Lögberg


Lögberg - 01.07.1954, Qupperneq 5

Lögberg - 01.07.1954, Qupperneq 5
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 1. JOLÍ 1954 5 t?trf X ÁI I Í AHÁL LVENNA Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON VEL AÐ VERIÐ GULA HÆTTAN Fréttir fró ríkisútvorpi íslonds 1 nýafstöðnum prófum To- ronto Conservatory of Music lauk Mrs. H. Comack — Agnes Bardal Comask — prófi í píanó- leik, Grade 8, með hárri fink- unn — Honors. — Þetta er 'pví virðingarverðara, þegar tekið er til greina, að Mrs. Comack á þrjú börn og hefir margþættum húsmóðurstörfum að sinna. Hún er og útlærð hjúkrunarkona og stundar þau störf af og til. Þrátt íyrir mikið annríki tekur hún þátt í félagsmálum og er ritari Dorcas kvenfélags Fyrsta lúterska safnaðar. Þessi f jölhæfa kona er dóttir Arinbjarnar heitins Bardals og eftirlifandi konu hans'Mrs. A. S. Bardal ☆ ATHYGLISVERÐ RITGERÐ Margir Islendingar, sem ferð- ast hafa víða, minnast þess hve þeir hafa glaðst, ef þeir af hend- ingu hittu „landa“ á leið sinni. Það var eins og þeir finndu náið skyldmenni, og kunnings- skapur og vinskapur þeirra á rnilli blómgaðist fljótlega. Ems er með fámenna hópa Islend- inga, er búa í fjarlægð við hinar fjölmennari byggðir íslendinga; þeir fagna hverjum landa er bætist í hópinn. Ef til vill eru íslendingar næmari fyrir sínu sameiginlega ætterni og upp- runa, en önnur þjóðarbrot í þess- ari álfu, vegna þess hve þeir eru fámennir. Frú Svanhvít Josie, sem bú- sett er í Ottawa, en þar eru um hundrað Islendingar, lýsir þess- ari sterku þjóðernistilfinningu í athyglisverðri og skemmtilegri grein, On Being an Icelander in Canada's Capilal í sumarhefti Icelandic Canadian. — Hún hitti konu í hádegisboði og segir: “Once we learned that we were both Icelandic we skipped the long slow process of gradu- ally building up a new friend- ship. We were already friends.” Ennfremur segir hún: — “We of Icelandic origin, when our paths do cross, have none of the usual fencing to do that is com- oaon between new acquaint- ances. We understand each other.” Frú Svanhvít bendir á í grein sinni, að í Ottawa sé allmargt fólk af íslenzkum stofni búsett, sem skipar ábyrgðarmiklar stöð- Ur, svo sem Mr, Justice Thor- son, Mr. Wm. Benedickson og Mrs. Guðrún Parker, en fáum muni kunnugt um hinn íslenzka uPpruna þess, né heldur um Yilhjálm Stefánsson landkönn- uð, Pearl Pálmason fiðluleikara °g fleiri, er heimsótt hafa Ot- tawa og komið hafa þar fram opinberlega. Ekki eru fleiri unglingar af íslenzkum ættum 1 Ottawa en telja mætti á fingr- una sér, en þó urðu tveir, piltur °g stúlka, fremst allra nemenda 1 aðalmiðskólum borgarinnar í vor. Skýrir frú Svanhvít frá því að 1 Ottawa eigi flestar þjóðir heims fulltrúa, er grípi hvert taskifæri, sem gefist, til að kynna land sitt og þjóð, en í Ottawa eigi íslendingar engan slíkan fulltrúa búsettan, er hafi Urnboð til slíkrar kynningar- starfsemi, og þó búi fleira fólk íslenzkum stofni í Canada en ' n°kkru öðru landi utan Is- ar*ds. Harmar hún það, að tæki- æri eins og þau sem að ofan eru greind, voru því ekki notuð 1 að kynna