Lögberg - 03.12.1953, Blaðsíða 3
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN, 3. DESEMBER, 1953
3
Landssmiðjan — ein af mó
íslenzkra atvinnuvega
ittarstoðum
Forstjórinn, Jóhannes Zoega,
lærði vélaverkfræði í Þýzka-
landi og lauk námi árið 1941.’
Vann hann síðan um hríð þar,
meðal annars sem aðstoðar-
kennari við iðnaðarháskólann í
Munchen. Haustið 1945, að stríð-
inu loknu, kom hann heim og
réðist þá þegar til „Hamars“ pg
vann þar, unz hann tók við for-
stöðu Landssmiðjunnar. Alls
vinna nú hjá fyrirtækinu 235
manns. Munu útborguð vinnu-
laun nema á þessu ári um 8,5
milljónum króna.
Mörg stórvirki
Eins og að líkum lætur liggja
mörg stórvirki eftir Landssmiðj-
una á þessum árum. Hún hefir
annazt flestallar viðgerðir fyrir
skip Skipaútgerðar ríkisins, sem
unnt er að framkvæma hér á
landi, og hefir það skapað mikla
atvinnu og sparað geysimikinn
gjaldeyri. Hún hefir sett upp
frystihús og útvegað vélar og
smíðað vélahluti til þeirra. A
síðustu 2—3 árum hefir hún
Ennfremur hefir hún smíðað
turna og grindverk fyrir hana.
Þá hefir hún staðið fyrir og
stjórnað björgun skipa úr
strandi.
Segja má, að enn sé skipa-
smíði Landssmiðjunnar ekki
komin á fullan skrið. Arið 1943
til 1946 smíðaði hún 4 báta, en
síðan varð hlé á skipasmíðinni
þar til nú að hafizt er handa að
nýju. Er það þýðingarmikið at-
riði í iðnaðarsögu landsins og
sjávarútvegsmálum, að hægt sé
að smíða bátana hér.
Miklir þroskamöguleikar
Landssmiðjan hefir mjög
mikla þroskamöguleika. Á síð-
astliðnu ári varð umsetning
smiðjunnar um 17 milljónir
króna, en hún vex verulega á
þessu ári, og verkefni fram-
undan eru meiri en nóg. Hins
vegar hefir lánsfjárskortur stað-
ið mjög fyrir eðlilegri þróun og
hinum miklu vaxtarmöguleik-
um. Þörfin fyrir fjármagn er
mikil, og er ,vonandi, að úr
þeirri þörf verði bætt hið
bráðasta.
Atvinnuvegir landsmanna
Svo má segja, að enn standi
yfir landnám íslenzks iðnaðar.
Breytingarnar síðustu þrjá ára-
tugina hér á landi eru stórfeng-
legar, hvert sem augum er litið,
en ekki eru þær hvað minnstar
í iðnaði, enda má segja, að hér
á landi hafi varla verið nokkur
iðnaður um 1920.
Vitanlega hefir aukin raforka
verið undanfari iðnaðarþróunar-
innar, enda iðnaður svo að segja
óhugsandi hér án rafmagns.
Þetta verður því ljósara sem
raforkan og rafvirkjun eykst
meir, og er sönnunin nærtæk
frá allra síðustu árum.
Til skamms tíma hafa land-
búnaður og sjávarútvegur verið
aðalatvinnuvegir þjóðarinnar og
eru það raunar enn, ef tillit er
tekið til þess, hvaða atvinnu-
vegir brauðfæða flesta lands-
menn og afla mestra gjaldeyris-
tekna. Fyrrum voru þessir at-
vinnuvegir mjög fátækir að
stoðum og urðu því að sækja allt
sitt, að minnsta kosti sjávarút-
vegurinn, til annarra landa.
Þetta breyttist mjög með til-
komu vélsmiðja og skipasmíða-
stöðva og til stórkostlegra hags-
bóta fyrir alla landsmenn og
þjóðarbúið. Þessar smiðjur voru
og enn meir knýjandi nauðsyn
eftir að skipastóll landsmanna
fór að vaxa og þörfin varð að-
kallandi fyrir viðgerðir og
einnig nýbyggingar.
Þróast jafnt og þétt
Eitt af fremstu grundvallar-
fyrirtækjum þessarar geinar er
Landssmiðjan, ríkisfyrirtækið
íslenzk tónlist
erlendis
1 tímaritinu „Musikblatter“,
hefti, er grein eftir Gerhard
Krause um íslenzka, eistlenzka
og pólska tónlist.
