Lögberg - 08.09.1955, Síða 7
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 8. SEPTEMBER 1955
7
Margs er að minnast frá löngu liðnum
dögum heima á íslandi
Viðtal við Júlíus Davíðsson, byggingameistara í Winnipeg
Undanfarnar vikur hefir
dvalizt hér í bænum Júlíus
Uavíðsson, byggingameistari
í Winnipeg. Hann fór héðan
1 gær áleiðis vestur um haf.
Áður en hann fór hafði Laug-
ardagsblaðið tal af honum.
Uar þar margt á góma, því að
Júlíus er í senn fjölfróður,
nhnnugur og gamansamur.
Júlíus er fæddur að Jódísar-
stöðum í Eyjafirði 26. des.
1880, er hann þannig nær 75
úra að aldri. Foreldrar hans
voru Sigríður Bjarnadóttir
Irá Kambfelli í Djúpadal og
Uavíð Kristjánsson, sem lengi
újuggu á Jódísarstöðum.
Uavíð var víða kunnur fyrir
hagmælsku og þótti hvar-
Vetna hrókur alls fagnaðar.
■^Jun Júlíusi kippa í kynið í
þeim efnum.
‘Þegar Júlíus var 13 ára að
aldri fór hann að heiman og í
srníðanám til frænda síns,
Uavíðs Sigurðssonar, tré-
smíðameistara á Akureyri,
úvaldist hann þar í tvö og
hálft ár, en hætti þá smíða-
naminu, og vann um eitt ár
vlð ýmis störf hér í bænum
°§ nágrenninu. Meðal annars
Vann hann að lagningu fyrsta
hluta Eyjafjarðarbrautar. —
Verkstjóri var Skúli frá Elliða
Vatni, og fannst Júlíusi mikið
úl um hann og stjórnsemi
hans. Auk Davíðs frænda síns
minnist hann hér helzt Egg-
erts Laxdals kaupmanns, sem
feyndist honum drengilega í
hvívetna.
— Þykir þér ekki margt
hafa breytzt hér á Akureyri
frá þessum tíma?
— Það er naumast orðið, að
það hafi breytzt, heldur er
hér um gjörbyltingu að ræða.
Varla var hægt að segja, að
hér væri þá nokkurt almenni-
legt hús, mest gamlir óásjá-
legir kumbaldar. Nýjustu hús-
voru þá hús Davíðs Sig-
urðssonar, Sigfúsar borgara í
Uilinu og verzlunarhús þeirra
hræðra Friðriks og Magnúsar
Kristjánssona. Og ekki hefir
^ainni breyting orðið á vinnu-
hrögðum, þar sem allt var þá
^nnið af handafli, og kunn-
atta í mörgum þeirra næsta
lítil.
— Eitthvað hafið þið kunn-
að skemmta ykkur unga
lólkið í þann tíma?
— Já, ekki vantaði það. Við
systkinin öll vorum kát, lærð-
Utíl snemma að dansa, enda
Var óspart dansað í sveitinni
^eðan ég var þar heima, bæði
1 þinghúsinu á öngulsstöðum,
a Rafkelsstöðum og víðar.
Þndrum og eins voru skemmt-
ajúr í stofunni í Kaupangi, en
ylhjálmi bónda var fremur
itið um þær gefið. Tvö eldri
^ystkina minna, Bjarni og
Rosa léku í sjónleikjum, er
sýndir voru, og þótti takast
vel. Munu þau, einkum Rósa,
hafa haft mikla leikaragáfu,
Sern þau hafa sennilega sótt
til föður síns. Mjög lékum við
systkinin okkur á skautum og
skíðum.
— Hverjar orsakir voru til
þess að þú fluttist vestur um
haf?
—r- Eftir lát föður míns
dreifðist fjölskyldan. Efni
voru lítil, og möguleikar til
þess að komast áfram hér
heima litlir um þær mundir.
Fyrst fóru þrjú eldri systkini
mín vestur. Öllum þótti okkur
vænt um æskuheimili okkar,
Jódísarstaði, og mig sjálfan
dreymdi þá stóra drauma um
það, að fara til Ameríku og
dveljast þar um nokkur ár og
afla mér fjár, svo að ég gæti
komið aftur hingað heim og
keypt jörðina. Og vestur fór
ég árið 1899. En ári síðar
fluttist móðir mín vestur
ásamt seinni manni sínum
Sigurði Halldórssyni og þrem-
ur systkinum mínum, en alls
vorum við systkinin sjö, er
komumst til fullorðinsára. Af
þeim erum við einungis tvö
enn á lífi.
— Og hvað gerðir þú svo
eftir að vestur kom?
— Fyrst vann ég á annað ár
við smíðar hjá innlendum
manni, en að því búnu tók ég
að stunda sjálfstæðan at-
vinnurekstur. Fór ég þá að
kaupa lóðir og reisa hús til
sölu en fremur var það í smá-
um stíl í fyrstu, en ég jók at-
vinnurekstur minn síðar, enda
þótt ég væri aldrei meðal
hinna stóru í þeirri grein.
