Lögberg - 25.11.1948, Qupperneq 1
I
PHONE 21 374
iot
O orn cr"‘r‘
rers *&&&
^ v A Complete
Cleaning
Inslitution
61. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 25. NÓVEMBER, 1948
NÚMER 48
Til stúknanna Skuldar og Heklu
í Winnipeg, Manitoba, Canada
Kæru samherjar, systur og bræður.
ÞÓTT VÆNGJUÐ faratæki hafi nú gert flestar fjarlægðir
að litlu sem engu, þá er það þó enn svo, að fótur margra er
fastur, þá fljúga vill önd.
Svo er um mig að þessu sinni.
Eg er sbaðbundinn hér á skrif-
stofu minni í Reykjavík, en nú
leitar hugurinn vestur yfir At-
landsála, inn á hina miklu Vest-
mörk, þar sem er “háskóli lífs
fyrir manndómsins þor”, leitar á
slóðir sælla og ljúfra endurminn-
inga. Nú hefði eg viljað vera
horfinn á hátíðarfund stúkn-
anna Heklu og Skuldar, er þær
minnast sextíu ára starftímabils.
Á fundum þessara .stúkna átti
eg marga hlýja og ánægjulega
kvöldstund, og þar kynntist eg
góðu fólki, sem hefur orðið mér
minnisstætt og kært. Og fjar-
lægðiin gerir nú sitt til að varpa
á þetta forna félagslíf ljóma
minninganna. Verið viss, kæru
bræður og systur, að eg hef oft
látið hugann reika til ykkar á
þessar slóðir, varðveiti mjög ljúf
ar endurminningar um félagslíf
okkar og samstarf og alla dvöl
mína yfirleit í landinu sólar,
blóma og bjartviðris. Eg vildi
hjartansfegin vera horfinn til
ykkar sem snöggvast og geta rétt
fram bróðurhönd með hamingju-
óskum og þakklæti fyrir liðinn
tíma. Eg öska ykkur inniiega til
hamingju í tilefni-60 áraafmælis-
ins og flyt ykkur beztu kveðjur
konu minnar og heillaóskir.
Beztu þakkir fyir allt gamalt og
gott. Leggi drottin blesun sína
yfir unnin störf og baráttuna
framvegis og geri hana sigur-
sæla.
Tveir eru þeir óvinir mann
kynsins, sem mestum þjáningum
valda. Það eru styrjaldirnar og
áfengið. Gegn þessum óvinum
mannlegrar velferðar, verða allir
mannvinir og friðelskandi menn
að sækja, klæddir hertýgjum
ljóssins og brennandi í anda og
trú á þann Guð, sem sigurinn
veitir. óvinurinn er máttugur,
hann verður ekki sigraður með
sljóvum vopnum, né af hálfvolg-
um mönnum. Þar þarf til héil-
huga menn, heita, sterka og vel
vopnum búna, vopnum andans
og mannkærleikans. Og aðeins
hinn æðsti máttur getur veitt
mönnunum nægilegt fulltingi í
slíkri sókn og baráttu.
Um allan heim er ágimdin enn
rót alls hins illa. Hún stendur
á bak við áfengisbölið og styrj-
GREINDARMÆLING
Á SKÓLABÖRNUM
aldarbrjálæðið. Betra hlutskipti
getum við ekki kosið okkur en
að vinna gegn þessu og að efl-
ingu bræðralags, friðar og guðs-
ríkis á meðal mannanna. Eg
fagna því, fyrir mitt leyti, að
lafa átt þess kost síðast liðin 18
ár, að vinna hér á landi að bind-
indi og öðrum menningarmál-
um, ferðast um landið, kynnast
góðu fólki og sjá ýmislegt gerast
til heilla fyrir land og lýð. Enn
ógnar áfengisbölið heill og vel-
ferð þjóðarinnar, og ekki sízt
æskulýðsins, en stöðugt fjölgar
þeim mönnum, körlum og kon-
um, sem leggja v i 1 j a lið hinu
góða málefni og styðja að úrs-
litasigri þess.
