Lögberg - 02.09.1948, Side 3

Lögberg - 02.09.1948, Side 3
LÖGBERG FIMMTUDAGINN, 2. SEPTEMBER, 1948 3 FRÁ VANCOUVER, B.C. 26. ágúst 1948 Nú er alt farið að benda til þess að haustið sé í nánd; dag- urnir óðum að ‘styttast, meir. votviðri, og þokan farin að gjöra meira vart við sig. Blómaskrúðið farið að sýna á sér ellimerki, og sum af þeim allra fegurstu alveg horfin. Ferðafólk, sem hefir ver- ið að skemta sér heima á ís- landi, suður í Californíu, og víðsvegar í byggðum íslendinga í sléttufylkjunum, hafa nú flest- ir skilað sér heim aftur. Alt fé- lagslíf hér á sumrin er í dott- andi aðgjörðaleysi, þar sem svo margir eru fjarverandi, en nú fer alt að ganga aftur sinn vana- lega gang. Samkomur og fund- arhöld byrja aftur í næsta mán- uði. — Þann 2. ágúst var fjölment á Gamalmenna Heimilinu “Höfn”. Það hafði verið auglýst að skáldkonan frú Elínborg Lárus- dóttir, ætlaði að flytja þar fyrir- lestur, og voru allir boðnir vel- komnir. Enginn inngangur væri seldur. En eftir samkomuna ætl- uðu konurnar að hafa “Silver Tea, “og þá gæti hver sem vildi, gefið það sem hann vildi. Þess var getið að alt sém kæmi inn á þessari samkomu ætti að ganga í Gamalmenna Heimilis sjóðinn Frú Elínborg hafði látið það í ljós, að sig langaði til að gjöra eitthvað fyrir Gamalmenna Heimilið, og kom henni og kven- félaginu “Sólskin” sér saman um að hún héldi fyrirlestur þetta kveld, og tóku félagskon- ur að sér að sjá um allan undir- búning fyrir samkomuna. Samkomunni stýrði Mrs. Thóra Orr, forseti “Sólskin”-fé- lagsins og líka skrifari Gamal menna Heimilisnefndarinnar. — Kynti hún skáldkonuna á vel- viðeigandi hátt. Eftir að frú Elinborg hafði flutt fyrirlestur- inn sem tók hana meir en klukkutíma, sem var bæði fróð- legur og skemtilegur, þá var henni vottað þakklæti með dynj andi lófaklappi. Tvær stuttar ræður fluttu þeir G. F. Gíslason forseti Heimilisnefndarinnar og séra Rúnólfur Marteinson. Sein- ast á skemtiskránni var söng- konan vel kunna, Mrs. Thora Thoá-steinson Smith, sem sönig nokkur lög af mikilli list, eins og henni er tamt, hvar sem hún kemur fram. Þá var skemtiskrá- in á enda og konurnar buðu öll- um inn í borðsalinn til að fá kaffi og alskonar “tracteringar” meðal anars skyr. Þar voru komnir saman um 150 manns svo það var fullskipað í húsinu, en það gekk alt vel fram og allir komust að. Á borðinu var diskur sem samskotin voru látin í. — Það var auglýst að þetta væri “Silver Tea”, það leit út fyrir að allir hefðu skilið eftir smá- skildingana heima, því það voru bara seðlar eftir á diskinum, þá var það $126.00. Þetta var rausn- aflega gert. Eg er viss um að ég tala. fyrir munn allra sem unna gamalmenna Heimilis stofnuninni, er ég votta frú Elin- borgu mitt innilega þakklæti fyrir komuna, og þá velvild sem hún sýndi gamla fólkinu að “Höfn” með þessari komu sinni. Einn daginn sem frú Elínborg borg var hér, sendi dagblaðið “Vancouver Daily Province” eina af fréttariturum sínum til að hafa tal af frú Elínborgu, en hún talar ekki ensku, svo sam- talið fór fram þannig, að Mrs. Ölafur Peterson, sem fylgdi skáldkonunni hingað vestur frá Winnipeg, túlkaði fyrir þær. — Sagði fréttaritarinn frá samtali þeirra í Province og bar frú Elínborgu vel söguna, sagði frá