ísland og auka á hróður þjóðarinnar. Trú Svanhvít lýkur grein sinni með þessum orðum: — oesn’t it seem. though, that we, who retain this deep fellow- feeling that makes every chance meeting with another Icelander a thrill, must have something worth preserving?” Lesið greinina í heild í Ice- landic Canadian. Þar eru og margar fleiri ágætar ritgerðir, sem gaman og gagn er af að lesa. ☆ ÖLL BÖRN BLÁEYG Flest nýfædd börn hafa grá- blá eða vatnsblá augu. En augna liturinn fer að breytast á þriðja mánuði hjá þeim, sem hafa grá- blá augu. Þá fara áð koma brún- ir blettir í sjáaldrið og smám saman dökknar það, svo að aug- un verða brún (eða svört). En þau börn, sem fæðast með vatns- blá augu, eru venjulega bláeyg alla ævi. Nýfædd börn kunna ekki að beita augunum, og því sýnast þau oft rangeyg, af því að þau renna augunum í skjálg. En smám saman lærist þeim að beita augunum og fyrsti vottur- inn um það er að þau' einblína lengi á sama hlutinn. En sé augnaráðið ekki orðið eðlilegt þegar þau eru orðin ársgömul, er sjálfsagt að leita læknis. Önnur breyting verður líka á augunum fyrstu mánuðina. Ný- fætt barn getur ekki tárast. Það er alveg sama hvernig það öskrar og „grætur“, það grætur þurrum tárum. Fyrstu tárin koma venju lega þegar börnin eru þriggja mánaða gömul, og eftir það eru þau venjulega útgrátin á hverj- um einasta degi í nokkur ár. Margt hefur verið um það rætt hvort börn muni sjá um leið og þau fæðast. En þeirri spurningu verður að svara ját- andi. Að minsta kosti er það al- veg víst, að þau greina skil ljóss og myrkurs. Það þarf ekki ann- að til sannindamerkis þar um, en að geisli falli á augu ný- fædds barns. Augasteinninn dregst óðar saman, en víkkar svo aftur þegar geislinn hverfur. Sum börn hafa jafnvel þá skyn- semi á öðrum og þriðja degi, að elta ljós með augunum, en önn- ur hafa ekkert vit á því fyrr en þau eru nokkurra vikna gömul. —(Þýtt úr „Science Digest“) ☆ FIÐRILDI BJARGAR DROTNINGU Einu sinni var Viktoría Eng- landsdrotning á ferð með hrað- lest. Það hafði rignt mikið um daginn og nú var komin þoka. Alt í einu sá lestarstjórinn hvar einhver svört vera veifaði ákaf- lega til lestarinnar.'Hann hélt að einhver hætta væri á ferðum og stöðvaði lestina. Maður var sendur á stað til þess að finna þann, sem hættumerkið hafði gefið. En þegar hann var kom- inn svo sem 200 metra frá lest- inni bar hann að gili. Þar átti að vera járnbrautarbrú yfir, en hún var hrunin. Óskaplegt flóð hafði komið í gilið og vatnið brotið brúna. En hvergi fannst sá, sem varað hafði við hætt- unni og bjargað lífi drotningar- innar og margra annara. Nokkrum klukkustundum síð- ar hafði verið gert við brúna og lestin komst leiðar sinnar. Eftir venju fór lestarstjórinn að at- huga hvort alt væri í lagi. Þegar hann skoðaði kastljós eimreið- arinnar sá hann að stórt fiðrildi hafði flogið á ljóskerið og var þar dautt. Skugginn af því hafðÞ endurspeglast í þokunni, svo að honum sýndist þar vera maður, sem baðaði út handleggjunum. Þetta dauða fiðrildi, sem bjarg- aði drotningunni, er enn til sýnis í British Museum. Mótar óttinn við Kínverja