Lögberg - 12.07.1951, Síða 1
PHONE 21 374
kot&
í>aTicTS
pTy CV««in
t,a^de:S A Complele
* Cleaning
Insliiuiicn
PHONE 21 374
(otd ms*e
wS&i&i______________
Cleaning
Insiiiution
64. ARGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 12. JÚLÍ, 1951
NÚMER 28
Mikil síld óð í gær— stormur
spillti veiði
í gær urðu skip víða vör
við mikla síld undan landinu
vestanverðu. Einkum þó í
Kolluálnum undan Snæfells
jökli og út af Vestfjörðum.
f gærkvöldi var enn lítil
veiði, sökum þess hve mikill
stormur og sjór var þá á
miðunum og hafði verið
allan daginn.
Fréttaritari Tímans í Bolunga
vík símaði í gær, að vélbátur-'
inn Einar Hálfdáns, skipstjóri
Hálfdán Einarsson, hefði farið
til síldveiða um hádegi daginn
áður en var kominn aftur heim
með fullfermi eins og báturinn
gat borið um klukkan ellefu
sama kvöldið. Fékk báturinn þá
um 600 tunnur í tveimur köst-
um skammt út af Djúpinu.
Báturinn fór aftur út í gær-
morgun og var búinn að fá eitt
stórt kast, að minnsta kosti 200
tunnur í gærkvöldi. Bátar í Bol-
ungavík búast sem óðast til síld-
veiða og einn fór á veiðar í gær-
kvöldi.
Sendi skeyti um síld.
Færeysk skúta, sem var undan
Dýrafirði, sendi í gær skeyti um
það, að á þeim slóðum væri
mikla síld að sjá.
í Kolluálnum undan Jökli
voru nokkrir bátar að veiðum
í gær. Stormur var mikill og
Gideon félogið
sýnir fræðslu-
kvikmynd
Þegar Kristinn Guðnason,
kaupmaður í San Francisco kom
nýlega hingað til lands hafði
hann meðferðis merkilega banda
ríska fræðimynd, sem fjallar
m. a. um rannsóknir á hljóðum,
sem fiskar gefa frá sér og öðr-
um náttúru-undrum. Æ 11 a r
Gideon-félagið að sýna þessa
þessa kvikmynd, sem það kall-
ar á íslenzku: „Fiskurinn hefir
fögur hljóð“, í skólum víðsvegar
á landinu, eins og það sýndi síð-
astliðinn vetur tvær fræðslu-
kvikmyndir „Dásemdir sköpun-
arverksins" og „Verkin lofa
Meistarann“. Kvikmyndir þess-
ar eru gerðar í þeim anda að
tengja saman vísindi og kristna
trú og hefir Ólafur Ólafsson,
kristniboði starfað að sýningum.
Gideon-félagið er samkunda
trúaðra verzlunarmanna. Hefir
það starfað í Bandaríkj unum
um 50 ára skeið, og fyrir nokkr-
Um árum var deild komið á fót
hér á landi fyrir forgöngu Krist-
ms Guðnasonar, sem hefir verið
stoð og stytta félagsins hér .
—Mbl., 22. júní
Enn magnast
dýrfíðin
Samkvæmt yfirlýsingu frá
hagstofunni í Ottawa þann 5.
yfirstandandi mánaðar, hafði
vísitala lífsnauðsynja enn hækk-
að svo í maímánuoi síðastliðn-
um, að til annars eins hefir eigi
spurst frá þeim tíma, er fylkja-
sambandið var stofnað; var vísi-
talan þá yfir 184 stig; einkum
eru það matvörur, svo sem
smjör, svínakjöt og nýjir ávext-
ir> sem hækkað hafa í verði;
ekki verður þess vart, að stjórn-
arvöldin leggi sérlega hart að
ser til að ráða fram úr öng-
þveitinu.
sjór þegar leið á daginn og því
erfitt um alla veiði.
í gær fékk þó vélbáturinn
Runólfur frá Grundarfirði um
130 tunnur á þessum slóðum, er
hann fór með til Grundarfjarð-
ar. Sveinn Guðmundsson frá
Akranesi fékk um 70 tunnur í
reknet í fyrrinótt. Voru netin
of grunnt, þar sem sú síld, sem
veiddist kom neðst í þau. Vél-
báturinn Keilir frá Akranesi,
sem einnig hóf veiðar í gær kast-
aði á eina torfu í Kolluál, en
náði ekki nema um 10 málum
sakir hvassviðris.
