Lögberg - 17.02.1955, Blaðsíða 3
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 17. FEBRÚAR 1955
3
þess, sem hefur gert hann. Það
getur orðið upphaf að nánari
kynnum milli kaupanda og
framleiðanda. Merkið myndi
vera nægjanlegt með vel áfest-
um bréfmiða. Frúin telur öruggt
að hún geti selt munina, ef þeir
á annað borð eru þess verðir,
því að hún hafi góð sambönd í
því efni. Málefni þessu vil ég
hér með koma áleiðis til allra
barna og unglinga á íslandi og
allra handavinnukennara þeirra
og Skátafélaga, og einnig ann-
arra, sem vilja eiga hlut að því.
Að sjálfsögðu getur ekki orðið
af endanlegum framkvæmdum í
því fyrr en næsta vetur. En það
er kominn tími til að fara að
hugsa málið og undirbúa það,
ef eitthvað á að verða úr því.
Allar nánari upplýsingar hér að
lútandi mun Jónas B., ........1
fræðslufulltrúi, geta gefið, þeg-
ar til kemur. Ég mun líta inn til
frúarinnar í heimleiðinni og
ræða málið betur við hana. En
ef til vill er málið komið á fullan
rekspöl heima, án þess ég viti,
og er þá vel.
Það er óneitanlega nýstárlegt
að ferðast um Vesturheim fyrir
þann, sem aldrei hefur farið
fyrr heiman að, og ekki hefur
litið upp frá skyldustörfum sín-
um. Þó kemur Ameríka mér
engan veginn ókunnuglega fyrir
sjónir. Ég hefi kennt landafræði
hennar um mörg ár og séð ýmis-
legt þaðan í kvikmyndum. New
York kvaddi ég með nokkurri
tregðu. Bæði af því, að mér
höfðu reynzt götur hennar frek-
ar greiðfærar og mér fannst ég
eiga þar mörg verkefni ólokin.
Þaðan hélt ég til Washington.
Og var notalegt að svífa í Gray-
hound langferðabílnum eftir
eggsléttum vegunum í haust-
blíðunni. Það var glaða sólskin
og veðrið líkast og þegar það er
bezt í fyrstu réttum á íslandi,
þó nú sé síðari hluti desember.
Vegir eru ýmist steyptir eða
malbikaðir, og það sést ekkert
rusl meðfram þeim. Umhverfið
er notalegt og hlýlegt. Á milli
borga og þorpa skiptist á í sí-
fellu bleikir akrar, slegin tún og
skógar. Bændabýlin, mjallhvítar
HÁMINGJUÓSKIR . . .
til íslendinga í tilefni af 36. ársþingi
þjóðræknisfélagsins, sem haldið
verður í Winnipeg, 21 .-23. feb. 1955.
ROBERTS & WHYTE
DRUGGISTS
SARGENT at SHERBROOK WINNIPEG
HAMINGJUÓSKIR . . .
til íslendinga í tilefni af 36. ársþingi
þjóðræknisfélagsins, sem haldið
verður í Winnipeg, 21 .-23. feb. 1955.
CRESCENT AFURÐIR ERU GERILSNEYDDAR
MJÓLKIN, RJÓMINN OG SMJÖRIÐ
CRESCENT CNEAMERY CO, LTD.
Sími 37 101
542 SHERBURN ST. WINNIPEG
Hugheilar árnaðaróskir
til Vestur-íslendinga
á þrítugasta og sjötta ársþing
Þjóðræknisfélagsins 1955.
Þökk f y r i r drengileg við-
skipti á liðinni tið, og ósk
um sameiginlega hagkvæmt
viðskiptasamband á kom-
andi árum. *
BOOTH FISHERIES
Canadian Co. Ltd.
2nd floor, Baldry Bldg.
PHONE 92-2101 WINNIPEG, MAN.
byggingar, með grænum, rauð-
um eða dökkum þökum eru á
víð og dreif um sléttuna, og fer
frekar lítið fyrir þeim. Leiðin
liggur ofurlítið í átt til sumars
meðan haldið er til Washington,
en sú borg er fríðust höfuð-
borga í heimi, segja Bandaríkja-
menn. Og ég get vel skilið
þeirra sjónarmið í því efni.
