Lögberg - 12.08.1948, Blaðsíða 7
LÖGBERG, FIMTUDAGíNN 12. ÁGÚST, 1948
7
Icelandic Canadian Club
Ársfundur I. C. C. var hald-
inn í Federated Church Parlors,
Banning St., 21. júní s. 1. Forseti
Axel Vopnfjörð, stýrði fundi og
gaf yfirlit yfir starf félagsins á
árinu. —
Skýrslur voru lesnar frá hin-
um ýmsu starfsnefndum og
embættismönnum, sem fylgir:
Membership Commitlee: Miss
S. Eydal sem skýrði frá að 19
nýir meðlimir bættust við á ár-
inu. Treasurer's Report: Miss
Steinunn Bjarnason, sem sýndi
að í sjóði eru 242.30, en um
150.00 af því tilheyra sjóði, sem
notaður verður til þess að prenta
tónverkasaín það sem nú er ver-
ið að undirbúa, undir forustu
Mrs. Louise Guðmunds.
Music Commitiee: Mrs. Guð-
munds sagði frá því 61 bréfi
hefðr verið útbýtt, sem báru
þann árangur að 36 tónlög og 9
hefti sem innihalda 150 tónverk,
alt frá 18 höfundum, voru send
til hennar. Samt eru þó nokkrir
enn sem nefndin hefir í huga að
komast í samband við. Tónlistar
verk eftir 15 höfunda voru sung-
in og leikin á hljóðfæri, á sam-
komu 10. maí s. 1., íyrir fullu húsi
í I.O.G.T. Hall, og verk eítir 5
höfunda voru sungin á tveimur
fundum. Æfisöguágrip þessara
höfunda voru prentuð og út-
býtt, fólki til upplýsingar. Mrs.
Guðmunds flutti erindi um:
“History of Icelandic Music”.
Social Commillee: Mrs. Kay
Palmer, sem tók við af Mrs. Enu
Anderson þegar hún flutti vest-
ur að hafi í haust sem leið,
skýrði frá skemtifundunum sem
haldnir voru. Miss Betty White
skemti með því að lýsa ferð sinni
til London og hinum konunglegu
brúðhjónum sem hún sá. Mrs.
Elma Gislason skemti þrisvar
með söng. Tombóla og dans var
haft til skemtunar 26. apríl. Mrs.
Baldwin buðu heim til sín þeim,
sem skemtu á samkomunni 10.
maí, ásamt nokkrum vinum.
Icelandic Canadian Evening
School: Capt. W. Kristjánsson
hafði veitt tilsögn í íslenzkum
bókmentum, lesið og útskýrt
kvæði og leikrit eftir sex vestur
íslenzka höfunda. Nemendur
hans voru tólf alls sem létu í ljós
að þeir æsktu eftir áframhaldi á
tilsögn þessari næsta ár. — Tvö
erindi voru flutt á fundum,
“Laxdæla’-, Próf. Skúli John-
son, og “Historical Glimpses of
Lclandic Pioneers in Winnipeg”,
framhald af öðru erindi sem
flutt var í fyrra, af Mr. J. J.
Bildfell. —
Icelandic Canadian Magazine:
Skýrslur voru lesnar af Mrs.
Grace Thorsteinson, Mr. H. F.
Danielson. Og sýndu þær að út-
gáfa ritsins gengur ljómandi
vel, áskrifendur telja um 800 og
í sjóði eru um 1617.64.
Community Hall: Mr. Paul
Bardal lagði til að félagið lofaði
aðstoð sinni við þessa byggingu
strax, og verkið yrði hafið af
Þjóðræknisfélaginu — það væri
engu sérstöku mögulegt að lofa,
en félagið mundi gjöra sitt ýtr-
asta. Fundurinn var þessu sam-
þykkur.
Kosningar fóru fram sem
Past-President, Mr. Carl Hall-
son.
President, Mr. Axel Vopn-
fjörð.
Secretary, Miss Mattie Hall-
dórson.
