Lögberg - 04.11.1954, Side 1
ANYTIME
— ANYWHERE
CALL
TRANSIT - SARGENT
SILVERLINE TAXI
5 Telephone Lines
20-4845
67. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 4. NÓVEMBER 1954
*
ANYTIME — ANYWHERE
CALL
TRANSIT - SARGENT
SILVERLINE TAXI
5 Telephone Lines
20-4845
NÚMER 44
Winnipeg kýs nýjan
borgarstjóra
George Sharpe
Við nýafstaðnar bæjarstjórn-
arkosningar hér í borg, varð
George Sharpe bæjarfulltrúi
fyrir 1. kjördeild hlutskarpastur
varðandi val borgarstjóra og
tekur hann við hinu virðulega
embætti sínu um næstkomandi
áramót. Mr. Sharpe er hæfi-
leikamaður og fylginn sér vel, og
^yggja borgarbúar þar af leið-
andi gott til forustu hans á vett-
vangi bæjarmálefna.
Flytur meirihóttar
hóskólafyrirlestur
Ríkisháskólinn í Norður-
Uakota (University of N. Dakota)
efnir á þessu ári, í fyrsta sinni í
sögu háskólans, til opinberra
fyrirlestra fyrir almenning af
hálfu háskólakennaranna.
Dr. Richard Beck var kjörinn
til að flytja fyrsta fyrirlesturinn
1 þessum erindaflokki, og flutti
'hann fyrirlestur sinn mánudags-
kvöldið þ. 26. október í hátíðar-
sal háskólans við prýðisgóða að-
sókn og ágætar undirtektir.
Fjallaá fyrirlesturinn um út-
þrá og landnámshug rtorrænna
fnanna að fornu og nýju. Rakti
fyrirlesarinn í megindráttum
sögu víkingaferðanna, menning-
argildi þeirra og áhrif á ýmsum
sviðum, og dró sérstaklega at-
hygli tilheyrenda að Vínlands-
fundi Leifs Eiríkssonar. Dr.
Beck ræddi einnig um hið nýja
°g víðtæka landnám norrænna
uianna í Vesturheimi.
í>á lagði ræðumaður áherzlu á
það, hvernig frelsisást og virðing
fyrir lögum og rétti væru saman
°fnar í skapgerð og lífsskoðun
rtorrænna manna, og kvað stofn-
un hins íslenzka lýðveldis til
forna og Alþingis vera glæsilegt
dæmi þess. Loks lýsti dr. Beck
því með mörgum dæmum,
hvernig framsóknarhugur nor-
raenna manna hefði á síðari
arum fundið sér framrás í braut-
ryðjendastarfi að félagslegum
Umbótum í heimalöndum þeirra
°g í víðtækri þáttöku þeirra og
forustu í alþjóðamálum. Tengdi
fyrirlesarinn með ýmsum hætti
umræðuefni sitt við ÍSlands og
Norðurlandaför þeirra hjóna í
surnar.
Um það efni flutti hann einnig
raeðu daginn eftir, miðvikudag-
ion þ. 27. október, á fundi Lions-
hlúbbsins í Grand Forks, og
lýsti þar sérstaklega hinum
niiklu verklegu framförum, sem
orðið hafa á Islandi á síðustu
arum, og endurreisnarstarfinu í
Noregi síðan stríðinu lauk.
Leiðtogavaí í aðsigi
Dagana frá 25.—27. yfirstand-
andi mánaðar halda Liberalar í
Saskatchewan flokksþing í
Saskatoon, er verða mun að lík-
indum fjölsótt mjög og sögu-
frægt; verður stefnuskrá flokks-
ins tekin þar til alvarlegrar
íhugunar og væntanlega sam-
ræmd kröfum hins nýja tíma;
megin viðfangsefni þingsins
verður þó vafalaust það, að velja
flokknum nýjan leiðtoga í stað
Walters Tuckers, er lét af for-
ingjastöðunni, er hann var kos-
inn á sambandsþing í síðustu
kosningum. Fimm menn muriu
bjóða sig fram til flokksforust-
unnar og verða það þeir Donald
L. W. Hood, 47 ára, Hudson Bay,
James Wilfrid Gardiner, 29 ára.
Lemberg, sonur James Gardi-
ners landbúnaðarráðherra sam-
bandsstjórnarinnar, John George
Egnatoff, Melfórt, Hamilton
Alexander McDonald, 35 ára,
Fleming, og Wilfrid Simmie, 47
ára, Saskatoon.
