Lögberg - 29.01.1953, Side 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 29. JANÚAR, 1953
3
BRAUÐBITI
Saga eftir Francois Coppée
Ungi greifinn af Hardimont
hafði nýlokið að snæða mið-
degisverð í Aix-les-Bains, þar
sem hann var staddur, þegar
hann las í blöðunum um hrak-
farirnar við Reichshoffen, einn
af fyrstu sigrum Prússa í fransk-
prússneska stríðinu.
Hann tæmdi vínglasið sitt,
lagði frá sér pentudúkinn á
veitingahúsborðið, gaf þjóni sín-
um skipun um að pakka niður
farangrinum, náði í Parísarhrað-
lestina tveimur stundum síðar
og flýtti sér til nýliðaskráning-
arstöðvar.
Þannig stóð á því, að Henri de
Hardimont, liðsmaður í þriðju
sveit annarar herdeildar, gengdi
varðstöðu dag einn, snemma í
nóvember, þegar sveit hans var
stödd framan við Bicetrevirkið.
Þetta var drungalegur staður,
meðfram veginum stóðu nakin
tré, allstaðar var aur og djúp
hjólför. Við vegarbrúnina stóð
yfirgefin krá, og þar höfðust
nokkrir hermenn við nú. '
Þarna hafði verið barizt fyrir
n o k k r u m dögum. Nokkur af
ungu trjánum höfðu brotnað í
tvennt af skothríðinni og á sér-
hverjum stofni gat að líta kúlna-
för. Húsið var sérstaklega ó-
hugnanlegt, sprengja hafði eyði-
lagt þakið og rauðir veggirnir
litu út eins og þeir hefðu verið
þvegnir upp úr blóði. Yfir öllu
tgrúfði drungalegur vetrarhim-
inn, kafinn þungum, hraðfara
skýjum — lágur, dimmur og illi-
legur himinn.
Ungi greifinn stóð úti fyrir
krárdyrunum með riffilinn um
öxl, húfuna niður í’ augum og
dofnar hendurnar í buxnavös-
unum. Hann skalf í sauðskinns-
úlpunni og hugsanir hans voru
allt annað en bjartar, þegar
hann horfði til hæðardraganna,
sem hurfu í þokumistri, þaðan,
sem stöðugt gusu upp hvítir
reykjarmekkir, fylgt af sprengj-
unum: Krubbfallbyssurnar.
Hann var s v a n g u r. Hann
kraup á annað hnéð og tók upp
úr mal sínum, sem lá hjá honum
sneið af brauðskammtinum sín-
um. Hann beit í brauðið og
tuggði hægt.
En eftir fáeina munnbita var
hann búinn að fá nóg; brauðið
var hart og súrt á bargðið. Hann
hugsaði með beiskju, að hann
myndi ekki fá ferskt brauð fyrr
en því yrði útdeilt daginn eftir,
svo fremi nokkuð yrði úr því.
Hermennskan var ekkert sældar
líf, og hann minntist þess, sem
hann kallaði „heilsuárbit,“ sem
hann var vanur að borða á morn
anna eftir sérlega íburðarmikla
kvöldverði. Þá sat hann við
gluggann í Café Anglais og pant
aði næstum ekkert — nú, máske
einn bita af rifjasteik og nokkur
pönnuegg með asparagus. Vín-
þjónninn vissi hvað honum kom
og færði honum, og o p n a ð i
flösku af gömlu rauðvíni. Ó,
þetta voru góðir tímar, og hann
myndi aldrei v e n j a s t þessu
hræðilega brauði!
Og í andartaks óþolinmæði
fleygði ungi maðurinn afgang-
inum af brauðinu í forina.
> 1 sama vetfangi kom hermaður
út úr kránni, laust niður og tók
UPP brauðið, þurrkaði af því á
ermi sinni og tók síðan að eta
það græðgislega.
Henri de Hardimont skamm-
aðist sín fyrir það, sem hann
hafði gert og horfði með samúð
a vesalings manninn seðja hung-
Ur sitt. Hann var stór náungi,
fremur luralegur, augun voru
eins og í manni með hitasótt og
skeggið benti til, að hann væri
nýkominn úr sjúkralegu. Hann
Vai' svo magur, að herðablöðin
stóðu út í slitna úlpuna.
»Tú hlýtur að vera fjandi
svangur," sagði greifinn, og
§ekk til hans.
»Lítur út fyrir það, finnst þér
ekki?“ svaraði hann með fullan
munninn.
