Lögberg - 08.04.1954, Síða 1

Lögberg - 08.04.1954, Síða 1
ANYTIME — ANYWHERE CALL TRANSIT - SARGENT SILVERLINE TAXI 5 Telephone Lines 20-4845 PROMPT - COURTEOUS - DEPENDABLE ADOLPH S TAXI Round The Cloclc Service 59-4444 52-6611 401 PRITCHARD AVE. SPECIAL RATES WEDDINGS ON COUNTRY TRIPS FUNERALS 67• ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 8. APRIL 1954 NÚMER 14 Frú Guðrún Skaptason reisir bróður sínum minnisvarða Minnisvarði dr. Valtýs Guðmundssonar Svo sem vitað er var dr. Valtýr Guðmundsson þjóðkunn- Ur fræðimaður og stjórnmála- skörungur; kom hann um eitt skeið svo mjög við sögu íslenzku Þjóðarinnar, að heil stjórnmála- stefna var kennd við nafn hans °g nefnd „Valtýzkan“. Nú hefir hálfsystir dr. Valtýs, fru Guðrún Skaptason, sem hér er búsett, auðsýnt í virkri at- böfn bróður sínum þá þakkar- ^erðu ræktarsemi, að láta reisa nonum veglegan minnisvarða í 7eykjavík, er hún sjálf hefir að ollu kostað, enda er hún kunn aÖ drengskap og vinhollustu. Frú Guðrún skýrði ritstjóra k'ögbergs frá því í símtali, að Un stæði í mikilli þakkarskuld skáldkonuna frú Elínborgu arusdóttur fyrir margháttaða aðstoð hennar við undirbúning °S uppsetningu minnisvarðans °§ kvað sér hugarhaldið að þess yrði opinberlega getið með inni- le§rl þökk. —Ritstj. Minnisvarðinn var reistur á Priðjudaginn var, 16. marz, á gröf r- Valtýs i kirkjugarðinum við uðurgötu, en þar hvílir hann la konu sinni, Katrínu Jóhann- esdóttur, mágkonu sinni, Kat- rinu Jóhannesdóttur, og tengda- rn°ður sinni, Marenu Lárusdótt- nr- Dr. Valtýr fæddist 1860, en 021 1928. Hann var dósent við afnarháskóla í íslenzkri sðgu °§ bókmenntum 1890—1920 og jJJíessor í sögufraéðum 1920— ^ ^ b>r- Valtýr stofnaði tíma- 10 Eimreiðina og var ritstjóri ennar og útgefandi 1895—1917. ann var þingmaður fyrir Vest- jnann^yjar 1894—1902, Gull- l9n»8U' 0§ Kjósarsýslu 1903— w°g Seyðisfjörð 1911—1914. 111 styrr stóð um dr. Valtý síft sl;jórnmálamann upp úr 1 Uslu uidamótum, en tvímæla- ** Var hann í hópi menntuð- forU °8 svlPmesl;u stjórnmála- . lngja okkar og einlægur fram- faramaður. ^alfsystír dr. Valtýs hálfrU .^uðrun Skaptason er Ve .S^sflr dr. Valtýs, en fædd ald • ^anacla og hefir alið þar c U;smn. Hún kenndi íslenzku var* lne. Eoulke, sem víðfræg mál ^rir afskipti sín af friðar- Um- en Caroline Foulke var systurdóttir Arthurs B. Reeves, sem var mikill Islandsvinur og þýddi Pilt og stúlku á ensku í samvinnu við dr. Valtý. Guðrún giftist 1901 Jósef Björnssyni Skaptason, sem löngu er látinn. Jósef var sonarsonur Jósefs Skaptasonar- héraðslæknis að Hnausum í Húnaþingi, en Björn faðir hans var bróðir séra Magn- úsar Skaptasonar og Skapta Jósefssonar ritstjóra Austra á Seyðisfirði. Heim einu sinni Guðrún Skaptason hefir að- eins einu sinni komið til Islands. Fór hún til Kaupmannahafnar í boði bróður síns og konu hans og dvaldist þar árlangt. Þaðan kom hún til íálands og dvaldist þar í þrjá mánuði, meðan dr. Valtýr sat á þingi. —Alþbl., 21. marz Viðsjár í Egyptalandi Síðastliðinn hálfan mánuð hefir oltið á ýmsu í Egyptalandi varðandi stjórnarfarið og ekki séð fyrir endann á því hvernig fram úr ræðst; eins og sakir standa er landið í hershöndum, því herstjórn fer þar með völd þvert ofan í yfirlýstan vilja for- setans, Mahommeðs Naguibs, er fyrir skömmu lýsti yfir því, að hann vildi koma á fót þingbund- inni stjórn og að almennar kosn- ingar yrði haldnar í júnímánuði næstkomandi; þetta máttu hern- aðarvöldin ekki heyra nefnt á nafn og