Treasurer, Miss Villa Eyjólf-
son. —
Enecutive Commitee: Dr. L. A.
Sigurdson, Mr. Paul Bardal,
Mrs. B. S. Benson, Miss L. Gutt-
ormsson, Miss G. Gunnarson.
Social Committee: Mrs. Kay
Palmer, Miss H. Eggertson, Mrs.
G. Gunnlaugson, Mrs. L. Ric-
hardson, Mr. J. Laxdal.
Membership Committee: Miss
S. Eydal, Miss S. Johnson, Mr.
J. Jónasson.
Magazine Committee: Chair-
man: Mrs. H. F. Danielson,
business manager: Mrs. Grace
Thorsteinson, circulation mana-
ger. Mr. H. F. Danielson. Others:
Judge W. J. Lindal, Próf. T. J.
Olesan, Mr. H. Thorgrimsson,
Mr. Halldór Stefánsson.
War Effort: Miss Mattie Hall-
dórson.
News Editors: Miss S. Eydal,
Miss C. Gunnarson.
Lilja M. Guttormsson,
Secretary.
Dularfullt hvarf 1 4 nótabáta,>
sem Islendingar áttu
Finnar voru að flylja báta til
útskipunarhafnar, er þeir hurfu,
ásaml mönnunum, sem fluttu þá
Eftir áreiðanlegum fregnum,
sem Tíminn hefir afiað sér,
munu fjórtán nótabátar, sem
smíðaðir voru í Finnlandi í vet-
ur handa íslenzkum útgerðar-
mönnum, hafa horfið með dular
fullum hætti, þegar verið var að
flytja þá til hafnar til afhend-
ingar. Er talið, að bátum þessum
hafi verið rænt frá Finnum. —
Mennirnir, sem fluttu þá hurfu
einnig.
Smíðaðir úr amerískri eik
frá íslandi
Það er upphaf þessa máls, að
íslendingar létu ,í vetur smíða
handa sér sextíu nótabáta í Finn
landi. Voru þeir að nokkru leyti
úr amerískri eik, sem flutt var
hingað inn eftir styrjöldina og
síðan flutt aftur til Finnlands.
Hefir eik þessi löngum verið
kennd við ráðfierrann, sem fyrir
innflutningi hennar stóð, en það
er Áki Jakobsson.
Með þessum eikarflutningum
til Finnlands hefir verið höggvið
mjög nærri íslenzkum bátasmíð-
um, sem geta nú varla fengið eik
til brýnna viðgerða, þótt ekki
sé minnst á þá reginfirru að
borga erlendan gjaldeyri fyrir
að smíða erlendis báta, sem hægt
væri að byggja hér með sam-
keppnisfæru verði og mun betur
úr garði gerða. En það er önnur
saga, og hefir áður verið vikið
nokkuð að því í Tímanum.
Báiarnir fluiiir heim
Fyrstu bátarnir af þessum
sextíu komu með Hvassafelli til
Akureyrar um síðustu helgi. —
Voru það 18 bátar, eða eins marg
ir og upphaflega var ráð fyrir
gert. Þeir bátar, sem Hvassafell
tók til flutnings, voru í Helsing-
fors, þar sem skipið hlóð, og
þurfti því ekki að flytja þá báta
neitt á milli hafna til að koma
þeim á skip. Hvassafell gat ekki
tekið fleiri báta í Helsingfors,
en allmargir bátar munu hafa
orðið þar eftir, þegar Hvassafell
fór. —
Þá 42 báta, sem eftir voru, var
ráðgert að flytja hingað með
finnsku skipi, Torando að nafni.
Er það finnskt Ameríkufar. Það
var væntanlegt hingað í nótt. —
En það er ekki með alla þá báta,
er búizt var við, því fjórtán bát-
anna virðast nú með öllu týndir,
hvernig sem á því kann að
standa.