ekki aðeins afstöðu Banda- ríkjamanna, heldur einnig afslöðu Rússa? Vilhjálmur annar Þýzkalands keisari hefir ekki verið talinn sérlega framsýnn stjórnmála- maður. Þó hefir það oft verið rifjað upp, að hann hafi orðið einna fyrstur manna til að benda hvíta kynþættinum á gulu hættuna svonefndu. Árið 1896 sendi keisarinn frá sér teikningu, er kunnur málari málaði síðan málverk eftir. Á málverkinu sjást tvær konur, sem eiga að tákna listina og tæknina. Fyrir framan þær rís upp dökkur og ógnandi skýja- bakki og fram úr honum birtist mongólskur risi, sem er hinn ferlegasti ásýndum. Konurnar eru þó ekki varnarlausar, því að við hlið þeirra skipar sér ger- manskur hermaður tilbúinn til varnar. Undir teikningu sína hafði keisarinn skrifað: Vaknið, þjóðir Evrópu og gætið helgustu verð- mæta ykkar. Við mörg tækifæri lét svo Vilhjálmur keisari þessa skoðun sína koma í ljós og spáði því, að styrjöld milli hvítra manna og Mongóla væri óumflýjanleg. Vilhjálmur keisari taldi boks- arauppreisnina í Kína, er gerð- ist fjórum árum síðar, sönnun þess, að hann hefði rétt fyrir sér. Uppreisn boksara Boksarahreyfingin átti upptök sín í Sjantungfylki um 1898 og breiddist fljótt út um Kína og hlaut mikið fylgi. Hún var jöfn- um höndum trúarhreyfing og pólitísk hreyfing. Að ýmsu leyti svipar Mau Mau hreyfingunni í Kenya til hennar. Hún tók upp ýmsa gamla og dularfulla trúarsiði og krafðist skilyrðis- lausrar hollustu af fylgismönn- um sínum. Hún innræftti fylgj- endum síqum takmarkalaust hatur gegn útlendingum og setti sér það mark og mið að hrekja þá úr landi. Afleiðingarnar urðu vaxandi árásir á hendur kristni- boðum og fyrirtækjum útlend- ingá í Kína. Svo kom, að erlend- ar sendisveitir töldu sig ekki að öllu leyti óhultar í Peking og fengu sent þangað lið sér til varnar. Þetta bar þó ekki til- ætlaðan árangur, heldur magn- aði hreyfinguna um allíln helm- ing. í júní 1900 hófst svo sjálf uppreisnin. 'Hvítir menn voru drepnir þar sem til þeirra náðist og fyrirtæki þeirra eyðilögð. Þýzki sendiherrann var drep- inn, en önnur sendiráð sett í umsát. Keisarastjórnin gekk í lið með uppreisnarmönnum og lofaði að beita sér fyrir brott- rekstri allra útlendinga úr landi. Evrópuríkin svöruðu með því að senda allmikið herlið til Kína undir yfirstjórn rússnesks hershöfðingja. Eftir nokkurra vikna styrjöld var uppreisn boksara brotin á bak aftur og kínverskir embættismenn, sem voru þeim andvígir, tóku við stjórn. Boksarahreyfingin var bönnuð og foringjar hennar voru ýmist teknir af lífi eða reknir úr landi. Með þessu var andstaðan gegn hvítum mönnum ekki brotin á bak aftur í Kína, þótt hún bryt- ist ekki aftur út með svipuðum hætti. Þegar kommúnistar voru að brjótast til valda í Kína, not- uðu þeir sér mjög útelndinga- hatrið og átti það ekki sízt þátt i fylgi þeirra. VSldadraumar Japana Segja má, að fyrri helming þessarar aldar hafi gula hættan svonefnda fyrst og framst verið talin stafa af Japönum. Sigur þeirra í styrjöldinni við Rússa 1905 gaf það glöggt til kynna, að hér var mongólskt stórveldi risið á fót. 1 fyrri heimsstyrjöld- inni