—TÍMINN, 30. júní
Samtalsfundir
um vopnahlé
standa yfir
Eins og skýrt var frá í fyrri
viku hófst um helgina samtals-
fundur erindreka af hálfu herja
sameinuðu þjóðanna og komm-
únista um hugsanlegt vopnahlé
í Kóreu; fimm manna nefnd
hvors aðilja um sig, tekur þátt
í ráðstefnu þessari; blaðamönn-
um var ekki heimilaður aðgang-
ur að fyrstu fundunum, og því
hvorki um blaða- né útvarps-
fregnir að ræða um hinar fyrstu
horfur; en síðar hefir verið
kunngert, að nokkrum ljós-
myndurum og blaðamönnum
verði heimilaður takmarkaður
aðgangur; fundir þessir snúast
einvörðungu um tilraunir til
vopnahlés, og þar verða engin
pólitísk mál rædd fyr en eftir
að vopn hafa verið lögð niður,
ef það á annað borð lánast, sem
nokkrar líkur þykja til.
Fundir eru haldnir í gömlum
húshjalli skamt frá landamær-
um Suður- og Norður-Kóreu.
Friðarsamningar
yið Japan
Nú er svo komið, að talið er
víst, að fullkomnir friðarsamn-
ingar við Japan verði afgreiddir
í öndverðum septembermánuði
næstkomandi. Fram að þessu
hafa Rússar ekkert viljað hafa
með slíka samninga að gera.
William Bryce, M.P.
Kjörinn
flokksforingi
Á nýafstöðnu ársþingi C.C.F.
flokksins í Manitoba, sem hald-
ið var hér í borginni, var
William Bryce, sambandsþing-
maður fyrir Selkirk-kjördæmið,
kjörinn til flokksforustu 1 fylk-
inu í stað E. A. Hansford fylkis-
þingmanns, er eigi gaf kost á
sér til endurkosningar; kvaðst
Mr. Hansford einráðinn í því,
að draga sig í hlé af vettvangi
stjórnmálanna að enduðu yfir-
standandi kjörtímabili.
íslendingur
druknar
í fyrri viku vildi það slys til,
að eldur kom upp í bát á Winni-
pegvatni og formaðurinn á bátn-
um, Hjörtur S. Guðmundsson,
aruknaði; aðrir af áhöfninni
björguðust. Hinn látni hafði frá
unglingsárum gefið sig að fiski-
veiðum; h^m var góður drengur
og vinsæll. Hjörtur var sonur
hinna kunnu landnámshjóna,
Mr. og Mrs. Hjörtur Guðmunds-
son, sem lengi bjuggu í ná-
i munda við Árnes, en nú eru
bæði látin; hann lætur eftir sig
systkini; lík hans var ófundið,
er síðast fréttist.
Elízabei ríkisarfi
Philip prins
Elízabet ríkisarfi og Philip maður hennar, hertoginn af
Edinburgh, heimsækja Canada í haust.
Um miðja fyrri viku var það
formlega kunngert frá London lands árið 1939. Hinir væntan-
og Ottawa, að Elízabet ríkisarfi j legu konungiegu gestir hafa lát-
Bretlands hins mikla og Philip
maður hennar, hertoginn af
Edinburgh, heimsæki Canada í
októbermánuði næstkomandi;
hvorugt þeirra hefir áður stigið
fæti á canadíska grund; núver-
andi konungshjón Breta, for-
eldrar Elízabetar ríkisarfa,
heimsóttu helztu borgir þessa
ið þá ósk í ljósi, að móttaka
þeirra verði eins fábrotin og
framast megi verða. Sambands-
stjórn hefir þegar skipað fimm
manna nefnd til undirbúnings
heimsóknar hinna konunglegu
gesta; gert er ráð fyrir þriggja
vikna dvöl í þessu landi.
Truman forseti hefir boðið
hinum konunglegu gestum að
heimsækja Bandaríkin um svip-
að leyti, og þykir sýnt, að það
boð verði þegið.
Bæjarstjórnir þeirra staða,
sem búist er við að hinir kon-
unglegu gestir heimsæki, hafa
hafist handa um undirbúning að
móttöku þeirra, og víst er um
það, að canadíska þjóðin mun
einhuga fagna komu þeirra.
