Lögberg - 14.11.1957, Blaðsíða 1
70. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 14. NÓVEMBER 1957 NÚMER 46
Frá Vancouyer, B.C
— 6. NÓVEMBER, 1957 —
Kæru vinir,
Ingibjörg og Einar:
Okkur hér vestra þætti
vænt um, ef þið vilduð birta
kvæðin og eftirfarandi í ykkar
heiðraða blaði.
Sextíu ára hjúskaparafmæli
áttu þau 24. júlí síðastliðinn
heiðurshjónin Halldóra Geir-
finnsdóttir og Þórður Helga-
son í Vancouver, B.C. Þenn^n
mánaðardag 1897 voru þau
gefin saman í hjónaband í
Winnipeg af sr. Jóni Bjarna-
syni. Fyrstu þrjú hjúskapar-
árin bjuggu þau í Winnipeg,
en síðan um mörg ár að Lauf-
ási í Framnesbyggð; þaðan
fluttu þau síðan til Vancouver
og hafa átt hér heima í 17 ár.
Fjórar dætur þeirra eru á lífi:
Regina Erickson í Minne-
apolis, Helga Johnson í Van-
couver, Halldóra Bradley í
Penticton og Ingirid Mc-
Donald í Vancouver. Eru
þessar dætur' þeirra fríðar og
velgefnar og eins voru börnin,
sem dáin eru-
Sjálfur brúðkaupsdagurinn
var haldinn hátíðlegur er
dætur þeirra hjónanna, nán-
asta skyldfólk og tengdafólk
heimsóttu þau og færðu þeim
fagrar gjafir.
Svo var haldin mikil veizla
þeim til heiðurs laugardags-
kvöldið 28. júlí og fór veizlan
fram í samkomusölum elli-
heimilisins Höfn. Var þar
margt manna samankomið,
bæði yngra og eldra og mikið
um dýrðir. Góðvinur Helga-
sons-fjölskyldunnar, hr. Frank
Friðriksson var veizlustjóri.
Bauð hann gesti velkomna og
ávarpaði brúðhjónin með
nokkrum hlýjum ávarpsorð-
um. Þá las hann upp heilla-
skeyti, er þeim hjónum bár-
ust, frá Hennar Hátign Elía-
betu Englandsdrottningu, for-
sætisráðherra Canada, hr. J.
Diefenbaker, forsætisráðherra
Brynjólfsson ávarpsorð og
British Columbia hr. W. Ben-
nett og fylkisstjóranum í B.C.
Awarded a
Scholarship
Mr. Morley Stefanson, son
of Mr. & Mrs. Helgi Stefanson
of Riverton, has recently been
awarded the International
Nickel Company scholarship.
Morley is in 2nd year
Engineering at the University
of Manitoba.
hr. Frank M. Ross. Ennfremur
barst heillaskeyti frá frú S.
Árnason, er um þær mundir
dvaldist í Ontario. Að loknum
lestri heillaskeytanria afhenti
hr. Friðriksson þeim hjónum
’heillaávarp undirritað af
veizlugestum og peningagjöf.
Voru þessar kveðjur þakkaðar
af öllum viðstöddum. — Þá
flutti ávarp til þeirra hjóna
hr- Gunnlaugur Holm og
minntist margs frá langri og
góðri viðkynningu. Ennfrem-
ur las hann prýðisfallegt
kvæði, er Sveinn læknir
Björnsson hafði ort til þeirra
hjónanna í tilefni dagsins. —
Var ávarp Gunnlaugs hið
snjallasta og vel flutt. — Þá
las Páll skáld Bjarnason af-
mæliskvæði þar sem hann
lýsir lífsstarfi Helgasons-
hjónanna í blíðu og stríðu. —
Ennfremur flutti sr. E. S.
þakkaði góða viðkynningu og
gestrisni þeirra hjóna hér í
Vancouver. Sátu veizlugestir
meðan þessu fór fram við
fagurlega skreytt veizluborð.
Veitingarnar, sem fram voru
bornar, voru frábærlega höfð-
inglegar og skreytti fögur af-
mæliskaka veizluborðið. Sáu
þær aðallega um veitingarnar
Mrs. Bjarni Erickson, bróður-
dóttir frú Halldóru, og systur-
dætur hennar, Halldóra og
Ragnheiður Sigurðsson.
Er staðið var upp frá borð-
um flutti Sr. Philip M. Péturs-
son frá Winnipeg hamingju-
óskir og sýndi fagra litkvik-
mynd frá Islandi, og allir
höfðu ánægju af því að sjá
hana. Skemmti fólk sér við
samræður fram eftir kvöldi.
Bar þetta allt fagran vott um
virðingu, ræktarsemi og hlý-
hug. — Þakka þau Helgasons-
hjónin innilega öllum, er
gerðu þeim sextíu ára brúð-
kaupsdaginn ógleymanlegan.
Minningin um hann mun lifa
lengi með birtu og yl.
E. S. Brynjólfsson
Awarded a
Scholarship
Miss Healher Sigurdson
At a regular meeting of
Jon Sigurdson Chapter, IODE,
held at the home of Mrs- Paul
Goodman, Friday Nov. lst,
Miss Heather Alda Sigurdsön
was the recipient of the
Chapters Musical Scholarship
in University of Manitoba
School of Music.
