Lögberg - 29.01.1953, Blaðsíða 1
Phone 72-0471
BARNEY'S SERVICE STATION
NOTRE DAME and SHERBROOK
Gas - Oil • Grease
Tune-Ups
Accessories 24-Hour Service
Repairs
66 ÁRGANGUR
Phone 72-0471
BARNEY'S SERVICE STATION
NOTRE DAME and SHERBROOK
Gas - Oil • Grease
Tune-Ups
Accessories 24-Hour Service
Repairs
NÚMER 5
WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 29. JANÚAR, 1953
Merkjasalan til stuðnings minnisvarða
Stephans G. Stephanssonar skálds
FRÓNSfundur
Þjóðræknisdeildin „Frón“ hélt
fund í G. T. húsinu síðastliðið
mánudagskvöld. Forseti, Jón
Ásgeirsson, setti fund og stjórn-
aði honum. Ritari las upp fund-
argerð síðasta fundar og var hún
samþykkt athugasemdalaust. Þá
fór fram útnefning 9 fulltrúa
„Fróns“ til að sitja þing aðal-
félagsins, sem fram fer í febrúar-
mánuði n.k. Þessir hlutu kosn-
ingu með samhljóða atkvæðum:
Jón Jónsson, Jón Ásgeirsson,
Einar Sigurðsson, Sveinn Pálma-
son, Miss Elín Hall, Mrs. Salome
Backman, Mrs. María Sigurðs-
son, Ragnar Stefánsson og Lúð-
vík Kristjánsson.
Heimir Thorgrímsson flutti
framsöguræðu um meðlimagjöld
félagsmanna til deilda og aðal-
félagsins. Nokkrar umræður
urðu um málið og lauk þeim með
því, að þingfulltrúum Fróns var
falið að koma því á framfæri á
þinginu. — Þessu næst sungu
fundarmenn nokkur íslenzk lög
undir stjórn Péturs Magnúss,
en Gunnar Erlendsson var
við hljóðfærið. Valdimar Lárus-
son flutti ræðu, Minningar úr
íslandsferð. Var gerður góður
rómur að ræðu hans og honum
þakkað með lófataki.
Fleira lá ekki fyrir fundi og
var honum slitið kl. 9.35 síðd.
THOR VIKING, ritari Fróns
Það munar
um minna
Hagstofan í Ottawa áætlar, að
á næstu tólf árum muni barna-
skólanemendum í Canada hafa
fjölgað um helming frá því, sem
nú er; reynist þetta á rökum
bygt, sýnist ekki ósanngjarnt að
sambandsstjórn léti nokkru
meira af höndum rakna til skóla-
halds en fram að þessu hefir
gengist við.
Fjárlög í
sambandsþingi
Gert er ráð fyrir að fjárlaga-
frumvarpið fyrir næsta fjáfhags-
ár verði lagt fram í sambands-
þinginu áður en langt um líður;
áætlað er að útgjöldin nemi ríf-
lega fjórum biljónum dala, og
verða það þá hæztu útgjöld, sem
um getur í þingsögu canadisku
þjóðarinnar; þó er áætlað, að um
drjúgan tekjuafgang verði að
ræða.
Halda flokksþing
Liberal-Progressiv stjórnmála
samtökin í Manitoba héldu í
fyrri viku ársþing sitt í Fort
Garry hótelinu hér í borginni
við mikla aðsókn; aðalræðumað-
ur var Douglas Abbott fjár-
málaráðherra sambandsstjórn-
arinnar; telja mun mega nokk-
urn veginn víst, að fylkiskosn-
ingar verði háðar í ár, enda
benti margt til þess á þinginu
að svo myndi verða; umræður
urðu næsta snarpar með köflum,
einkum þó varðandi áfengislög-
gjöfina, en henni þykir í mörgu
ábótavant; vildu ýmsir að fram
yrði látin fara almenn atkvæða-
greiðsla um málið í sambandi
við fylkiskosningarnar, en þeir
urðu í algerum minnihluta, og
þarf þess því naumast að vænta,
að róttækar aðgerðir verði tekn-
ar um málið að sinni, enda mun
stjórninni síður en svo ant um,
að áfengislöggjöfin verði gerð
að kappsatriði í kosningahríð-
inni.
