Lögberg - 16.09.1948, Blaðsíða 3
I
KVEÐJA
Þegar ég kom til Winnipeg
18. apríl, var dagurinn orðinn
langur og sól hátt á lofti. Já, það
var sól frá morgni til kvelds.
Þótt Winnipeg-búum fyndist
vorið kalt, fundust mér þetta
dásamlegir dagar. Og sannar-
lega hefir þetta sumar verið
mér dásamlegt. Mér hefir gefist
kostur á að ferðast talsvert um
þetta frjósama og víðáttumikla
land. Leið mín lá fyrst út á
sléttuna. Það var enn ekki farið
að sá, og ef ég ætti að lýsa þeirri
tilfinning sem greip mig, er hún
sú, að mér stóð ógn af þessari
rniklu víðáttu. Eg varð sjálf svo
lítil; mér fannst ég hverfa,
hverfa í víðáttuna miklu. Nú hefi
ég séð hana í öllu sínu skreytta
skarti, og mér hefir farið líkt og
karli einum heima á Islandi:
Það kom ferðalangur í sjávar-
þorp; hann hitti gamlan fiski-
mann og ferðalangurinn fór að
dáðst að því, hve fallegt væri í
sjávarþorpinu. Já, sagði karl. —
Það er fallegt þegar vel fiskast.
Ferðalangurinn hló að þessu
svari. En það varð að máltæki
heima. Mér fer líkt og gamla
fiskimanninum; að er ég hugsa
um, hvað sléttan gefur af sér, og
hvað hún er íbúum þessa lands
og íbúum annarra landa, finnst
mér sléttan falleg, því oftar sem
ég sé hana, því betur kann ég
við hana. Nú orðið vekur hún
sömu kennd í brjósti mér og
fjöllin heima. Mig langaði alt-
af til þess að sjá hvað væri á
bak við fjöllin. Eg kem nú
Isienzk barnahjáíp til Mið-
og Suður-Evrópulandanna
Kúba var annað landið, sem
sendi vörufarm á vegum alþjóða
barnahjálparinnar, og fór sá
farmur frá landinu fyrir helg-
ina. Island var,'sem kunnugt er,
fyrsta landið, sem sendi hjálp
sína áleiðis, og skýrði amerískt
útvarp frá því á laugardaginn
var, að 2 milljónir punda af ís-
lenzkum afurðum hafi nú verið
sendar til Finnlands, Póllands,
Tékkóslóvakíu, Ungverjalands,
Italíu og Júgóslavíu.
Alþbl., 25. júlí
Sjúklingurinn: — Dragið þér
tennur alltaf úr kvalalaust?
Læknirinn: — Ekki alltaf, í
gær var einn nærri því búinn
að bíta af mér einn fingurinn.
Yðar nýju föt frá
EATON’S
EINS OG AÐ KOMA ÚT
ÚR TÍZKUSTÖÐ
í hinni nýju verðskrá
veljið úr
• Skuggamynd eða af
yfirgripsmikilli gerð
• Hinir hrífandi "Vic-
iorian" litir. Þýðing-
mikið fyi'ir hausiið
• Tilsvarandi búnings-
hluiir af nýiízku gerð
. . . Gengið frá öllu spar-
neyinislega samkvæmi
EATON aðferð, sem gef-
ur dollaranum aukið
gildi
^T. EATON C».™
WINNIPEG CANADA
aldrei svo út á sléttuna að mig
langi ekki lengra og lengra út —
út í víðáttuna miklu. En mér
hefir auðnast að sjá fleira en
sléttuna. Eg hefi ferðast vestur
að hafi og komist út á Kvrrahaf-
ið til Victoriu. Eg vil segja það
að þeir, sem koma til þessa
lands og ekki sjá Klettafjöllin,
þeir fara mikils á mis. — Ekki
af því að mér finnist svo mjög
til um fegurð þeirra. Við eigum
myndauðug fjöll heima á Islandi.
En þau eru svo stórfengleg, svo
sérkennileg fyrir þetta land. —
Með sinn einkennilega risa-skóg
sem, að því er virðist, sýnist
spretta upp úr beru grjótinu.
Og fallegir og sérkennilegir eru
dalirnir sem ganga inn á milli
fjallanna.
Eins og ég gat um áðan hefir
mér gefist kostur á að ferðast
talsvert um landið og kynnast
íslendingum hér vestra. — Leið,
mín lá fyrst að Hnausum og
Gimli. Þá að Víðivöllum til góð-
vinar míns Guttorms G. Gutt-
ormssonar og hans ágætu konu.