Þarna gæti því verið margt
girnilegt til fróðleiks, fyrir þann,
sem hefir falt fé og tíma. Mér
notaðist tíminn frekar vel þarna
eftir atvikum. Og vil ég aðeins
nefna það hér að mér gafst kost-
ur á að skoða nokkuð löggjafar-
þinghús þeirra U.S.-manna og
þótti mikið til koma. Mér varð
þá líka sérstaklega starsýnt á
hinar víðu graslendur, sem blasa
við fram undan höllinni í dá-
lítilli fjarlægð í miðri borginni.
Það er auðséð að þingmennirnir
vilja láta græna litinn mýkja
hugarfarið. Þetta eru túnflákar
miklir, vel hirtir með hávöxnum
skógi til hliða. Graslendur þess-
ar minna mig dálítið á túnin
hans Þorsteins á Skálpastöðum
í Lundarreykjadal. Ég geng dá-
lítið um þessar fögru lendur, tek
upp vasahnífinn og gref ofur-
lítið í svörðinn til að sjá hvernig
jarðvegurinn lítur út. Þetta er
auðsjáanlega frjósöm jörð, en
óneitanlega finnst mér moldin á
íslandi fallegri og geðþekkari.
Frá hinni glæstu höfuðborg
liggur leið mín til norðurs í átt
til vetrar. Veðurblíðan er hin
sama og umhverfi vegarins svip-
að og áður, fyrst í stað. Það er
bezta réttarveður. Og eiginlega
minnir þessi ferð mig nokkuð á
fyrstu réttarferðina mína, er ég
var 10 ára. Blær náttúrunnar er
hinn sami og litir himins og
jarðar eru eins og þá var við
Oddstaðarétt. Og verið getur, að
eftirvæntingin sé svipuð. En
eftir því sem leiðin sækist norð-
ur, ber meir á nálægð vetrar.
Norðan nepjan blæs á móti. Það
fer að bera á fjúki og frosti og
fyrr en varir er jörðin orðin
snævi hulin. Öllu virðist hraka.
Eyði og tóm hvílir yfir umhverf-
inu. Ég fer að iðrast eftir að
hafa skilið við hina björtu New
York og haldið út í þann eymda-
dal, sem virðist blasa við fram
undan. En teningunum er kastað
og ei verður aftur snúið. Þegar
að landamærunum kemur, er
komin vetrarharka með 12 stiga
frosti á C. Eftir það hætti ég að
fylgjast með umhverfinu. Enda
er komið fram yfir miðnætti.
Loks er numið staðar á leiðar-
enda í Winnipeg. Með dræmingi
og iðrun skreiðist ég fram úr
sætinu og lít út. Stjörnubjartur
næturhiminn hvelfist yfir stór-
borgina. Það er ekki ólíkt um
að litast og um vetrarnótt í
Reykjavík. Það hýrnaði yfir
mér, og frá þeirri stundu hefi
ég verið háður Canada, og hefi
lært að njóta þeirra þæginda,
sem þar eru í boði. Ég er farinn
að venjast kuldanum. Frost hef-
ur verið og hefur það orðið
mest 29 stig á C. Samt þykir
vetur hér mildur.
Winnipeg, 9. febr. 1955
Jón Kristgeirsson
Kaupið Lögberg
\
Víðlesnasta
íslenzka blaðið
Weiller & Williams Co., Ltd.
UNION STOCK YARDS St. Boniface, Man.
Vér grípum þetta tækifæri til að flytja
hinum íslenzku viðskiptamönnum vor-
um hugheilar kveðjur. Við þökkum við-
skiptin á undangengnum árum og vænt-
um þess að geta veitt ykkur greiða og
góða afgreiðslu í framtíð. Hafið hugfast,
að vér veitum smáum gripasendingum
nákvæmlega sömu skil og þeim,- sem
stærri eru.
WILLIAM J. McGOUGAN — Manager
Compliments of . . .
JUBILEE
COAL
COMPANY
L I M I T E D
Phone 42-5621
CORYDON and OSBORNE
W I N N I P E G
R. OnuUUf, Manaxfe/L
Business and Pr ofessional Cards
Phone 74-7855 ESTIMATES
FREE Dr. P. H. T. Thorlakson
J. M. Ingimundson
Re-Roofing — Asphalt Shingles Insul-Bric Siding WINNIPEG CLINIC
Vents Installed to Help Eliminat.e Condensation St. Mary’s and Vaughan, Winnipeg
PHONE 92-6441
632 Simcoe St. Winnipeg, Man.
Gilbart Funeral Home J. J. Swanson & Co. LIMITED
Selklrk, Manltoba. J08 AVENUE BLDG. WINNIPEG
Fasteignasalar. Leigja hús. Öt-
J. Roy Gilbart vega peningal&n og eldsá-byrgC.
Licensed Embalmer bifreiSaúbyrgð o. s. frv.