Með hliðsjón af sölu korns, var
þingið eindregið þeirrar skoð-
unar, að hollast væri að endur-
nýja alþjóðahveitisamningana
og að hveitiráðið annaðist fram-
vegis um sölu hveitis og hrjúfra
korntegunda.
Richard Beck
Fréttir fré ríkisútvarpi íslands
18. JANÚAR
merkin, snúið sér til nefndra út-
Snemma síðastliðið haust
skrifaði ég í vestur-íslenzku
vikublöðin grein um minnis-
varða þann, sem sveitungar
Stephans G. Stephanssonar
skálds heima á ættjörðinni —
með aðstoð annarra velunnara
hans— ætla að reisa honum á
æskustöðvum hans í Skagafirði
síðar á þessu ári. Jafnframt vék
ég sérstaklega að merkjum
þeim, sem framkvæmdarnefnd-
in í málinu hefir látið gera, og
seljast til ágóða fyrirtækinu.
Birti ég samtímis nöfn þeirra
mætu manna og kvenna hér
vestan hafs, sem góðfúslega
höfðu tekið að sér útsölu merkj-
anna í byggðum sínum eða
bæjum.
Enda þótt undirtektir hafi
yfirleitt verið góðar, og sums
staðar ágætar, vil ég draga at-
hygli fólks að þessu máli á ný,
jafnhliða því og ég birti nöfn á
nýjum útsölumönnum merkj-
anna, en þeir eru þessir:
Gunnar Jóhannsson,
Wynyard, Saskatchewan.
Þórður Ásgeirsson,
Mozart, Saskatchewan.
J. K. Jóhannson,
Markerville, Alberta.
Hefir hinn síðastnefndi að vísu
þegar selt öll þau merki, sem
honum voru send upprunalega;
aðrir, sem hafa gert fullnaðar
skilagrein, eru: Miss Elín Hall,
Winnipeg, Man.; Mrs. L. Sveins-
son, Lundar, Man., og Hallur E.
Magnússon, Seattle, Washington;
en þó myndu þau vafalaust fús-
lega taka á móti merkjapöntun-
um, ef einhverjar eru á þeirra
slóðum.
Hinir eldri útsölumenn, sem
enn hafa merki til sölu, eru:
Séra Albert E. Kristjánsson,
Blaine, Washington.
Davíð Björnsson, bóksali,
Winnipeg, Manitoba.
Gunnar Sæmundsson,
Árborg, Manitoba.
Páll Guðmundsson,
Leslie, Saskatchewan.
Rósmundur Arnason,
Elfros, Saskatchewan.
Steve Indriðason,
Mountain, North Dakota.
Kristján Kristjánsson,
kaupmaður,
Garðar, North Dakota.
Getur fólk á ofangreindum
stöðum, sem óskar eftir að kaupa
Komnir til ára sinna
Á miðvikudaginn í fyrri viku
átti John Still, 622 Furby Street
hér í borginni aldarafmæli og
nýtur enn sæmilegrar heilsu;
hann er ættaður úr Simcoehér-
aðinu og kom til Manitoba árið
^878. Mr. Still stundaði um langt
skeið landbúnað í grend við bæ-
inn Teulon hér í fylkinu og brá
búi hálfníræður að aldri.
Sólarhring síðar en Mr. Still
lylti öldina, hélt John Larzenko,
'7 Dufferin Avenue einnig upp
a hundrað ára afmæli sitt; hann
fæddur í Rússlandi, en fluttist
iftgað árið 1898 og hefir lengst
p verið í þjónustu Canadian
acific járnbarutarfélagsins og
enn stálsleginn að heilsu og
,a3r í flestan sjó. öldungar þess-
!r hittust í tilefni af aldarafmæl-
|nu og klingdu glösum í frönsku
koníaki.
sölumanna í sínu byggðarlagi.
En merkin, sem eru hin snotr-
ustu, seljast á $1.00 hvert. Að
sjálfsögðu tek ég undirritaður
einmg við pöntunum, en heppi-
legast er fyrir fólk í Canada að
snúa sér til útsölumannanna
þeim megin landamæranna.
Jafnframt því, sem ég, í nafni
hlutaðeigenda og eigin nafni,
þakka öllum þeim hér vestan
hafs, sem þegar hafa stutt þetta
minnisvarðamál, og þá ekki sízt
útsölumönnum og konum, vil ég
hvetja aðra landa mína til þess
að leggja góðu máli lið með því
að kaupa umrædd merki.
