Lögberg - 08.09.1955, Blaðsíða 3
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 8. SEPTEMBER 1955
3
Sjötugsafmæli merkisskálds
Framhald af bls. 2
stuttlega vikið að þeim bók-
um hans, sem síðan hafa
komið á prent.
Verður þar fyrst fyrir í
tímaröð smásagnasafnið Hinn
gamli Adam. I safni þessu eru
12 sögur, skrifaðar á árunum
1943—’47, og kennir þar all-
mikillar fjölbreytni um sögu-
efni og frásagnarhátt, en allar
sverja sögur þessar sig í ætt
um fágað málfar, sem fellur
vel að efninu, og um mark-
vissa tækni og sálskyggni, því
að höfundurinn á þann fágæta
hæfileika í ríkum mæli, að
geta látið einstök atvik varpa
. björstu kastljósi skilnings og
samúðar á sálarlíf söguper-
sóna sinna.
Eigi verður hér rakið efni
einstakra sagna í þessu safni,
en minna má á það, að „Svik-
inn hlekkur“ er frábærlega
vel gerð saga og áhrifamikil
að sama skapi, átakanleg lýs-
ing þess, hversu örlagaríkar
°g ömurlegar afleiðingar
augnabliks vanrækslusynd
getur haft í för með sér. I
þessu safni er einnig sagan
»Flugur“, einhver allra meist-
aralegasta smásaga Þóris
Bergssonar, og er þá mikið
sagt, en um hana fór Guð-
mundur G. Hagalín rithöf-
undur, sem sjálfur er ágætur
smásagnahöfundur, eftirfar-
andi orðum í ítarlegri og
merkilegri grein um umrætt
smásagnasafn („Skáld og
kunnáttumaður", — Alþýðu-
hlaðið, 19. október 1947):
„Þó að höfundurinn hafi
skrifað aðrar sögur veiga-
meiri, þá fer þarna þann veg
saman vitsmunaleg skarp-
skyggni, listamennska og
skáldgáfa, að sagan verður
allfágæt heildarsmíð þessara
hæfileika, og kæmi mér ekki
ú óvart, þó að hún ætti eftir
að fara víða sem dæmi um
e'ina tegund íslenzkrar smá-
sagnagerðar — og þá ekki
síður fyrir það, hvað hún er
stutt“.
Næst er í aldursröð önnur
hinna tveggja lengri skáld-
sagna Þóris Bergssonar, Hvíl-
sandar. í þessari túlkun rót-
leysis nútímans, eins og það
speglast í lífi þeirra Úlfs Arn-
arsonar og Ásu Hálfdáns-
dóttur frá Marbakka, fara
saman glöggar staðlýsingar og
hfandi mannlýsingar, sam-
hliða þeirri snilld í frásögn og
sta, sem heilla hug lesandans
°g halda athygli hans glað-
vakandi frá byrjun til enda.
Ekki hefir Þórir Bergsson
gefið út aðra kvæðabók síðan
Iramannefnt Ljóðakver hans
kom út, en ýms ný kvæði
eftir hann hafa komið á
Prent, í svipuðum tóntegund-
Um eins og hin fyrri lcvæði
hans, annars vegar ljóðræn að
blæ og listræn að máli, og
hins vegar lengri og íburðar-
^eiri um efni, en söm við sig
um smekkvísi og málvöndun.
Hann hefir ennfremur á síð-
ari árum skrifað allmargt rit-
dóma, er komið hafa í Morgun
blaðinu og þó sérstaklega í
Eimreiðinni; bera þeir vitni
næmum skilningi hans, bók-
menntaþekkingu og sann-
girni, og hitta því löngum vel
í mark.
III.
Skal þá nokkuru nánar
getið nýjustu smásagnasafna
Þóris Bergssonar, en þau eru
Á veraldar vegum og Frá
morgni iil kvölds, sem eru
bæði á titilblaði talin til árs-
ins 1953, en komu samtímis á
bókamarkaðinn í fyrra haust.
I söfnum þessum eru alls 22
smásögur, samtals 504 blað-
síður að stærð. Eru sögur
þessar, að vonum, nokkuð
misjafnar að gæðum og gildi,
en bera, eigi að síður, allar
vitni hugkvæmni höfundar,
hagleik hans í sagnagerðinni,
og þá ekki sízt þeim hæfileika
hans, að gera sogur sínar
þannig úr garði, að þær haldi
huga lesandans föstum. Og
mjög er það Þóri Bergssyni til
sæmdar, og sýnir það, hve
prýðilega hann heldur í horf-
inu um ritstörfin, að ágætu
sögurnar í þessum bókum
hans eru fleiri en hinar, sem
minna kveður að. Er það
einnig mála sannast, að í fyrri
flokknum eru sumar snjöll-
ustu sögur hans.
Rúm leyfir eigi að geta
hverrar sögu fyrir sig í þess-
um víðtæku og harla fjöl-
skrúðugu bókum höfundar,
því að vissulega kennir þar
næsta margra grasa eigi síður
en kjarngóðra. Verður því að
nægja að vekja athygli á
nokkrum þeim sögum, er
tekið hafa hug greinarhöf-
undar föstum tökum og orðið
honum minnisstæðastar.
Upphafssagan í safninu Á
veraldar vegum, „Læknis-
hjálp“, er prýðisgóð saga, en
meiri snilldarbragur er þó á
næstu sögunni, „Samvizku-
semi“, sem er gerð af mikilli
nærfærni og er ágætt dæmi
þess, hvernig Þórir Bergsson
sér hið stóra og almenna í
hinu smáa og hversdagslega,
að annarra dómi. „Silfurbúin
svipa“, þó gjörólík sé um efni,
er einnig ágætlega sögð saga,
hnútur atburðaþráðanna 1
sögulok leystur á eftirminni-
legan hátt.