Segir þar m. a.: Hallgrímur
Helgason, sem nýtur viðurkenn-
ingar frá ríkinu til rannsókna á
þjóðlegri söngmennt, er tón-
skáld, sem vert er að taka eftir;
á ég þar við sjálfstæðan stíl
hans, er kemur fram í Máríuvísu
eftir hann, sem minnir dálítið á
okkar mikilsmetna Joseph Marx;
máske er þetta auðmjúk trúar-
játning höfundarins í tónum. —
Jón Leifs játar líka trú sína á
því, er vekur lotningu okkar. í
kirkjulögum hans birtast ekki
óljósar kenndir heldur raun-
veruleg trú, en án hennar er
enginn þess umkominn að verða
guði þóknanlegur.“
Ina Garffius frá Hamborg
mun á næstunni á hljómleikum
sínum „Rödd þjóðanna“ ásamt
Carl-Heinz Lautner í Stuttgart,
flytja verk eftir Hallgrím Helga-
son og Jón Leifs í ýmsum þýzk-
um borgum.
Á næstu „alþjóðlegri tónlist-
arviku“, er fram fer í Vín, tekur
Vera Velkov frá Belgrad 2. píanó
sónötu Hallgríms til meðferðar.
Sömu sónötu leikur Dr. Fried-
rich Brand frá Braunschweig í
útvarpið í Hannover.
1 Osló flytur norski kammer-
kórinn, undir stjórn Rolfs Karl-
sen mótettu Hallgríms „Gróa
laukar og lija“, og söngkonan
Áslaug Kristensen flytur í
norska útvarpið flokk sönglaga
eftir sama höfund.
Þá hefir bandalag tónlistar-
manna í Munchen (Munchener
Tonkunstlerverband) u n d i r
stjórn Dr. Scheidemandel, boðið
Hallgrími Helgasyni að taka
þátt í hljómleikum á vegum fé-
lagsins í lok nóvember. Mun
ungverski bassasöngvarinn, —
Franz Váradi, flytja þar átta
einsöngslög með aðstoð höfund-
ar. —
1 Beromunster útvarpi í Sviss
mun Barbara Preisker frá
Frankfurt syngja nokkrar tón-
smíðar Hallgríms í næsta
mánuði.
—VÍSIR, 23. okt.
við Sölvhólsgötu í Reykjavík,
sem hefir þroskazt og þróazt frá
1930, hátíðarárinu, og til dagsins
í dag jafnt og þétt og er nú
orðið eitt af öndvegisfyrirtækj-
um landsins, sem veltir tugum
milljóna.
V erkahr ingurinn
Tíðindamaður Alþýðublaðsins
heimsótti Landssmiðjuna fyrir
fáum dögum og gekk þar um
salarkynni. Smiðjan er í svo
örum vexti, að enn er hún að
flytja úr gömlum, úreltum skúr-
görmum, sem hún hóf starfsemi
sína í, í glæsileg og rúmgóð
salarkynni í stóru og miklu
steinhúsi — og nú er beðið með
óþreyju eftri nýrri viðbyggingu,
svo að hægt sé að flytja nokkurn
hluta starfseminnar úr úreltu
húsnæði. Landssmiðjan var
stofnuð 1930, eins og áður segir,
og með lögum frá 1936 er ákveð-
ið að -ríkisstjórnin láti reka
smiðju, er fæst við viðgerðir
skipa, smíði mótora og annarra
véla og aðra smíði. Ennfremur
er svo fyrir mælt, að smiðjan
annist alls konar smíði fyrir ein-
staklinga og félög, og auk þess
annist hún alla smíði, er ríkið
hefir með höndum og þær
stofnanir, sem eru ríkiseign, svo
sem skipaútgerð, skóla, sjúkra-
hús, vita- og vegamálaskrifstof-
ur, landssíma og ríkisútvarp,
enda séu vinnuþrögð og verðlag,
að dómi ríkisstjórnarinnar, ekki
óhagstæðari en annars staðar
innan lands.
