Lögberg - 09.12.1954, Qupperneq 8
8
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 9. DESEMBER 1954
SIGURÐUR ÞORSTEINSSON:
í Gent —borg minninganna
Borg minjanna er nafnið, sem
Belgir hafa notað mest til að
laða erlenda ferðamenn til borg-
arinnar Gent í norðvesturhluta
landsins. Og fari maður nú eftir
þessari kynningu og heimsæki
borgina, verður maður sízt fyrir
vonbrigðum, því í borginni bók-
staflega úir og grúir af minjum
frá hinum ýmsu tímabilum
borgarinnar.
Borgin er upphaflega reist á
sjöundu öld og voru þá íbúar
hennar nefndir Gandar. Orð
þetta. er af kaltneskum uppruna
og er notað í franskri tungu enn
þann dag í dag, því á því máli
heitir borgin Gand. Útlagt á ís-
lenzku mundi orðið sennilega
þýða árós eða eitthvað svipað,
en í gegnum borgina rennur áin
Schelde og skapar aðstöðu til
siglinga, þó að borgin standi
nokkuð langt inni í landi.
A 14. og 15. öld var Gent ein
af þýðingarmeiri borgum Ev-
rópu. Gildi eða félagssamtök
borgaranna voru svo sterk, að
þau buðu greifanum af Flandern
þráfaldlega byrginn, þrátt fyrir
að greifarnir væru studdir af
Frökkum. Á 14. öldinni er svo
-einhver mesti blómatími al-
þýðuveldisins í Gent. Þá er reist
ráðhús borgarinnar og rétt um
1300 er klukknaturn (Belfroi)
borgarinnar svo reistur, en
klukknaspil hans er víðfrægt og
samanstendur af hvorki meira
né minna en 52 klukkum. Af
þessu má sjá, að hægt muni að
leika sæmilegustu lög fyrir
borgarbúa á ýmsum tímaskipt-
^VJSTL^
Cobble and Stove for
hand-fired furnaces.
Booker Nut for Bookers.
Stoker Size for Stokers.
All Oil Treated.
HAGBORG FUC
PHOME 74-3431
PHONE 3-7340
John Olafson. Representative.
um dagsins. Þessar tvær bygg-
ingar má að ýmsu leyti taka sem
helztu minjar um alþýðuveldi í
Gent.
15. öldin er helzta tímabil
fagurra lista í borginni og sem
hið heimsfræga dæmi þar um
má nefna Van Eyck bræðurna,
sem máluðu myndir sínar ýmist
sameiginlega eða sjálfstætt.
Á fyrri hluta 16. aldar gerast
svo Gandar herská þjóð. Þeir
hefja uppreisn gegn Maríu af
Ungverjalandi, og stórt var
stökkið, sem Karl V. tók undir
sig sunnan af Spáni, til að bæla
niður uppreisn fæðingarborgar
sinnar.
Það er svo ekki fyrr en á 19.
öldinni eða 1816 að stofnaður er
háskóli í Gent.
Með tilkomu skipaskurðarins,
sem grafinn var til Terneuzen,
eykst svo enn gengi Gent, því að
nú fæst styttri og betri leið til
sjávar en áður var. Og nú á
tímum er Gent engin smáborg,
í það minnsta ekki á okkar mæli-
kvarða, því íbúar hennar eru
250,000.
Á árunum 620—647 lét heilag-
ur Amand reisa í Gent tvö stór
klaustur. Annað þeirra er Péturs
klaustrið í suðvesturhluta borg-
arinnar. Klaustur þetta er ákaf-
lega merkileg heimild um bygg-
ingarstíl seinnihluta miðalda.
Hitt klaustrið er Baafsklaustrið,
sem er nú varðveitt sem minja-
gripur um steinsmíði þessara
tíma. Nokkru vestar 'í borginni
er Baafskirkjan, en hún geymir
meðal annarra listaverka eitt
fegursta verk Van Eyck bræðr-
anna, altaristöflu, sem nefnd er
„Tilbeiðsla lambsins". Altaris-
tafla þessi er heimsfræg sem
heildarverk, en svo eru einnig
hinar ýmsu myndir hennar
heimsfrægar, hver í sínu langi.