„Fyrirgéfðu — ef ég hefði vit-
að, að þú vildir það, hefði ég
ekki fleygt því.“
„Enginn skaði skeður,í‘ sagði
hinn, „ég er ekki svo kræsinn.“
„Það er sama,“ sagði greifinn.
„Ég átti ekki að fleygja brauð-
inu, og ég sé eftir að gera það.
En þú mátt ekki fara burt með
slæmt álit á mér — ég á dálítið
af gömlu brennivíni í flösku og
við skulum fá okkur sopa sam-
an.“
Maðurinn var b ú i n n með
brauðið. Hann og greifinn fengu
sér báðir nokkra sopa úr flösk-
unni og vináttan var innsigluð.
„Hvað heitir þú?“ spurði her-
maðurinn.
„Hardimont,“ sagði greifinn
og sleppti titlinum. „Og þú?“
„Jean Victor . . . ég er nýkom-
inn úr spítala; ég særðist við
Chatillon. Þeir gerðu vel við
okkur í spítalanum — hrossa-
kjötsúpan var ágæt. En ég fékk
bara skrámu, svo ég var þar
ekki lengi; og nú býst ég við að
svelta aftur. Því, ég skal segja
þér, ég hef verið svangur alla
ævi.“
Þetta voru hræðileg tíðindi að
heyra fyrir sælkera, sem sakn-
aði kræsinganna í Café Anglais,
og Hardimont greifi horfði orð-
laus af undrun á félaga sinn.
Maðurinn brosti, hann vissi, að
Hardimont bjóst við skýringu á
þessu sífellda hungri.
Sjáðu nú til,“ sagði hann, „við
skulum labba hérna niður veg-
inn og hita okkur á fótunum, og
ég skal segja þér hluti, sem þú
hefur líklega aldrei heyrt aðra
eins á ævi þinni . . . “
„Ég.heiti Jean-Victor — bara
það. Ég hef ekkert ættarnafn, af
því ég var óskilabarn. Eini á-
nægjulegi tíminn, sem ég man
eftir, var þegar ég var lítill á
barnahælinu. L i 11 u rúmin í
svefnhúsinu voru með hvítum
lökum og við lékum okkur í
garði með stórum trjám. Ein af
nunnunum var kornung, og föl
eins og vax, það var eitthvað að
henni 1 brjóstinu — ég var eftir-
læti hennar, og mér þótti meira
gaman að ganga með henni um
garðinn en að leika mér með
hinum börnunum. Hún var við
mig eins og engill.“
„En þegar ég var orðinn tólf
ára, varð ég að fara, og síðan hef
ég aldrei vitað hvað hamingja
er. Hælisráðsmaðurinn kom mér
fyrir sem nemanda hjá manni,
sem fléttaði strástóla — hann
bjó í Saint - Jacqueshverfinu.
Þetta er lélegt starf, eins og þú
veizt, það er ekki hægt að lifa
af því. Bezta sönnun þess er, að
einu nemendurnir, sem meist-
ari minn vildi taka, voru lítil
börn af blindrahælinu."
„Jæja — þar var það, sem ég
byrjaði að þjást af hungri. Meist
arinn og kona hans — þau voru
bæði frá Limousin og voru
seinna myrt — voru hræðilega
nísk; þau voru vön að skera
ofurlítinn enda af brauðhleifn-
um við hverja máltíð og læsa
svo hleifinn niður þess á milli.
Þú hefðir átt að sjá konuna með
svörtu skupluna sína gefa okkur
súpuna á kvöldin. í hvert sinn,
er hún dýfði sleifinni í pottinn,
stundi hún þungan. Hinir tveir
nemendurnir. börn af blindra-
hælinu, voru betur settir en ég.
Þau fengu ekki meira að borða,
en þau sáu þó að minnsta kosti
ekki eftirtölu- og ásökunarsvip-
inn á þessari vondu konu, þegar
hún rétti mér diskinn."
„Já, það vdr meinið mitt, jafn-
vel á þessum árum; lyst mín var
of mikil, þó það væri ekki mér
að kenna, eða hvað? Ég vann
mín þrjú ár sem nemandi, og
var svangur á hverjum einasta
degi. Þrjú ár! — og ég kunni
iðnina eftir mánuð. Þú varst
hissa að sjá mig taka upp brauð-
bitann úr forinni, var það ekki?