ritstörfum hennar sem væru 14 bækur, sem hefðu verið gefið út af verkum hennar. Svo fór fréttaritarinn að tala frá eigin brjósti, og þá fanst mér að færi að slá út í fyrir henni. Hún fór að hæla fslendjingum yfirleiitt, Söfnuðir Suðurnesja þakka séra Valdimar J. Eylands ágœtt starf fyrir hvað þeir væru þjóðræknir og héldu fast við þjóðerni sínu og móðurmáli. Eg kýmdi í kamp er ég las þetta og sagði við sjálf- an mig. Betra að satt væri. Dr. og Mrs. Rúnólfur Marteins- son frá Winnipeg hafa verið hér um tíma, til að heimsækja son sinn hér og ótal kunningja og vinafólk sem þay hjón eiga hér. Séra Rúnólfur prédikaði hér við messuna 15 ágúst, var góð að- sókn, svo kirkjan var þétt skip- uð. Lútersku kvenfélagskon- urnar höfðu búið undir að bjóða öllum til kaffidrykkju niðri í fundarsal kirkjunnar eftir messu, til að gefa fólki tækifæri til að mæta þar Dr. og Mrs. Marteinson. Tóku allir því boði með þakklæti, því allir vildu geta mætt þeim hjónum. Ávarpaði þau séra Haraldur Sigmar og Mrs. Jón Sigurdson, sem afhenti Mrs. Marteinson gjöf frá Kvenfélaginu. — Bæði hjónin svöruðu fyrir sig. — Eg held að engar tvær persónur séu eins vinsælar af almenningi, á meðal íslendinga hér vestra, eins og þau hjón. Á meðan þau voru hér, heim- sóttu þau íslendingana, sem búa við Campbell River á Vancouver eyjunni. Messaði séra Rúnólfur þar í húsi Mr. og Mrs. Albert Árnason og skýrði fimm börn. Mrs. Margrét McLeoú frá Bokief, Cape Province, South Afrika, hefir verið að heim- sækja móður sína Mrs. \ E. Brynjólfson, sem er búsett í Victora B. C. Mrs. McLeod er fædd og uppalin í Victoria. Hún flutti með manni sínum sem er Mining Engineer, til Suður- Afríku, þar sem hann hefir stöðu hjá stórauðugu námufé- lagi. Á Mrs. McLoed þrjá bræð- ur í Victoria, og marga kunn- ingja bæði þar og í Vancouver frá þeim tíma sem hún átti heima á þessum slóðum. Mr. og Mrs. Einar Bryn^ólfson voru með þeim fyrstu Islendingum, sem tóku sér bólfestu í Voctoria, er hann dáinn fyrir mörgum ár- um. Mrs. McLeod á eina systur, Mrs. Helgu Everett í Kingston Jamaica, er maður hennar banka stjóri þar. Báðum þessum systr- um líður vel og unna vel hag sínum. Mrs. McLeod ætlar að heimsækja systir sína í King ston á heimleiðinni. Mikill part- ur af fólki sem þær umgangast þar, eru svertingjar. Mr. M. J. Thorarinson og dóttir hennar Loraine Thorarin- son frá Climax Sask., voru hér á ferð nýskeð. Þær komu frá Seattle Wash., þar sem Mrs. Thorarinson var að heimsækja hálfbróðUr sinn, Mundi John- son. Miss Loraine er útlærð hjúkrunarkona, og hefir stöðu við sjúkrahúsið í Swift Current, Sask. Meðan þær stóðu hér við, skoðuðu þær sig um hér í borg- inni, sagði Mrs. Thorarinson að sér sýndist Vancouver vera fal- legri borg en Seattle. Margir hafa áður látið þá skoðun í ljós. Þær mæðgur heimsóttu gamal- menna heimilið “Höfn”, og leizt þeim vel á það. Mrs. Thorarin- son og S. Gudmundsson eru bræðra börn, en við höfum ekki sést síðan hún var unglingur. Nýlega komu heim aftur úr ferðalagi á íslandi, þau Mr. og Mrs. Bjarni Kolbeins. — Voru þau heima meir en ár, og svo einn mánuð á Englandi hjá tengdafólki sínu. Mrs. Kolbein- sens er af enskum ættum og á þar skyldfólk. Kolbeins lét vel af ferðinni og lítur vel út, svo