Þessir fimm keppinautar létu
nýverið til sín heyra á fjölsótt-
um fundi í Regina, er samtök
ungra Liberala í fylkinu höfðu
stofnað til, og ríkti þar að sögn
mikill áhugi og mikill ein-
drægnisandi.
Endurkjörin í
bæjarstjórn
Mrs. Lillian Hallonquist
í síðustu bæjarstjórnarkosn-
ingum í Winnipeg, var Mrs.
Lillian Hallonquist endurkosin
bæjarfulltrúi fyrir 2. kjördeild
og hlaut langhæst atkvæðamagn
þeirra, er í kjöri voru; er hún
mikilhæf kona og ósérhlífin í
störfum sínum.
Hinn mikli myndasmiður
1
Einar Jónsson frá Galtafelli
Á mánudaginn hinn 18. þ. m., lézt á Landsspítalanum í Reykja-
vík hinn víðfrægi og-skapandi listamaður, Einar Jónsson frá
Galtafelli, ireklega áttræour að aidri; hann fór ungur utan og
hóf nám í höggmyndagerð við fjöllistaskólann í Kaupmannahöfn
og víðar í stórborgum Norðurálfunnar; fyrsta höggmynd hans, er
vakti víðtæka athygli, var Drengur á bæn, en úr því rak eitt
listaverkið annað öðru stórbrotnara, svo sem Útilegumaðurinn,
og seinni ára meistaraverk hans, Kristsmyndin. Einar Jónsson
var að eðlisfari djúpskygn skáldspekingur og svo hreinhjartað
göfugmenni, að þar munu fáir hafa komist til jafns við.
Árið 1920 kom Einar heim til Islands fyrir fult og alt og bjó
í Reykjavík jafnan síðan; lét íslenzka ríkið reisa veglegt hús yfir
listaverk hans, er heitir að Hnitþjörgum; þar var heimili hans og
vinnustofa; þangað var gott að koma, því að þar ríkti andi ástúðar
og hinnar fegurstu eindrægni.
Einar var kvæntur danskri fyrirmyndarkonu, er lifir mann
sinn og stráði ódáinsblómum á vegferð hans.
Lögð af stað til
íslands
Síðastliðinn mánudag lögðu af
stað áleiðis til íslands, þau Mr.
Jón Ásgeirsson málarameistari
og frú Oddný Ásgeirsson. Mr.
Ásgeirsson er ættaður úr Húna-
vatnssýslu, en frú Oddný úr
Vopnafirði; er nú langt um liðið
síðan þau hafa Island augum
litið; þau Ásgeirsson hjón njóta
almennra vinsælda.
Lögberg árnar þeim góðs
brautargengis.
George A. Frith
98 óra gömul kona fró Hólmavík fór í
fyrsta sinn með flugvél í gær
Elzti íslendingurinn og senni-
lega ein elzla kona í heimi,
sem hefir flogið
Meðal farþega, sem komu í
gærdag með „Skýfaxa“ Flug
félags Islands frá Hólmavík
til Reykjavíkur, var 98 ára
gömul kona, Guðrún Guð-
brandsdóttir frá Hrófá í
Strandasýslu.
Guðrún mun vera elzti Is-
lendingur, sem ferðazt hefir með
flugvél, en hún er fædd að Kjós
í Víkursveit í Strandasýslu árið
1856. Guðrún hefir lengst af
búið á Hrófá skammt frá Hólma-
vík. Var hún þar fyrst sem ráðs-
kona, en síðustu þrjátíu árin
hefir hún búið á heimili Þor-
geirs Þorgeirssonar bónda á
Hrófá.
Fyrsta skipti til Reykjavíkur
Þegar ákveðið var, að Þorgeir
flytti búferlum til Reykjavíkur,
óskaði Guðrún eindregið eftir að
fá að fylgja fjölskyldu hans,
sem hún hefir búið hjá svo lengi.
Kemur hún nú til höfuðstaðar-
ins í fyrsta sinn nær 100 ára
gömul, og virtist hin hressasta,
þegar hún sté út úr flugvélinni
í gær. Lét hún vel yfir flugferð-
inni og furðaði sig á því að vera
komin alla leið til Reykjavíkur.
Þrátt fyrir þennan háa aldur
er Guðrún enn vel ern. Hún
hefir ávallt fótavist, les mikið og
fylgist vel með því, sem gerist.
Hlaut blómvönd
Flugfélag Islands færði hin-
um aldna farþega sínum fagran
blómvönd við komuna til Reykja
víkur. Þá var Guðrúnu tilkynnt,
að félagið hefði ákveðið að veita
henni fría ferð sem elzta Islend-
ing, sem ferðast hefir með flug-
vél. Auk þess að vera elzti Is-
lendingurinn, sem nokkru sinni
hefir flogið, er Guðrún senni-
lega jafnframt einn af aldurs-
forsetum kvenna, sem ferðast
hafa með flugvél um víða
veröld.