Mrs. E. W. Perry educa-
tional secretary made the pre-
sentation. She, on behalf of
the Chapter, wished Miss
Sigurdson success in her
Musical Career, and hoped
that her every step would be
blessed on the road which she
was already treading, the road
of good Citizenship.
This is the second year Miss
Sigurdson has won the
Scholarship. — She is the
daughter of Mr. & Mrs. J.
Sigurdson, 944 Garfield St.
Úr borg og bygð
— DÁNARFREGN —
Frú Magný Helgason, 664
McMillan Ave., lézt á mánu-
daginn á Grace spítalanum.
Hún var 73 ára að aldri. Hún
var útlærð hjúkrunarkona og
lagði stund á hjúkrunarstörf
fram að síðustu árum. Hún
var meðlimur Fyrsta lúterska
safnaðar. Hana lifa þrjár
dætur: Violet, Mrs. George
Scott og Mrs. Ralph Scott. —
Útförin fer fram í dag (fimtu-
dag) frá Fyrstu lútersku
kirkju. Dr. V. J. Eylands flyt-
ur kveðjumál.
☆
— DÁNARFREGN —
Á fimmtudaginn í vikunni,
sem leið, lézt að heimili sínu
Suite 5, Pasadena Court hér í
borginni Ágúst J. Vopni 91 árs
að aldri, um langt skeið stór-
bóndi í Swan River bygðinni,
einn hinna mörgu og mikil-
hæfu Vopna-systkina frá
Falleg samkoma
Samkoma „Fróns“ s.l. mánu
dagskvöld var fjölsótt og
tókst hið bezta á allan hátt.
Forseti, Jón Jónsson, setti
samkomuna með stuttri ræðu
og lét samkomugesti minnast
fallinna hermanna með þagn-
arstund. Haraldur Bessason
prófessor mælti þá nokkur
inngangsorð og skýrði tilgang
samkomunnar, sem var að
minnast afmælis Jónasar
Hallgrímssonar. Flutti þá dr.
Richard Beck prófessor fróð-
legt og skörulegt erindi um
skáldið mikla, sem jafan mun
talinn einn af vormönnum ís-
lands. — Ungfrú Ingibjörg
Bjarnason söng með mestu
prýði lög, sem Sigvaldi Kalda-
lóns hafði samið við nokkur
af kvæðum skáldsins; en frú
Hólmfríður Danielson las upp
úr ljóðum hans. — Ungfrú
Sigrid Bardal aðstoðaði við
sönginn, og spilaði undir þjóð-
söngvana í samkomulok-' —
Margir munu minnast lista-
skáldsins góða, en hvernig
ber að skilja ráðgátuna í vísu
Gríms um Jónas:
Islands varstu óskabarn
úr þess faðmi tekinn,
og út á lífsins eyðihjarn
örlagasvipum rekinn.
Böðvarsdal í Vopnafirði; hann
lætur eftir sig konu sína,
Maríu, fjórar dætur, Mrs. J.
Huppe, Mrs. Sigurlaug Sigurd-
son, Mrs. Berthu Gillies og
Mrs. A. Carmichael, einnig
fjóra sonu, Walter, Arthur,
Halldór og Ágúst; tvær systur
lifa, bróður sinn, þær Mrs.
Sigurjón Sigurdson og Mrs.
Sigurbjörn Sigurdson, svo og
tveir bræður, Carl og Sigfús-
Útförin var gerð í Swan
River undir umsjón Bardals.
☆
Herbergi vantar
Einhleypur íslendingur
óskar eftir björtu og hlýju
herbergi með húsgögnum,
helzt milli Kennedy og Sher-
brook, suður af Ellice Ave.
Símið WH. 3-4922 frá 6 til
6 e. h.
☆
Snjólaug Sigurdson will be
heard in recital on Station
C.B.W. on Tuesday 19th at
7.30 p.m- Her program will
consist of works by Brahms
and Liszt.
Þórður og Halldóra Helgason
A sextugasta giftingar-afmæli þeirra, 24. júlí, 1957
1 sögunnar dálkum er sigranna minst,
Og sæmdin er eignuð þeim háu;
En hrósið er minna, og færra þar finst
Um fálátu risana lágu.
Þótt foringjum beri sú vinsemd og völd,
Sem veitast til lofs hinna fáu,
í hljóði var starfað, við kjörbýti köld,
Af köppunum mörgu og lágu.
Og Þórður var einn af þeim óbreyttu hér,
Sem auðunnar grettistök hófu;
Sem öfluðu þekkingar sínum og sér
Og samúðar-þræðina vófu.
Hann ræktaði jörðina, reisti sér hús,
Og ráðleg og mörg var hans iðja.
Við sveitarmál öll var hann framtaka-fús
Og fljótur hvert góðmál að styðja.
En aleinn við starfið hann varla þó var,
Því valið ’ann fékk hana Dóru,
Sem oftlega þungann í baslinu bar
Og bætti úr smáu og stóru.
Um skólanám þeirra ég þarf ekki sögn,
Því þau geymdu „Stephán“ í ranni;
Og hver, sem að grúskar í Andvökum ögn,
Er orðinn að hálærðum manni.
Að leggja til grunninn að þjóðheill og þörf
Mun þakkað að lokum, sem skyldi;
Því eðlið að þjóna við þesskonar störf
Var þörfin, svo byggingin tyldi.
Um fimm árin tólf hefur samvinna sú
í sögunni flekklaus nú staðið.
Og langt verður þangað til — það er mín trú —
Að þrykt skal á síðasta blaðið. —P. B.