Stundaði ég þá atvinnu þar til
nú fyrir þremur árum, og
mun ég alls hafa reist um 150
hús í Winnipeg, en auk þess
dvaldist ég í 7 ár í Saskatoon.
Svo má kalla, að atvinnu-
rekstur minn gengi vel, og var
þó undirbúningurinn engan
veginn mikill, því að til Ame-
ríku kom ég mállaus, hafði
engrar fræðslu notið heima,
nema smávægilegrar barna-
skólafræðslu og nokkurs
smíðanáms, sem ég þó ekki
lauk. En það bjargaði mér, að
ég setti mér það mark, að
standa ætíð í skilum, og það
tókst mér svo vel, að ég gat
ætíð gert upp við lánar-
drottna mína á 30 daga fresti.
Ég hafði því alltaf lánstraust
í bönkum, og svo vel heppn-
uðust mér byggingar mínar,
að allsendis einu sinni hefi
ég verið til þess kvaddur að
bæta um hús þau, er ég hafði
byggt, og þá einungis til að
laga ytri hurð. Húsin seldi ég
jafnóðum og þau voru tilbúin,
heppnaðist mér salan oftast
vel, enda þótt stundum væri
spáð illa fyrir mér, einkum í
byrjui\, því að þá varð ég að
kaupa lóðir á þeim stöðum,
sem enn voru lítt byggðir, en
borgin var í örum vexti, svo
að það blessaðist allt saman.
Ég hafði aldrei marga menn í
vinnu, en vann alltaf sjálfur
með þeim, kom ætíð fyrstur á
vinnustað á morgnana og
gekk frá öllu efni áður en ég
fór frá vinnu á kvöldin. Mér
lærðist enskan fljótt, en ekki
gafst mér nokkurn tíma tóm
til þess, að afla mér frekari
menntunar en þeirrar, sem ég
fór #með að heiman. Hins
vegar hafði ég nokkuð af því
stolti, sem við margir íslend-
ingar eigum í fórum okkar, og
reynzt hefir mörgum Vestur-
íslendingi haldgott veganesti,
þegar hann hefir kunnað með
það að fara á heilbrigðan hátt.
— Hefir þú aldrei komið
heim fyrri en nú?
— Nei, en hins vegar get ég
ekki annað sagt en mig hafi
alltaf langað til þess að ferð-
ast heim til gamla landsins.
Var ferð þessi ráðin fyrir
nokkrum árum, meðan kona
mín var enn á lífi, en veikindi
hennar ollu því að ekkert
varð þá úr ferðalagi, og svo
hefir þetta dregizt þangað til
nú.
— Og hefir þú orðið fyrir
vonbrigðum við heipikomuna?
— Síður en svo. Veðráttan
hér nyrðra hefir leikið við
mig, eins og kunnugt er. Ég
hefi heimsótt fjölda ættingja,
og alls staðar hlotið hinar á-
nægjulegustu viðtökur. Ég
hefi farið víða hér um sveitir
og allt austur að Mývatni.
Áður en ég fór vestur hafði
ég farið lengst út að Þrastar-
hóli, og einu sinni austur að
Mývatni með föður mínum.
Þá var ég 9 ára, en allt er mér
gleymt úr þeirri ferð, nema
að heimleiðis varð ég að ríða
ofan á silungspokum, og þótti
súrt í broti. Ég dáist að öllum
þeim miklu framförum, sem
hér hafa orðið, byggingum,
ræktun og vélakosti, en þó
þykir mér enn nokkuð skorta
á um að menn fari almennt
með vélar sínar eins og vera
ber. Og ekki að gleyma ó-
lukku beygjunum á Vaðla-
heiðarveginum, sem mér finn-
ast óskiljanlegar. Ég er nú á
förum, en fullan hug hefi ég á
því að koma hingað aftur eftir
ein tvö ár, ef heilsan og aðrar
ástæður leyfa.
Margt fleira ræddum við
Júlíus saman. Hann segir frá
fjölskyldu sinni, en hann
kvæntist vestra Soffíu Sigríði
Jakobsdóttur. Var hún ættuð
úr Seyðisfirði, en fluttist árs-
gömul með foreldrum sínum
vestur um haf. Hún er nú látin
fyrir tveimur árum. Þau áttu
eina dóttur barna, sem hlotið
hefir ágæta menntun í verzl-
unarfræðum og rekur nú bók-
halds- og endurskoðunarskrif-
stofu í Winnipeg. Loks rifjar
Júlíus upp margar gaman-
sögur um menn og atburði,
gamlan kveðskap og fleira,
sem hann vill þó ekki að hald-
ið sé á lofti. Tíminn líður óðar
en varir, og að endingu kveðj-
um við hinn unga öldung, með
ósk um góða ferð vestur og
að við megum aftur hittast að
tveimur árum liðnum.