töldu þjóðina ekki við- búna svo róttækri stjórnarfars- breytingu; að þessu varð forseti að ganga hvort, sem honum féll betur eða ver; þúsundir stúdenta í Cairo úthúðuðu herstjórninni og kröfðust almennra kosninga, en þá skárust her og lögregla í leikinn og tvístruðu fylkingum stúdentanna að minsta kosti um stundarsakir, og vegna þess hve forsetinn er valtur í sessi, getur í Egyptalandi nær, sem vera vill, orðið allra veðra von. Engar líkur þykja til að á- greiningurinn milli Breta og Egypta út af brezka setuliðinu við Suezskurðinn muni ljúka í náinni framtíð nema síður sé. Séra Guðmundur Sveinsson Ekki myrkur í móli Víðkunnur enskur prédikari, Con. Bawnsley, hefir nýlega skorað alvarlega á brezku stjórn- ina, að banna að fullu og öllu allar flugtilraunir af þeirri ástæðu, að þær raski ró og friði mannanna barna og baki mönn- um reiði guðs og hegningu. Nýr verzíunar- samningur Canada og Japan hafa gert með sér nýjan verzlunarsamn- ing, sem undirritaður var í Ottawa í vikunni, sem leið, samningurinn felur í sér nokkr- ar tollaívilnanir af hálfu beggja aðilja, er til þess eru ætlaðar, að auka allverulega viðskipti milli þessara tveggja þjóða. MINNINGARORÐ Þann 6. marz s.l. andaðist í bænum Chico í California Islend- ingur að nafni Harvey Flalli Vogue. Dauða hans bar snögglega og óvænt að höndum. Orsökin var hjartabilun. Hinn framliðni var kennari við Chico High School, og meðlimur frímúrarareglunnar. Greftrunarathöfnin fór fram þann 11. s. m. Harvey Halli Vogue var fæddur 11. apríl 1901 í Reykjavík. barn að aldri fluttist hann vestur um haf með móður sinni, Guðlaugu Jónsdóttur — nú Vlrs. Teitson. Hann ólst upp í Washington-ríkinu og lauk þar barnaskólanámi. Ungur fór hann að vinna fyrir sér, og lagði leið sína til California. Það var fastur ásetningur hans að mennta sig og vinna sig áfram, og það tókst honum. Hanh útskrifaðist af U. C. L. A. og lagði síðan fyrir sig kennarastarf. 1 stöðu sinni og umhverfi var hann ætíð vinsæll maður, enda bæði grandvar og áhugasamur. Dugnaður og fjöl- hæfni einkenndi hann. 1 Chico átti hann gott heimili, en missti konu sína fyrir rúmu ári síðan, eftir mjög þungbær veikindi. Tvö börn lifa foreldrana horfnu — Harvey, 22 ára, og Helaine, 13 ára. Harvey er flugmaður og er í Am. Air Corpse. Hann er kvæntur, á heimili í Chico, og þar á systir hans framtíðar athvarf. Einnig lifa Harvey sál. móðir hans og stjúpfaðir, Mr. og Mrs. Hannes Teitson, að Stafholti, Blaine, Washington, og tvær systur, Mrs. Rose Hirst og Mrs. Hazel Mutter í Seattle. Þetta sviplega fráfall var öllum í fjölskyldunni og vinum þeirra hið dýpsta sorgar- og saknaðarefni. Hin aldurhnigna móðir mun til æviloka geyma ástríkar minningar um þennan góða son. ☆ ☆ ☆ Móðurkveðja Séra Guðmujidur Sveinsson var settur dósent við guðfræði- deild háskólans frá og með 1. febrúar, þegar Ásmundur Guð- mundsson prófessor tók við biskupsembættinu. Kom séra Guðmundur heim frá útlöndum nokkrum dögum áður, en hann hefir stundað framhaldsnám í guðfræði í Danmörku og Sví- þjóð síðustu árin. Alþýðublaðið vill nota tækifærið og fræða les- endur sína um séra Guðmund, ævi hans og störf. Ælt og uppruni Þó að séra Guðmundur hafi verið sveitaprestur undanfarin ár, er hann borinn og barn- fæddur Reykvíkingur. Hann fæddist 28. apríl 1921 að Frakka- stíg 11 hér í bænum. Foreldrar hans eru Sveinn Óskar Guð- mundsson múrarameistari og kona hans, Þórfríður Jónsdóttir. Föðurafi séra Guðmundar var Guðmundur Sveinsson