Hjartanlegustu kveðjur til
ykkar allra og annarra vina
þarna í vestrinu. Blessun drott-
ins fylgi störfum ykkar komandi
tímum til heilla fyrir land og lýð
og allt mannkyn.
I trú, von og kærleika,
Pétur Sigurðsson
By courtesy of ''The Winnipeg Tribune”
Hon. D. L. Campbell
ÞINGSETNING í FYRRA
LAGI
Hinn nýi forsætisráðherra
Manitóbafylkis, Hon. D. L. Camp
bell, hefir lýst yfir því, að fylk-
isþingið muni verða kvatt til
funda nokkru fyr, en venja hef-
ir verið til, og að samkomudagur
þess verði einhverntíma í janú-
ar; kveðst hann gera þetta
vegna þeirra bænda, sem á þingi
sitja of þurfa að komast heim
fyrir vorannir; venjulega hefir
þingið eigi komið saman fyr en
eftir miðjan febrúarmánuð.
Photo bv Karsh
Hon. Stuart S. Garson
í KJÖRI TIL
SAMBANDSÞINGS
ÁVARP
Úr borg og bygð
Á fundi er fræðsluráð hélt fyr-
ir fáeinum dögum, var rætt um
nauðsyn þess, að barnaskólar
bæjarins, hafi í sinni þjónustu
mann, er unnið gæti að greind-
armælingum og athugunum á
skólabörnum.
I sambandi við umræður þess-
ar bar Jónas B. Jónsson fræðslu
fulltrúi fram svohljóðandi til-
lögu, sem samþykkt var með
samhljóða atkvæðum nefndar-
manna:
“Fræðsluráð leggur til, að ráð-
inn verði einn kennari til þess
að vinna að greindarmælingum
og athugun á skólabörnum í
Reykjavík, og vinni hann fyrst
og um sinm undir stjórn dr.
Matthíasar Jónassonar.”
Mbl. 10. okt.
til stúknanna Heklu og Skuldar í Win-
nipeg í tilefni sextugsafmælis þeirra.
í NAFNI Stórstúku íslands og allra Reglusystkina heima á
gamla Fróni sendum við stúkunum Heklu og Skuld í Winnipeg
bróðurlegar kveðjur og hamingjuóskir í tilefni sextíu ára afmælis
þeirra. Sömu óskir og kveðjur viljum við jafnframt færa Stór-
stúku Manitoba, en þar vitum við, að íslenzkir bræður og íslenzkar
systur hafa löngum verið aðalstarfskraftarnir og eru enn.
Við minnumst með gleði þess
samstarfs, sem Stórstúka Islands
hefur á ýmsum tímum átt við
íslenzka templara í Vesturheimi,
bæði Stórstúku Manitoba og
stúkurnar í Winnipeg, og vonum,
að það samstarf slitni aldrei, en
fari vaxand.i Mættu vel þau
bönd, er þann veg hnýtast milli
íslenzks þjóðernis og íslenzkrar
menningar í Vesturheimi styrkj-
ast í framtíð.
Við göngum þess ekki duldir,
að starf stúknanna Heklu og
Skuldar hefur mikla blessun af
sér leitt í sextíu ár. Megi bless-
un Guðs hvíla yfir starfi stúkn-
anna í framtíðinni, svo að þær
geti lagt fram drjúgan skerf til
þess, að hugsjónir Goodtemplara
reglunnar verði að veruleika í
syndum spiltum heimi, því að
“að vera læknir lífsins meina,
er listin fagra, stóra, eina”.
Mættu víðar og verkmiklar
dyr opnast stúkunum Heklu og
Skuld til starfs og dáða, svo að
þær gætu int þá fögru og miklu
list af höndum sjálfum þeim til
sóma, en mörgum til gagns og' mans-
Hinn nýji dómsmálaráðherra
sambandsstjórnarinnar, Hon.