En ég er vanur því, marga mol-
ana hef ég tínt upp af skarn-
haugunum, og þagar þeir voru
of harðir, lagði ég þá í bleyti yfir
nóttina. Auðvitað fann ég stund-
um góða bita, máske snúð, sem
rétt var búið að bíta í endann á
Business and Professional Cards
Dr. P. H. T. Thorlakson i S. O. BJERRING f Canadian Stamp Co.
WINNIPEG CLINIC RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPORATE SEALS
St. Mary’s and Vaughan, Winnlpeg PHONE 92-6441 CELLULOID BUTTONS 324 Smith St. Winnipeg
PHONE 92-4624
og skólakrakkar hafa fleygt frá
sér á heimleiðinni.
„Og svo, þegar námstími minn
var liðinn, sá ég að ég myndi
ekki geta lifað á þessari vinnu.
Ég hef gert margt annað — ég
er afar vinnugefinn, það er ég.
Ég hef hlaðið múrsteina, verið
búðardrengur, þ v e g i ð gólf —
gert allt mögulegt. En aldrei á
ævi minni hef ég haft nóg að
borða. Ég gekk í herinn átján
ára, og þú veizt eins vel og ég,
að óbreyttur hermaður hefur
rétt nóg að eta, og ekki snefil
meir. Og nú er umsát og hung-
ursneyð!
„Svo þú sérð, að ég var ekki
að skrökva áðan, þegar ég sagð-
ist hafa verið svangur alla ævi!“
Ungi greifinn var hjartagóður
náungi, og varð djúpt snortinn
af þessari átakanlegu sögu.
„Jean-Victor,“ sagði hann, „ef
við komumst báðir lifandi úr
þessu stríði, skulum við hittast
>aftur, og ef til vill get ég hjálpað
þér. En eins og nú er, er brauð-
skammturinn að minnsta kosti
tvisvar sinnum of stór fyrir
mína litlu lyst, og við skulum
því skipta honum með okkur
eins og góðir félagar.“
Þeir tókust innilega í hendur,
og þar sem liðið var að nóttu,
fóru þeir aftur inn í krána, þar
sem nokkrir menn sváfu á
hálmi. Þeir fleygðu sér niður
hlið við hlið og sofnuðu vært.
Um miðnætti vaknaði Jean-
Victor, sennilega af hungri.
Stormurinn hafði sópað burt
skýjunum og tunglið skein inn
um rofið þagið beint á höfuðið
á Hardimont sofandi. Jean-Vic-
tor horfði á hann með aðdáun. í
þessari svipan lauk undirforingi
upp dyrunum og kallaði nöfn
fimm manna, sem áttu að leysa
framverðina af verði. Greifinn
var þeirra á meðal, en hann
vaknaði ekki, þegar nafn hans
var kallað.
,Vaknið, Hardimont!" sagði
undirforinginn aftur.
„Ef yður er sama, undirfor-
ingi,“ sagði Jean-Victor, „skal ég
fara í hans stað. Hann sefur svo
vært . . . og hann er félagi minn.
Undirforinginn hafði ekkert á
móti því, og mennirnir fimm
fóru út.
Hálftíma seinna heyrðist skot-
hríð mjög nærri. Allir spruttu
þegar á fætur, og fóru út úr
kránni og horfðu út eftir tungl-
skinsbjörtum veginum.
„Hvað er klukkan eiginlega?“
spurði greifinn. „Ég átti að vera
á vakt í nótt.“ Einhver sagði hon
um, að Jean-Victor hefði farið í
hans stað.
í þessari andrá sáu þei rmann
koma hlaupandi til þeirra eftir
v e g i n u m. Þegar hann kom
spurðu allir hvað hefði skeð.
„Prússarnir gera árás — við
eigum að hörfa til virkisins.“
„Hvað um framverðina?“
„Þeir koma eftir andatak —
alir nema Jean-Victor.“
„Hvað?“ hrópaði greifinn.
„Drepinn — fékk kúlu gegn-
um höfuðið — hann gaf ekkert
hljóð frá sér.“
•
Klukkan tvö eftir miðnætti
kvöld eitt löngu eftir stríðið,
kom greifinn af Hardimont út
úr klúbbnum ásamt nábúa sín-
um Sanles greifa; hann hafði
tapað nokkur hundruð lúídorum
í spilum og hafði dálítinn höfuð-
verk.
„Ef þér er sama, André,“
sagði hann við vin sinn, „skul-
um við ganga heim . . . mér þyk-
ir gott að fá fersk loft.“
„Jæja, þá; mér er sama — þó
gangstéttirnar séu heldur for-
ugar núna.“
Svo þeir sendu vagnana sína
burtu, brettu upp frakkakrag-
ana og lögðu af stað fótgang-
andi. Allt í einu sté Hardimont
greifi ofan á eitthvað; það var
stór brauðsneið, ötuð í aur.