Frægastar munu þó sennilega
vera: Englakórinn, Adam og Eva
og Boðun Maríu. Undir kór
kirkjunnar er svo enn eldri
kirkja, neðanjarðar að mestu
leyti. í henni getur að líta hið
elzta af kirkjulist, sem varð-
veitzt hefur í borginni, og eru
þar margir fagrir gripir.
Föstudags-markaðstorgið er
Forum miðaldanna í Gent, en á
því stendur stytta af van Arte-
velde, sem var borgarstjóri um
1338 og hinn vitrasti leiðtogi
borgarflokkanna í erjum þeirra
við greifana.
I Gent finnur maður eins og
svo víða í Niðurlöndum stóran
húsagarð umluktan litlum ein-
býlishúsum. 1 húsaþyrpingum
þessum búa konur af leiksystra-
reglu Niðurlanda, sem stofnuð
var af Lambert Bégue árið 1180.
Regla þessi hefur að því leyti
sérstöðu innan kirkjunnar, að
systurnar bindast ekki klaustri
sínu á neinn hátt með eiðum, en
dveljast þarna sem manneskjur
með fullt frelsi við kyrrlát störf
og helgihald. Ferðamaður frá ís-
landi tekur mest eftir höfuð-
búnaði þeirra, sem að ýmsu leyti
svipar til lambhúshettunnar, er
hér tíðkaðist, nema hvað hann
er ekki úr prjónlesi. Er þetta
flæmskur höfuðbúnaður kvenna
frá 11. og 12. öld. Væri gaman
að vita hvort íslenzkar bænda-
konur hafa upphaflega haft
fyrirmynd af lambhúshettu
í þeirri, er þær prjónuðu bændtim
sínum, sunnan frá Flandern.
Eitt af því sem vekur athygli
ferðamannsins, ekki aðeins í
Gent, heldur í Niðurlöndum
yfirleitt, eru hinar haganlega
gerðu smákapellur við vegi og
götur og á hæðum. Fólk kemur
til þessara kapellna úr nágrenn-
inu með blóm og gjörir bæn
sína. Sýnir þetta mjög vel hve
trúin er þessu fólki eðlileg, enda
er kirkjulist landa þessara ákaf-
lega fögur og heimsþekkt.
Ef lil vill hjó sonarsonur ...
Greifakastalinn í Gent er ein-
hver bezt varðveitti kastali í
Evrópu hvað snertir byggingar-
stíl og frágang allan. Hann er
byggður um 1180 eftir fyrir-
mynd hinna víggirtu dvalar-
staða krossfaranna í Syríu.
Kastali þessi er sannarlega ekk-
ert smásmíð og virðist manni
furðulegt hvernig hægt var að
vinna slík stórverk á þessum
tímum, þegar vélar og tækni
voru ekki til staðar. En á þess-
um tímum lá mönnum ekki á
eins og nú. Verk, sem okkur
kann að virðast óvinnandi, mið-
að við aðstæður tímans, unnust
samt með stöðugri elju og
þrautseigju, sem nútíminn virð-
ist að mestu vera búinn að glata.
Það gat tekið áratugi ef ekki
aldir að byggja stærstu bygg-
ingar þessara tíma og kannské
hjó sonarsonur fyrsta stein-
smiðsins við bygginguna síðasta
steininn, sem notaður var í hana.
Á efstu hæð kastalans er undur-
fagurt útsýni yfir borgina, sjást
þaðan allir helztu sögustaðir og
stærstu byggingar, sem í borg-
inni eru.
Þannig er Gent auðug af
minjum þess sem var, en er því
miður ekki lengur víðast hvar.
—Alþbl., 19. sept.
Úr borg og bygð
Jarðarför frú Eiríku Sigur-
bjargar Sveinbjörnsdóttur Krist
jánsson fór fram frá Lútersku
kirkjunni á Lundar, þ. 29. nóv.
síðastliðinn. Séra Bragi Frið-
riksson jarðsöng.