Með þetta minnisvarðamál í
huga, og menningarskuldina við
hann, sem það er helgað, má
minna á fleyg orð Davíðs Ste-
fánssonar:
Minning þeirra, er afrek unnu,
yljar þeim, sem verkin skilja.
RICHARD BECK
Farþegaskip
brennur í Liverpool
Hinn 25. þ. m. brann farþega-
skipið The Empress of Canada
á höfninni í Liverpool svo naum-
ast er annað eftir af því en
nokkur hrúgöld; skipið var eign
Canadian Pacific Eimskipafé-
lagsins; skipið var 20,235 smá-
lestir að stærð, 25 ára gamalt og
var metið á fimm miljónir doll-
ara; eldur kom upp í skipinu
um miðnætti og voru þá engir
farþegar um borð; farrými skips-
rúmaði um 700 farþega.
Skipið hafði verið til þess
ætlað að flytja héðan úr landi
fjölda mikinn manna og kvenna,
er ásett höfðu sér að sækja krýn-
ingarhátíðina í London þann 2.
júní næstkomandi, en eins og
nú horfir við má ætla, að fólki
þessu veitist örðugt að afla sér
farkosts.
Ekki á
flæðiskeri staddur
Þess er getið í nýjum Banda-
ríkjafréttum, að Harry S. Tru-
man fyrrum forseti, sem nú
dvelur á heimili sínu í Independ-
ence, Missouri, en hefir einnig
einkaskrifstofu í Cansas City,
hafi fengið tilboð frá miklu
bókaforlagi í New York um út-
gáfu á endurminningum hans,
sem nú er farið fram á að hann
semji; mælt er að félagið muni
greiða Mr. Truman $500,000 í
ómakslaun.
Mr. Truman á merkilega sögu
að baki; hann varð í stjórnartíð
sinni að taka eina ákvörðunina
annari meiri og lét af hinu á-
byrgðarmikla forsetaembætti
sem vaskur drengur og batnandi.
Two Inventions
U.S. Fishery Products Report
No. 4 states: “The Director of
Fisheries in Iceland recently
demonstrated two new Iceland-
ic inventions of interest to fish-
ermen, according to a report in
Fiskeis Gang, a Norwegian fish-
ery periodical. One invention is
a machine which cuts up bait
herring, one at a time. This de-
vice can be regulated to produce
pieces of bait of any desired
size. The other invention is a
machine which can be used in
the line-trawl fishery to lay line
in coils in a half barrel as it is
hauled in by the winch. Patent
applications are being made for
both inventions in those count-
ries where the devices would be
useful.”
Ljóð þitt og lífsins saga
lýsir af vizku og þori.
Grær þar og geislum safnar
gróður í hverju spori.
Yljar frá þínum óði
ástúð, sem hjartað finnur,
öllum, sem fegurð unna.
Andi þinn framtíð vinnur.
Ættjörð með óðalstryggðir
ísland þín tigna móðir
barn þig að brjóstum vafði
brosmild við helgar glóðir
sögu, og söngvaheima,
sumur angandi rósa
full af fegurð og auði
fjársjóðum andans ljósa.
Fóstraði framgjarn hugur
fræ þinna æskulanda.
Þjóðmeiður þúsund ljóða
þroskaði sál og anda.
Næmur á nýja hljóma
námfús, til menntahæða
lýstu þér lærðar dróttir.
Loftungur himin fræða.
Búinn því bézta skarti
biðu þín framavegir.
Hærra um lönd og heima
hugur sér takmark eygir.
Útþrá í ungum barmi
áttir þér, drauminn kæra,
mannast og menntir kanna
meira að sjá og læra.
Sviphreinn með sonartrega
sigldir þú burt að kveldi.
Land þinna ljósu drauma
laugaðist sólareldi.
Kveðjur svo hjartakærar
komu til þín með blænum.
Áttir þér óskaleiði
umvafinn stjörnusænum.
prófessor
Beið þín á bak við höfin,
blá og heillandi ströndin,
dýr og óráðinn draumur,
dulblíðu óskalöndin.
Vesturheimsálfan víða
varma rétti þér arma.
Framandi fannst þig vafinn
frelsisins sólarbjarma.
Hér skyldi hugarljósum
hárra til vega stefna.
Vinna sér virðing manna.
Vonir og heitorð efna.
