Lögberg - 08.09.1955, Qupperneq 6
6
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 8. SEPTEMBER 1955
GUÐRÚN FRA LUNDI:
DALALÍF
BRÚÐKAUP LINU
Borghildur opnaði fyrst bæinn, eins og vant
var, morguninn, sem brúðkaupsveizlan átti að
standa. Hún var þreytuleg í hreyfingum. í síðast-
liðna tvo daga hafði verið bakað og steikt í sjóð-
andi hitamollu frá morgni til kvölds, og svo var
nú sjálf veizlan fyrir höndum á þessum degi.
Helzt hefði hún nú viljað vera laus við þetta
allt, þar sem sláturstörfin voru nýafstaðin. En það
var nú svona — þeim fannst það sjálfsagt að
halda veizlu, þessum manneskjum, þegar þær
voru að leggja út í þetta hjónaband. Það var
gamall siður, en óvíða húsakynni til að halda í
veizlu. Hvernig skyldi nú dagurinn spá? Ekki
ákaflega slæmt útlit — blæjalogn og sólskin.
Jörðin var grá af hélu, þar eð sólin var ekki búin
að breyta henni í dögg. Borghildur gerði kross
fyrir sér og bað morgunbænina. Svo gekk hún
fram á hlaðvarpann — þangað, sem skuggar
bæjarburstanna náðu ekki til að halda verndar-
hendi yfir hélunni, en döggin glitraði eins og tár-
perlur í grasinu.
„Guð komi til“, andvarpaði hún, „það er eins
og náttúran sé flóandi í tárum. Skyldi nú þetta
verða eitthvert ógæfuspor fyrir Línu mína? Það
lítur út fyrir, að hún sé nokkuð fljótráð“.
Svo gekk hún inn aftur.
„Spáir dagurinn ekki góðu?“ spurðu Gróa og
Manga einum rómi.
„Jú, jú, hann spáir farsæld og friði“, sagði
Borghildur. |
Úr miðjum degi fór boðsfólkið að koma bæði
utan af Ströndinni og neðan af Ósnum og svo að
sjálfsögðu úr nágrenninu við brúðhjónin. Lína
þeysti á undan hópnum, sem kom handan yfir
ána, við hlið Erlendar á Hóli, sem var bezt ríðandi.
Hún reið steingráum gæðingi með marki hrepp-
stjórans. Doddi varð að láta sér nægja að vera
aftarlega í hónpum, þótt honum hins vegar fyndist
það hefði átt bezt við að hann hefði riðið við
hliðina á Línu, en Rauður fór ekki hraðara en
hann var vanur, þó að eigandi hans væri á leið-
inni til giftingarinnar. Lína hafði hvíta, fína ullar-
hyrnu á herðunum. Hún hafði ekki aðgætt það
fyrr en á síðustu stundu, að reiðtreyjan hennar
var orðin of þröng um mittið, en úr því hefði mátt
bæta með því að spretta brjóstsaumunum úr, en
nú gat hyrnan bætt úr þeirri gleymsku. Aftastar
í hópnum voru þær nágrannakonurnar, Hildur og
Helga á Hóli.
„Það er naumast að það sé fjörugur hestur,
sem Lína ríður. Hver á hann eiginlega?“ spurði
Helga, hálfgröm yfir að sjá Línu við hlið Erlendar.
Hún hefði heldur kosið að vera þar sjálf.
„Hún á hann sjálf“, svaraði Hildur brosandi
út að eyrum. „Hann er brúðargjöf frá Jóni hrepp-
stjóra. Hún bjargaði þessari skepnu einuhvern
tíma frá því að verða hungurmorða fram á Seli,
og þá sagðist hann ætla að gefa henni hestinn,
þegar hún gifti sig. Og hann lét svo ekki sitja við
orðin tóm“.
„Ójá, það var lagleg gjöf“, sagði Helga fálega.
„En hvað munar svona fólk um einn hest? Ekki
meira en mig um eitt lamb. Svo væri hann ekki
líkur henni móður sinni, ef hann væri ekki dálítið
rausnarlegur. Það er þá kannske konan hans,
sem er heldur smátækari“.
„Ja, hún er nú víst ekki síðri“, sagði Hildur.
Ég varð ekkert lítið hissa í morgun, þegar hún
sendi drenginn þeirra með allt í hjónarúmið
handa henni og tvö ver utan yfir sængina og
koddann — og með hekluðum bekkjum í. Þetta
sýnir allt það sama, að Lína hefur ekki komið sér
mjög leiðinlega þar“._
„Það hefur þó ekki verið látið mikið af því,
að hún væri höfðinglunduð, konan sú. En það var
víst mikið, sem hún hélt af Línu. Það sagði Ketil-
ríður, enda hefur Lína víst góða lund“, sagði
Helga dræmt. Svo bætti hún við, ekki laus við
glettni: _,,Þau verða stórrík af eintómum brúðar-
gjöfum, ef þessu heldur áfram í allan dag og alla
nótt. Reyndar hef ég nú ékki vanizt því, að þær
væru gefnar áður en giftingin hefur farið fram“.