Hún var fædd 6. sept. 1880 á
Seyðisfirði og voru foreldrar
hennar hjónin Eiríka Sigríður
Eiríksdóttir og Sveinbjörn Sig-
urðsson Sveinbjörnssonar, bæði
Seyðfirðingar. Þau voru fjögur
börn þessara hjóna, en nú lifir
aðeins eitt þeirra, Mrs. Guðný
Margrét Halldórsson á Lillisvie
í Manitoba. Vestur um haf flutt-
ist Sigurbjörg sál. með foreldr-
um sínum 1884 og varð fyrsta
aðsetur þeirra í Winnipeg, en
síðar í Grunnavatnsbyggð. Hún
giftist eftirlifandi manni sínum,
Sigurbirni Kristjánssyni, Sig-
urðssonar, Jónssonar hrepp-
stjóra á Tjaldbrekku, en móðir
Sigurbjörns var Margrét Sigurð-
ardóttir, Björnssonar í Selárdal.
Þau hjón, Sigurbjörg og Sigur-
björn, bjuggu allan sinn búskap
í Grunnavatnsbyggð og dvöldu
síðustu árin á Lundar. Þann 4.
júlí s.l. áttu þau 55 ára hjú-
skaparafmæli. Níu barna varð
þeim auðið, en sex þeirra lifa nú.
Sigurbjörg sál. dó aðfaranótt
föstudagsins 26. nóv. s.l. Hún var
þekk kona og góð og vinsæl af
öllum, sem kynntust henni.
Mjög margt manna var viðstatt
útförina.
☆
Þann 23. nóvember síðastlið-
inn'lézt í Vancouver frú Sigríður
Stefánsson, rúmlega 80 ára að
aldri. Foreldrar hennar voru
Halldór Halldórsson frá Staf-
holtstungum, og Gpðrún Guð-
mundsdóttir, ættuð úr Borgar-
fjarðarsýslu. Sigríður heitin
fluttist með foreldrum sínum og
fimm systkinum til þessa lands
árið 1878, og settist fjölskyldan
að í Hlíðarhúsum í Mikley.
Sigríður giftist Bjarna Stefáns-
son og reistu þau bú í Mikley
fyrst að Öldulandi og svo að
Grund. Hún misti mann sinn
fyrir mörgum árum og síðar
dóttur sína Stellu — Mrs. Ás-
mundsson. Var síðan hjá syni
sínum, Stanley og konu hans,
Ásu, fyrst í Mikley, svo í Sel-
kirk en síðast í Vancouver. Auk
hans lætur hún eftir sig 6 barna-
börn. Sigríður var vönduð kona
og myndarleg til orða og verka.
Hún var jarðsungin í Vancouver
á laugardaginn 27. nóvember.
☆
Jóhannes Einarsson lézt 2.
desember á heimilinu Betel á
Gimli, 86 ára að aldri. Hann
fluttist til þessa lands um alda-
mótin, stundaði búskap, fyrst í
Árborg og síðan að Gimli í átta
ár. Kveðjumál flutti séra H. S.
Sigmar að Betel. Hinn látni
var lagður til hinztu hvíldar í
Gimli-grafreit.
Heilsuvernd . . .
Framhald af bls. 4
þeim framar. Þá hefir og furðu-
lega mikill árangur náðst með
svefnlækningum við of háum
blóðþrýstingi, og ýmsum geð-
sjúkdómum. Að sjálfsögðu verð-
ur slík aðferð aðeins notuð, að
viss skilyrði séu fyrir hendi, —
svo sem sérstakar þar til ætlað-
ar húsadeildir, — undir umsjá
sérfræðinga, sem hafa nána gát
á allri líffærastarfsemi sjúkl-
ingsins, á meðan svefninn varir.
Enn verður ekki sagt með neinni
vissu, hve miklir eða víðtækir
lækningamöguleikar eru í sam-
bandi við þessa aðfeirð, segir
prófessor Sarkisoff, en óhætt er
að fullyrða, að þær hafa þegar
vakið miklar og verðskuldaðar
vonir.
Krabbameinið
Það er alrangt, sem stundum
hefir birzt í erlendum blöðum,
að Sovétlæknar hafi fundið
einhver „töfraráð“ við krabba-
meini, segir prófessor Sarkisoff.