„Torfi Bryngeirsson bezti
stangarstökkvari heimsins
Orð Svíans Lundberg, Evrópu-
methafa í stangarstökki. Torfi
setti nýtt íslenzkt met í stangar-
stökki í Stokkhólmi.
íslenzku frjálsíþróttamenn-
irnir, sem nú eru í kepn-
isför um Svíþjóð, kepptu í
Stokkhólmi í fyrrakvöld á
alþjóðlegu frjálsíþróttamóti.
íslendingarnir stóðu sig
mjög vel og Torfi Bryngeirs-
son setti nýtt met íslenzkt
met í stangarstökki, stökk
4,38 ma„ og sigraði Ragnar
Lundberg, Evrópumeistara
og methafa í þeirri grein.
Eftir keppnina sagði Lund-
berg, að hann áliti Torfa bezta
Kantötukórinn kom
úr söngför sinni
í gaer
Söng í Tívolí í gærkveldi við
mikla hrifningu áheyrenda, sem
voru mjög margir.
Kantötukór Akureyrar kom
heim með Gullfaxa fró Osló
í fyrrinótt ki. 2,20. Að vísu
voru nokkrir kórfélaganna
komnir heim fáum dögum
áður. Söngför flokksins hefir
verið sannkölluð sigurför, og
á hann hinar mestu þakkir
skyldar fyrir frammistöðu
sína.
1 gærkveldi efndi kórinn til
samsöngs í Tívolí og var þar á-
gætlega tekið. Veður var ágætt
og allmannmargt í skemmti-
garðinum.
Klukkan sex í gær hélt Lands
samband blandaðra kóra kórn-
um samsæti að Hótel Borg. I
dag munu margir kórfélaganna
halda heimleiðis tii Akureyrar.
—TÍMINN, 4. júlí
stankarstökkvarann í heimin-
um núna, og gæti hann hvenær
sem er ráðið við Evrópumetið,
sem er 4,40 m. Torfi hefði gífur-
legan hraða í atrennunni og
fjaðurmagn hans væri mikið, en
hann ætti enn talsvert ólært yfir
ránni, og þegar það lagaðist
ætti hann hæglega að geta
stokkið 4,50—4,60 m. Eins og
áður segir stökk Torfi 4,32 m„
en tókst ekki að stökkva næstu
Nýkominn af
íslandi
Síðastliðinn föstudag kom
hingað af Islandi ungur læknir,
Stefán Björnsson, til framhalds-
náms við Almenna sjúkrahúsið
hér í borginni; hann er af borg-
firzkum og eyfirzkum ættum, en
fæddur á hinu sögufræga höfuð-
bóli, Viðey í Kollafirði. Stefán
læknir er útskrifaður af Há-
skóla íslands árið 1949. Foreldr-
ar hans eru Björn Jónsson kaup-
maður í Reykjavík og frú Sig-
ríður Gísladóttir. Stefán er gáfu-
maður og viðkynningargóður. —
Lögberg býður hann innilega
velkominn í íslenzka mannfé-
lagshópinn í þessari borg.
hæð, sem hefði orðið Evrópu-
met í þetta sinn. Ragnar Lund-
berg varð næstur ,stökk 4,20 m.
Önnur úrslit í mótinu urðu þau
að Gunnar Huseby sigraði í
kúluvarpi, varpaði 16,38 m.
Gösta Arvidsson’Svíþjóð, varp-
sigraði í 100 m. hlaupi á 11,00.
aði 15.24 m. Hörður Haraldsson
Leif Christenson, Svíþjóð varð
annar á 11,1 sek. og Tore Hag-
ström, Svíþjóð, þriðji á 11,2 sek.
Guðmundur Lárusson varð ann-
ar í 400 m. hlaupi á 48,6 sek. á
eftir Þjóðverjanum Hans Geist-
er, sem hljóp á 48,2 sek.
Á frjálsíþröttamóti í Svíþjóð
á sunnudaginn setti Gunnar
Huseby nýtt íslenzkt met í
sleggjukasti, kastaði 46,80 m
Eldra metið átti Vilhjálmur
Guðmundsson, KR, og var það
46,57 m„ sett 1941, og var því
kominn tími til að bæta þetta
10 ára gamla og lélegasta kast-
met íslendinga. Gunnar Huseby
sigraði í kúluvarpinu, varpaði
16,59 m. Torfi Bryngeirsson
varð annar í stangarstökki á
eftir Ragnari Lundberg, en þeir
stukku báðir 4,20 m.
