Lögberg - 27.06.1957, Blaðsíða 1
SAVE MONEYI
use
LALLEMAND
quick rising
DRY YEAST
In y4 Lb. Tins
Makes the Finest Bread
Available at Your Favorite
Grocer
SAVE MONEYI
use
LALLEMAND
quick rising
DRY YEAST
In Va Lb. Tlns
Makes the Finest Bread
Available at Your Favorite
Grocer
70. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 27. JÚNI 1957
NÚMER 26
Skipaður búnaðarráðunautur
Dánarfregn
Þungar búsifjar
Lýkur meistaraprófi
Búnaðarmálaráðherra Mani-
toba-stjórnarinnar, Hon. C. L.
Shuttleworth tilkynnti á föstu
daginn, að þessi efnilegi, ungi
Islendingur hefði verið skip-
aður ráðunautur bænda í
fylkinu; mun hann aðstoða þá
við að leysa bústjórnarvanda-
mál þeirra. Var til þessa em-
bættis stofnað samkvæmt til-
lögu þingnefndarinnar í bún-
aðarmálurh.
Mf. Kristjánsson er fæddur
á Gimli, sonur hinna mætu
hjóna, Hannesar heitins kaup-
manns og Elínar Kristjánsson,
og er frábær námsmaður svo
sem þau systkini öll. Hann út-
skrifaðist í búnaðarfræði frá
North Dakota State College
og tók meistarastig í bústjórn
—Farm Management — við
háskólann í Nebraska. Hann
Mrs. ísfeld fer til
Nova Scot-ia
Mrs. Eric A. ísfeld, forseti
Canadian Federation of Music
Teachers’ Associations, leggur
af stað til Nova Scotia í dag,
fimmtudag, en þar stjórnar
hún þingi, sem þessi félags-
samtök halda annað hvort ár;
það verður í þetta skipti í
Acadia-háskólanum í Wolf-
ville, N.S., dagana 2. til 6. júlí.
Stofnað var til þessara sam-
taka hljómlistarkennara árið
1935, og ná þau nú yfir flest
fylkin í Canada. Einn aðal-
ræðumaðurinn á þinginu
verður forseti háskólans, Dr.
Watson Kirkconnell.
Mrs. ísfeld hefir í hyggju að
nota tækifærið og heimsækja
hið forna landnám Islendinga
á Elgshæðunum, sem eru um
50 mílur frá Halifax. Þar
avaldi móðir hennar, Snjólaug
Jónsdóttir Eiríksson, í 3 ár,
þegar hún var barn að aldri,
en Snjólaug og skáldið Jóhann
Magnús Bjarnason, sem hefir
lýst þessum stöðvum svo vel í
sögum sínum, voru systra-
börn.
Kveðjur
frá Forsela íslands til
Vestur-íslendinga
Þjóðræknisfélagið sendi
Forseta Islands, herra Ásgeir
Ásgeirssyni, heillaóskaskeyti
í tilefni af lýðveldisdeginum
17. júní, og hefir borizt eftir-
farandi símkveðja til forseta
félagsins, dr. Richards Beck:
Reykjavík, 21. júní 1957
Kærar þakkir fyrir heilla-
óskir þjóðhátíðardaginn. —
Kveðjur til Vestur-íslendinga.
Ásgeir Ásgeirsson
Lúler Burbank Kristjánsson
er nú að ljúka námi við Wis-
consin háskólánn og mun
verja þar doktors-ritgerð sína
í búnaðarhagfræði. — Lúter
Burbank Kristjánsson tekur
við embætti sínu 1. ágúst.
1 lok maímánaðar lézt í
Duluth, Minn., frú Ingveldur
Ingimundardóttir, 98 ára að
Thorsteinsson, missti hún fyr-
ir mörgum árum og hafði hún
dvalið hjá dóttur sinni og
tengdasyni, Mr. og Mrs. Ed
Benson, 917 — llth Ave.
East Duluth, og notið þar
mikils ástríkis. Auk dóttur
hennar Mörthu, lifa hana
dótturdóttir, Sandra Jean
Benson; sonarsonur, Peter
Thorsteinsson, og fjögur syst-
urbörn: Skúli M. Bachman,
Winnipeg, Mrs. J. Augusta
Tallman, Toronto; Mrs. Clara
Henrickson, Selkirk; og Ingi-
mundur Hallgrímsson Bach-
man á íslandi.
Ingveldur sáluga var síðust
af íslenzka landnámsfólkinu í
Duluth til að kveðja þennan
heim.
Síðastliðinn fimtudag veittu
hamfarir náttúruaflanna hinni
vingjarnlegu borg, Fargo, í
North Dakotaríkinu þungar
búsifjar, með því að þá reið
fellibylur mikill yfir borgina,
er lagði sum hverfi hennar í
rústir, tólf manns létu lífið,
þar á meðal sex í einni fjöl-
skyldu og á annað hundrað
manns sættu meiri og minni
meiðslum; á þriðja þúsund
manns standa uppi án hús-
næðis, að því er blaða og út-
varpsfregnir herma. Eisen-
hower forseti hefir lýst borg-
ina í neyðarástandi og þar af
leiðandi á hún tilkall til að-
stoðar af hálfu hins opinbera.
