni-
peg var þar sem hjúkrunarkona.
Miss Joyce Anderson, Winnipeg,
er sundkennari sumarbúðanna
fyrir sumarið. Þrír piltar og
þrjár stúlkur voru leiðtogar
Phone 21 101 ESTXRÍATBS
FREE
J. M. INGIMUNDS0N
Asplialt Roofs and Insnlated
Sidlng — Repairs
532 SIMOOE ST. Winnipeg, Man.
— Councilors — eru þrír þeirra
frá Selkirk og þrír frá Winnipeg.
Alt þetta starfsfólk að sundkenn
aranum undanteknum, gefur alt
þetta starf.
Sunnudaginn 11. júlí var gest-
kvæmt í sumarbúðunum; voru
þar ýmsir langt að komnir. —
Guðsþjónusta var haldin kl. 2
e. h. Séra Kolbeinn Simundsson
frá Seattle prédikaði. Var það
innilegt gleðiefni að hann og
börn hans þrjú voru stödd hér
þann dag.
Mánudagskvöldið 12. júlí var
loka-samkoma þessa flokks. Vand
að prógram undir umsjón Miss
Johnson fór fram; æði fjölmenn
hópur gesta var þar viðstatt. —
Dáðust allir að, hve vel börnin
leystu af hendi hlutverk sín. —
13. júlí fóru börnin heim og síð-
an komu eldri unglingar og nýtt
starfsfólk, sem einnig munu
gefa sitt starf. — Bandalag
Lúterskra Kvenna þakkar af
hjarta öllum þeim sem gefa
krafta sína og tírfra til þessa
starfs, og biður að þeim megi
verða það ríkulega endurgoldið.
Ingibjörg J. Ólafsson.
♦
The Icelandic Lutheran
Church was the scene of a wed-
ding June 26th at 6.30 p.m., when
Gudrun, eldest daughter of Mr.
and Mrs. Th. Gudjon Bjornson,
of Riverton, became the bride of
James Chapman, son of Mr. and
Mrs. George W. Chapman, of
Winnipeg. Rev. E. Brynjolfson
officiated. Wedding music was
played by Mr. Lupton. Miss
Gwen Patrick was soloist.
The bride wore white satin
and the bodice with a nylon
yoke and lily point sleeves and
a coronet of seed pearls held a
fingertip veil. She carried Joan-
na Hill roses.
Miss Alice Bjornson, sister of
the bride, was bridesmaid, and
Robert Dryborough was best
man. Ushers were Leo Beau-
champ and Arthur Chapman.
A reception was held at the
St. Regis Hotel. Following a
wedding trip to Kenora, Mr. and
Mrs. Chapman will reside in
Winnipeg.
-♦-
Þeir séra Egill H. Fáfnis kirkju
félagsforseti frá Mountain, N.-
Dakota, og séra Halldór E. John
son ritari Þjóðræknisfélagsins
frá Lundar, voru í borginni á
mánudaginn.
Minnist
BETEL
í erfðaskrám yðar
\,------------L----—-----
The Swan Manufacturing Co.
Manufacturers of
SWAN WEATHER STRIP
Halldor Methusalems Swan
Eigandi
Heimili 912 Jessie Ave.
281 James St. Phone 22 641
TIL KAUPENDA
LÖGBERGS og HEIMSKRINGLU
Frá því var nýlega skýrt í báðum íslenzku blöðunum
vestan hafs, að verð æfiminninga, sem færu yfir 4 ein-
dálka þumlunga, yrði framvegis reiknað 20 qents á
þumlunginn; þetta er að vísu ekki mikill tekju auki, en
þetta getur dregið sig saman og komið að dálitlu liði.
Fyrir samskotalista reiknast 50 cents á þumlunginn.
Aðrar auglýsingar kosta 70 cents eindálka þumlungur.
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
THE VIKING PRESS LIMITED
♦ ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ ♦ ♦ ♦
lslendináadaáurinn
í GIMLI PARK
MÁNUDAGINN, 2. ÁGUST, 1948
Forseti, STEINDÓR JAKOBSSON, Fjallkona Miss MATTHILDUR HALLDÓRSSON
Hirðmeyjar, Miss SIGRID BARDAL og Miss SIGRÚN ADA THORGRÍMSSON
Skemtiskrá hefst kl. 2 e .h. íþróttir byrja kl. 11 f. h.
SKEMTISKRÁ:
1. O Canada
2 Ó, Guð vors lands
3. Forseti, Steindór Jakobsson setur
hátíðina
4. La Verendrye hljómsveitin leikur,
undir stjórn Mr. Henry Duyvejonck
5. Ávarp Fjallkonunnar, Miss Matthildur
Halidórsson
6. Einsöngur, Mrs. Rósa Hermannsson,
Vernon
7. Ávarp gesta
8. Einsöngur, Elmer Nordal
9. Minni íslands, ræða, séra Valdimar
J. Eylands
10. Einsöngur, Mrs. Vernon
11. Minni íslands, kvæði. — Gunnar
Sæmundsson
12. Einsöngur, Elmer Nordal
13. Minni Canada, ræða. — Mr. Norman
Bergman
14. Einsöngur, Mrs. Vernon
15. Minni Canada, kvæði, Mrs. Lenora
Jóhannson, Hilker, (J. J. Bildfell)
16. Hljómsveitin
GOD SAVE THE KING
Skrúðganga. Fjallkonan leggur blómsveig á landnema minnisvarðann. Klukkan 6
Community söngur undir stjórn Paul Bardal. Kl. 9 dans á Gimli Pavilion. O. Thor-
steinson Old Time Orchestra spilar fyrir dansinum. Aðgangur í skemtigarðinn 50
cent fyrir fullorðna en frítt fyrir börn innan tólf ára. Gjallarhorn verða þau beztu.
Sérstakur pallur fyrir gullafmælisbörnin og gamla fólkið á Betel. Hljómsveitin leik-
ur að morgninum. Ágætar veitingar. Far með járnbraut er $1.75 fram og til baka.
Vanalegar áætlanir. Buses fara frá Valour Road og Sargent kl. 8.40, Dominion og Sar-
gent, Arlington og Sargent, McCee og Sargent kl. 9 f. h. til Gimli. Far $2.10 og miða
verðu,r að kaupa fyrirfram í Björnssons Book Store, 702 Sargent Ave., eða The
Electrician 685 Sargent. Miðasölu lokað 30. júlí, föstudag.