Laugardagsblaðið, 13. ágúst
Ráðstefnu norrænna samvinnu-
manna lokið
Ráðstefna norræna sam-
vinnusambandsins, NAF, var
haídin hér í Reykjavík í fyrra-
kvöld. Var þar m. a. rætt um
útflutning samvinnufélag-
anna á Norðurlöndum, um
lækkun á dreifingarkostnaði
og verkaskiptingu í iðnaði
Norðurlanda — en aðalum-
ræðumál fundarins var um
norræna mynt. Aðalfundinn
sátu forsvarsmenn samvinnu-
félaga á Norðurlöndum og
halda þeir heimleiðis í dag,
á' morgun og laugardag.
Ráðstefnufulllrúar
Blaðamenn ræddu við ráð-
stefnufulltrúa í gærdag. Er-
lendur Einarsson forstjóri
kynnti hina norrænu fulltrúa,
en þeir eru frá Svíþjóð:
Albin Johansson, form. nor-
ræna sambandsins, Carl Lind-
skog og S. H. Sörensen. Frá
Finnlandi: Paavo A. Viding
og dr. Uuno Takki. Frá Nor-
egi: Olav Meisdalshagen land-
búnaðarráðherra og Rolf
Semmingsen. Frá Danmörku:
Refsgaard Thögersen og Ebbe
Groes, og einnig sat fundinn
framkvæmdastjóri norræna
sambandsins Mogens Efholm.
Hið norræna samband
Síðan skýrðu hinir norrænu
gestir frá starfsemi sambands-
ins. Kváðu þeir sambandið
hafa innan sinna vébanda
samvinnuhreyfingu a 11 r a
Norðurlandanna. NAF er rek-
ið sem viðskiptafyrirtæki, er
annast margvísleg innkaup
fyrir norræna samvinnumenn
og hefir sparað þeim stórar
fjárhæðir á þann hátt. Velta
NAF er yfir 1000 milljónir ísl.
króna árlega og hefir sam-
bandið skrifstofur í Kaup-
mannahöfn og London.
Til skamms 1 tíma hefir
NAF eingöngu annast inn-
kaup vara fyrir samvinnu-
félögin á Norðurlöndum, en í
maí í vor var stofnuð við það
söludeild útflutningsafurða á
Norðurlöndum. Hefir starf-
semi þeirrar deildar farið vel
af stað, en reynsla er enn ekki
fengin að fullu, en fulltrú-
arnir eru vongóðir, um að
þessi nýja skipan mála verði
árangursrík.
NAF var stofnað 1918 og
voru þá Noregur, Danmörk og
Svíþjóð ein í sambandinu. 10
árum síðar bættust Finnar í
hópinn og 1949 gerðist SÍS
aðili að sambandinu. Starf-
semi NAF hefir aukizt hröð-
um skrefum — veltari var
1952 240 millj. danskra króna,
en 1954 408,2 millj. danskra kr.
NAF var í upphafi aðeins
ætlað að verzla — kaupa inn
fyrir samvinnufélögin og nú
síðar að selja fyrir þau. En
smám saman hefir verið farið
inn á aðrar brautir, svo sem
tilraunir til að auka og efla
samvinnu félaganna — þ. e.
að treysta norræna samvinnu.
Á þeim vettvangi hefir starf-
semin beinzt inn á svið
fræðslu og menningarmála,
samræmingu iðnaðar o. fl.
Aðalfundir
Aðalfundir sambandsins
norræna eru haldnir til skipt-
is í aðildarlöndunum 5. SÍS
sá fyrst um aðalfúnd árið
1950 og nú aftur 1955. Næsta
ár verður aðalfundurinn í
Noregi.
Á þessum aðalfundi er
venja að taka fyrir auk venju
legra viðskiptamála eitt mál-
efni sem orðið gæti traustur
hlekkur í norrænni samvinnu.
Umræðuefnið á þessum ný-
afstaðna aðalfundi, eða Nor-
rænu stefnu, eins og þeir eru
nefndir, var: Norrænt gjald-
miðilsbandalag, skilyrði þess
og gagnsemi.
Ræddu um það mál fimm
menn — einn frá hverju
landi — Thorkil Kristensen,
fyrrv. fjármálaráðherra frá
Danmörku, Bruno Suviranta
próf frá Finnlandi, Gylfi Þ.
Gíslason próf. Knut G. Wpæd
skrifstofustjóri frá Noregi og
Erik Lundberg próf. frá Sví-
þjóð. Voru fulltrúar mjög á-
nægðir með umræður þessar.
—Mbl., 16. júní
— Gengur konunni þinni
betur að aka bílnum nú orðið?
— Það er mikill munur, við-
gerðirnar á bílnum síðasta
mánuð námu 5 þús. kr.!
BLOOD BANK
T H I S
SPACE
CONTRIBUTED
Ð Y
DnEW/tys
MAN ITOBA
D I V I S I ON
0
WESTERN
CANADA
BREWERIES
L I M I T E D
MD-366