Við munum að vísu hafa náð
jafnlangt læknum annarra
þjóða, — en því miður, stönd-
um við þar ekki öðrum svo
framar, að til tíðinda verði
talið. Það er hjá okkur eins og
annars staðar að eftir því sem
aðrir sjúkdómar hverfa úr sög-
unni sem dánarorsök, fer þeim
fjölgandi, sem deyja úr krabba-
meini. En hitt get ég líka fullyrt,
að læknar okkar og vísinda-
menn vinna af kappi að rann-
sóknum á eðli þessa sjúkdóms
og læknisráðum gegn honum.
Að endingu kveðst prófessor
Sarkisoff hafa skoðað hér
sjúkrahús og átt tal við marga
lækna, auk þess sem hann flutti
fyrirlestur í þeirra hópi um sér-
grein sína. Kveðst hann muni
vinna að því, þegar heim kemur,
að nánari samvinna takist með
rússneskum og íslenzkum lækn-
um, og að íslenzkum læknum
gefist kostur á að kynna sér
framfarir á sviði læknavísind-
anna í Sovétríkjunum.
—Alþbl., 22. sept.
— LEIÐRÉTTING —
Jafnframt því og ég þakka
birtingu á ræðunum mínum
þrem í Lögbergi (25. nóv.), fæ
ég ekki hjá því komist að leið-
rétta úrfellingu, sem máli
skiptir. Setningin „Sem gjöf frá
vinum Islands í Bandaríkjunum
af íslenzkum stofni“, í upphafs-
málsgrein ræðunnar við afhend-
ingu brjóstlíkans Sveins Björns-
sonar forseta, á að vera: „Sem
gjöf frá vinum Islands í Banda-
ríkjunum af íslenzkum og öðrum
stofni“, því að fleiri. vinir Is-
lands áttu þar hlut að máli. —
Með þökk fyrir birtinguna.
Richard Beck
☆
— LEIÐRÉTTING —
1 grein í Lögbergi nýlega, þar
sem sagt er frá 25 ára giftingar-
afmæli séra Jóhanns Fredriks-
sonar og konu hans, er þess
getið, að Dr. T. J. Oleson hafi
flutt ræðu í samsætinu. Þetta
er ekki rétt. Maðurinn, sem
flutti þessa umgetnu ræðu, var
Thomas E. Oleson í Glenboro,
en ekki Dr. Oleson, sem ekki
var í samsætinu.
☆
— "ODES and ECHOES" —
Ný ljóðabók eftir Pál Bjarna-
son er komin á markaðinn. —
Fæst nú í Björnsson’s Book
Store, að 702 Sargent Ave.,
Winnipeg3, Manitoba, og kostar
aðeins $3.50.
☆
The Women’s Association of
the First Lutheran Church will
meet Dec., 14th at 2 p.m. in the
lower auditorium of the church.
☆
Mr. og Mrs. T. L. Hallgrímsson
og frú 805 Garfield Street hér í
borg komu heim síðastliðinn
laugardag úr hálfsmánaðar dvöl
í Fort William, Ont.
☆
Frú Vigfúsína Beck, er um
margra ára tímabil hefir búið
hér í Winnipeg, er nú flutt til
Betel, Gimli, Man., og biður hún
Lögberg að flytja vinum og
vandamönnum kveðjur og alúð-
arþakkir fyrir margs konar vel-
I gerðir sér í té látnar.
☆
Dr. Valdimar J. Eylands kom
heim vestan af Kyrrahafsströnd
seinnipart fyrri viku; tók hann
þátt í 40 ára afmælishátíð kirkju
íslenzka safnaðarins í Blaine,
Wash., er var fjölsótt og um alt
hin virðulegasta. Dr. Valdimar
heimsótti einnig Islendinga í
Vancouver.
☆
Arni G. Eggertson, Q.C., og
frú komu heim seinnipart fyrri
viku eftir mánaðardvöl suður í
hinni sólríku Kaliforníu.