Stuart S. Garson, var útnefndur
þann 17. þ. m. sem þingmanns-
efni Liberalaflokksins í Mar-
quette kjördæminu í Manitpba;
þingmaður kjördæmisins, Mr.
Glen, lét nýverið af þingmensku
vegna heilsubilunar; aukakosn-
ing í Marquette fer fram þann
20. desember næstkomandi.
Sýnt þykir að C.C.F.-sinnar
muni einnig hafa frambjóðanda
í kjöri í áminstu kjördæmi.
Fjölsóttur afmælisfagnaður
SEXTIU ÁRA afmælishátíð stúknanna Heklu og Skuldar. sem
haldinn var, í salarkynnum þeirra á Sargent Avenue í Winnipeg
á mánudaginn var, 22. þ.m., var mjög fjölsótt, og bar þess ljósan
vott að stúkurnar eiga sterk ítök í hugum fólks á þessum slóðum,
enda má tvimælalaust fullyrða að þær hafa leyst af hendi hið
mesta þjóðþrifastarf fyrir íslenzka þjóðarbrotið hér vestra.
AUKAKOSNING
FAIRFORD
f
Sunnudaginn þ. 7. þ.m. voru
gefin saman í hjónaband þau
Guðrún Kristín Sveinbjörnson
og John Schultz. Brúðguminn er
af þýskum ættum, og borið gott
orð af þeim sem þekkja til.
Séra S. S. Christopherson gaf
saman; hafði hann skírt og fremt
brúðurina.
Kristín er dóttir hinna mætu
hjóna Guðmundar G. Sveinbjörn
sonar og Þuríðar, búamdi innan
bygðar; eru þau frændmörg hér.
Brúðirin var skrýdd upp á það
prýðilegasta, og brúðarmeyjar
sömuleiðis; brúðarmeyjar voru
þær Guðrún Magnúson, frænka
brúðurinnar og M. Vandenram-
eede. Brúðarsveinar voru Þor-
steinn bróðir brúðarinnar og
Charlie Schultz bróðir brúðgu-
mans. Blómamær var Audrey
Schults, bróðurdóttir brúðgu-
Jafnskjótt og Mr. Garson tókst
á hendur dómsmálaráðherra-
embættið í sambandsstjórninni,
lét hann af þingmensku í Fair-
ford kjördæmi; nú hefir skipast
þannig til, að þar fari fram auka-
kosning þann 23. desember næst-
komandi ekki enn vitað hverjir
verði frambjóðendur í kjördæm-
inu.
NÝJA RÁÐANEYTIÐ í
OTTAWA
hamingju.
Bróðuflegast. I trú, von og
kærleika.
Krlstinn Siefánsson
Stórtemplar
Jóh. Ogm. Oddsson
(St. R.)
SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR
Frá þingi þeirra í Parísmá svo
segja að alt hjakki í sama farinu.
Berlínar deilan er enn óleyst, og
eitt og hið sama er um Palestínu-
málin að segja. Erindrekar Rússa
þverskallast við öllum miðlunar-
tilraunum Vesturveldanna og
hamra á því nótt sem nýtan dag,
að Bretland og Bandaríkin séu
■að hervæðast í óða önn með það
fyrir augum, að koma Soviet
ríkjasambandinu fyrir kattarnef.
Sami tónninn, sami áróðurinn.
Að lokinni hjónavígslu hófst
brúðkaupsveizla, í samkomusal
Concordiasafnaðar mikil og
ágæt; prýðileg' brúðarkaka
skreytti borðhaldið . . .
Mikill fjöldi manns sótti at-
höfnina; voru sumir komnir
langt að . . .
Margar kostulegar gjafir voru
fluttar hinum ungu hjónum;
fylgja þeim hugheilra árnaðar-
óskir hinna mörgu vina og vanda
mann.
♦
Mr. Bjarni Goodman, ættaður
úr Selkirk, lézt nýverið hér í
borginni, 44 ára að aldri; hann
var jarðsunginn frá Bardals.