Og þá, sér til mikillar furðu,
sá de Saulnes greifann af Hardi-
mont taka upp brauðsneiðina,
þurrka vandlega af henni með
silkivasaklútnum s í n u m og
leggja hana á bekk undir götu-
ljóskeri, svo auðvelt yrði að
koma auga á hana.
„Hvað ertu eiginlega að gera?
sagði Sanles greifi og rak upp
hlátur. „Ertu orðinn vitlaus?“
„Þetta er til minningar um
mann, sem dó fyrir mig,“ sagði
Hardimont greifi, og rödd hans
titraði lítið eitt. -
O. H, þýddi
VÍKINGUR
J. J. Swanson & Co.
LIMITED
308 AVENUE BLDG. WINNIPEG
Fasteignasalar. Leigja hús. Ot-
vega peningalán og eldsábyrgS,
bifreiSaábyrgS o. s. frv.
Phone 92-7538
SARGENT TAXI
PHONE 20-4845
FOR QUICK, RELIABLE SERVICE
DR. E. JOHNSON
304 Eveline Street
SELKIRK. MAN.
Phones: Office 26 — Res. 230
Office Hours: 2:30 6:00 p.m.
Thorvaldson Eggertson
Baslin & Stringer
Barristers and Solicitors
209 BANK OF NOVA SCOTIA BG.
Portage og Garry St.
PHONE 92-8291
CANADIAN FISH
PRODUCERS LTD.
J. H. PAGE, Managing Dlrector
Wholesale Distrlbutors of Fresh and
Frozen Fish
311 CHAMBERS STREET
Offlce: 74-7451 Res.: 72-3917
Office Phone Res. Phone
92-4762 72-6115
Dr. L. A. Sigurdson
528 MEDICAL ARTS BUILDING
Office Hours 4 p.m.—6 p.m.
and by appointment.
Phone 74-7855 ESTIMATES
FREE
J. M. INGIMUNDSON
Ashphalt Roofs and Insnlated
Siding — Repairs
Country Orders Attended To
632 Slmcoe St. Winnlpeg, Man.
GIMLI FUNERAL HOME
Sími 59
SérfrœSingar i öllu, sem að
útförum lýtur
BRUCE LAXDAL forstjóri
Licensed Embalmer
Dr. A. V. JOHNSON
DENTIST
506 SOMERSET BUILDING
Telephone 92-7932
Home Telephone 42-3216
Dr. ROBERT BLACK
SérfræCingur I augna, eyrna, nef
og hálssjúkdðmum.
401 MEDICAL ARTS BLDG.
Graham and Kennedy St.
Skrifstofuslmi 92-3851
.Heimasfmi 40-3794
Creators of
Distinctive Printing
Columbia Press Ltd.
695 Sargent Ave.. Winnipeg
PHONE 74-3411
Gundry Pymore Ltd.
British Quality Fish Nettlng
58 VICTORIA ST. WINNIPKG
PHONE 92-8211
Manager T. R. THORVALDSON
Yonr patronage will be appreciated
Grunnar Skálholtskirkju geyma lykilinn
að sögu timburkirknanna
Við aðra umræðu fjárlaganna
var bætt í fjárlagafrumvarpið
fjörtíu þúsund króna fjárveit-
ingu til Skálholtsfélagsins til
rannsókna á kirkjugrunnunum í
Skálholti.
og Grænlandi. Verður þessum
rannsóknum því mikill gaumur
gefinn víðar en hér á landi.
Biskupagrafirnar
A. S. BARDAL LTD>
FUNERAL HOME
843 Sherbrook St.
Selur llkkistur og annast um út-
farlr. Allur útbúnaCur sá beztl.
StofnaC 1894 Slmi 74-7474
Phone 74-5257 700 Notre Dame Ave.
Opposite Matemity Pavihon
General Hospltal
Skráðar heimildir ábyggilegar
Sigurbjörn Einarsson prófess-
or, formaður Skálholtsfélagsins
tjáði blaðinu í gær, að verkefni
aað, sem þarna lægi fyrir, væri
að grafa alveg upp kirkjugrunn-
ana í Skálholti og komast út fyr-
ir þá. Hefði verið áætlað, að það
verk kostaði 85 þúsund krónur.