það er auðsætt að það hefir far- ið vel um hann. Mrs. Anna K. Matthisson sem fór til Islands síðastliðið vor, er líka komin til baka. Hún fór flugleiðis báðar leiðir. Einnig lætur hún vel af ferðalagi sínu, og segist hafa skemt sér vel. Frá fréttaritara vorum í Keflavík. Séra Valdimar J. Eylands prestur fyrsta Lúterska safnað- arins í Winnipeg, hefir þjónað Útskólaprestakalli nú í eitt ár, í skiftum við séra Eirík Brynjólfs son, sem þjónað hefir söfnuði hans vestra, eins og kunnugt er. Séra Valdimar og kona hans hafa unnið sér almenna hylli meðal safnaða sinna og verið miklir aufúsugestir á Suðumesj- um. Þau hjón hafa verið góðir og glæsilegir fulltrúar þjóðar- brotsins vestra og vafalaust verður dvöl þeirra hér til að blása nýju lífi í samstarfið og samheldnina milli heimaþjóðar- innar og Vestur-íslendinga. Séra Valdimar var heiðurs- gestur í Rotaryklúbb Keflavík- ur. Fundur klúbbsins var hald- inn s. 1. föstudag, en það var jafnan kveðjufundur fyrir séra Valdimar. Þar var honum færð að gjöf áletruð fánastöng frá klúbbnum, og einnig ljósprentað eintak af Passíusálmunum frá “17. júní nefndinni” og frá Karli Magnússyni héraðslækni mynda bók með ljósmyndum frá kirkju athöfnum, sem Karl hafði sjálf- ur tekið. Við þetta tækifæri flutti Kristinn Pétursson frum- ort kvæði til séra Valdimars, sem höfundur gaf honum síðan í skrautbúnu handriti. Skilnaðarsamsæti saínaðanna S.l. sunnudag gengust sókn- irnar fyrir kveðjuhófi, var það haldið í samkomuhúsinu í Gerð- um, með þátttöku frá öllum söfnuðum Suðurnesjanna. Sátu það hóf um 150 manns. Sigurbergur Þorleifsson stjórn aði hófinu og fórst það vel og skörulega. Fulltrúar safnaðanna fluttu þar ræður. Fyrir Kefla- víkursöfnuð talaði Ragnar Guð- leifsson, fyrir Útskálasöfnuð þorlákur Benediktsson, fyrir Hvalsnessöfnuð Gísli Guðmunds son, og fyrir Njarðvíkursöfnuð Sigurður Sigurgeirsson var mættur í hófinu og flutti hann sérstakar þakkir frá Karlakór Reykjavíkur, fyrir gestrisni og móttökur sr. Valdimars, þegar kórinn var á söngför sinni þar vestra. — Sóknarnefndirnar færðu séra Valdimar að gjöf veglega bóka- hillu, útskorna og fagurlega skreytta, fulla af íslenzkum úr- valsbókum. Kvenfél. á Suður- nesjum voru áður búin að gefa frúnni íslenzkan búning. — Samsæti þessu lau\ með því að prestshjónin bæði fluttu ræð- ur, þar sem þau þökkuðu alla góða viðkynningu og lýstu því, hve dvöl þeirra hér hefir öll verið ánægjuleg. — Séra Valdi- mar gat þess að hann mundi ekki þegja yfir öllu því, sem hann hér hefði heyrt og séð, íegár hann kæmi aftur til ís- lenzku safnaðanna í Vestur- heimi. Séra Valdimar er mikill og einlægur aðdáandi bæði lands og þjóðar, sem hann hefir áður sýnt, með miklu og heillavæn- legu starfi fyrir þjóðræknismál Vestur-íslendinga. Þau hjónin og dóttir þeirra ætluðu loftleiðis frá Keflavíkur- flugvelli í gærkveldi. Von er á séra Eiríki og fjölskyldu hans næstkomandi laugardag. Mbl., 21. júlí. Business and Professional Cards Þann 14. ágúst var ein af elstu konunum á “Höfn’- átta- tíu og sjö ára gömul. Það var Mrs. Steinun Loftson, hún er svo ern og frískleg, að þegar ég sagði hve gömul hún væri, þá sagði maður að ég væri nú að ljúga að sér, hún liti ekki út fyr- ir að vera meir en máske sjötug. Þennan