♦
Mr. Pétur Thorsteinsson frá
Wynyard, Sask., var staddur í
borginni í fyrri viku.
Hið nýja, eða réttara sagt hið
endurskipaða ráðanauti í Otta
wa, að frá skildum tveimur und-
antekningum, er nú þannig sam-
sett:
F orsæiisr áðherra
LOUIS ST. LAURENT
Búnaðarráðherra
J. G. GARDINER
Uianríkisráðherra
L. B. PEARSON
F j ármálar áðherr a
DOUGLAS ABBOTT
Fiskiveiðaráðherra
ROBERT MAYHEW
Heilbrigðismálaráðherra
PAUL MARTIN
Verkamálaráðherra
HUMPHREY MITCHELL
Hermálaráðherra
BROOKE CLAXTON
T eknar áðherr a
JAMES MCcCANN
Pósimálaráðherra
ERNEST BERTRAND
Ráðherra opinberra verka
ALPHONSEFOURNIER
Endurskipulagsráðherra
R. W. WINTERS
Innanríkisráðherra
COLIN GIBSON
Dómsmálaráðherra
STUART S. GARSON
Soliciior-General
JOSEPH JEEN
Samgöngumálaráðherra
LIONEL CHEVRIER
Verslunarráðherra
C. D. HOWE
Ráðherra hermannamálefna
M. F. GREGG
Ráðherra án sijórnardeildar
SEN. WISHART ROBERTSON
Samkoman fór fram undir
stjórn hr. A. S. Bardal, stórtemp-
lar, og fórst honum samkvæmis-
stjórnin hið besta úr hendi.
Skemmtiskráin, sem var mjög
ítarleg og fulllöng eins og hún
var auglýst, varð ennþá lengri
við nokkur innskot á síðustu
stundu, sem enginn átti von á,
og mun ýmsum hafa fundist það
óþarfa ábætir og tímatöf. Sam-
koman byrjaði um kl. 8, og voru
þá margir búnir að sitja alllengi,
en henni var 'ekki lokið fyr en
klukkan að ganga tólf, en þá var
sest að kaffidrykkju í neðri sal
hússins.
Aðalræðumenn voru þeir dr.
Richard Beck og dr. Rúnólfur
Marteinsson, og mæltu þeir hvor
um sig fyrir minni stúknanna.
Auk þess flutti dr. Beck kveður
frá Stórstúku Islands, og frá hr.
Pétri Sigurðssyni, ritstjóra temp-
laramálgagsins Einingin. Flutti
hann síðan snjalt og skörulegt
erindi sem að nokkru leyti var
sögulegs eðlis, en að nokkru eins
konar hvaðning til vopna í her-
ferðinni á móti Bakkusi. Dr.
Marteinsson gerði Skuld svipuð
söguleg skil, og mælti um leið
brennandi örvunarorðum til
starfsliðs stúknanna. Var gerður
besti rómur að báðum ræðunum.
Einnig flutti dr. Sigurður Júl.
Jóhannesson hugvekju um vín
og ofdrykkju; nefndi hann mái
sitt: Rödd í eyðimörku. Fanst
honum málstaður templara illa
staddur með samtíð vorri, en
horfði þó djörfum augum fram í
tímann, fullviss um endanlegan
sigur í stríðinu enda þótt að ein-
staka orustur kynni að ganga ó-
vininum í vil. Allir vita hversu
einlægur læknirinn er í slíkum
málaflutningi, enda var máli
hans tekið með almennu lófa-
klappi áheyrenda.
SJÖTÍU OG FIMM
AFMÆLI
ÁRA
Winnipeg borg átti nýlega
sjötíu og fimm ára aímæli, og
var þá þegar mikið um það rætt,
hvernig þessa sögulega viðburð-
ar yrð; a viðeigandi hátt minst;
var málið reifað í bæjarstjórn,
og loks að þeirri niðurstöðu kom-
ist að heppilegast myndi að
fresta væntanlegum hátíðahöld-
um í tilefni af afmælinu fram á
næsta sumar, og varð það að ráði.