Bannsvæðið, þar sem Rússar
ráða einir
Eins og kunnugt er hafa Rúss-
ar þröngvað Finnum til að láta
af hendi við rússnesk hernaðar-
yfirvöld allmikið landsvæði. —
Hafa Rússar til dæmis Porkala
algjörlega á valdi sínu, svo ræki-
lega að það er algjört bann-
svæði. Skipaferðir um skerja-
garðinn þar fyrir utan eru með
öllu bannaðar, nema um rúss-
nesk skip sé að ræða, og verða
skip þau, sem þurfa að komast
frá einum landshluta til annars,
því að fara langt á haf út fyrir
rússneska yfirráðasvæðið.
Þurfiu að fara fram hjá
Skipið, sem átti að taka nóta
bátana til íslands, hlóð í Hangö
og þurfti því að fara með þá báta,
sem voru í Helsingfors, þangað.
Sú leið liggur fram hjá yfirráða-
svæði Rússa.
Ekki er með fullu ljóst, hvern
ig hinir fjórtán Aótabátar hafa
týnzt, en svo mikið er víst, að til
Hangö komust þeir aldrei. Telja
menn sterkar líkur benda til þess
að bátarnir hafi horfið á leiðinni
fram hjá rússneska svæðinu. —
Skipið varð því að fara frá
Hangö áður en allir bátarnir
kæmu fram.
Alvarlegt áíall fyrir
síldarútveginn
Missi þessara fjórtán báta er
alvarlegt áfall fyrir síldarútveg
margra útgerðarmanna í sumar.
Er hér um að ræða nótabáta
hanada sjö síldveiðiskipum, og
eru ekki líkur til, að þau geti
komizt á veiðar á næstunni sök-
um bátaleysis. Það er Lands-
samband íslenzkra útvegsmanna,
sem stendur fyrir kaupum og
útvegun þessara báta og er ekki
kunnugt ennþá, hvaða útgerðar-
menn verða látnir bera tjónið
af þessum einkennilega og dular
fulla þjófnaði.
íslenzkur sendiherra kominn til
Finnlands
Eftir því sem blaðið hefir
komizt næst, mun Jakob Möller
sendiherra Islands í Kaupmanna
höfn, þegar vera kominn til
Helsingfors, höfuðborgar Finn-
lands, og er ferð hans sett í sam-
band við þetta mál. Mun hann
vinna að því að fá þær upplýs-
ingar, sem hægt er í Helsingfors,
en rannsókn málsins öll er
miklum erfiðleikum bundin.
Auk þess munu íslenzk stjórn-
arvöld hafa gert aðrar ráðstaf-
anir til að komast að hinu
sanna í þessu máli.
Tíniinn, 26. júní.
Tillög til elliheimilisins “Höfn
í Vancouver, Bntish Columbia
Áður auglýst $12,881.92.
Frá Vancouver, B. C.
íslenzka Lúterska Kvennfélag-
ið, $82.55; Ungmeyjafélagið
“Ljómalind”, $10.00; McCauley,
Nicolls, Maitland and Co., $5.00;
Sólskin og Ströndin $344.58; L.
H. Thorlaksson $50.00; Benedikt
Hjálmson $339.00; Sólskin 150.00;
G. L. Stephensson, gefið í minn-
ingu um konu hans, Fríðu, nú
dáin, $100.00.
Frá Sieveston, B. C.
Sigurður Stefánsson $10.00;
Mrs. B. Erickson $10.00; Mrs.
Elizabeth Björnsson $5.00; Mrs.
og Mr. R. Magnússon $5.00; Ög-
mundur Ögmundsson $5.00.
Frá Prince Rupert, B. C.