Hjá honum dvaldi ég í nokkra
daga. Þá daga komu bændur frá
íslendingafljótinu og sóttu mig
í bíl og sýndu mér byggðirnar
Víði, Geysi og Árborg. Eg kom
þar á fjölmörg heimili, og sum-
staðar var fólk fyrir að öðrum
búgörðum sem kom til að mæta
mér. Á hverjum einasta bæ var
töluð íslenzka ekki eingöngu
við mig, heldur talaði fólkið ís-
lenzku sín á milli. Hin framúr-
skarandi alúð fólksins og vip-
semd til mín, ókunnugrar, varð
mér satt að segja undrunarefni.
Næst lá leið mín svo til Lundar.
Lundar er mjög íslenzkur bær.
Þar var gaman að koma. Þar
mætti ég sömu gestrisninni,
sömu hlýjunni, sem allsstaðar
annarsstaðar. Fólkið vildi allt
fyrir mig gera. Eg kom inn á
fjölda heimilia, og það var engu
líkara en fólkið hefði þekkt mig
frá blautu barnsbeini. Sama er
að segja um viðtökurnar vestur
við haf. Það var sama hugarþelið
sama gestrisnin og ég hefi hvar-
vetna notið í byggðum Islend-
inga hér vestra.
Það, sem ég hefi gert hér
vestra, er ekki mikið. Eg hefi
haldið hér 8 erindi um ísland og
íslenzka menningu, og auk þess
lesið tvisvar upp úr bókum mín-
um. I þessum erindum hefi ég
leitast við að gefa sem gleggsta
mynd af þeim framförum sem
orðið hafa á íslandi nú á fáum
árum. Eg hefi haft góða hlust-
endur. Fólkið hefir sýnt sterkan
áhuga fyrir öllu sem íslenzkt er,
öllu sem varðar heimaþjóðina.
Þetta er því merkilegra, að víð-
ast hvar mætti ég annari og
þriðju kynslóðinni. Fólki, sem
fætt er hér og alið upp við
ameríska siði. Samt vissi þetta
fólk mikið um Island, og ís-
lenzka siði, einkum hér fyrrum.
Þetta hafði afa og amma sagt
því frá föðurlandinu, og það fest
ist í minni. Ef afkomendur
þessa fólks, æskan, sem nú er
upprennandi, vildi hlusta á
gömlu sagnirnar, myndi það
síðar ekki sjá eftir því heldur
gleðjast, jafnvel þótt það tali
ekki íslenzkuna. Með því móti
og mörgu fleiru gæti kynning
haldið áfram.
Eg hefi gert mér sérstakt far
um að skyggnast inn í hugi fólks-
ins. Þessi mikla vinsemd og
virðing sem ég varð aðnjótandi,
gerði það að verkum að ég fór
að veita fólkinu meira athygli.
Þegar gömlu konurnar föðmuðu
mig að sér og fögnuðu því að
hafa mætt mér, spurði ég sjálfa
mig að því, hverju þetta sætti.
Eg var bara venjuleg kona, ekki
máttug eða stór á neinn hátt. —
Mér varð strax ljóst að það tók
því ekki fyrir mig að hreykja
mér af þessu. Þessi mikla vin-
semd sem yljaði mér innst inn
að hjartarótum, hlaut að eiga sér
dýpri rætur. Af kynningu minni
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 16. SEPTEMBER, 1948
við fólkið, hefi ég orðið þess á-
skynja að ísland, og allt sem ís-
lenzkt er, á sér dýpri hljómgrunn
í hugum Vestur-íslendinga, en
þeir gera sér sjálfir grein fyrir.
Á þennan hátt verður hin mikla
vinsemd, til mín skilin og
skýrð. Og mér er þetta mikið
fagnaðarefni.
Eg kann öllu því fólki, sem ég
hefi mætt, hjartans þökk. Dvöl
mín hér hefir gefið mér fjölda
dýrmætra minninga, og tengt
vináttubönd sem ég vona að ekki
rofni, þótt haf skilji.