sjómaður og verkamaður í Reykjavík, en hann var sonur Sveins Jónsson- ar í Gufunesi. Föðuramma séra Guðmundar var Guðrún Guð- mundsdóttir, ættuð úr Borgar- firði, en Guðmundur faðir henn- ar bjó að Staðarhóli hjá Hvann- eyri, þar sem prestsetrið er nú og séra Guðmundur hefir lengst- um setið síðan hann vígðist til Hestþinga. Þórfríður, móðir séra Guðmundar, er dóttir Jóns Einarssonar, sonar séra Einars Hjörleifssonar í Vallanesi og bróður séra Hjörleifs á Undir- felli, föður Einars Hjörleifsson- ar Kvarans og þeirra systkina. Nám heima og erlendis Að loknu barnaskólanámi í Reykjavík settist séra Guð- mundur í Gagnfræðaskóla Reyk víkinga og lauk þaðan prófi 1938. Stórbruni í St. Vital 1 fyrri viku brann til kaldra kola Winnipeg Canoe klúbbur- inn í St. Vital, og er tjónið metið á hundrað þúsund dollara. Bygg- ing þessi var fjörutíu ára gömul og var í miklum heiðri höfð. Eigendur hafa þegar kunngert, að hafist verði handa um nýja byggingu eins fljótt og því framast verði viðkomið. Skarar fram úr í píanóleik Hann varð stúdent úr stærð- fræðideild Menntaskólans í Reykjavík 1941. Þá hóf hann nám við guðfræðideild háskól- ans og lauk prófi úr henni 1945. Séra Guðmundur vígðist 24. júní þá um sumarið til Hestþinga í Borgarfirði og hefir verið prest- ur þar síðan. Séra Guðmundur hefir stund- að framhaldsnám í guðfræði í Kaupmannahöfn 1948 til 1950, í Lundi 1950 til 1951 og aftur í Kaupmannahöfn 1953—1954. — Hefir hann numið semitísk mál, hebresku, arabísku og sýrlenzku, og tekið próf í þeim við háskól- ann í Lundi, en einnig numið aramísku. Jafnframt hefir fram- haldsnám hans verið fólgið í því, að hann hefir lagt stund á fræði Gamla testamentisins og sér í lagi spámenn Gamla testa- mentisins. Forustumaður SBS Séra Guðmundur tók mikinn þátt í bindindishreyfingunni á námsárum sínum og var lengi einn áhugasamasti forustumað- ur Sambands bindindisfélaga í skólum. Átti hann sæti í stjórn þess 1939 til 1943, var ritari sam- bandsins 1939—1940, gjaldkeri 1940—1942 og forseti þess 1942— 1943. Kom séra Guðmundur oft fram opinberlega á vegum sam- bandsins og vakti mikla athygli fyrir einarðlegan og hlífðarlaus- an málflutning í ræðu og riti. Stóð á sínum tíma ærinn styrr um útvarpsræðu, sem séra Guð- mundir flutti í dagskrá SBS 1. febrúar, þar eð hún varð tilefni blaðaskrifa og kappræðna 1 há- skólanum. Séra Guðmundur er kvæntur frænku sinni, Guðlaugu Einars- dóttur, en foreldrar hennar eru Einar Jónsson, bróðir Þórfríðar, móður séra Guðmundar, og kona hans, Guðbjörg Kristjánsdóttir. Einar Jónsson hefir lengi verið vegavinnuverkstjóri á Aust- fjörðum, en hann var fyrrum búsettur á Akranesi og á nú heima í Reykjavík. Guðlaug og séra Guðmundur eiga þrjár dætur, Guðbjörgu, Þórfríði og Guðlaugu. í annað sinn Þetta er í annað sinn, sem séra Guðmundur Sveinsson annast kennslu við guðfræðideild há- skólans. Fyrra sinnið kenndi hann þar vormissirið 1952 í fjar- veru Ásmundar Guðmundssonar prófessors. Séra Guðmundur vakti strax í æsku athygli sem fjölhæfur og snjall námsmaður, og leikur ekki á tveim tungum, að hann sé í fremstu röð menntuðustu guð- fræðinga okkar. Hann er mikill áhugamaður um listir, ágætur ræðumaður og prýðilega ritfær. —Alþbl., 25. febr. Með söknuð í hjarta ég hugsa til þín er heimkynni friðarins kvöddu til sín. En vorið og draumarnir veita mér þrótt, — þeir varðeldar lífsins um harmdimma nótt. Sem endurskin birtist þín alúð og dyggð, og unað í minningum veitir þín tryggð. Ég kveð