Viðskipti og verkefni
Og á grundvelli þessara fyrir-
mæla frá Alþingi hefir Lands-
smiðjan starfað síðan. Sam-
kvæmt því er ríkisfyrirtækjum
gert að skyldu að skipta við
Landssmiðjuna, enda skal verð-
lag hennar vera í samræmi við
verðlag annarra smiðja. En þrátt
fyrir þetta vinnur smiðjan mörg
og stór verk fyrir einstaklinga
og fyrirtæki þeirra. Er þetta
nokkuð misjafnt^jPf frá ári eftir
þörfum ríkisfyrirtækjanna. —
Mest urðu viðskipti ríkisfyrir-
tækja árið 1944, eða 71 af hundr-
aði allra viðskipta smiðjunnar,
en minnst 1941, eða 41 af hundr-
aði allra viðskiptanna.
Það var ekki hátt risið á
Landssmiðjunni, þegar hún tók
til starfa. Hún hóf starf sitt í
húsakynnum vegamálastjórnar-
innar og fékk þar til umráða um
150 fermetra gólfflöt. Þá greind-
ist starfsemin í plötusmíði, vél-
virkjun, rennismíði og eldsmíði,
en þremur mánuðum síðar bætt-
ist skipasmíðin við. Húsakynnin
jukust hægt fyrstu þrjú árin,
eða aðeins um 400 fermetra, og
þannig var búið að henni til
ársins 1942, en þá var nýja húsið
við Sölvhólsgötu byggt og tekið
í notkun. Nú er gólfflötur smiðj-
unnar rúmlega 3000 fermetrar,
en verið er að byggja eina hæð,
og fæst þar um 600 fermetra
rúm. Jafnframt verður enn flutt
úr skúrunum, en áætlað er, að
byggt verði ofan á nýbygging-
una eftir því sem afl smiðjunnar
vex og þróun hennar krefst.
Störf og framkvæmdastjórn
Nú starfar Landssmiðjan að
eftirgreindum störfum: Járn-
smíði, plötusmíði, vélvirkjun,
rennismíði, málmsteypu, tré-
smíði og skipasmíði og skipavið-
gerðum. 1 kjallara hússins er
birgðageymsla og málmsteypa.
Á fyrstu hæð er vélvirkjun og
rennismíði. Á annarri hæð er
modelsmíði, trésmíði 'og fleira
og á þriðju hæð skrifstofur og
glæsilegur samkomusalur fyrir
starfsfólkið. Þegar lokið verður
við nýbygginguna, verður þar
renniverkstæðið og málm-
steypan.
Landssmiðjan hefir á að skipa
sérfræðingum og smiðum í öll-
um greinum starfsemi sinnar.
byggt 7 fiskimjölsverksmiðjur.
Þá hefir hún reist marga olíu-
og vatnsgeyma. Síðastliðið haust
byggði hún mikinn vatnsjöfnun-
argeymi fyrir Laxárvirkjunina.
Hún setti og saman túrbínu-
sniglana í nýju Sogsvirkjunina
og vann þar ýmis önnur störf.
Um þessar mundir er hún að
byggja stóran gasgeymi fyrir
hina nýju áburðarverksmiðju og
er það stærsti geymlr, sem smíð-
aður hefir verið hér á landi.
Hin nýja aflstöð við Irafoss
var vígð við hátíðlega at-
höfn síðastliðinn föstudag
og er nú skammt stórra
högga í milli í raforkumál-
um Islendinga. írafossstöð-
in er stærsta mannvirki,
sem gert hefir verið á Is-
landi. Forseti íslands, herra
Ásgeir Ásgeirsson, hleypti
straumnum frá hinum miklu
aflvélum á rafmagnskerfið
og flutti við það tækifæri
ræðu þá, sem hér fer á eftir:
Ég hef nú samkvæmt tilmæl-
um borgarstjórans í íjeykjavík,
opnað hina nýju Irafossstöð til
afnota fyrir alla þá, sem línu-
kerfið nær til. Hinu volduga afli
fossins hefir verið-breytt í raf-
orku, sem streymir nú út á
meðal fólksins og lýsir og yljar
og léttir undir hin daglegu störf.
Fossinn hefir lengi kveðið sitt
kraftaljóð undir berum himni,
en nú hefir afli hans verið beint
inn á heimilin og vinnustöðv-
arnar. Þar birtist hann nú í
nýrri mynd, sem ljós, hiti og
orka. Sólin og geislar hennar eru
hans upphaf, og nú skilar hann
sólskininu aftur til þess að létta
oss lífið og þess baráttu.