í sögunni „Dagslund á
Grjóíeyri", er brugðið upp
svipmynd, sem hittir markið
vel, og „Hjálp í viðlögum“ er
bæði prýðisvel sögð saga og
skemmtileg; „Málagjöld“ er
einnig mjög sniðug saga, en
„Listin að lifa“ samt stórum
listrænni að gerð og svip-
merkt næmleik tilfinning-
anna og djúpu innsæi.
Upphafssagan „Ást“ í safn-
inu Frá morgni iil kvölds er
agætlega gerð, og „Að lokum“
ber hugkvæmni höfundar
gott vitni, en frumlegri er þó
sagan „Sendibréf“, þó ör-
stutt sé.
I
Business and Professional Cards
Kemur þá að þeirri sögunni,
sem mestur meistarabragur er
á af öllum hinum ágætu og
athyglisverðu sögum í þessum
bókum höfundar, en það er
„Frá morgni til kvölds.“ Hún
er afburðasnjöll að gerð, og
hin mikla og hjartnæma
harmsaga, sem er þar sögð,
er túlkuð af fágætum sálræn-
um skilningi, og stíllinn er að
sama skapi hnitmiðaður, svo
að þar stendur allt í föstum
skorðum.
Þrjár síðustu sögurnar í
bókinni, „Auga fyrir auga“,
„Fjallganga“ og „Þorpið“, eru
framhaldskaflar af sögunni
„Útverðir mannheima“, er
prentuð er í Nýjum sögum.
Allar eru þessar þrjár sögur
prýðisvel samdar, og á það þó
einkum við um söguna „Fjall-
göngu“, sem er óvenjulega
markviss saga, þar sem til-
finningalíf sögupersónanna er
túlkað á skilningsríkan og
snjallan hátt.
Með sagnasöfnum þessum
hefir Þórir Bergsson því enn á
ný sýnt það og sannað, að
hann er vel að þeim virðing-
arsessi kominn, er hann skip-
ar í nútíðarbókmenntum vor-
um fyrir smásögur sínar sér-
staklega, enda munu hinar
meztu þeirra áreiðanlega
verða langlífar, því að þar
haldast í hendur listræn frá-
sögn, bæði um söguform og
samræmt málfar, og djúp-
skyggn innsýn inn í sálarlíf
þeirra manna og kvenna, sem
höfundur leiðir fram á sjónar-
sviðið.
Dr. P. H T. Thorlakson
WINNIPEG CLINIC
St. Mary’s and Vaughan, Winnlpeg
Phone 92-6441
J. J. Swanson & Co.
LIMITED
308 AVENUE BLDG. WINNIPEG
Fasteignasalar. Leigja hús. Út-
vega peningalán og eldsábyrgS,
bifreiSaábyrgS o.s. frv.
Phone 92-7538
SARGENT TAXI
PHONE 20-4845
For Quick, Reliable Service
DR. E. JOHNSON
304 Eveline Street
SELKIRK. MANITOBA
Phones: Office 26 — Residence 230
Office Hours: 2.30 - 6.00 p.m.
Thorvaldson, Eggertson,
Baslin & Siringer
Barristers and Solicitors
209 BANK OF NOVA SCOTIA Bldg.
Portage and Garry St.
PHONE 92-8291
A. S. BARDAL LTD.
FUNERAL HOME
843 Sherbrook Street
Selur llkkistur og annast um út-
farir. Allur útbúnaöur sá bezti.
StofnatS 1894 SÍMI 74-7474
Office Phone Res. Phone
92-4762 72-6115
Dr. L. A. Sigurdson
528 MEDICAL ARTS BUILDING
Office Hours: 4 p.m.—6 p.m.
and by appointment.
S. O. BJERRING Canadian Stamp Co. RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPORATE SEALS cellUloid BUTTONS 324 Smiih Si. Winnipeg PHOSE 92-4624
J. Wilfrid Swanson & Co. Insurance in all its branches Real Estate - Mortgages - Rentals 210 POWER BUILDING Telephone 93-7181 Res. 40-3480 LET US SERVE YOU
EGGERTSON FUNERAL HOME Dauphin, Maniioba Eigandi ARNI EGGERTSON, Jr.
Phone 74-7855 ESTIMATES FREE J. M. Ingimundson Re-Roofing — Asphalt Shingles Insul-Bric Siding Vents Installed to Help Eliminate Condensatioh 632 Simcoe St. Winnipeg, Man.
Gilbart Funeral Home Selkirk, Manitoba J. ROY GILBART Phone 3271 Selkirk
Muir's Drug Store Ltd. J. CLUBB FAMILY DRUGGIST SERVING THE WEST END FOR 27 YEARS Phone 74-4422 EUice & Home
Phone 223 D. R. OAKLEY, R.O. OPTOMETRIST Vision Specialist—Eyes Examined Centre Street, Arborg Tuesdays GIMLI, MAN.
Phone 92-7025 H. J. H. PALMASON Chartered Accountant 505 Confederation Life Building WINNIPEG MANITOBA
Dunwoody Saul Smith & Company Chartered Accountants Phone 92-2468 100 Princess St. Winnipeg, Man. And offices at: FORT WILLIAM - KENORA FORT FRANCES - ATHCOKAN
Hofið H öf n í huga Heimili sðlsetursbarnanna., Icelandic Old Folks’ Home Soc., 3498 Osler St., Vancouver, B.C.
Arlington Pharmacy Prescription Specialist Cor. Arlington and Sargenl Phone 3-5550 We collect light, water and phone bills. Post Office