Sóttir þú skóla, er sýndu
sannindi menntaljósa.
Hlauztu við hæfi sálar
hæstu próf þér að kjósa.
Hár í mennt, sem þér hæfir.
Heiður slær bjarma á leiðir.
Mannvinur öðrum meiri
mildur um sættir greiðir.
Fræðir og framtak glæðir.
Fróður og virðir það góða.
Vitur og lætur þig varða
vandamál allra þjóða.
Mest þig meta og virða
menn, sem bezt þig skilja.
Þarfnast heimurinn þjóna
þeirra, sem eiga vilja
glóð, á hið góða að trúa,
geyma eldinn í hjarta,
vona að framtíðin vísi
veginn fagra og bjarta.
Heill þér, sem hugardáðum
helgar þig list og fræðum.
Getur og gulli betri
góð kvæði flutt með ræðum.
Þeim er hollt þér að kynnast
þar, sem gott vilja læra.
Ættjörð, sem orðstír virðir,
ann þér — landið þitt kæra.
Kjarlan Ólafsson
—Lesb. Mbl., 18. janúar
Ólafur Thórs atvinnumálaráð-
herra kom heim í vikunni, sem
leið, en hann fór utan 9. desem-
ber sl. til þess að sitja fyrir Is-
lands hönd ráðherrafundi Efna-
hagssamvinnustofnunar Evrópu
og Norður-Atlantshafsbandalag-
sins. Höfuðtilgangur fararinnar
var þó sá, að ræða við brezku
stjórnina þau vandkvæði, sem
skapast höfðu í viðskiptum
Breta og íslendinga végna lönd-
unarbannsins, sem brezkir út-
gerðarmenn höfðu sett á íslenzk
an togarafisk, og jafnframt að
skýra fyrir þeim þjóðum, sem
standa að Efnahagssamvinnu-
stofnuninni, nauðsyn íslendinga
og rétt til þess að færa út land-
helgina og áhrif aðgerða Breta
á efnahagsafkomu Islendinga. Á
leið sinni til Parísar ræddi at-
vinnumálaráðherra við utan-
ríkisráðherra Breta og f 1 e i r i
brezka ráðherra um mál þetta,
og á fundi Efnahagssamvinnu-
stofnunarinnar flutti hann ræðu
um málið, skýrði málstað íslend-
inga og lagði einkum áherzlu á
það að hin vestræna samvinna
byggðist öll á því, að rétturinn
viki ekki fyrir valdinu. Eftir
jól ræddi-yólafur Thórs mál þessi
allítarlega við brezku stjórnina.
I fréttaauka útvarpsins á mið-
vikudaginn komst ráðherrann
svo að orði: „Ég tel ekki tím-
bært að skýra nánar frá við-
ræðunum að þessu sinni, að öðru
leyti en því, að mér þykir rétt
að íslendingar viti það, að ég
hef sagt brezku stjórninni skýrt
og afdráttarlaust, að Islendingar
muni ekki víkja frá ákvörðun-
um sínum, nema að undangengn-
um dómi, sem þeir að sjálfsögðu
munu lúta, hvort sem hann
gengur þeim meira eða minna í
hag. Þá þykir mér og rétt og
sanngjarnt, að ég skýri frá því,
að eftir þessar viðræður geri
ég mér gleggri grein fyrir þeim
örðugleikum, sem brezka stjórn-
in á við að etja um lausn mál-
sins. Þori ég ekkert að fullyrða
um hvernig henni tekst að ráða
fram úr þeim, en að mínum
dómi er Bretum ekki minni þörf
skjótra ákvarðana í þessum efn-
um en íslendingum.“ Að lokum
kavðst ráðherrann gera sér von-
ir um að frekari fregna væri að
vænta áður en langt um liði,
þótt hæpið sé að endanleg lausn
málsins sé á næstu grösum.
☆
Vélbátasjómenn í Reykjavík
og Hafnarfirði hófu verkfall 1.
þessa mánaðar, þar eð ekki
höfðu tekizt samningar um kaup
þeirra og kjör. Hafa síðan marg-
ir sáttafundir verið haldnir með
fulltrúum þeirra og útgerðar-
manna, en samningar ekki tek-
izt. Sáttanefnd bar fram í gær
tillögu um lausn deilunnar deil-
unnar og verða atkvæði greidd
um hana hjá báðum aðiljum í
dag.
