Lögberg - 13.10.1949, Page 1

Lögberg - 13.10.1949, Page 1
.ticts PHONE 21 374 • L íaV8 * = a Complele Cleaning Insliluiion 62. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 13. OKTÓBER, 1949. NÚMER 41 Ur borg og bygð Látin er nýlega í Seattle, Wash., frú Anna María Straum- fjörð, kona Jóhanns H. Straum- fjörðs gullsmiðs og skrautmuna kaupmanns þar í borginni, mikil hæf og göfug kona; auk eigin- manns síns og tveggja dætra, Díönu og Unnar, lætur frú Anna María eftir sig þrjá hálf- bræður, ísak byggingameistara í Seattle, Gísla ritstjóra í Win- nipeg og Gunnar fyrrum bónda á Fossvöllum í Jökulsárhlíð, og tvo albræður, Einar Pál Jónsson ritstjóra Lögbergs og séra Sigur- jón á Kirkjubæ í Hróarstungu; hin látna var dóttir Jóns Benja- mínssonar á Háreksstöðum í Jök uldalsheiði og seinni konu hans Önnu Jónsdóttur. ☆ Hr. Grettir L. Jóhannson ræð- ismaður fór suður til Minne- apolis á laugardaginn, ásamt frú sinn; var þeim hjónum boðið þangað til að vera viðstödd af- hjúpun veglegrar Leifstyttú, er fram fór á sunnudaginn; flutti ræðismaður við þetta tækifæri kveðjur frá íslendingum; frá Minneapolis fóru þau Grettir og frú suður til Iowaríkis þar sem frúin er borin og barnfædd; þau ráðgerðu að vera um hálfsmán- aðartíma að heiman. ☆ Laugardagsskólinn er starfræktur á hverjum laugardegi í Fyrstu lútersku kirkju. Byrjar kl. 10 f. h. Kensl- an ókeypis -Safn’ð sem fl«e+um börnum og unglingum í skólann. Virðuleg athöfn í St. Paul - glœsileg stytta Leifs Eiríkssonar afhjúpuð að viðstöddu miklu fjölmenni Að því er fréttaritara Lög- bergs í Minneapolis segist frá, fór áminst afhjúpunarathöfn styttu Leifs Eiríkssonar fram í St. Paul, Minn., síðastliðinn sunnudag, að viðstöddu miklu fjölmenni og með glæsilegum hátíðisbrag. Valdimar Bjornson vararæðismaður Islands fyrir Minnesotaríki stjórnaði hátíða- haldinu og flutti skörulega ræðu, sem Lögberg væntir að eæta flutt les^ndum sínum á næstunni. í athöfninni tóku þátt ríkisstjórinn í Minnesota og Morgenstierne, sendiherra Norð manna í Bandaríkjunum, ásamc fleirum höfðingjum, svo sem hervarnaráðherra Noregs, Jens C. Hauge; á heiðursgestapaili sátu meðal annara ræðismaður íslands í Vestur Canada, G. L. Jóhannson og .frú, Dr. Richard Beck, vararæðismaður íslands í North Dakota og hinn kunni verkalýðsleiðtogi, Fred Fljozdal frá Detroit. Merkur Islendingur Ágúst heftið af Rexall tímaritinu hefur á kápunni mynd af manni en í kring um myndina er kort af Vestur Evrópu og Ameríku og er þar víkingja skip á leiðinni frá Islandi til Ameríku. Eru svo tveir staðir á kortinu merktir: Island og Minnesota. Maðurinn á myndinni er apótekari A. S. (Ed) Sigurdson frá Moorhead, Min- nesota, sem fæddist í Reykjavík á íslandi en kom kornúngur til Ameríku með foreldrum sínum en er nú eigandi og forstjóri stórar lyfjabúðar í Moorhead þar sem að hann gjörir afar mikla verzlun. Er löng hól grein um Mr. Sigurdson í þessu víðtæka hefti og eru þar líka margar myndir af búðinni, heimili, verkafólki og fjölskyldu 'hans. Tilefni als þess er að síðastliðið ár var Ed Sigurdson forseti al- heims félagsskapar Rexall lyf- sala sem eru yfir tíu þúsund að tölu og finnast um öll Bandarík- in, í Canada, á Englandi og víðar. Var svo góður rómur gjörður framkoma Mr. Sigurdsons í em- bætti þessu að hann var heiðrað- ur í stóru samsæti í Minneapolis að árinu liðnu og var honum gef- in stór indæll bakki (tray) úr ekta silfri. Grein þessi fjallar mikið um hvað Mr. Sigurdson sé fær kaup- maður og hvað hann hafi og sé að gjöra mikla og happasæla vexzlun. Er þar líka talið fram hvað hann starfi mikið fyrir það opin- bera og hvað han sé mannfélag- inu þarfur maður. Hefur hann verið forseti North Dakota lyf- salafélagsins, og forseti bæði Minnesota og N. Dakota Rexall