í fyrra var það kannað, að skráð-
ar heimildir frá fyrri öldum
Skálholtskirkju eru hinar á-
byggilegustu en þá var grafið
nióur á gólfhellur á nokkrum
stöðum og jarðgöngin könnuð,
sem kunnugt er.
Hinar fornu kirkjur
Eina kirkjan, sem reist var í
Skálholti í evangelískum sið,
var Brynjólfskirkja, en á eldri
tímum voru þar reistar Ögmund
arkirkja, kirkja Árna Helgason-
ar, kirkja Klængs Þorsteinsson-
ar og kirkja Gissurar ísleifsson-
ar, sem reistar voru í Skálholti
frá grunni.
Kirkjusöguleg þýðing.
Rannsókn á þessum fornu
grunnum munu hafa mikla
kirkjusögulega þýðingu, því að
grunnarnir munu gefa mikla
hugmynd um sjálfar kirkjurnar.
Hér er að leita lykilsins að sögu
timburkirkna, ekki einasta hér,
heldur og í Noregi, Færeyjum
Auk þess er líklegt, að ýmis-
legt, er fengur þykir að muni
finnast í hinum fornu grunnum.
Þarna eru meðal annars margar
biskupagrafir, og enginn veit,
hvað þær kunna að geyma, og
ekki er ólíklegt, að eitthvað
merkilegra muna kunni að finn-
ast við nákvæma rannsókn á
grunnunum.
Reyni að gera sem mesi
Fé það, sem nú er ráðgert að
veita, nægir ekki til fullnaðar-
rannsóknar samkvæmt áætlun-
inni. En Skálholtsfélagið mun
sennilega leita sér fjárhagsað-
stoðar á annan hátt, svo að rann-
sókninni geti eigi að síður farið
fram. Meðal annars er ekki ó-
líklegt, að unnt yrði að fá eitt-
hvað af mönnum til þess að
fórna sumarleyfi sínu við upp-
gröft í Skálholti, án þess að
gjald komi fyrir.
Upphleðsla kirkjugarðsins
Þá mun einnig gert ráð fyrir
í fjárlagafrumvarpinu, að Skál-
holtsfélagið fái 25 þúsund krón-
ur til upphleðslu á kirkjugarð-
inum 1 Skálholti. Því fer þó
fjarri, að sú fjárhæð dugi til
þess verks, er vart mun kosta
minna en 50-100 þúsund krónur.
Nell's Flower Shop
Wedding Bouquets, Cut Flowerz,
Funeral Designs, Corsages,
Beddlng Plants
Nell Johnson Res. Phone 74-6753
jfohnny, Jlyan
1076 DOWNING 8T. PHONE 72 S 122
WINNIPEG'S FIRST
"MAILORPHONE"
ORDER HOUSE
This Week's Special:
Free gift certificates to the
first 20 persons who phone or
write in.
Kaupið Lögberg
SELKIRK METAL PRODUCTS
Reykháfar, öruggasta eldsvörn,
og ávalt hereinir. Hitaeinlngar-
rör, ný uppfynding. Sparar eldi-
viB, heldur hita frá a8 rjúka út
meS reykum.—SkrifiC, s!ml8 til
KELLY SVEINSSON
625 Wall Street Wlnnlpeg
Just North of Portage Ave.
Slmar: 3-3744 — 3-4431
J. WILFRID SWANSON & CO.
Insurance ln all its branches.
Real Estate • Mortgages - Rentals
210 POWER BUILDING
Telephone 937 lgl Res. 491 480
— TÍMINN, 30. nóv.
LET US SERVE YOU
Minnist
CETEL
í erfðaskrám yðar.
-----------------------------1
PHONE 92-7025
H. J. H. Palmason, C.A.
Chartered Aecountant
505 Confederation Llfe Buildlng
WINNIPEG MANITOBA
Parker, Parker and
Kristjansson
Barrislers • Solicilors
Ben C. Parker, Q.C.
B. Stuart Parker, A. F. Kristjansson
500 Canadlan Bank of
c:
Commerce
hambers
Wtnnipeg, Man. Phone 92-356]
G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dtr.
Keystone Fisheries
Limited
Wholesale Distributors of
FRESH AND FROZEN FISH
60 Louise Stréet Simi 92-5227
BULLMORE
FUNERAL HOME
Dauphin, Manitoba
Eigandi ARNI EGGERTSON, Jr.
VAN'S ELECTRIC LTD.
636 Sargent Ave.
Authorized Home Appliance
Dealers
General Electric
McClary Electric
Moffat
Admiral
Phone 3-4890