„Það var nú þetta“, sagði Hildur, „að það
þurfti að hafa rúmið uppbúið, þegar heim væri
komið, og ríða þurfti á hestinum til kirkjunnar.
Þetta kemur allt í sama stað niður“.
Það var stigið af baki við réttina, sprett af og
farið úr reiðpilsunum. Lína hafði svo mikinn
hjartslátt, þegar hún gekk heim að bænum, að
hún óttaðist að móðir hennar og systur heyrðu
hann. Hún hafði lengi kviðið fyrir þessum degi.
Á honum varð hún að leika erfiðasta þáttinn í
þessum andstyggilega sjónleik, sem léttúð hennar
og auðnuleysi hafði úthlutað henni. Anna tók
brosandi á'móti henni á hlaðinu og óskaði henni
til hamingju með tveimur hlýjum kossum.
„Það datt mér þó sízt í hug, að ég sæi þig
næst á brúðkaupsdaginn þinn, Lína mín, þegar
við kvöddumst þarna við réttina í fyrra vor. Við
höfum ekki sézt síðan. Ég hef átt von á þér fram
eftir í allt vor og sumar, en þú hefur ekki látið
sjá þig“.
Lína hló með titrandi vörum: „Þú hlýtur þá
að geta ímyndað þér að maður geti ekki yfirgefið
kærastann nokkra stund svona fyrstu vikurnar af
tilhugalífinu“.
„Ó, því læt ég svona. Ég hélt nú bara, að þú
værir ekki svona lukkuleg, Lína litla. Það er
ágætt. En nú skaltu koma hingað inn í stofuna.
Ég hef hugsað mér að gera þig almennilega úr
garði“.
Lína fór með Önnu inn í stofuna. Hildur
fylgdist með þeim, en móður brúðarinnar fannst
þetta allt svo fjarlægt sér, að hún fór inn í eldhús
og fékk sér þar sæti.
„Hvernig hefurðu hugsað þér að verða
klædd?“ spurði Anna. „Ætlarðu að verða í peysu-
fötum?“
Lína lagði snjóhvítt silkislifsi á borðið og
spurði, hvort henni fyndist það kannske ekki nógu
fallegt — mannsefnið hefði gefið sér það.
„Jú, það er indælt“, sagði Anna, en horfði þó
meira á vöxt brúðarinnar en slifsið. „En viltu
ekki heldur vera í kyrtlinum mínum? Ég pressaði
hann í gær í þeim tilgangi".
„Ó, það er nú svo hrífandi tilkomumikið að sjá
brúði í skautbúningi“, sagði Hildur, hrifin af
ástúð þessarar konu.
„Auðvitað skautar hún, blessað barnið“, sagði
Anna, og tók kyrtilinn fram. „Það hefur engin
brúður komið í hann nema ég sjálf. Nú eru
þrettán ár síðan“.
„Þrettán ár! Óhappatala“, hugsaði Lína* hjá-
trúarfull. En hún klæddi sig samt úr peysu-
fötunum og kafroðnaði af feimni, þegar hún var
komin á undirkjólinn, hvítan blúndukjól, hálf-
smeyk um að fáklæddur líkami sinn myndi opin-
bera þessari konu, hver væri valdur að þessari
vansköpun, sem engum duldist lengur.
Anna skildi hana vel og aflæsti dyrunum. Það
voru allar konur feimnar svona fyrst í stað undir
þessum kringumstæðum. „Svona, Lína mín, nú
erum við hérna þrjár einar. Þú skalt bara ekkert
vera feimin. En hvað hárið á þér er orðið mikið.
Við höfum það slegið“.
„Það hefur vaxið svona mikið í sumar“, sagði
Lína; Henni leið hræðilega. Henni fundust hvítar
hendur húsmóður sinnar fyrrverandi brenna sig.
Anna brosti kankvíslega til Hildar: „Það er svona
stundum — það vex hárið“.
Nú var búið að næla skautið og láta koffrið
og slæðuna yfir. „En hvað hún verður falleg
brúður“, hugsuðu þær báðar. Nú var beltið aðeins
eftir, en það var of þröngt.
„Ég sem var svo grönn“, sagði Lína.
„Ég næ bara í beltið hennar mömmu sálugu.
Það hlýtur að verða nógu vítt“, sagði Anna.