—Alþbl., 2. okt.
Kjósendur 2. kjördeildar end-
urkusu George A. Frith í skóla-
ráð í síðustu bæjarstjórnar-
kosningum með geisilegu afli
atkvæða.
Demantsbrúðkaup
Hinn 22. október síðastlið-
inn áttu hin mætu og vinsælu
hjón Finnbogi Guðmundsson og
frú Guðrún Guðmundsson að
Mozart, Sask., demantsbrúðkaup
og var atburðarins minst á
heimili Einars sonar þeirra á
viðeigandi og virðulegan hátt,
enda eru demantsbrúðhjónin
vinmörg utan bygðar sinnar sem
innan; kom þetta glögglega í ljós,
því áminstan dag var saman
kominn fjöldi fólks bæði seinni-
part dags og að kvöldinu til að
votta heiðursgestunum þakklæti
og virðingu sína; voru þau hjón-
in sæmd mörgúm góðum gjöf-
um, auk þess sem þeim bárust
bréf og heillaóskaskeyti víðs
vegar að.
Þau Finnbogi og Guðrún
þakka hinum mörgu vinum alla
ástúð í þeirra garð og biðja þeim
blessunar guðs.
Fréttir fré ríkisútvarpi íslands
24. OKTÓBER
I gær var fyrsti vetrardagur
og var þá hæg norðaustanátt um
allt land, léttskýjað sunnan-
lands og sólskin víða. Hiti var
víðast um frostmark. — Hin ár-
lega setningarhátíð Háskólans
var haldin í gær og var hátíða-
salurinn þéttskipaður stúdent'-
um, kennurum og gestum. —
Rektor Háskólans, dr. Þorkell
Jóhannesson prófessor, flutti
ræðu og minntist fyrst starfs
fráfarandi rektors dr. Alexand-
ers Jóhannessonar prófessors, er
átt hefði manna mestan þátt í
öllum þeim framkvæmdum, sem
blása við augum í háskóla-
hverfinu, vék síðan að breyting-
um á kennaraliði háskólans
og rakti störfin á liðnu ári.
Hann ræddi um samningu ís-
lenzku orðabókarinnar og sagði
að hún yrði að fá meira starfsfé,
ef eigi ætti að líða óhæfilega
langur tími, þar til hægt yrði
að hefja útgáfu hennar, hvað þá
að menn gætu haft hennar full
not. „Ég fullyrði“, sagði rektor,
„að ekkert verk varðandi íslenzk
fræði og þjóðmenningu er nú
merkara unnið en þetta“. Orða-
bók þessi myndi verða almenn-
ingi sístreymandi fróðleiks- og
menntunarlind og hin sterkasta
brjóstvörn fyrir tungu vorri um
alla framtíð. — Á s.l. háskóla-
ári voru skráðir 744 stúdentar
við nám í Háskóla Islands, og
luku 86 þeirra embættisprófi á
því ári, og í haust hafa um 170
nýstúdentar verið innritaöir.
Rektor kvað fyrirsjáanlegt að
auka þyrfti húsrými háskólans
og virtist honum vænlegast að
byggt yrði nýtt hús handa lækna
deildinni. Bygging náttúrugripa-
safns verður hafin næsta vor.
Þrír menn luku doktorsprófi
við Háskóla Islands á s.l. ári. 1
lok ræðu sinnar skýrði rektor
frá því að heimspekideild há-
skólans hefði kjörið Árna Frið-
riksson magister heiðursdoktor
og lýsti forseti deildarinnar,
Einar Ólafur Sveinsson pró-
fessor, síðan doktorskjöri. Árni
hefur starfað um langt árabil
að fiskirannsóknum, ritað um
þau efni fjölda ritgerða og er
nú framkvæmdastjóri alþjóða-
hafrannsóknarráðsins.
I gær var og tilkynnt, að for-
seti íslands hefði að tillögu
menntamálaráðherra s æ m t
Pétur Sigurðsson háskólaritara
prófessorsnafnbót. Pétur Sig-
urðsson hefur verið háskóla-
ritari í 25 ár.
☆
Dr. Kristinn Guðmundsson
utanríkisráðherra fór á mið-
vikudagskvöldið var áleiðis til
Parísar og sat þar ráðherrafund
Norður Atlantshafsbandalagsins.