þig í anda — en ört líður stund, og áður en varir ég kem á þinn fund. JAKOBINA JOHNSON Seattle, Washington, 29. marz, 1954. Don Winkler Piltur þessi, sem einungis er 13 ára að aldri, skaraði framúr í hljómlistarkepni Manitoba- fylkis, sem nýlega er um garð gengin; hlaút hann 88 stig í píanóleik fyrir tækni og frá- bæra tóntúlkun á verki Bachs í Intermediate flokknum. Þessi efnilegi píanóleikari hef- ir í undanfarin fjögur ár stund- að nám hjá Albert Stefánssyni, Dominion Street hér í borg, er nýtur mikils álits sakir kennara- hæfileika sinna. Gen. Hoyt Vanden- burg lótinn Síðastliðinn föstudag lézt á Walter Reed sjúkrahúsinu í Washington, D.C., General Hoyt Vandenburg, er með höndum hafði yfirstjórn ameríska flug- hersins síðan 1948 og fram á árið, sem leið, er hann lét af embætti sakir heilsubilunar; hann var 55 ára að aldri, en krabbamein varð honum að bana. Mr. Vandenburg vann mikið og merkilegt starf í þágu hins ameríska flughers og sann- færði að miklu þjóð sína um það, að framtíðaröryggi hennar yrði undir öflugum og ósigrandi flugher komið. Hlýtur heiðurs- viðurkenningu Dr. T. J. Oleson Menntamálaráð Islands hefir veitt Dr. Tryggva J. Oleson prófessor í sögu við Manitoba- háskólann 1000 krónur til sagn- fræðilegra rannsókna; er hann að öllu sæmdar þessarar mak- legur sakir víðtækrar þekkingar í fræðigrein sinni. Sveinn Pólmason lótinn Síðastliðinn föstudag lézt á Almenna sjúkrahúsinu hér í borginni Sveinn Pálmason tré- smíðameistari 76 ára að aldri, fæddur á Yztagili í Húnavatns- sýslu 9. október 1877. Foreldrar hans voru Pálmi Sigurðsson og Guðrún Sveinsdóttir; hann flutt- ist vestur um haf tvítugur að aldri og átti lengst af heima í Winnipeg. Hinn 14. nóvember árið 1907 kvæntist Sveinn og gekk að eiga Gróu Sveinsdóttur ættaða úr Borgarnesi hina mestu dugnað- ar- og myndarkonu; hún lézt í marzmánuði 1951. Þeim hjónum varð fjögurra mannvænlegra barna auðið, þrjú þeirra eru á lífi og voru við útför föður síns, Pearl í Toronto, Pálmi í Winni- peg, kunnir fiðluleikarar, og Ruby Dawson að Unity, Sask. Yngsti sonurinn, Stefán, í þjón- ustu canadiska flugliðsins, fórst í síðustu heimsstyrjöld. Albróðir Sveins var Ingvar Pálmason út- gerðarmaður á Norðfirði og um langt skeið þingmaður Sunn- mýlinga. Sveinn vann svo að segja alla sína æfi vestra að húsabygging- um og þótti ágætur trésmiður; hann tók giftudrjúgan þátt í ís- lenzkum mannfélagsmálum og var um alt ábyggilegur dreng- skaparmaður. Útför Sveins var gerð- frá Fyrstu lútersku kirkju á mánu- daginn, að viðstöddu fjölmenni. Mrs. Pearl Johnson söng ein- söng, en Dr. V. J. Eylands flutti hin hinztu kveðjumál. Ársfundur Gimlisafnaðar Hinn 28. marz s.l. hélt Gimli- söfnuður ársfund að lokinni guðsþjónustu og var fundurinn sóttur hið bezta; skýrslur em- bættismanna báru þess glögg merki hve hagur safnaðarins stendur í miklum blóma; að því er féhirðinum, Haraldi Bjarna- syni sagðist frá, námu tekjurn- ar $15,977, en megin útgjöld $9,249. Féhirðir kvenfélagsins, Mrs. J. Jacobson, kvað tekjur þess hafa hlaupið upp á $1,700, en af þeirri upphæð hefðu þúsund dollarar verið lagðir í kirkju- byggingarsjóð. Líknarnefnd safn aðarins, en féhirðir hennar er J. H. Menzies, lagði fram $65.00 í trúboðssjóð. Djáknanefndin, fé- hirðir Mrs. G. Johnson, hafði tekið inn á fjárhagsárinu $1,200. Presti safnaðarins, séra H. S. Sigmar, var falið að ákveða dag hinnar formlegu kirkjuvígslu.

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.