Lögberg - 17.02.1955, Qupperneq 2
2
LÖGBEHG, FIMMTUDAGINN 17. FEBRÚAR 1955
JÓN KRISTGEIRSSON, kennari:
Ferðamolar í Ameríkuferð
í raun og sannleika er ekki
alveg hægt að verjast þess, að
láta sér bregða í brún, eða jafn-
vel að verða hálf gramur við að
kynnast því, hversu lítið er
kennt um ísland í skólum vest-
an hafs, og hversu menn þar al-
mennt eru fáfróðir um land
okkar og þjóð. En bæði er það,
að land þeirra Vestanmanna er
víðlent mjög og fjölbyggt og
gefur því æðimikið námsefni, og
hins vegar höfum við sjálfir, að
svo miklu leyti, sem ég þekki til,
ekki gert neitt til þess að reyna
að koma smákafla inn í kennslu-
bækur þeirra, eða á annan hátt
unnið að því að lands okkar
væri lítið eitt getið þar í skólum.
Þó hygg ég, að þetta væri vinn-
andi vegur. Ég hefi átt tal um
þetta við ýmsa skólamenn hér,
og mun athuga það betur áður
en ég hverf heim. Vert er þó að
geta þess, að íslandi eru gerð
góð skil í nýrri alfræðibókum,
mig einstöku sinnum hér í álfu,
að Eskimóar eru nefndir í sam-
bandi við land mitt og þjóð. Ég
reiðist því. Og veit ég ekki af
hvaða ástæðum. Því að Eskimóar
eru mesta heiðursfólk, og okkur
hvítum mönnum ferst ekki að
státa mikið í sambandi við þá.
Ég kom eitt sinn inn í kennslu-
stofu, þar sem fríð kennslukona
var að kenna 16 ára unglingum
teikningu. Þetta var auðsjáan-
lega góður bekkur. Börnin voru
falleg og mennileg. Ég sagði
kennslukonunni, að hún hefði
sömu vinnubrögð og Unnur
Briem í Miðbæjarskólanum
heima. Hún tók því vel og hélt
allmikinn ræðustúf um hve
Eskimóar væru listfengir í mörg-
um greinum. T. d. væri skinn-
klæðagerð þeirra alveg frábær,
og ýmislegt fleira taldi hún upp
þessum „löndum“ mínum til
enskum. Komið hefur það fyrir
ágætis. Auðsjáanlega til að geðj-
ast mér og sýna að hún var
ekkert blávatn. Að því loknu
bauð hún mér að segja bekknum
eitthvað heiman að frá mér.
Þáði ég það, og börnin fengu
leyfi til að spyrja mig á eftir.
Tíminn leið fljótt, og þegar
hringt var út vissu börnin á-
reiðanlega að engir Eskimóar
eru á íslandi, og hafa aldrei
verið. Þetta var hin ánægjuleg-
asta stund. Annars ætti þetta
Eskimóatal .í þessu sambandi
ekki að vera neitt undrunarefni.
Því að þeir, sem ekkert vita um
ísland, en muna að það liggur á
svipaðri breidd og mikill hluti
Grænlands, Alaska og nyrztu
héruð Canada, sem allt er meira
og minna byggt Eskimóum, þá
er ekki nema rökrétt að álykta,
að þeir séu einnig á íslandi. Og
hið veglega nafn lands okkar
bendir líka í þessa átt. Það er
varla von að menn átti sig á því,
að það er líklega Golfstraumur-
inn, sem gerir aðallega babb í
bátinn.
Segja má að margvíslegar að-
ferðir megi hafa við landkynn-
ingu, sem margir ræða heima
fyrir. Síðastliðinn vetur gerðu
telpurnar í bekk, sem ég kenndi,
12 ára C í Miðbæjarskólanum,
stóra brúðu klædda íslenzkum
búningi. Allar kennslukonur
skólans lögðu þar sitt til. Svo
að þessi brúða varð mesta
meistaramynd. Brúða þessi var
því næst send til einnar greinar
af UNSCO í New York, sem
hefir það takmark að efla kynn-
ingu og vináttu allrar æsku.
Brúðan var sett á sýningu eða
bazar, sem sambandið hélt þar í
borg á munum frá fjölda þjóða
í marz s.l. Hún fékk þar verðlaun
sem einn af 10 beztu sýningar-
mununum. En ég hefi frétt síðar,
að hún hafi verið talin af mörg-
um einna bezti gripurinn þar.