styrktu Japanir þessa af- stöðu sína. Á árunum milli styrjaldanna byrjuðu þeir að leggja Mansjúríu og síðan Kína undir sig. 1 heimsstyrjöldinni síðari náðu þeir allri Suðaustur- Asíu undir vald sitt. Ef valda- draumar þeirra hefðu fengið að rætast ,væri nú risið upp mong- ólskt stórveldi í Suðaustur- Asíu, öflugra og mannfleira en nokkurt annað stórveldi mann- kynssögunnar til þessa dags. Ósigur Japana batt enda á þessa stórveldisdrauma þeirra, a. m. k. að sinni. En gula hættan var hins vegar ekki liðin hjá. Fimm árum eftir uppgjöf Jap- ana, var Kína búið að taka við því hlutverki, er Japan hafði áður haft. Þar var komin til valda öflugri ríkisstjórn en Kína hafði nokkru sinni haft. Markmið hennar er bersýnilega ekki það eitt að losna við öll yfirráð útlendinga í Kína, held- ur að færa út kínversk yfirráð. Gula hættan, sem Vilhjálmur keisari óttaðist svo mjög, virðist nú mun nálægari en fyrir hálfri öld síðan. Kínverjar í Genf Þetta kemur ekki sízt fram í skrifum ýmissa þeirra blaða- manna, sem fylgjast með ráð- stefnunni í Genf. Þeir, sem eru orðnir gamlir í hettunni, geta þess, að ræður Chou En-lai, ut- anríkisráðherra Kínverja, og fé- laga hans minni óþægilega mik- ið á ræðuhöld Japana fyrir 10— 20 árum, þegar þeir flögguðu með orðunum: Asía fyrir Asíu- menn, en sem raunverulega þýddu á máli þeirra: Asía fvrir Japani. 1 ræðum Chou En-lai endurspeglast sami fjandskap- urinn í garð hinna hvítu þjóða og áður birtist í ræðum jap- önsku heimsveldissinnanna og þær erq þrungnar af sömu ögr- ununum og hótununum í garð hins hvíta kynstofns. Óspart er látið í það skína, að yfirráða- tíma hans sé lokið, a. m. k. í Asíu og þar sé nú runninn upp dagur hins monólska kynþáttar. Framkoma kínversku sendi- sveitarinnar á ráðstefnunni minnir og óþægilega á þetta sama. Hún er 20% fjölmennari en rússneska sendisveitin og telur um 200 manns. Það kem- ur þó sjaldan fyrir að nokkur Kínverji tali við hvítan mann og aldrei einslega. Kínversku blaðamennirnir, sem eru um 30 talsins, forðast umgengni við er- lenda starfsbræður sína. Rússar hafa sér hins vegar á allt annan veg. Blaðamenn þeirra eru hinir ræðnustu og hafa ekki verið jafn frjálslegir um langt skeið og nú. Ótíinn í Bandaríkjunum við Kínverja í Bandaríkjunum virðist sú skoðun nú ryðja sér meira og meira til rúms, að þótt Rússar hafi forustu heimskommúnism- ans eins og er og séu öflugasti andstæðingur Bandaríkjanna, muni sá tími brátt renna upp, að Kínverjar hafi tekið þetta sæti þeirra. Hin hatramma and- staða gegn Kínverjum í Banda- ríkjunum stafar ekki sízt af þessu og veldur ýmsum Evrópu- mönnum oft nokkurrar undrun- ar fyrst í stað vegna þess, að frá sjónarmiði þeirra stafar meiri hætta af Rússum en Kínverjum. Af hálfu Breta og ýmsra fleiri er því haldið fram, að hyggilegt sé að reyna að stuðla að því að losa um böndin milli Kínverja og Rússa með því að sýna þeim fyrrnefndu aukna tillitssemi. Margir Bandaríkjamenn telja þetta hinfe vegar rangt. 