Þegar ég er nú á förum héðSn,
vil ég ekki láta hjá líða að þakka
hina miklu velvild, gestrisni og
sæmd sem mér hefir hvarvetna
verið sýnd. Sérstaklega þakka
ég þó frændum mínum, Pétur-
sons-bræðrunum og konum
þeirra. Ekkju Rögnvalds Péturs
sonar og börnum hennar fyrir
mikla gestrisni og gjafir, sem
mér munu ávalt verða einkar
kærar. Eg þakka forseta Þjóð-
ræknisfélagsins og stjórn þess
fyrir þá sæmd sem það hefir
sýnt mér. Eg þakka öllum nær og
fjær, sem stutt hafa að því með
breytni sinni við mig, að gera
alla þessa daga að sóldægrum.
Hugur minn mun oft leita hing-
að vestur til vina minna hér. Því
dvölin hér mun verða mér ó-
gleymanleg. — Eg óska ykkur
allrar blessunar í komandi fram-
tíð. Trú mín og von er sú, að
Austur- og Vestur-íslendingar
eigi eftir að tengjast æ sterkari
böndum er tímar líða-. — Og ég
vona líka að íslenzk tunga verði
töluð hér vestra meðan ár og
!ækir renna.
Guð blessi ykkur öll.
9. september 1948.
Elínborg Lárusd.
ISLAND
(Frh. af bls. 2)
jjóðin náð lengst á liðnum tím-
um. í þrengingum höfum við átt
vitra menn og stjórnsama. Vér
höfum átt skáld og eigum enn
skáld og listamenn — svo sem
íræga myndhöggvara, fræga mál-
ara, fræga tónlistamenn og óperu
söngvara sem getið hafa sér
frægð víða um heim.
En þótt fslendingar séu í eð!i
sínu listamenn ætti sú stað-
reynd.ekki að blinda augu vor
fyrir því að íslendingar nútímans
eru líka harðir og atorkumiklir
framkvæmdarmenn, ' sem ekki
láta sér alt fyrir brjósti brenna,
heldur hrinda hugsjónum sínum í
framkvæmd eins og til dæmis þið
hafið gert hér vestra, ykkur og
allri íslenzku þjóðinni til hins
mesta sóma.
ísland hefir stundum verið
nefnt sögueyjan. Það nafn er
vel til fundið. ísland á merki
íega sögu að baki sér og merki-
legar bókmentir. Fornbókmentir
íslendinga þola prýðilegan sam-
anburð við forn bókmentir
Grikkja eða Rómverja. — Þær
eru gíæsilegar á heimsmæli-
kvarða og glæsileg arfleifð ís-
lenzkum kynslóðum. En fslend-
ingar hafa aldrei lagt niður að
rita og yrkja og afrita á óbjagaðri
tungu feðra sinna. Það er hvergi
slitinn þráður í þróunarkeðju ís-
lenzkrar tungu -eða íslenzkra
bókmenta. Bókmentir 16., 17. og
18. aldar hafa ekki á sér glæsiblæ
fornritanna — og þó hafa sum rit
þess tíma það. Umheimurinn hef-
ir enn ekki komið auga á þessar
bókmentir. En vér íslendingar
höfum komið auga og mati á þær.
Vér metum þessar bókmentir
ekki einvörðungA eftir fróðleiks
og listagildi þeirra, heldur með
skyldugu þakklæti og aðdáun á
þeim, sem héldu uppi merkinu
þegar mest syrti að og nauðir
lands og þjóðar voru mestar og
sárastar. Því meir sem íslenzku
þjóðinni vex ásmegin, því meir
mun hún dá þessa merkisbera
sína á^tímum hinna miklu mann-
rauna. Á tímum hafíss og hall-
æris-drepsótta, hungurs og kúg-
unar. Við lá að íslenzka þjóðin
yrði afmáð með öllu.
Vér höfum öll heyrt sagt frá
baráttu íslands og íslendinga
gegn erlendu valdi á umliðnum
öldum. Valdi sem reyndi með
öllum mætti að féfletta og blóð-
sjúga þjóð vora, með einokunar-
verzlun, en drepa frelsi vort með
kúgun. Gegn hvortveggja þessu
barðist íslenzka þjóðin látlaust
og af fremsta megna. Þetta var
í sannleika sagt ægileg barátta,
og þessari baráttu íslenzku þjóð-
arinnar fyr á öldum er mikils til
of lítið á lofti haldið, því að án
þessarar þrotlausu baráttu mundi
íslenzka þjóðin ekki hafa verið
til er 19. öldin rann upp. Öldin
sem ásamt fyrstu tugum 20. ald-
arinnar færði þjóð vorri aftur
frelsið og réttinn sem baráttu-
menn fyrri alda höfðu aldrei gef-
ið upp, réttinn sem hið frjálsa
óháða ísland heldur nú. En þótt
ísland sé frjálst land og óháð,
þótt það hafi hrundið af sér fjþtr-
um einokunar og kúgunar, hefir
það alt af átt og mun eiga tvo
hættulega vágesti yfir höfði sér,
sem engum mannlegum öflum
tjáir að tefla við — eldgos og
hafís.