M ESSU BOÐ
Fyrsta lúterska kirkja
Sr. V. J. Eylands, Dr. TheoL
Heimili 686 Banning Street.
Sími 30 744.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
' ☆
Lúterska kirkjan í Selkirk
Sunnud. 12. des.:
Ensk messa kl. 11 árd.
Sunnudagaskóli kl. 12
íslenzk messa kl. 7 síðd.
S. Ólafsson
☆
Messur í Norður-Nýja-íslandi
Sunnud. 12. des.:
VIÐIR, kl. 2 á ensku.
GEYSIR, kl. 8 á íslenzku.
Robert Jack
Ársfundur Fyrsta lúterska
safnaðar í Winnipeg
var haldinn á þriðjudags-
kvöldið 7. des. og var mjög fjöl-
mennur. Alfer skýrslur báru
vott um heilbrigða þróun safn-
aðarlífsins og góðan anda.
Tekjur safnaðarins á árinu
námu $15.387.51; af þeirri upp-
hæð höfðu kvenfélögin þrjú
lagt til rúmlega $4.000.00. Söfn-
uðurinn hafði greitt að fullu til-
lag sitt í starfssjóð U. L .C. A.
I fulltrúanefnd voru kosnir
Grettir Eggertson, Gordon Gisla-
son, G. Gottfred, K. W. Jó-
hannsson, Alan Johnson og
Erlingur Eggertson. I djákna-
nefnd voru kosnir Paul Bar-
dal Sr., Oscar Björklund, Mrs.
Sigga Johnson, Mrs. Clara
Rummery og Ida Speakman.
☆
Hinn 6. þ. m. lézt að Lachine,
Quebec, Mrs. Edith Murie Bíld-
fell, kona Dr. J. A. Bíldfells þar
í bænum, 48 ára að aldri; auk
manns síns lætur hún eftir sig
tvo sonu og eina dóttur. Mrs.
Bíldfell var vel að sér ger og hin
mesta ágætiskona.
Mr. J. J. Bíldfell og Hrefna
dóttir hans fóru austur til að
vera við útförina.
☆
1 Mr. Harold Sigurdson Char-
tered Accountant frá Fort Wil-
liam, Ont., var staddur í borg-
inni í fyrri viku og sat hér þing
Shrines-reglunnar.
☆
Mr. Sigurbjörn Sigurdson
fiskimálastjóri er nýlega kom-
inn heim austan frá Ottawa, en
þangað fór hann í erindum
fiskimáladeildar fylkisstjórnar-
innar.
Minnisf-
BETEL
Ný hljómplata
efíir
GUÐMUNDU ELÍASDÓTTUR
Mezzo Soprano
Long playing (33 1/3 r. p. m.) Columbia Microgroove Vinylite
10 inch non-breakable disc.
Með eftirfarandi lögum fyrir aðeins $5.50
(P.ayments must include exchange)
Sólskríkjan Jón Laxdal — Th. Erlingsson
Friður á jörðu Árni Thorsteinsson — Guðm. Guðmundsson
Erla Sigv. Kaldalóns — Stefán frá Hvítadal
Kvöldbœn ....................Björgvin Guðmundsson
Ég bið að heilsa Jónas Hallgrímsson — Ingi T. Lárusson
I dag skein sól Páll ísólfsson — Davíð Stefánsson
Seinasta nóttin Magnús B. Jóhannsson — Th. Erlingsson
Hjá lygnri móðu Karl O. Runólfsson — H. Kiljan Laxness
Unglingurinn í skóginum Jórunn Viðar — H. Kiljan Laxness
Þjóðlög Jórunn Viðar — Þjóðvísur
Amma gamla er þreytt Hallgrímur Helgason — Þjóðvísa
Fuglinn í fjörunni Jón Þórarinsson — Þjóðvísa
Pöntun:
BJÖRNSSON’S BOOK STORE,
702 Sargent Avenue,
Winnipeg 3, Manitoba
Meðlagt er $!>.50 fyrir liina nýju hljómplötu
FRÚ GUÐMt NDU EIiIASDÓTTUR
Fullt nafn ......................................
Heimiliafang ....................................
Bæjarnafn og fylki ..............................
/