—TIMINN, 5. júlí
Stórtjón af
vöfdum eldsvoða
Síðastliðinn fimtudag kom
upp eldur í bænum Gaspe í
Quebecfylkinu, er orsakaði gíf-
urlegt eignatjón; milli þrjátíu og
fjörutíu íbúðar- og verzlunar-
hús brunnu til kaldra kola, auk
þess sem nokkrar skemdir urðu
á öðrum byggingum; bær þessi
telur hálft þriðja þúsund íbúa,
ög liggur um 250 mílur norð-
austur af Quebecborg að sunn-
anverðu við St. Lawrencefljót.
Iran og olían
Enn gengur alt i sama þófinu
milli Iran og Bretlands út af
olíuframleiðslunni í hinu fyr-
nefnda ríki með tvísýnar horfur
um málamiðlun.
Lætur af
þingmensku
Mr. A. L. Smith, íhaldsþing-
maður í sambandsþinginu fyrir
Calgary West kjördæmið, hefir
sagt af sér þingmensku vegna
heilsubilunar, og má víst telja,
að aukakosning fari fram í kjör-
dæminu áður en þing kemur
saman á ný fyrripart október-
mánaðar næstkomandi. Mr.
Smith reyndist hinn nýtasti
maður á þingi, einarður vel, og
góður málsvari Sléttufylkjanna;
að slíkum mönnum er eftirsjá af
þingi.
Stungið í lófa
ritstjórans
Gamli MoSólfur, sem mörgum
er að góðu kunnur vegna vísna-
gerðar, stakk eftirfarandi vís-
um í lófa ritstjóra Lögbergs í
byrjun þessarar viku:
Nú mér alt í augum vex,
elliglöpum háður;
áttatíu ár og sex
ævi spunninn þráður.
Eftir gengin ævihret,
æsku þrotinn varminn.
Nú eru aðeins fáein fet
fram á grafar barminn.
Fánýtt þetta finst mér líf —
fáein spor í sandi.
Loks er gröfin hræi hlíf,
hreinsun gerð er landi.
Ófriðaróstandi
aflýst
Bretland, Canada, Ástralía og
New Zealand, hafa nú formlega
aflýst því ófriðarástandi við
Þýzkaland, sem verið hefir ríkj-
andi síðan 1939. Og nú hefir
Truman forseti lagt fyrir þjóð-
þing Bandaríkjanna þingsálykt-
unartillögu sama efnis, er sýnt
þykir að afgreidd verði í einu
hljóði.
ECA veitir íslandi 3 milljónir
dollara sérstakt framlag
Æilað iil kaupa á vörum frá
Evrópu í því skyni að koma upp
nokkrum vörubirgðum.
Efnahagssamvinnustjórnin í
Washington hefir fyrir nokkru
samþykkt að veita íslandi sér-
stakt framlag að upphæð 3.000,-
000 dollara, 49 milljónir króna,
í Evrópugjaldeyri, í því skyni
að aðstoða ríkisstjórnina við að
leyfa aukinn innflutning á nauð-
synlegum neyzlu- og rekstrar-
vörum og að afnema verzlunar-
höftin, eins og gert var í apríl-
mánuði s.l.
Tilgangurinn með aðstoð þess-
ari er fyrst og fremst sá, að
fullnægja eftirspurn eftir vörum
þessum, svo og að koma upp
nokkrum vörubirgðum í land-
inu og þar með skapa aukið jafn
vægi í vöruverði og efnahags-
lífinu yfirleitt.
Framlag þetta er veitt í gegn-
um Greiðslubandalag Evrópu og
er eingöngu varið til kaupa á
vörum frá löndum Evrópu. 1
júlí 1950 veitti efnahagssam-
vinnustjórnin í Washington
íslandi svipað, óbeint framlag,
að upphæð 4.000.000 dollara til
sömu nota, og var það að fullu
notað í apríl s.l. Þar með nema
hin óbeinu Marshallframlög, er
ísland hefir fengið í gegnum
greiðslubandalagið s a m t a 1 s
7.000.000 dollara fyrir tímabilið
frá 1. júlí 1950 og til þessa dags.
—TÍMINN, 29. júní