dag heimsóttu hana dóttir hennar Mrs. J. L. Essex og systir hennar Mrs. Jón Erlend son og fleira vinafólk sem var í för með þeim til að gleðja gömlu konuna. Það voru samt fleiri sem nutu góðs þar af, því öllum heimilismönnum og kon- um var haldin veisla. ísrjómi kaffi og alskonar kræsingar var þar eins og hver lysti. Svo sein ast var afmæliskakan borin kring, svo allir fengju part af henni. Var Mrs. Loftson óskað til lukku og blessunar í framtíð inni. Fólkinu sem hélt okkur þessa veislu, var innilega þakk- að fyrir heimsóknina. Mr. Ragnar Stefánson hefir verið að heimsækja bróðir sinn hér, Gunnbjörn skáld Stefánson Eins og kunnugt er þá var Mr, Stefánson meðritstjóri Heims kringlu um eitt skeið. Hann sótti íslendingadaginn í Blaine, Wash Gamalmenna heimilið “Höfn” hefir verið málað að utan og er nú rjóma-hvítt, er það mikil um- bót, því gamla málningin var farin að láta á sjá. Sumir kalla það nú “Hvíta húsið í Van- couver”. Þetta ferðafólk hefi ég orðið var við síðan ég skrifaði seinast: Mrs. Guðrún Blöndal. Miss Jo- ann Blöndal, Lilja Mckenzie, Mr. og Mrs. S. G. Isfeld, öll frá Winnipeg, Man. Egill Johnson, Carman, Man., Violet Vopni, Joan Vopni, Edward Vopni, frá Chataway, Tuxido, Man., Eggert ina Sigurdson, Swan River, Man. Villa Gíslason, Elfros, Sask., Soffonias Thorkelson, og Mrs. Margréf Brynjólfson, Victoria, B. C., Mrs. Margaret Fredrikson, Baldur, Man. S. Gudmundsson. Steingrímur Vlatthíasson lœknir andaðist í gœr Steingrímur Matthíasson lækn ir andaðist hér í Landsspítalan- um í gærmorgun. Hann kom hingað heim frá Borgundar- hólmi með Heklu. Hafði sonur hans Bragi dýralæknir farið til Borgundarhólms til þess að sækja föður sinn, erþá var orð- inn fárveikur, og vissi vel að hann ætti skammt eftir ólifað. Eftir að hann kom hingað, var hann varla nokkurntíma mál- hress. Hann dó úr krabbameini. Steingrímur heitinn var, sem kunnugt er, meðal fremstu lækna þjóðarinnar, ötull og skyldurækinn við störf sín svo af bar. Auk þess var hann mik- ill áhugamhður um ýms þjóð- nytjamál, og lét til sín taka á mörgum sviðum, til þess að verða þjóð sinni að gagni. — Nokkru áður en styrjöldin braust út, hin síðasta, flutti hann til Danmerkur, sem kunn ugt er. Gegndi læknisstörfum fyrir ýmsa lækna hér og þar í landinu, uns hann settist að í Borgundarhólmi. Hann hafði mælt svo fyrir, að lík hans skyldi brent. — Mun það verða gert hér í bálstofunni. Mbl, 28. júlí. SELKiRK METAL PRODUCTS LTD. Reykháfar, öruggasta eldsvörn, og ávalt hreinlr. Hitaeining, ný uppfynding, sparar eldiviö, heldur hita. KELLY SVEINSSON Slmi 54 358. 187 Sutherland Ave, Winnipeg. S. O. BJERRING Canadian Stkmp Co. RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPORATE SEALS CELLULOID BUTTONS 324 Smilh Sl. Winnipeg Office Ph. 95 668 Res. 404 319 NORMAN S. BERGMAN, B.A., LL.B. BitrrisU'r, Solicitor, etc. 617 Mclntyre Block WINNIPEG CANADA Also . 123 TENTH ST. BRANOON Winnipey Manitoba Fisheries WINNIPEQ, MAN. T. Bercovitch, framkv.stj. Verzla I heildsölu meC nýjan og frosinn fisk. 303 OWENA STREET Skrifst.slmi 25 355 Heima 66 462 DR. A. V. JOHNSON Dentist 606 SOMERSET BUILDING Telephone 97 932 Home Telephone 202 398 Taisfml 96 826 Hedmilis 53 893 DR. K. J. AUSTMANN Sérfrœðingur i augna, eyrna, nef og kverka sjúkdómum. 