Ágóði af fjórum dans-samkom
um Islendinga, Mrs. C. Pritchard
forstöðukona, $230.70; Mr. og
Mrs. Fred Kristmanson $10.00;
George Phillipson $10.00; Árni
Eyjólfsson $20.00; Mrs. Ella
Vaacher $5.00; Stanley Veitch
$5.00. —
F ramtí ðar horf ur
Vestur-íslenzku blaðanna
Það er víst óhætt að geta þess
til, að mörgum hafi brugðið í
brún, er þeir lásu það að
íslenzku blöðin færu að koma
út aðeins hálft blað aðra hverja
viku. Væri það gjört til þess að
minnka hinn sívaxandi útgáfu-
kostnað, sem útgefendurnir gætu
ekki staðið straum af lengur. —
Ástæðan fyrir því, er hækkandi
verð á prent-pappír, og launa-
hækkun við þá sem vinna að út-
komu blaðanna, og hækkandi
skattar, hefðu það í för með sér
að ekki væri lengur hægt að
gefa út blöðin fyrir sama verð og
hefir verið. Hefðu útgefendur
blaðanna því komið sér saman
um að ráða nokkra bót á því að
blöðin gætu haldið áfram að
koma út eftirleiðis með sama
verði og áður, þá yrðu þau að
aðeins hálft blað aðra hverja
viku. Öllum kaupendum blað-
anna hefir verið það ljóst, að
íslenzku blöðin gætu ekki hald-
ið áfram að koma út með sama
verði og hefir verið, frekar en
öll önnur blöð sem hafa hækkað
í verði. Eg hefi verið kaupandi
að “Vancouver Daily Sun”, í síð-
astliðinn átta ár. Þegar ég skrif-
aði mig fyrir því, kostaði það sex
dollara um árið, nokkru síðar
var verðið fært upp 1 níu dollara,
og nú fyrir nokkru var verðið
enn fært upp í tólf dollara, eins
og það kostar nú. Eg heyrði
aldrei eitt orð um það að það
væri nokkuð athugavert við
aessa verðhækkun blaðanna,
allir skildu það að sökum hinn-
ar hækkandi dýrtíðar, væri nauð
synlegt fyrir þau að hækka ár-
gjaldið, og allir hafa orðalaust
haldið áfram að kaupa og borga
fyrir þau, eftir sem áður. Það
hafa því allir hugsandi kaupend
ur íslenzku blaðanna búist við
því að verðið á þeim yrði hækk-
að, eins og öll blöð hafa gert, og
sjálfsagt verið reiðubúnir til að
borga þá verðhækkun, eins og
þeir verða að gjöra fyrir öll önn-
ur blöð, sem þeir kaupa.
En að sá kostur yrði tekinn að
minnka blöðin, hefir víst flestum
komið á óvart. Islenzku blöðin
mega ekki vera minni en þau
hafa verið, til að geta orðið að
tilætluðum notum. Nú væri
mjög æskilegt að sem flestir
kaupendur íslenzku blaðanna
létu álit sitt í ljós, um þetta
málefni, sem er mjög alvarlegt,
því hér er um stórkostlega aftur
för að ræða, fyrir vestur-íslenzka
blaðamensku, sem verður að
komast í lag aftur. Það þarf að
fullvissa útgefendur blaðanna
um að við séum reiðubúnir til
að borga tiltölulega hærra verð
fyrir þau, svo þau geti komið út
í sömu stærð og hefir verið, það
mundi verða ritstjórum blað-
anna miklu þóknanlegra, en að
neyðast til að senda þau út svo
stórkostlega limlest aðra hverja
viku. Það er ekki fyrir efnaskort
hvað íslenzku blöðin eru lítið
keypt. íslendingar hafa aldrei
verið eins vel efnaðir yfirleitt
eins og þeir eru nú, heldur er
það fyrir sinnuleysi, viljaleysi
og úrkynjun, að blöðin okkar
hafa ekki meiri útbreiðslu' hér
en raun er á. Nú verða allir þeir,
sem vilja stuðla til þess að við-
halda öslenzku þjóðerni hér
vestan hafs sem lengst, að koma
til sögunnar. Það þarf að koma
því lagi á, að blöðin fari að
koma út í sömu stærð og áður,
um næstu áramót. Með því gef-
um við sjálfum okkur ágæta ný-
ársgjöf.