Þannig var Lína gerð úr garði með stokkabelti
Lísibetar húsfreyju, en í kyrtli og með skaut
tengdadóttur hennar. Innan í öllu þessu titraði
Lína af vanlíðan. Þá heyrðist allt í einu rödd Jóns
framan úr dyrunum: „Er ekki enn búið að búa
brúðina?“
Anna opnaði dyrnar og leit fram fyrir bros-
andi: „Hvað ert þú að hugsa um brúðina, vinur?“
„Mér hefur verið falinn á hendur sá mikli
heiður að leiða brúðina. Erlendur ætlar að hugsa
um brúðgumann. Þú verður að spila, góða mín“-
„Ég segi nú bara, að þú þarft víst ekki að
skammast þín fyrir að leiða hana, eins og ég er
búin að búa hana“, sagði Anna og opnaði hurðina,
svo að hann gæti séð Línu í brúðarskartinu. „Sko,
það er kyrtillinn minn og skrautið, en beltið
hennar mömmu. Finnst þér hún ekki líta sæmi-
lega út?“
„Það er nú líklega“, sagði hann og hló glað-
lega. „Finnst þér þetta ekki hátíðlegt, Lína?“
„Það er víst“, sagði hún lágt og forðaðist að
líta upp.
Nú gengu allir í kirkjuna, nema brúðurin og
svaramaður hennar. Anna húsfreyja sat á orgel-
stólnum og horfði heim til bæjar. Henni fannst
þau láta kirkjuklukkurnar kalla allt of lengi-
Þarna komu þau þó. En hvað brúðargangurinn
var hægur og fínn. -Blæjan bifaðist ekki. Það
boðaði frið og farsæld í hjónabandinu. Brúðurin
var kafrjóð 1 andlitinu með tárvot augu, þegar
hún gekk inn kirkjugólfið. Erlendur leiddi Dodda
inn að altarinu og samstundis var Lína komin að
hlið hans. Þegar búið var að syngja sálminn, færði
Anna sig að hlið manns síns og gat ekki stillt sig
um að hvísla að honum, hvað sér fyndist hún
Lína vera falleg brúður. Hann klappaði á hendi
hennar og gaf til kynna með dálítilli höfuðhneig-
ingu, að hann væri því samþykkur.
Séra Benedikt hélt eina af sínum óviðjafnan-
legu ræðum. Konurnar fram í kirkjunni tár-
felldu, en brúðurin hélt fínum blúndudúk fyrir
augumnn og herðarnar kipptust til öðru hvoru
eins og af ekka. En út við gluggann í næst innsta
bekknum sat Þórður og horfði út um gluggann —
líkast því sem hann væri að telja hrossin, sem
höfðu komizt inn á túnið og nöguðu hána
græðgislega.
Eftir stutta stund var þetta allt búið. Doddi
settist í innsta bekkinn hjá prédikunarstólnum
og lagði handlegginn utan um gullspengt mitti
konu sinnar. Nú átti hann hana, því að það hafði
presturinn sagt, og þar með, að þau mættu ekki
skilja fyrr en dauðinn aðskildi þau. Hann vonaðist
eftir, að þess væri langt að bíða.
Borghildur var sú fyrsta, sem gekk úr kirkj-
unni. Hún þurfti að gæta að eldinum. Hún var
þúin að leggja að og það suðaði vingjarnlega i
katlinum, þegar Anna kom inn.
„Það eru nú allir kringum brúðhjónin að
óska þeim til hamingju. — Fannst þér ekki Lína
véra indæl brúður?“ spurði Anna.
„Jú, víst var hún það“, sagði Borghildur fá-
lega, „en hún var víst ekki að sama skapi sael
brúður“, bætti hún við.
„Ja, hvílíkt, drottinn minn góður. Svei-mér
ef hún grét ekki, manneskjan, meðan verið var að
gefa þau saman. Hvað skyldi hafa mátt gefa mér
til að gráta á giftingardaginn minn? Hvernig x
ósköpunum heldurðu að standi á þessu, Borg-
hildur?“
„Það er víst ekki vandi að sjá það. Þetta unga
fólk hleypur saman eins og skepnur og sáriðrast
svo eftir öllu saman, ef slys kemur fyrir“, sagði
Borghildur ströng á svip. „Er það ekki óskaplegt,
að það skuli vera farið að sjá á vexti mann-
eskjunnar og hún þekkti strákinn ekkert fyrr en
hún flutti til hans í vor“.
„Svo að þú hefur þá tekið eftir því“, sagði
Anna og brosti að vandlætingarsvipnum á Borg-
hildi. „Ég hélt, að kyrtillinn myndi hylja það.
Heldurðu að henni þyki þá kannske ekkert vænt
um hann?“
„Mér þykir það ólíklegt, að það sé gengið
grátandi út í hjónbandið með þeim manni, sem
mikið er elskaður".
„Aumingja Lína!“ andvarpaði Anna. „Hún
hefði ekki átt að giftast honum, þótt aldrei nema
svoníi færi fyrir henni, eða finnst þér það ekki,
Borghildur?“
„Hann hefur nú líklega reynt að leggja að
henni með það. Það hlaut að vera eitthvað á bak
við þessa trúlofun, sem allir voru forviða á. Ég
skil bara ekkert í henni Línu“.