Lögberg - 15.12.1955, Side 5

Lögberg - 15.12.1955, Side 5
 þurfti ég, starfs mín vegna, að fara töluvert um miðbæinn í höfuðstaðnum um jólahátíð- arnar. Ekki hafði það mest áhrif á mig að mæta vel búnu fólki og glöðum börnum á leið til góðra samfunda, þótt það væri ánægjulegt. Það snart mig meira að sjá fólk, sem ekki virtist eiga sér nein jól. Einmana og kuldaleg bárust þessi reköld mannlífsins um tómlegar göturnar, sem virt- ust vera eina athvarf þeirra. Mér fannst ég skilja það á- takanlega vel þá, hve sárt það er að vera jóllaus maður. Ég veit, að ein vingjarnleg kveðja gat orpið andartaks skini á þessi myrku andlit. En samúð alls samfélagsins hefði ein megn til að veita þeim gleðileg jól. Lætur af f lokksforustu Clement Richard Attlee hefir látið af forustu verka- mannaflokksins brezka og látið af sæti sínu í neðri mál- stofunni; hann hefir verið hafinn til jarlstignar með sæti í öldungadeildinni; hann er 72ja ára að aldri og hefir verið formáður flokks síns í 20 ár, forsætisráðherra í 6 ár, og setið 33 ár samfleytt á þingi. Um foringjastöðu flokksins koma að sögn einkum þrír til mála, þeir Hugh Gaitskell, f y r r u m fj ármálaráðherra, Herbert Morrison, fyrrum ráðherra og Aneaurin Bevan, formaður hins róttæka fylk- ingararms. Brezk blöð virðast nokkurn veginn á einu máli um, að Mr. Gaitskell verði hlutskarpast- ur, er 'til úrslita-atrennunnar kemur. CKristmas ot Hecla Island Á föstudaginn 23. desember, flytur C.B.C. útvarpskerfið ofangreindan útvarpsþátt; er hann liður á útvarpsskránni, sem nefnd er Trans-Canada Matinee. Peggy MacFarlane frá C. B. W. undirbjó þennan þátt. Kirkjusöngflokkur Mikl- eyjar syngur jólasálm, en frú Ingibjörg Jónsson flytur minningar um jólin í Mikley. Útvarpstíminn: C. B. W., Manitoba 3.33 P.M.; C. B. K., Saskatchewan 2.33 P. M.; C. B. N. Alberta 2.33 P.M.; British Columbia 1.33 P.M. Elzta kona í Rómaborg átti 110 ára afmæli nýlega. En nú, þegar aldurinn er orðinn svona hár, fullyrðir hún, að hún sé í raun réttri 6 árum eldri, þ. e. 116 ára. Kirkjubókin, sem í fyrstu geymdi nafn hennar, fórst í eldi, þegar hún var barn að aldri. Og svo þegar hún átti að segja, hvað hún væri gömul — það var þegar hún giftist — sá hún sér leik á borði að segja aldurinn nokkru lægri en hann var. — Upp koma svik um síðir. LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 15. DESEMBER 1955 • 5 „Þér dramblátra hugskotin hörðu, þér hörðustu þyrnar á jörðu, hví yður svo hátt upp þér hreykið og hreykin til glötunar reikið?" segir í gömlum jólasálmi. Látum ekki þessa hörðustu þyrna á jörðu snúa að sam- ferðamönnum vorum, þegar klukkurnar hringja inn jóla- helgina fornu á þessum jólum. Leyfum heldur hátíð samúð- arinnar að verma handtakið, þegar vér bjóðum- nágrann anum GLEÐILEG JÓL! Nytsöm bankaþjónusta Hér er um sex greinar að ræða, sem á einn eða annan hátt fullnægja þörfum yðar. Sparisjóðsdeild Hlaupareikningur Öryggishólf Bankaávísanir Ferðaávísanir Öryggisþjónusta Viðskipti yðar eru kærkomin ' THE ROYAL BANK OF CANADA Hvert útibú nýtur trygginga allra eigna bankans. sem nema yíir $2,675.000.000. % Wishing you happ your home and abiding peace in every nation throughout the world T'mKían'í’Bíe Ædtnpsnj. * ---- !1M MAV -■■■■.Ö™HN1 SV^SIH„0

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.