Nú hefir borgarstjórn mætl svo
fyrir, að hátíðahöldin vegna af-
mælisins hefjist þann 6. júní
næstkomandi, og það látið í veðri
vaka, að þau standi yfir frá
þremur dögum upp í viku; verð-
ur ekkert tilsparað að gera þau
sem allra tilkomumest, enda
verðskuldar borgin einungis það
bezta; ferðamenn, sem hingað
koma, dást jaínan að því hve
Winnipeg sé vingjarnleg og
þrifaleg borg.
HVEITI
UPPSKERAN
f ÁR
Að því er hagstofunni í Otta-
wa segist frá, nam hveituppsker-
an í þessu landi í ár 393,300,000
bushelum; er þetta svipað upp-
skerumagn við það í fyrra; með-
an á kornslætti og þreskingu
stóð, var veður með allra hag-
stæðast móti, og þar af leiðandi
náðist svo að segja alt korn ó-
skemt.
KOMMÚNISTAR VINNA Á
Kveðju skeyti voru lesin. Á
meðal þeirra var erindi í ljóðum
frá gömlum Winnipeg manni og
stúkubróður, Þórði "Christie, í
Vancouver, B. C.
Átakanleg og áhrifamikil kvík-
mynd “Drunken Driving” var
sýnd. Má telja víst að templarar
gætu gert málstað sínum meira
gagn með sýningu slíkra mynda,
en með mörgum ræðum um bind
indi.
Yfirleitt fór samkoman
ánægjulega fram. Enda þótt
lengi væri setið munu allir hafa
farið ánægðir heim, og óska af-
mælisbörnunum Heklu og Skuld
langra lífdaga og framkvæmda á
ókomnum árum.
FERÐALAGI FRESTAÐ
Frá borgarstríðinu í Kína, er
það nýjast að frétta, að Komm-
únistar sýnast vinna jafnt og
þétt á; hafa þeir nú á valdi sínu
13 höfuðborgir hinna einstöku
fylkja af 35. Forustumenn Na-
tionalista hafa skorað á Truman
forseta, að veita þeim nýtt pen-
ingalán og auknar byrgðir
vopna; um undirtektir forseta er
enn eigi vitað.
KONA KEPPIR VIÐ
GARSON
Fjörutíu og átta ára gomul
húsmóðir Mrs. Earl Keating,
hefir verið útnefnd af hálfu C.
C. F. flokksins sem gagnsækj-
andi Garsons dómsmálaráðherra
við aukakosninguna til sam-
bandsþings, sem fram fer í Mar-
quette kjördæminu þann 20.
desember næstkomandi.
Svo hafði verið tilættlast, að
brezku konungshjónin, ásamt
dóttur þeirra Margaret Rose
prinsessu heimsækti í vetur
Ástralíu og New Zealand og
legði upp í ferðalagið í febrúar-
mánuði næstkomandi, nú hefir
það verið formlega tilkynt frá
konungshöllinni i London, að
ferðalagi konungsfjölskyldunnar
hafi verið frestað um óákveðinn
tíma, vegna lasleika hans há-
tignar konungsins; er mælt að
hann þjáist af dofa í fæti vegna
óheglulegrar blóðrásar.
LOFTÁRÁSIR MEGIN-
HÆTTAN í NÝRRI
STYRJÖLD
Tedder lávarður, formaður
herforingjaráðs breska flughers-
iris, flutti í dag ræðu, í tilefni
af herferðinni, sem breska stjórn
in nú beitir sér fyrir til að fá
fleira fólk til að ganag í landher,
flugher og flota. — Lagði lávarð-
urinn áherslu á það, að ef til nýrr
ar styrjaldar komi, stafi mesta
hættan af árásum úr lofti.
Til þess að vera sterkir fyrir,
verðum við jafnan að vera við
öllu búnir, sagði lávarðurinn.