Clubs. — Hefur hann verið fram kvæmdarstjóri hinna Sameinuðu heildsölu lyfsala í Chicago. Líka hefur 'hann verið forseti Moor- head Chamber of Commerce, Moorehead Rotary Club, og Re- tail Merchants Association. Síð- astliðið sumar, á fundi í Winni- peg, var hann kosinn forseti Rotary International Fellowship og er hann líka framkvæmdar- stjóri í Fargo-Moorhead Exec- utive Club. Er saga Ed Sigurdsonar skyld sögum margra annara íslendinga sem komu ungir frá íslandi og hafa unnið sér frægð og frama hér í nýju álfunni. Kom Ed tíu ára gamall, til Ameríku með foreldrum sínum Sæmundi og Steinunni Sigurd- son, er bjuggu mörg ár á Moun- tain, North Dakota. Vóru þau bæði ágætis manneskjur en eru nú dáin fyrir mörgum árum. Lif- ir ein dóttir þeirra, Kristín, Mrs. Chris Gudmundson enn á Moun- tain og svo er Sigurður sonur þeirra apótekari í Bottineau, Nort'h Dakota. Önnur börn þeirra munu vera Norðvestur í Canada og suður í Californíu. Vann Ed við hitt og annað eft- ir að til Ameríku var komið. Hjálpaði hann járnsmiði þegar hann var ellefu ára. Þurfti hann þar að passa eldinn og gjöra önn ur vikadrengs verk. Var það bæði heit og óhrein vinna. Um haustið þegar hann hætti til að fara á skóla fékk hann tólf dali fyrir sumar vinnuna. önnur sumur vann hann stundum í búð og stundum hjá bændum. Þegar hann var seytján ára byrjaði hann að vinna á ápoteki í Hensel, North Dakota, og fyrsta árið var kaupið bara fæði og herbergi. Næsta árið var kaupið $25.00 á mánuði en $16.00 fóru til baka fyrir fæði og herbergi. Vann hann seinna í apótekum í Valley City og í Fargo. Arið 1928 keypti hann búðina Að viðstöddu geisifjölmenni í afarstórri kirkju fór fram seinna um daginn glæsileg og fjölbreytt skemtiskrá, og þar íluttu fögur kveðjuávörp þeir Grettir ræðis- maður og Dr. Beck vararæðis- maður, auk þess sem Óli Kardal hreif hinn mikla mannfjölda með fögrum söng. Til sérstaks atburðar mátti það teljast, að séra Sveinbjörn .Ólafsson nýko.minn úr heimsókn til íslands, sýndi á laugardags- kvöldið kvikmyndir frá íslandi, er hann sjálfur tók á ferðalag- inu, er vöktu mikla hrifningu, og voru þar margir íslendingar viðstaddir, sem klöppuðu lof í lófa. Vegna þess hve áminst fregn barst Lögbergi seint, og að blað- ið var að mestu fullsett, er ekki unt að flytja nánari greinargerð af áminstu hátíðahaldi að sinni. A. S. (Ed) Sigurdson í Moorhead og hefur verið við stýrið þar síðan. Nú í mörg ár hefur búðin hans verið hæðst í sölum af öllum Rexall búðum í Minnesota. Kemur þetta af því hvað Mr. Sigurdson er vingjarn, hjálpsamur, áreiðanlegur og sanngjarn. Er búðin smekkleg, vel birgð með vörum og spegil hrein. Hann er giftur aðluðandi og myndarlegri hjúkrunarkonu, Ruth Nilles. Eiga þau þrjú efni- leg börn: Mary Elizabeth, 10; Katherine Anne, 8; Jon Edward, 6. Hafa þau einnig lítinn bróður- son Mrs. Sigurdson sem misti móðir sína þegar fárra vikna gamall. Er heimili þeirra Sigurd- sons mjög smekklegt og eru þau bæði ágæt heim að sækja. Islendingar mega vel vera morítnir af Ed Sigurdson því hann er mesta prúð og sóma menni. Hann kemur alstaðar vel fyrir og hefur virðingu og álit allra sem þekkja hann. Er ekki ofsagt um hann það sem grein- in í Rexall blaðinu endar með: „Menn í Minnesota og Norður miðvestrinu eru fyrirhyggju, og framtaksmenn með forsjón —já— miklir menn. Ed Sigurd- son er einn af þeim mestu og bestu.