Eg trúi því, að ef þjóðræknis
deildirnar tækju það á dagskrá
sína að auka útbreiðslu íslenzku
blaðanna, hver í sínu umhverfi,
þá myndi það hafa góðan árang
ur. Það þarf að vinna að því
með fullri alvöru, en ekki með
hálfum huga og hangandi hendi,
ef nokkuð á að verða ágengt.
Eg ætla ekki að fjölyrða um
þetta málefni meira í þetta sinn.
Eg vonast fastlega eftir því að
einhverjir láti heyra frá sér,
þessu málefni viðvíkjandi.
S. Guðmundsson.
<(/r> • ”
Laeysir
kom í gœr
“Geysir” kom í gær
Milli klukkan 3 og 4 í gærdag
kom til Reykjavíkur Skymaster
flugvél sú er Flugfélag Loftleið-
ir hefir fest kaup á í Ameríku
fyrir nokkru síðan.
Alfreð Elíasson flaug flugvél-
inni og gekk ferðin að óskum.
Flugvél þessari hafa forráða'
menn Loftleiða gefið nafnið
Geysir. Hún er af sömú gerð og
hin fræga flugvél Hekla.
Enn sem komið er hefir ekki
verið ákveðið, hvort Geysir fari
í leiguflug eins og Hekla var í
á s. 1. vetri, eða hvort flugvélin
verði tekin í áætlunarflug.
Mbl, 4. júlí.
Frá Foam Lake, Sask.
Th. Markússon, $50.00; Helgi
Hornfjörð $2.00; S. G. Ólafsson
$2.00; E. J. Eastman $2.00; O. F.
Magnússon $1.00; B. Johnson
I. 00; G. Stefansson $5.00; Páll
Guðmundsson $2.00; S. Eyjólfs-
son $2.00; H. J. Austfjörð $1.00;
V. Johnson $10.00; Otto Hrafn-
sted $1.00; H. Eyjólfsson $1.00;
A. Hermansson $10.00; J. V.
Helgason 5.00; C. P. Helgason
2.00; C. N. Helgason $5.00; Jón
Markússon $1.00; G. Helgason
$1.00; H. B. Narfason $2.00; J. T
Bildfell $5.00; O. L. Helgason
$5.00; V. Anderson $2.00; G
Narfason $1.00; A. Sigurðson
$5.00; E. Mumford $1.00; F.
Johnson $2.00; John Hunchuck
$1.00; H. J. Helgason $12.00;
Einar Hrappsted, Elfros, Sask.
$50.00; Mike Johannesson, Dafoe.
Sask, $50.00; Mr. og Mrs. Sveinn
Ólafsson, Bankend, Sask, $10.00
Gustaf Erlendson, Reykjavík
Manitoba $10.00; Ólafur Hallson;
Eriksdale, Manitoba $10.00
Sveinn Thorvaldsson, Riverton,
Manitoba $50.00; Mrs. B. G. og
A. Erlendson, Piney, Manitoba,
gefið í minningu . um B. G.
Thorvaldson, nú dáinn $10.00;
J. J. Swanson, Winnipeg, Mani-
toba $25.00; Mrs. Halldóra Thor-
steinsson, Winnipeg, Manitoba,
$5.00; Bergþóra Sigurðsson,
Chauvin, Alberta $5.00; Mrs.
George Robertson, Lulu Island,
B. C, $10.00; Ágóði af spilafundi
Campbell River, B. C, Mrs.
Árnason og Mrs. Gunnarson,
forstöðukonur, $20.00; Vinveitt-
ur í White, B. C, 300.00; Mr. og
Mrs. Straumfjörð, Blaine, Wash,
610.00; Einar Símonarson, BJaine
Wash, $20.00; Sigurður G. Árna-
son — dó apríl 15. 1947, — Ro-
lette, N.-Dak, $10.00; Mrs. S. H.
Mclntyre, Rolette, N.-Dak. gefið
í minningu um föður sinn S. G.