1 fyrsta lagi verði þessi tengsli ekki siit- in fyrst um sinn og í öðru lagi muni stafa meiri hætta af Kín- verjum en Rússum, þegar frá líður. Um það er að sjálfsögðu mikið rætt í Bandaríkjunum, hvaða leið muni vænlegust til að stöðva útþenslu Kínverja. Sendi herra Bandaríkjanna í Indlandi Framhald af bls. 1 um: Bretlandi, Frakklandi, Þýzkalandi, Austurríki og ítalíu. Tónskálafélag Islands hafði boð- að til alþjóðlegs tónskáldafund- ar og urðu fulltrúar þessara tíu tónskáldafélaga sammála um að stofna Alþjóðaráð tónskálda, en tilgangur þess er listræn við- skiptasamvinna og stéttarleg samtök tónskálda æðri tegundar með öllum þjóðum. Lög ráðsins voru undirrituð við hátíðlega at- höfn að Þingvöllum 17. júní. I stjórn ráðsins voru kjörnir full- trúar íslands, Noregs, Bretlands, Frakklands og Þýzkalands. Gert er ráð fyrir, að næsti aðalfundur Alþjóðaráðs tónskálda verði haldinn í London um eða eftir næstkomandi áramót. ☆ Aðalfundur Eimskipafélags ís lands var nýlega haldinn í Reykjavík. Samkvæmt skýrslu félagsstjórnar og reikningum varð hagnaður á árinu 1,7 milj- ónir króna, og höfðu þá eignir félagsins verið afskrifaðar um rúmlega 9 miljónir króna. Tekj- ur eigin skipa félagsins á árinu 1953 námu röskum 79,2 miljón- um króna, en gjöld þeirra rúm- lega 70,1 miljón. Nokkurt tap varð á leiguskipum. Hagnaður af rekstri eigin skipa varð um 6 milljónum króna minni en árið áður, þrátt fyrir aukið vöru- magn, og stafar þetta að tals- verðu leyti af hækkun útgjalda en einnig af nokkurri lækkun farmgjalda. A árinu voru 21 skip í förum fyrir félagið og fóru þau samtals 110 ferðir milli landa og 63 ferðir frá Reykjavík út á lét nýlega svo ummælt, að raun- verulega myndu átökin í Asiu brátt snúast um það, hvort Ind- land eða Kína hefðu þar forust- una, því að Asíumenn tnyndu ekki sætta sig við áhrif utan frá. Þess vegna ætti hinn frjálsi heimur mikið undir því, að stjórn Indlands heppnaðist svo vel, að aðrar Asíuþjóðir tækju hana til fyrirmyndar. Stendur Rússum stuggur af uppgangi Kínverja? Sá orðrómur fær nú aukna vængi, að Rússar hafi þegar bor- ið nokkrar áhyggjur af auknum viðgangi og yfirgangi Kínverja. Framferði Kínverja sýnir glöggt, að þeir ætla sér, en ekki Rúss- um, forustuna í Asíu. I Norður- Kóreu hafa þeir unnið mark- visst að því að þoka þeim mönn- um til hliðar, sem taldir voru hliðhollir Rússum, og láta Kín- verja taka við störfum þeirra. Hið sama gera þeir í Indó-Kína. Þeir hafa ráðizt inn í Tíbet, sem búið er að vera raunverulega sjálfstætt land síðustu aldirnar, og neytt valdamenn þar til að viður kenna kínversk yfirráð. Áður höfðu Rússar haft auga- stað á Tíbet. Fyrst um sinn þurfa Rússar að vísu ekki að óttast það, að Kín- verjar rjúfi tengslin við þá. Þeir þurfa á efnalegri og tæknilegri aðstoð Rússa að halda meðan þeir eru að koma fótum undir iðnað sinn. Þess gæta þeir híns vegar, að veita Rússum engin sérstök sérréttindi. Sá tími get- ur fljótlega komið, að Kínverjar telji sig svo vel á veg komna, að þeir þurfi ekki á þessari að- stoð Rússa að halda. Við Rúss- um blasir þá sú standreynd, að við hlið þeirra er risið upp nýtt kommúnistískt heimsveldi, sem er helmingi fólksfleira en Rússa veldi og öflugra því á annan hátt. Forvígismenn