Því miður hafa þessir vágestir
gist land vort oft og mörgum
sinnum. Og valdið miklu tjóni.
Árið 1881—1882 var svo mikið ísa
ár og klaki þiðnaði aldrei úr
jörðu alt sumarið. Sama ár geys-
uðu mislingarnir — og barna-
veikin. Árið eftir, 1883, fóru
margir íslendinga til Ameríku.
í fyrra byrjaði Hekla að gjósa.
Vér fslendingar vitum vel hvað
það þýðir þegar eldfjöllin okkar
láta til sín heyra. Það þýðir tjón
fyrir menn og skepnur, eyðilegg-
ing á landi og fénaði — ef til vill
í fleiri héruðum — niðurskurð á
fé af því að jörðin liggur undir
öskufalli. Og þannig er því líka
varið nú — fjöldi jarða í Fljóts
hlíð og á Rangárvöllum hafa beð
ið stórtjón af völdum eldgossins.
Tjónið er því tilfinnanlegra af
því þetta eru blómlegar sveitir
og búsældarlegar.
Tungu sína tóku íslendingar í
arf frá forfeðrunum. En þeir
hafa varðveitt hana, fullkomnað
hana og gert hana að ritmáli si-
gilAra bókmenta. Og það á þeim
tíma er allur hinn siðaði heimur
lá marflatur undir oki latínu,
ekki síður en aðrir, en þeir fundu
hver tungan var æðri og fundu
á hvorri þeirra þeim sæmdi bet-
ur að setja fram hugsanir sínar,
þeir:
“Gleymdu ekki þeirri
sem goðborin er.”
V
fslenzkan er eina klassiska
málið sem til er. Hún er dýrmæt-
ur arfur frá kynslóð til kynslóða
og hún má ekki glatast hvorki
vestan hafs né austan. Hún er:
Ástkæra ylhíra málið
allri rödd fegri.
Þriðjungur íslenzku þjóðar-
arinnar býr hér fyrir vestan haf.
Hver verða örlög þessa sona og
dætra íslands. Verða þau hin
sömu og tíu ætta Israels, að
hverfa úr sögunni, deyja sögu-
legum dauða — eða týna sjálfum
sér eins og dr. Rögnvaldur orðaði
það.
Vér vonum að svo verði ekki.
Hinar greiðu samgöngur ættu að
tengja ættböndin enn sterkar en
verið hefir til þessa. Og takist
að vekja áhuga hjá æskunni fyrir
ættlandinu — vekja tryggð þess
til íslenzkrar menningar — og
tryggð til alls sem ættlandið hef
ir að bjóða — munu Vestur-ís-
lendingar aldrei gleyma ætt-
landinu. — Aldrei gleyma sögu
eyjunni.
Elinborg Lárusd.
SELKIRK HETAL PRODUCTS LTD.
Reykháfar, öruggasta eldsvörn,
og ávalt hreinir. Hitaeining, ný
uppfynding, sparar eldivitS,
heldur hita.
KELLY SVEINSSON
Slmi 54 358.
187 Sutherland Ave., Winnii>eg.
S. O. BJERRING
Canadian Stamp Co.
RUBBER & METAL STAMPS
NOTARY & CORPORATE SEALS
CELLULOID BUTTONS
324 Smith St.
Winnipeg
Öffice Ph. 95 668 Res. 404 319
NORMAN S. BERGMAN, B.A., LL.B.
Barrister, Soiicitor, etc.
411 Childs Bldg,
WINNIPEG CANADA
lllBSTÍ
JEWELLERS
ggroiPSS
447 Portage Ave.
A/so
123
TENTH ST.
BRANDON
Winnipeg
Manitoba Fisheries
WINNIPEG, MAN.
T. Bercovitch, fram kv.stj
Verzla i helldsölu meB nýjan og
frosinn flsk.