“ K.O.T. Lagafrumvarp staðfest Þann 6. þ. m., staðfesti Tru- man Bandaríkjaforseti hina svo- nefndu öryggislöggjöf, er í sér fól $1.314,000,000 fjárveitingu til herverndar þeim þjóðum, er að Atlantshafsbandalaginu standa; framgangur þessa máls í báðum þingdeildum gekk að mun gre:ð ar en búist var við. Óhjákvæmileg ákvörðun Útgáfa íslenzks vikublaðs í þessari álfu hefir af skiljanlegum ástæðum jafnan verið miklum vanda bund in og átt við rekstrarhalla að glíma frá ári til árs; jafn- vel meðan íslenzka mannfélagið hér um slóðir var langtum fjölmennara en það nú er, og þeir fleiri, sem full not höfðu íslenzkrar tungu, hrukku þó ekki á- skriftargjöld, að viðbættum auglýsingum, til að standa straum af öllum þeim kostnaði, sem útgáfunni var sam- fara; þetta bendir ljóslega til þess, að áskriftargjald ís- lenzks blaðs hafi frá upphafi verið lægra en átt hefði, og þurft hefði að vera; þetta er í sjálfu sér auðskilið mál, því útgáfa blaðs er háð nákvæmlega sama efna- hagslögmáli og önnur fyrirtæki; hún verður annaðhvort að bera sig fjárhagslega eða leggjast niður. Um marga áratugi hefir áskriftargjald Lögbergs hald ist óbreytt og verið bundið við þrjá dollara hvernig, sem til hefir hagað, hvort heldur innheimta gekk vel eða illa; af þessum þremur dollurum varð að taka 52 cent fyrir frímerki á blað hvers kaupanda yfir árið auk 30 centa af áskriftargjaldi til innheimtumanna um hinar dreifðu nýbyggðir, og var þá heldur en ekki farið að saxast á áskriftargjaldið; eins og nú hagar til, er þó drjúgum alvarlegra umhorfs en áður var vegna hins síhækkandi kostnaðar við útgáfuna, sem orðinn er ná- lega 80 af hundraði hærri en hann var við lok síðustu styrjaldar; þetta nær jafnt <il prentarakaups, pappírs, prentsvertu og viðgerða þeirra véla, sem óhjákvæmi- legar eru við útgáfu blaðs; það liggur þar af leiðandi í augum uppi, að róttækar ákvarðanir þurfi að verða teknar til að fyrirbyggja það slys, að Lögberg hætti að koma út, og sýnist þá ekkert liggja nær en það, að blaðið sé hækkað í verði og því komið í sína venjulegu stærð, 8 blaðsíður á viku. Á undanförnum mánuðum hefir Lögbergi borist allmargt bréfa frá áhugasömum kaupendum, er talið hafa verðhækkun blaðsins sjálf- sagða og bent á það samtímis -hve miklu haldbetri og vinsælli sú leið myndi reynast, en að gefa út hálft blað aðra hvora viku, er í rauninni væri einungis örþrifaráð. Vegna allra okkar menningarmála og mannfélags- samtaka má Lögberg ekki undir neinum kringumstæð- um líða undir lok, og það gerir það heldur ekki séu ís- lenzkir lesendur einhuga um að halda því við á hækk- uðu verði og með reglubundinni greiðslu fyrirfram. Þjóðræknismálin þurfa á Lögbergi að halda; varð- veitzla okkar sígildu og tignu tungu þarf á blaðinu að halda, og hið sama gildir um menningartengslin við ísland. — Nú benda flest eyktamörk til þess, að hinn mikli og fagri draumur íslendinga vestanhafs, stofnun kenslu- stóls í íslenzku og íslenzkum fræðum við Manitobahá- skólann sé í þann veginn að rætast, þó enn sé á þeim vettvangi djarfmannlegra átaka þörf unz lokamarki verði náð; slík fræðsludeild þarf á hvatningu af hálfu Lögbergs að halda með það fyrir augum, að námsfólk af íslenzkum stofni færi sér kenslu hennar sem allra almennast í nyt. Baráttumál okkar eru mörg og mikilvæg, og þau eru þess eðlis, að þau þurfa tíðum á lögeggjan að halda. Öllu því, sém til heilla horfir á vettvangi manndóms- og menningarmála okkar, vill Lögberg enn rétta örf- andi hönd, og treystir því að samúðarríkur skilningur Vestur-íslendinga geri blaðinu kleift, að halda þannig í horfi um mörg ókomin ár. Með skírskotun til þess, sem nú hefir sagt verið, hefir útgáfunefnd Lögbergs tekið þá ófrávíkjanlegu á- kvörðun, að frá 1. nóvember 1949 að telja, skuli blaðið framvegis koma út vikulega í sinni venjulegu stærð, seljast fyrir fimm dollara á ári og greiðast í öllum til- fellum fyrirfram. Mynd þessi er aj demantsbrúðhjónunum herra Jóni M. Borgfjörð og jrú Guðrúnu Borgfjörð í Árborg, er heiðruð voru með virðulegu samsœti þar í bœnum, eins og skýrt var jrá hér í blaðinu í fyrri viku.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.