Rússa eru á- reiðanlega það miklir raunsýnis menn, að þeir gera sér þetta Ijóst. Þess vegna getur það líka verið rétt, að Rússar séu fúsari til sátta í Genf en Kínverjar, en ýmsir blaðamenn þar halda því fram. Ástæðan til þess gæti verið sú, að Rússar kæri sig ekki um að Kínverjar eflist í Asíu á þeirra kostnað. —TÍMINN, 26. maí land. Skip þessi fluttu samtals nær 223.000 lestir af vörum. Eignir félagsins námu rösklega 108 milljónum um s.l. áramót, skuldir að meðtöldu hlutafé rúmum 42 miljónum króna og er þá skauldlaus eign félagsms rúmlega 62 miljónir króna. Eitt skip bættist í flota félagsins á árinu 1953 og annað í febrúar- mánuði s.l. og á Eimskipafélag Islands nú 10 skip, sem samtals eru 24,480 brúttólestir. Sam- þykkt var að heimila stjórninni að kaupa eða smíða nú eða síðar allt að þremur millilandaskip- um og selja þau skip, sem hún telur rétt að selja. Ákveðið var, að minnast 40 ára afmælis fé- lagsins, sem það átti í vetur, með því að verja 50,000 krónum til menningar- og mannúðar- mála eftir nánari ákvörðun stjórnarinnar. Samþykkt var til- laga um, að hluthafar fáí ný hlutabréf í stað hinna gömlu, sem verði að fjárhæð tífalt nú- gildandi nafnverð hlutabréfa, en fundarstjóri úrskurðaði að hún hefði ekki verið samþykkt með nægilegu atkvæðamagni og þyrfti að samþykkjast á öðrum fundi til þess að öðlast gildi sem breyting á samþykktum fé- lagsins. í stjórn til eins árs í stað Hallgríms Benediktssonar, sem lézt á árinu, var kjörinn Bjarni Benediktsson dómsmála- ráðherra. Framkvæmdastjóri fé- lagsins er Guðmundur Vil- hjálmsson. ☆ Á aðalfundi Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna var frá því skýrt, að heildarframleiðslan á árinu 1953 af flökum og heil- frystum fiski hefði orðið um 23,000 lestir, eða 5,500 lestum minni en árið áður. Söluhorfur höfðu verið slæmar á því ári, þar til gerður var viðskipta- samningur við Ráðstjórnarríkin, sem breytti mjög viðhorfinu, og út voru fluttar á árinu rúmlega 36,000 lestir af frystum fiskflök- um fyrir 207 miljónir króna. Um áramótin s.l. voru söluhorfur góðar, og á fyrstu fimm mánuð- um þessa árs var framleiðsla hraðfrystihúsanna orðin álíka mikil og hún var á öllu s.l. ári. Sala á þorskflökum til Banda- ríkjanna hefur stóraukizt á þessu ári, og var snemma á ár- inu búið að gera fasta sölusamn- inga um allt að 11,000 lestum af þorsflökum með sérstökum frá- gangi. Mest af framleiðslunni á þessu ári hefur verið selt til Bandaríkjanna. Sovétríkjanna og Tékkóslóvakíu. ☆ Iðnaðarbankinn hélt nýlega aðalfund. Bankinn á nú full- smíðað hús fyrir útibú á Kefla- víkurflugvelli, og tekur útibúið til starfa 1. júlí. Þá hefur bank- inn keypt fasteignina Lækjar- götu 10B í Reykjavík og hyggst reisa þar bankahús strax og byggingarleyfi fæst. Loks er í ráði að stofna útibú á Akureyri. ☆ Togarinn Egill rauði, sem er á veiðum við Grænland, bjarg- aði þar nýlega áhöfn af fær- eysku skipi, sem brann. Skip þetta hét Hjördís. Togarinn flutti áhöfnina til Færeyinga- hafnar. COPENHAGEN Bezta munntóbak heimsins

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.