Árnason, $10.00. — Alls til 30.
júní, 1948, $15,020.75. —
Aðrar gjafir iil elliheimilisins
Höfn” frá byrjun starfs þess.
6. oklóber 1947 iil 30. júní 1948.
The Church of the Reedeemer,
1 Food Hamper; Mrs. Noel
Jones, A Hamper of groceries;
Miss Axdal, 1 Single Bed; ivirs.
Nordal, 1 Single Bed; Mr. B.
Arnason, 1 Single Bed; Mrs. Jo-
hannson, 1 Double Bed, 2
Mattresses, 1 Bed Spread, 1
Blanket; Mrs. Bismarck Bjarna-
son, Blankets; Army and Navy
Departmental Store, 6 Blankets;
Mrs. Carl Frederickson, 1 Bed
Throw, 1 Radio and 2 Double
Mattresses, coffee, cakes and
sugar; Mrs. J. L. Essex, 10 lbs.
sugar and 2 Patchwork Com-
forters; Womens Aux. of the
Icel. Luth. Church, Cups and
Saucers a shower held at the
“Home”; Sólskin, 24 Pillow
Slips, A fruit bowl and Soup
Bowls; Mrs. Noel Jones, A
Christmas Hamper of groceries;
Mr. Phillipson, Prince Rupert,
B. C., A Case of Canned Salmon;
Magnús Eliason, A case of
Cookies; Mrs. Laura Johnson, 1
Box of Cookies; Mr. B. Thorla-
cius, A Large Christmas Tree
and all the Decorations Com-
plete; Mrs. Williamsson, Cream,
Eggs and Milk; Mrs. P. Bjarna-
son, Brown Bread for the New
Year’s Supper; Mrs. William
Mooney, 1 Bed Throw; Mrs. G.
Grimson, 24 Pillow Slips; Home
Oil Distributors, Fuel Oil to the
value of $25.00; Mr. Árni Egg-
ertson, K. C., Winnipeg, Professi
onal Services to the value of
$50.00. —
Bækur gefnar til
elliheimilisins
Páll S. Pálsson, Winnipeg,
Man., tvö eintök af Skilarétt;
Benedikt Hjálmson, 50 bækur og
tímarit; Anna Einarson, 6 bæk-
ur; Anna Thompson, 15 bækur;
Steinun Nordal, 7 bækur; Helgi
Hallson, Eimskipafélag Islands;
Kristján Johnson, Bredenbury,
Sask., Lýðveldishátíðin 1944. —
Með þakklæti fyrir hönd nefnd-
arinnar og Hafnar.
Pélur B. Gullormsson.
féhirðir til 30. júní, 1948.
— Vitrir menn eru alltaf í vafa
En þeir heimsku eru vissir um
alt.
— Ertu viss um það?
— Já, fullkomlega.
♦
— Af hverju heldurðu að það
sé kona, sem er í tunglinu?
— Enginn maður myndi end-
ast til þess að vera þar svo lengi
aleinn, og vera úti á hverri
nóttu.
-f
— Eg segi konunni minni alt-
af frá því sem kemur fyrir mig.
— Það er ekkert, ég segi minni
konu af mörgu, sem aldrei skeð-
ur. —
♦
Móðir: — Hann er ársgamall
núna, og hann hefir gengið síðan
hann var átta mánaða.
Vinkonan: — Hann hlýtur að
vera orðinn hræðilega þreyttur.
KAUPENDUR LÖGBERGS OG
HEIMSKRINGLU Á ISLANDI
Gerið svo vel að senda mér sem fyrst greiðslu fyrir
yfirstandandi árgang, kr. 25.00 fyrir hvort blað.
Dragið ekki að greiða blöðin. Það léttir innheimtuna.
Æskilegt að gjaldið sé sent í póstávísun. Þeir sem
eiga ógreidda eldri árganga, eru vinsamlega beðnir
að snúa sér til mín.
BJÖRN GUÐM UNDSSON
Mávahlíð 37, Reykjavik.