☆
Forsætisráðherra Sambands-
bandslýðveldisins Þýzkalands,
dr. Konrad Adenauer, er vænt-
anlegur í opinbera heimsókn til
Islands þriðjudaginn 26. október
á leið sinni vestur um haf. Hann
mun hafa viðstöðu hér frá há-
degi til miðaftans, heimsækja
forseta Islands og ríkisstjórn og
fara til Þingvalla ásamt fylgdar-
mönnum sínum.
☆
Vöruskiptajöfnuðurinn við út-
lönd var óhagstæður í septem-
ber um 10,5 miljónir króna. Inn
voru fluttar vörur fyrir 84,1
miljón króna, en út fyrir 73,6
miljónir. Vöruskiptajöfnuðurinn
fyrstu 9 mánuði ársins er óhag-
stæður um 224,3 miljónir króna.
☆
Heildarfiskaflinn hérlendis frá
áramótum til septemberloka var
332.000 lestir, en það er rösk-
lega 36.000 lestum meira en á
sama tíma í fyrra. Rösklega
147.000 lestir af þessum afla voru
frystar, en saltaðar voru rúm-
lega 81.000 lestir og í herzlu
fóru um 47.500 lestir.
Aðeins níu bátar frá Faxaflóa-
höfnum stunda nú síldveiðar
með reknetum, enda hefur veiði
verið lítil að undanförnu. Hins
vegar vantar mikið á að veitt
hafi verið upp í gerða samninga,
og mikið skortir á, að verstöðv-
arnar geti talist sæmilega birgar
að beitusíld. Landhelgisgæzlan
hefur að beiðni Landssambands
útgerðarmanna látið leita síldar
að undanförnu í Faxaflóa og við
Suðurnes til þess að kanna,
hvort síldarmagn væri á þessum
slóðum, sem duga myndi til
þess að hægt yrði að halda á-
fram reknetaveiðum. Fannst þá
síld út af Reykjanesi og benda
líkur til að þar sé síld á stóru
svæði.
☆
Hafin er brúnkolavinnsla að
Tinduin á Skarðsströnd við
Breiðafjörð. Hlutafélagið Kol á
námu þessa og hefur samið við
Reykjavíkurbæ að selja topp-
stöðinni við Elliðaár 3000 lestir
af kolum. Kolalögin eru frá 70
sentimetrum upp í 2Vz metra á
Framhald á bls. 5
Úrslit Bandaríkja-
kosninganna
Síðastliðinn þriðjudag fóru
fram almennar kosningar til
þjóðþingsins í Washington og
þótt fullnaðarútslit séu eigi við
hendi, er það víst, að Demokrat-
ar fengu meirihluta í neðri mál-
stofunni; um öldungadeildina er
það að segja, að líkur eru á, að
þar verði nokkurn veginn jafn-
tefli eins og áður var fyrir þing-
rof; að því er ríkisstjórakosning-
um viðkom, unnu Demokratar
stórsigur og fengu kosinn fram-
bjóðanda sinn, Averell Harri-
man, í New York.
I Minnesota var Senator
Humprey, Demokrat, endurkos-
inn yfir frambjóðanda Republi-
cana, Valdimar Björnsson, er þó
fékk mikið fylgi.
Góðir gestir
væntanlegir
Árni Eylands, stjórnarráðs-
fulltrúi frá Reykjavík, og frú
eru væntanleg til Winnipeg um
miðjan þenna mánuð. Hafa þau
verið á ferð í Bandaríkjunum í
boði stjórnarinnar, en dvöldust
einnig um hríð í Ottawa í boði
Kanadastjórnar. Hér munu þau
aftur á móti dveljast sem gestir
Þjóðræknisfélagsins. Koma þau
hingað frá Mountain, þar sem
ráðgerð er samkoma föstudag
eða laugardag í næstu viku
<12. eða 13. nóv.), dagurinn ekki
verið ákveðinn ennþá.
Hér nyrðra hafa verið áætlað-
ar 3 samkomur, ein í Winnipeg,
í Sambandskirkjunni fimmtu-
dagskvöldið þann 18. nóv.,
önnur að Lundum þriðjudags-
kvöldið 23. nóv. og hin þriðja
í Árborg miðvikudags- eða
fimmtudagskvöldið (24. eða 25.
nóv.). Verður nánara auglýst um
samkomur þessar síðar, þegar
endanlega hefur verið ákveðið
um þær, og eru menn beðnir aS
veita athygli auglýsingum þar
að lútandi í næsta eða næstu
blöðum. Mun Árni Eylands
flytja fyrirlestra á samkomum
þessum og sýna kvikmyndir frá
Islandi.