209 Medical Arts Bldg. Stofutlmi: 2.00 til 5.00 e. h. DR. ROBERT BLACK SérfræOingur i augna, eyrna, nef og hálssjúkdómum. 401 MEDICAL ARTS BLDG Graham and Kennedy St. Skrifstofuslmi 93 851 Heimaslmi 403 794 EYOLFSON’S DRUG PARK RIVER, N. DAK. islenzkur lyfsali Fólk getur pantaö meöul og annað meC pósti. Fljót afgreiðsla. Dr. med. Gunnlaugur Claessen látinn Dr. med. Gunnlaugur Claes- sen andaðist í landsspítalanum aðfaranótt laugardags. Hann hafði verið í spítalanum hálfs- mánaðartíma vegna astma, er lengi hafði þjáð hann. Fékk lungnabólgu, er varð hans bani. Með dr. Gunnlaugi Claessen hefir þjóðin mist einn sinna gagnmentuðustu og nýtustu drengskaparmanna, er barðist meðan líf og heilsa entist, fyrir umbótum í heilbrigðismálum þjóðarinnar, jafnt andlegum sem líkamlegum. Allir, sem þektu þennan ágætismann, sakna hans mikið. Mbl, 25. júlí. A. S. B A R D A L 848 SHERBROOK STREET Selur Ukkiatur og annaat um Ot- farir. Allur útbúnaður aá bezti. Ennfremur aelur hann allskonar minnisvarða^ og legsteina. Skrifstofu talslml 27 324 Helmllls talslml 26 444 Geo. R. Waldren, M. D. Physician and Surgeon Cavaller, N. D. Office Phone 95. House 108. PHONE 94 981 H. J. H. PALMASON and Company Chartered Accountants 219 Mc INTTRE BLOCK Winnipeg\ Canada Phone 49 469 Radto Service Specialists ELECTRONIC LABS. H. THORKELSON, Prop. The most up-to-date Sound Equipment Syatem. 130 OSBORNE ST„ WINNIPEG JOHN A. HILLSMAN. M.D.. Ch. M. 627 Medical Arts. Bldg. Office-99 349 Home-403 233 PHONE 87493 Dr. S. J. Jóhannesson SUITE 7 VINBORG APTS. 694 Agnes St. Viðtalstlmi 3—5 eftir hádegl DR. E. JOHNSON 304 EVELINE STREET Selkirk, Man. Office hrs. 2.30—6 p.m. Phones: Office 36 — Rea. 230 Office Phone Rea Phoue 94 762 72 409 Dr. L. A. Sigurdson 528 MEDICAL ARTS BLDO. Office Hours: 4 p.m.—6 p.m. and by appolntment Drs. H. R. and H. W. TWEED Tannlœknar 406 TORONTO GEN. TRUSTS BUILDINQ Cor. Portage Ave. og Smlth St. PHONE 96 962 WINNIPEO Dr. Charles R. Oke Tannlœknir For Appointments Phone 94 908 Offiee Hours 9—6 404 TORONTO GEN. TRUSTS BUILDINÓ 283 PORTAGE AVE. Winnipeg, Man. SARGENT TAXI Phone 76 001 FOR QUICK RELIABLE SERVICE J. J. SWANSON & CO. LIMITED 308 AVENUE BLDO WPO. Fasteignasalar. Leigja hús. Ot- vega peningalán og eldsábyrgö. blfreiðaábyrgð, o. s. frv. PHONE 97 638 Andrews, Andrews, Thorvaldson and Eggertson LögfrœOingar 209BANK OF NOVA SCOTIA BQ. Portage og Garry St. Stmi 98 291 GUNDRY PYMORE Limited Britlsh Qvality Fish Nettlng 58 VICTORIA ST„ WINNIPEO Phone 98 211 Manager T. R. THORVALDSON Your patronage will be appreciated C A N A D I A N FISH PRODUCERS, LTD. J. H. PAOE, Managing Director Wholesale Distributors of Frash and Frozen Fish. 311 CHAMBERS STREET Office Ph. 26 328 Res. Ph. 78 917 G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dlr. Keystone Fisheries Limited 404 SCOTT BLOCK SlMI 95 227 Wholesale Distributors of FRESH AND FROZEN FISH Bus. Phone 27 989 Res. Phone 36 151 Rovalzos Flower Shop Our Speclalties WEDDING CORSAGES COLONIAL BOUQUETS FUNERAL DESIGNS Mrs. S. J. Rovatzos, Proprietress Formerly Robinson & Co. 253 Notre Dame Ave. WINNIPEG MANITOBA

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.