Lind ljóssins
Allt ljós, ylur og orka er sólar-
ættar. Kolin, þó svört séu og
djúpt í jörðu, eru gamalt sól-
skin, eins konar fyrningar, sem
geta gengið til þurrðar. Sama
má segja um olíuna. En vatnið,
sem gufar upp af láð og legi,
fyrir kraft sólarinnar, myndar á
voru landi fossa og hávaða á leið
sinni aftur til sjávar. Nú á síð-
ari tímum hafa menn loks fund-
ið ráð til að láta vatnið skila
aftur sólarljósinu á leið sinni
um landið og greiða þar með
landsskuldina. Þessi lind ljóss-
ins og uppspretta orkunnar
þornar ekki, því að vatnið held-
ur áfram hringrás sinni „meðan
lönd girðir sær — og gljáir sól á
hlíð“.
Þessi uppgötvun er ein hin
mikilsverðasta fyrir Island og
íslendinga. Vér eigum hvorki
hvíla einmitt að verulegu leyti
á stoðum eins og Landssmiðj-
unni. Það er því mikið tap og
lýsir ekki fyrirhyggju þegar
ekki eru sköpuð skilyrði til eðli-
legs þroska þeirra og vaxtar.
Allir, sem skipt hafa við Lands
smiðjuna, ljúka upp einum
munni um það, að þar sé vönduð
vinna og örugg. Það er gott, þeg-
ar ungur iðnaður fær það orð á
sig strax í upphafi.
kol í jörðu né olíu. Og þó er
land vort gott, ef vér getum
stytt skammdegið og dregið úr
vetrarkuldanum. Þau hin miklu
vísindi vatnsvirkjunarinnar eru
hið mesta fagnaðarefni fyrir
þessa þjóð. Rafmagnsöldin, sem
vér nú lifum á, er full af fyrir-
heitum. Það hillir undir bjarta
framtíð.
Öld kola og raforku
Kolin eru hinn fyrsti aflgjafi
vélmenningarinnar, en reyndust
misgóð. Ég á við, að jafnhliða
miklum framförum, þá drógu
þau menn til vinnu niður í
námumyrkur, frá heimilinu í
verksmiðjur, og frá heilnæmu
sveitalofti í sótugar borgir. Það
er bjartara yfir hinni ungu öld
raforkunnar. Kolin og vatns-
gufan var staðbundið, en vatns-
aflið og raforkuna má leiða um
langa vegu og jafnt til heimilis-
þjónustu sem verksmiðju-
rekstrar. — Raforkan er auk
þess vort heimafengna afl. Sag-
an er ekki nema hálf, og hinar
mikilsverðustu uppgötvanir fyr-
ir vort þjóðlíf eru nýjar aðferðir
til þess að nýta raforkuna til
hlítar, og geyma hana og flytja
með einfaldari og ódýrari hætti.
Vér skulum vona, að vísindin
drýgi það fjármagn, sem tiltækt
er á hverjum tíma, svo að sem
f-yrst megi rætast vonirnar um
nægan yl, ljós og orku fyrir öll
landsins börn.
Vorhugur í raforkumálum
Það er nú mikill vorhugur í
raforkumálum. Vér fögnum því
í dag, að tugir þúsunda nýrra
hestafla eru tekin til notkunar.
Hvert hestafl er talið á við tíu
mannsöfl, ef allt nýttist. Hin
nýja írafossstöð er loftkastali,
sem kominn er niður á jörðina.
Og fossinn er ekki horfinn úr
lífi þjóðarinnar, heldur njóta
hans nú fleiri en nokkru sinni
áður. Skáldin gætu hlaðið foss-
unum nýja lofkesti. Þeir eru
vort forðabúr af kyngi sólarinn-
ar og regnboginn í úðanum tákn
hinna glæstu framtíðarvona.“
—DAGUR, 21. okt.
—Alþbl. 30. okt.
Rafmagnsöldin, er vér nú lifum
ó, er full ef fyrirheitum
Ávarp forseta íslands við opnun írafossstöðvarinnar
Business and Professional Cards
Dr. P. H. T. Thorlakson
WINNIPEG CLINIC
St. Mary’s and Vaughan, Winnipeg
. PHONE 92-6441
J. J. Swanson & Co.
LIMITED
308 AVENUE BLDG. WINNIPEG
Fasteigrnasalar. Leigja hús. Út-
vega peningal&n og eldsábyrgC,
bifreiCaábyrgC o. s. frv.
Phone 92-7538
SARGENT TAXI
PHONE 20-4845
For Quick, Reliable Service
DR. E. JOHNSON
304 Eveline Street
SELKIRK, MANITOBA
Phones: Office 26 — Residence 230
Office Hours: 2.30 - 6.00 p.m.