303 OWENA STREET
Skrifst.slmi 25 355 Heima 56 462
DR. A. V. JOHNSON
Denttst
506 SOMERSET BUILDING
Telephone 97 932
Home Telephone 202 398
Taislmi 95 826 Heimilis 63 893
DR. K. J. AUSTMANN
SérfrœOingur i augna, eyma, nef
og kverka sjúkdómum.
209 Medical Arts Bldg.
Stofutlmi: 2.00 til 5.00 e. h.
DR. ROBERT BLACK
SérfrœOingur i augna, eyma,
nef og hdlssjúkdómum.
401 MEDICAL ARTS BLDO
Graham and Kennedy St.
Skrifstofuslmi 93 851
Heimaslmi 403 794
EYOLFSON’S DRUG
PARK RIVER, N. DAK.,
islenzkur lyfsali
Fölk getur pantaB meöul og
annaö meS póstl.
Fljót afgreiSsla.
A. S. B A R D A L
848 SHERBROOK STREET
Selur llkklstur og ahnast um Qt-
farir. Allur útbúnaSur sá bezti.
Ennfremur selur hann allskonar
minnlsvarSa og legstelna.
Skrifstofu talsimá 27 324
Heimills talsimi 26 444
Geo. R. Waldren, M. D.
Physician and Surgeon
Cavaller, N. D.
Offlce Phone 95. House 108.
PHONE 94 981
H. J. H. PALMASON
and Company
Chartered Accountants
219 McINTYRE BLOCK
Winnlpegv Canada
Phone 49 469
Radio Service SpeciaUsts
ELECTRONIC LABS.
H. THORKELBON, Prop.
The most up-to-date Sound
Equipment System.
130 OSBORNE ST„ WINNIPEQ
JOHN A. HILLSMAN.
M.D.. Ch. M.
627 Medical Arts. Bldg.
Office-99 349 Home-403 233
PHONE 87493
Dr. S. J. Jóhannesson
SUITE 7 VINBORG APTS.
594 Agnes SL
ViStalstimi 3—6 eftir hádegi
DR. E. JOHNSON
304 EVELINE STREET
Selkirk, Man.
Offlce hrs. 2.30—6 p.m.
Phones: Office 26 — Res. 230
Drs. H. R. and H. W.
TWEED
Tannlœknar
406 TORONTO GEN. TRUSTS
BUILDING
Cor. Portage Ave. og Smlth St.
PHONE 96 952 WINNIPEG
Dr. Charles R. Oke
Tannlosknir
For Appointments Phone 94 908
Office Hours 9—6
404 TORONTO GEN. TRU8TS
BUILDING
283 PORTAQE AVE.
Winnipeg, Man.
SARGENT TAXI
Phone 76 001
FOR QUICK RELIABLE
SERVICE
Office Phone Res Phone
94 762 72 409
Dr. L. A. Sigurdson
528 MEDICAL ARTS BLDO.
Office Hours: 4 p.m.—6 p.m.
and by appolntment
J. J. SWANSON & CO.
LIMITED
308 AVENUE BLDO WPQ.
Fasteignasalar. Leigja hús. Ot-
vega peningalán og eldsábyrgS.
bifreiBaábyrgS, o. s. frv.
PHONE 97 538
Andrews, Andrews,
Thorvaldson and
Eggertson
LögfrœOingar
209BANK OF NOVA SCOTIA BQ.
Portage og Garry St.
Siml 98 291
GUNDRY PYMORE
Limited
British Quality Fish Netting
58 VICTORIA ST„ WINNIPEQ
Phone 98 211
Manager T. R. THORVALDSON
Your patronage will be appreciated
CANADIAN FISH
PRODUCERS, LTD.
J. H. PAOE. Managing Director
Wholesale Distributors of Frash
and Frozen Fish.
311 CHAMBER8 STREET
Offlce Ph. 26 828 Ros. Ph. 73 917
Q. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir.
Keystone Fisheries
Limited
404 SCOTT BLOCK SlMI 95 227
Wholesale Distributors of
FRESH AND FROZEN FISH
Bus. Phone 27 989 Res. Phone 36 1S1
Rovaizos Flower Shop
Our Speclalties
WEDDING CORSAGES
COLONIAL BOUQUETS
FUNERAL DESIGNS
Mrs. S. J. Rovatzos, Proprletreas
Formerly Robinson & Co.
253 Notre Dame Ave.
WINNIPEG MANITOBA