Borgarstjórinn í Winnipeg,
Mr. Stephen Juba, hefir boðið
bæjarstjórninni í Fargo aðstoð
eins fljótt og þar að lútandi
skipulagningu verði viðkomið.
Anna Johnson
hlýfur medalíu
Við uppsögn Gimli-skólans
hlaut Anna Johnson medalíu
landstjórans (Governor Gen-
eral’s Medal) fyrir frábæra
námshæfileika og ástundun. I
fyrra var hún fremst í 11.
bekk og hlaut Ibister verð-
launin. Hún hefir tekið mik-
inn þátt í félagslífi skólans:
var í nemendaráðinu, ritstjóri
ársbókar skólans, tók þátt í
leikstarfsemi og mælti fyrir
munn skólasystkina sinna við
þessa athöfn.
Móðir Önnu er Mrs. Stein-
unn Johnson dóttir Önnu og
Sigurjóns Jóhannssonar frá
Sóleyjarlandi, Gimli, en faðir
hennar var Sveinberg heitinn
Johnson, sonur Guðrúnar og
Sigurjóns Johnson frá Odda í
Árnesbyggð.
Canadiski dollarinn
Sú var tíðin að Canada-
menn áttu erfitt með að
skipta dollurum sínum, þegar
þeir ferðuðust til Bandaríkj-
anna og annara landa. Nú er
öðru máli að gegna. Canadíski
dollarinn er nú kominn upp í
$1.05 á peningamarkaði heims-
ins. Þetta getur stundum ver-
ið tap fyrir þá í Canada, sem
innheimta fé frá öðrum lönd-
um. Fái til dæmis Lögberg
$5.00 seðil frá Bandaríkjunum
sem ársgjald fyrir blaðið, þá
fær það aðeins $4.75 fyrir
hann, en margir áskrifendur
þar syðra taka þennan mis-
mun til greina og bæta við
þessum aukacentum, þegar
þeir skrifa út ávísanir sínar.
Helgi Auslman. M. Sc.
Þessi bráðefnilegi maður er
sonur þeirra Mr. og Mrs.
Austman í Árborg; hann
stundaði síðan í haust nám í
landbúnaðarvísindum við há-
skólann í Wisconsin og lauk
þar nýverið Master of Science
prófi með ágætiseinkunn.
Mr. Austman gegnir pró-
fessorsembætti við landbún-
aðardeild Manitobaháskólans
og nýtur hvarvetna hins
ágætasta orðstýrs.
Nýja sambands-
róðuneytið
Forsætis og utanríkisráðherra,
John Diefenbaker.
Mannvirkjaráðherra,
Howard Green.
Fj ármálaráðherra,
Donald Fleming.
Ráðherra hermannamálefna,
A. J. Brooks.
Samgöngumálaráðherra,
George Hees.
Lögfræðilegur ráðunautur,
Leon Balcer.
Hervarnaráðherra,
Maj. Gen. ö. R.Parkes.
V erzlunarmálaráðherra,
Gordon Churchill.
Dómsmálaráðherra,
Davie Fulton.
Tekj umálaráðherra,
George Nowlan.
Ráðherra norðanlandsmála,
Douglas Harkness.
Ríkisritari,
Mrs. Ellen Fairclough. ,
Fiskiveiðaráðherra,
Angus Maclean.
Verkamálaráðherra,
. Michael Starr.
Póstmálaráðherra,
William Hamilton.
Ráðherrar án sérstakra stjórn-
ardeilda:
J. M. Macdonnell og
William J. Brownie.
Brot úr ''Grettlu77
i
Þorbjörn öngull, þú mátt flýja —
þín skal rekja flóttaspor: —
On’í jörðu, upp til skýja,
aldrei skal mig bresta þor.
— Miklagarði metorðanna —
margur öngull dulinn var. —
Útlit þitt mun svik þín sanna,
og saxið — það sem Grettir bar. —
II
Er við bræður sváfum saman,
sá ég Grettis vöðva-kraka:
Hann að mínum henti gaman,
hugði naumast konu maka. —
III -
Flaug að mínum hugar-hlera —
hugmynd, sem ég varð að nefna:
Mjóir vöðvar mínir bera
magn — og þinna sveru hefna. —
Annars mun það enginn gera!
IV
Þeir eru mjóir — þó skal hefna,
Þorbjörn öngull fellur ber: —
Miklagarði yrkisefna —
einhver Spes mun bjarga mér. —
Hvar sem sýnir þú á þingi
þetta vopn með skarð og ryð:
— Kolli þínum því ég klyngi —
þó að enginn veiti lið. —
Fangabúðir fordæminga —
fjörga skal með tón við brag:
Hvað sem helgir hlýrar þinga,
hinir taka undir lag — lag. —
Líkin sem að lífs-mörk hafa,
lifna við — úr undir-heim:
Hlýir tónar grunninn grafa,
góðlynd Spes — hún bjargar þeim.
—JAKOB J. NORMAN