☆
Fyrirhluta þessa mánaðar hef-
ur afli verið góður á báta frá
Sandgerði. Róðrar hófust þar 6.
þ. m. og fengu bátarnir fyrstu
dagana allt að því 20 skippund
á bát, en síðan heldur minni afla
en stöðugan. Telja sjómenn, að
þetta sé að þakka friðun fiski-
miðanna fyrir ágangi togara. —
Akranesbátar hafa einnig aflað
sæmilega.
☆
Nýlega var opnuð í Listvina-
salnum í Reykjavík sýning á
myndum eftir franska lista-
menn. Þarna eru verk eftir 19
listamenn, flest litógrafíur eða
steinprent, allt svo kölluð ab-
straktlist, og er til þess ætlast
að sýningin gefi hugmynd um
viðfangsefni og vinnubrögð
þeirra myndlistarmanna í Frakk
landi, sem þá stefnu aðhyllast.
☆
Látinn er í Reykjavík Óskar
Halldórsson útgerðarmaður, 59
ára að aldri.
☆
Samkvæmt nýkomnu yfirliti
um hag íslenzkra bænda, teljast
eignir bænda í öllum sýslum
landsins samtals 364 miljónir
króna, skuldii þeirra 112 milj-
ónir, og eignir þá umfram skuld-
ir 252 miljónir króna. Þetta er
um 40.000 króna eign að meðal-
tali á hvern bónda, og þar sem
sumir eignaliðirnir eru tvímæla-
laust of lágt taldir, segir höf-
undur skýrslunnar, Arnór Sigur
jónsson, þá verður ekki annað
sagt en hagur íslenzkrar bænda-
stéttar sé mjög sæmilega góður.
Ljóst er, að hagur bændastéttar-
innar í heild hefur ekki hallazt
síðustu árin, þrátt fyrir misæri.
Skuldir bænda hafa að vísu vax-
ið töluvert en á móti því koma
umbætur á jörðum og húsakynn
um, sem áreiðanlega nema
meira en skuldaaukningunni.
Og þegar á allt er litið, segir í
yfirlitinu mun óhætt að fullyrða
að hagur íslenzkra bænda hafi
aldrei verið betri en nú. Eru
færðar til þess tvær ástæður.
Önnur er sú, að bændur hafi
búið við fast verðlag á afurðum
sínum síðustu árin, og hafi því
vitað betur en nokkru sinni
áður á hverju þeir máttu byggja
búrekstur sinn. En hin ástæðan
er talin sú, að einstakir bændur
og stéttin í heild hafi haldið
betur á efnum sínum og tekjum
en aðrir.
☆
Ákveðið hefur verið að flokks-
þing Framsóknarmanna, hið tí-
unda í röðinni, verði haldið í
Reykjavík í marzmánuði næst-
komandi. Framsóknarmenn í
Eyjafirði hafa ákveðið framboðs
lista sinn í alþingiskosningun-
um, sem fram eiga að far í sum-
ar. Bernhard Stefánsson alþing-
ismaður er efstur á listanum en
annar er Tómas Árnason lög-
fræðingur.
☆
Áfengisvarnarstöð Reykjavík-
ur tók nýlega til starfa, en hlut-
verk hennar er að veita drykkju
sjúklingum læknisaðstoð, veita
vandamönnum þeirra félagslega
hjálp og safna skýrslum og öðr-
um gögnum um áfengisvanda-
málin í bænum. Alfred Gíslason
læknir veitir áfengisvarnarstöð-
inni forstöðu.
Framhald á bls. 4
íslenzkt skip
bjargast af
Á sunnudaginn flutti cana-
diska útvarpið þá fregn, að ís-
lenzkt flutningaskip hefði sent
frá sér neyðarskeyti og væri í
háska statt undan ströndum
Grænlands; Þess var og getið,
að ameríska strandgæzlan hefði
lagt svo fyrir að tvö skip yrði
send til liðsinnis hinu íslenzka
skipi, er vegna óhemjuveðurs
hefði brotið stýri sitt. Lögberg
sneri sér til Canadian Press
vegna frekari upplýsinga og
fékk það svar, að skipið héti
Drangajökull og að það hefði
verið statt um 100 mílur frá
suðurodda Grænlands; til allrar
hamingju lánaðist að gera við
skipið og er það nú á leið til
Reykjavíkur.