Eftir að verðlaunin voru komin
í vor, skrifaði ég til þessa sam-
bands og sendi mynd af bekkn-
um mínum, og var ég með á
myndinni ásamt stráknum mín-
um. Tvær konur hafa daglega
framkvæmdastjórn þessa fyrir-
tækis. Þegar ég var í New York
í haust heimsótti ég skrifstofu
þeirra. Önnur frúin var þar við-
stödd. Ég þurfti ekki að hafa
mikið fyrir því að kynna mig.
Frúin þekkti mig strax af mynd-
inni, er ég hafði nefnt ísland, og
spurði, hvort ég væri með dreng-
inn með mér. Ég sýndi henni
engin meðmæli. En hún reyndist
mér hinn bezti leiðtogi í borg-
inni, og greiddi götu mína á
margan hátt. Fór með mig til
Sameinuðu þjóðanna, og kynnti
mig fyrir mörgum menningar-
frömuðum, og veitti mér aðgang
að ýmsum menningarstofunum.
hvergi komið nærri. Samt hlýt
ég iaunin, en þær fá ekkert. Sá
uppsker, sem ekki sáir, en hinn,
sem unnið hefur til launanna,
er settur hjá. Það er gert ráð
fyrir, að stofnun þessi starfi
áfram á svipaðan hátt og haldi
við og við sýningu og bazar á
munum, sem börn og unglingar
ýmissa þjóða búa til. Frúia lét í
ljósi áhuga á því að áframhald
gæti orðið á þátttöku íslend-
inga í því. Gat hún um dálítið
breytt fyrirkomulag á því, þann-
ig að framleiddir væru margir
hlutir, sem hægt væri að selja.
Verðinu yrði skipt á milli fram-
leiðandans og stofnunarinnar,
sem þá fengi ofurlítið upp í
reksturskostnað. Engin skilyrði
eru sett, nema að hlutirnir séu
gerðir af börnum eða ungling-
um ,og séu seljanlegir. Það koma
því til greina bæði ódýrir hlutir
á 1—5 dali og eitthvað af mjög
vönduðum, dýrari hlutum. Rétt
er að hver hlutur sé greinilega
merktur nafni og heimilisfangi
Velkomnir íslendingar. . .
á hið þrítugasta og sjötta ársþing
Þjóðræknisfélagsins, 1955.
Þökk fyrir góð viðskipti og minnist að
okkur er enn að finna að 276 Colony
St. (og St. Mary's)
HAMINGJUÓSKIR . . .
til íslendinga í tilefni af 36. ársþingi
þjóðræknisfélagsins, sem haldið
verður í Winnipeg, 21 .-23. feb. 1955.
Lítið inn til okkar ef þið hafið tíma
VARIETY SHOPPE
LOVISA BERGMAN
PHONE 74-4132 630 NOTRE DAME AVE. og
697 SARGENT AVE.
HAMINGJUÓSKIR . . .
til íslendinga í tilefni af 36. ársþingi
þjóðræknisfélagsins, sem haldið
verður í Winnipeg, 21 .-23. feb. 1955. •
NATIONAL
MOTORS
0A
BLOOD BANK
SPACE
CONTKIBUTEO
Eginlega hefði ég ekki þurft
nein meðmælabréf þangað í
borgina. Brúðan var mér næg
meðmæli, þótt ég hefði raunar
ekkert til hennar lagt. Svona fer
heimurinn oft að því að útdeila
verðlaunum sínum. Telpurnar
4-og^kennslukonurnar höfðu borið
veg og vanda af brúðunni, en ég
BALDWI NSON'S
SHERBROOK HOME BAKERY
Phone 3-6127
Cor. Ellice and Simcoe WINNIPEG
LIMITED
Seljum sem fyr
Mercury, Lincoln og Meteor
BIFREIÐAR
276 COLONY STREET WINNIPEG
Sími 72-2411
DREWRYS
MANITOBA
D I V I $ I 0 N
WESTERN
CANADA
BREWERIES
L I M I T E D
MD-352
'Wkett íh
WINNIPEG
Do as wise Winnipegers do! Buy your electrical appliances at
City Hydro’s Showrooms. There you can see the very latest in all
the electrical appliances that give you so much comfort and
convenience in your home.
A new electrical range, refrigerator, automatic washer and
dryer, vacum cleaner, floor polisher or any other electrical appli-
ance, large or small, is backed by City Hydro’s Appliance Service
Organization, the largest in the city, to assure you satisfactory,
trouble-free use of your appliances.
PORTAGE, east of Kennedy PHONE 96-8201
Stjórn og starsfólk
Safeway búðanna
býður gesti, sem koma á hið
þrítugasta og sjötta ársþing
Þjóðræknisfélagsins vel-
komna og væntir að þeir njóti
mikillar ánægju af
heimsókninni.
SAFEWAY
CANADIAN SAFEWAY LIMITED