Thorvaldson, Eggerlson,
Basiin & Stringer
Barristers and. Solicitors
209 BANK OF NOVA SCOTIA Bldg.
Portage og Garry St.
PHONE 92-8291
CANADIAN FISH
PRODUCERS LTD.
J. H. PAGE, Managing Director
Wholesale Distributors of Fresh and
Frozen Fish
311 CHAMBERS STREET
Offlce: 74-7451 Res.: 72-3917
Office Phone Res. Phone
92-4762 72-6115
Dr. L. A. Sigurdson
328 MEDICAL ARTS BUILDING
Ofíice Hours: 4 p.m.—6 p.m.
and by appointment.
A. S. BARDAL LTD.
FUNERAL HOME
843 Sherbrook Street
Selur likkistur og annast um út-
farir. Allur útbúnaSur sá bezti.
StofnaS 1894 SÍMI 74-7474
Phone 74-5257 700 Notre Dame Ave.
Opposite Maternlty Pavilion
General Hospital
Nell's Flower Shop
Wedding Bouquets, Cut Flowers,
Funeral Designs. Corsages,
Beddlng Plants
Nell Johnson Res. Phone 74-6753
Lesið Lögberg
SELKIRK METAL PRODUCTS
Reykh&far, öruggasta eldsvörn,
og ávalt hreinir. Hitaeiningar-
rör, ný uppfynding. Sparar eldl-
vi8, heldur hita frá aC rjúka út
meC reyknum.—SkrifiC, slmiC tll
KELLY SVEINSSON
623 Wall St. Winnipeg
Just North of Portage Ave.
Simar 3-3744 — 3-4431
J. Wilfrid Swanson & Co.
Insurance in all lts branches
Real Estate - Mortgages - Rentals
210 POWER BUILDING
Telephone 93-7181 Res. 46-3480
LET US SERVE YOU
S. O. BJERRING
Canadian Stamp Co.
RUBBER & METAL STAMPS
NOTARY & CORPORATE SEALS
CELLULOID BUTTONS
324 Smilh St. Winnipeg
PHONE 92-4624
Plione 74-7855 ESTIMATES
FREE
J. M. Ingimundson
Asphalt Roofs and Insulated
Siding — Repairs
Country Orders Attended To
632 Simcoe St. Winnipeg, Man.
Dr. A. V. JOHNSON
Dentist
506 SOMERSET BUILDING
Telephone 92-7932
Home Telephone 42-3216
Dr. ROBERT BLACK
SérfræCingur I augna, eyrna, nef
og hálssjúkdömum.
401 MEDICAL ARTS BLDG.
Graham and Kennedy St.
Skráfstofuslmi 92-3851
Heimasími 40-3794
Creators of
Distinctive Printing
Columbia Press Ltd.
695 Sargení Ave. Winnipeg
PHONE 74-3411
Hofið
Höfn
í huga
Heimili sólsetursbarnanna.
Icelandic Old Folks’ Home Soc.,
3498 Osler St., Vancouver, B.C.
Aristocrat Stainless
Steel Cookware
For free home demonstrations with-
out obligation, write, phone or call
102-348 Main Shreet, Winnipeg
Phone 92-4665
“The King of the Cookware"
Gundry Pymore Ltd.
British Quality Fish Netting
58 VICTORIA ST. WINNIPEG
Phone 92-8211
T. R. THORVALDSON Manager
your patronage wlll be appreciated
Minnist
BETEL
í erfðaskrám yðar.
Phone 92-7025
H. J. H. PALMASON
Chartered Accounfant
505 Confederatlon Llfe Buildlng
WINNIPEG MANTTOBA
Parker, Parker and
Kristjansson
Barristers - Solicitors
Ben C. Parker, Q.C.
B. Stuart Parker, A. F. Kristjanaion
500 Canadlan Bank of Commerce
Chambers
Winnlpeg, Man. PUone 92-3561
G. F. Jonasson. Pres. & Man. Dir.
Keystone Fisheries
Limited
Wholesale Distributors of
FRESH AND FROZEN FISH
60 Louise Street Slml 92-6227
EGGERTSON
FUNERAL HOME
Dauphin, Maniloba
Eigandi ARNI EGGERTSON Jr.
Van's Electric Ltd.
636 Sargent Ave.
Authorized Home Appliance
Dealers
GENERAL ELECTRIC — ADMIRAL
McCLARY ELECTRIC — MOFFAT
Phone 3-4890