Phone 3271 Selklrk Phone 92-7538
Dr. ROBERT BLACK
SérfræCingur I augna, eyrna, nef SARGENT TAXI
og hálssjúkdómum.
401 MEDICAL ARTS BLDG. PHONE 20-4845
Graham and Kennedy St.
Skrlfstofusfmi 92-3851 For Quicfc, Reliable Service
Heimasimi 40-3794
Dunwoody Saul Smith DR. E. JOHNSON
& Company
Chartered Accountants 304 Eveline Street SELKIRK. MA.NITOBA
Phone 92-2468
100 Princess St. Winnipeg, Man. Phones: Office 26 — Residence 230
And offices at: Office Hours: 2.30 - 6.0t p.m.
FORT WtLLIAM - KENORA FORT FRANCES - ATIKOKAN
Hafið Thorvaldson, Eagerlson,
Höfn Baslin & Stringer
í huga Barristers and Solicitors 209 BANK OF NOVA SCOTIA Bldg. Portage og Garry St.
Heimili sólsetursbarnanna, Icelandie Old Folks’ Home Soc
3498 Osler St., Vancouver, B.C. PHONE 92-8291
ARLINGTON PHARMACY CANADIAN FISH
Prescription Specialist PRODUCERS LTD.
Cor. Arlington and Sargent J. H. PAGE, Managing Director
Phone 3-5550 Wholesale Distributors of Fresh and
Frozen Fish
We collect light, water and phone bills. Post Office 311 CHAMBERS STREET Offlce: 74-7451 Res.: 72-3917
Muir's Drug Siore Lid. Office Phone Res. Phone 92-4762 72-6115
J. CLUBB
FAMILY DRUGGIST Dr. L. A. Sigurdson
SERVING THE WEST END FOR 528 MEDICAL ARTS BUILDING
27 YEARS Office Hours: 4 p.m.—6 p.m.
Phone 74-4422 EUlce & Home and by appointment.
Thorarinson & Appleby A. S. BARDAL LTD.
Barristers and Solicitors FUNERAL HOME
S. A. Thorarinson, B.Sc., L.L.B. 843 Sherbrook Street
W. R. Appleby. B.A., L.L.M. Selur líkkistur og annast um út-
701 Somerset Bldg. farir. Allur útbúnaCur sá beztl.
Winnipeg, Man. Ph. 93-8391 StofnaC 1894 SlMI 74-7474
Phone 92-7025 Minnist
H. J. H. PALMASON Chartered. Accc'intant BETEL
506 Confederation Life Buildlng WINNTPEG MANITOBA í erfðaskróm yðar.
Parker, Parker and S. O. BJERRING
Kristjansson Canadian Stamp Co.
Barristers - Solicitors RUBBER & METAL STAMPS
Ben C. Parker, Q.C. NOTARY & CORPORATE SEALS
B. Stuart Parker. A. F. Kristjansson CELLULOID BUTTONS
500 Cantdlan Bank of Commerce 324 Smith St. Wlnnipeg
Winnipeg, Man. Phone 92-3561 PHONX 22-4424
G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir.
Keystone Fisheries Limited Creators of Distinctive Printing
Wholesale Distributors of Columbia Press Ltd.
FRESH AND FROZEN FISH 695 Sargenl Ave. Wlnnlpeg
60 LouÍ8e Street Slmi 92-5227 PHONE 74-3411
EGGERTSON SELKIRK MEUL PRODUCTS
Reykháfar, öruggasta eldsvörn, og ávalt hreinir. Hltaeiningar- rör, ný uppfynding. Sparar eldi- vi8, heldur hita frá a8 rjúka út
FUNERAL HOME
Dauphin, Manitoba meB reyknum.—SkrifiC, sfmiC til
KELLY SVEINSSON
825 Wall St. Wlnnlpef
Eigandl ARNI EGGERTSON Jr. Just North of Portage Ave.
Simar 3-3744 — 3-4431
Van's Electric Ltd. 636 Sargent Ave. J. Wilfrid Swanson & Co.
Insurance in all its branches
Authorized Home Appliance Real Kitate • Mortgagei - Rentalj
Dealers
GENERAL ELECTRIC — ADMIRAL 216 POWER BUILDING
McCLARY ELECTRIC — MOFFAT Phone 3-4890 Telephone 23-7181 Res. 46-3422 LET US SERVE YOU