Lögberg - 14.11.1957, Blaðsíða 7
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 14. NÓVEMBER 1957 •
7
Hinn mikli styrkur sigrar
meinin vönd
Án innra afls er maðurinn
enginn maður, strá sem berst
með straumi, rekabútur, sem
enginn veit hvert fer eða
flækist. Erfðir hafa hér auð-
vitað mikið að segja, um-
hverfi einnig og uppeldi. Af
öllu þessu mótast í aðaldrátt-
um starfsval mannsins og lífs-
hugsjón. Fleira kemur hér og
úrvalsmönnum til góða, þ. e.
óvenjulega náið og traust sam
band við uppsprettu lífsins,
við Guð. Það eru þeir, sem
Guð útvelur sem sína menn,
og höndlaðir verða af Kristi.
Þeim verður allt auðvelt um
eigin hag. Þeir eru bljúgir
menn, en samhliða styrkar
hetjur fyrir kraft Guðs, sem
þá styrka gerir, til blessunar
fyrir ótalda Islendinga. Oft
leiddir með undursamlegum
atvikum á nýjar brautir eða
nýja staði, til þess að bera
vitni almætti Guðs og óend-
anlegum kærleika. Þessir
menn verða oft reyndir á
margvíslegan hátt. Hvort þeim
sé trúandi, treystandi til þess
að standa stöðugir, og bregð-
ast hvorki sjálfum sér né
mönnunum, sem Guð hefur
útvalið þá til að leiðbeina,
stækka og gera sterka, til þess
að ganga beina braut lífsins,
sjálfum sér til heilla, og sem
flestum öðrum til blessunar.
Einn Akurnesingur hefir
orðið þeirrar náðar og giftu
aðnjótandi, að verða trúverð-
ugur ljósberi Guðs í þessari
sveit, svo að fjöldi manns í
fjarlægri heimsálfu efast ekki
um einlægni hans, og náið
samband við uppsprettu kraft-
arins.
Þessi maður er Sveinbjörn
Sigurður Ólafsson frá Hala-
koti á Akranesi. Hann er f-
þar 24. nóv. 1897, og er því
sextugur á þessu hausti. For-
eldrar hans voru: Anna Svein-
björnsdóttir frá Bygggarði,
Guðmundssonar bónda á Hvít
árvöllum, Sveinbjörnssonar,
en Guðmundur þessi Svein-
björnsson var hálfbróðir
Þórðar háyfirdómara Svein-
björnssonar, föður Svein-
bjarnar tónskálds, er samdi
hið fagra lag þjóðsönginn
okkar. Faðir Sveinbjarnar
Ólafssonar var hins vegar
Jóns Ikaboðsson, ættaður úr
Dölum vestur.
I 9.—10. tbl. „Akraness“
1949 hefi ég ritað nokkuð um
síra Sveinbjörn og upphafs-
mann Metodistakirkjunnar —
John Wesley, en það verður
ekki endurtekið hér. Það
virðist eins og hann hafi verið
leiddur út í prestsskapinn
styrkum, öruggum skrefum,
sem þó eiga djúpar, varan-
legar rætur í fyrstu bernsku
hans hér á Akranesi öllu öðru
fremur. Bundnar órjúfanleg-
um böndum minninga við
ljósum prýdda kirkjuna hans,
þar sem hann var ungur færð-
ur Guði í skírninni.
í Reykjavík var hann í
kirkju hins landskunna pré-
dikara, síra Ólafs fríkirkju-
prests, en þaðan man hann
lítið. Hann var í Jóns Bjarna-
sonarskóla vestanhafs, og
veldur sumt af verkefnunum
þar honum glímuskjálfta til
að byrja með. Þar er hann
undir öruggri handleiðslu úr-
valsmanns, dr. Rúnólfs Mar-
teinssonar, þar sem gagn-
kvæm vinátta og traust mynd-
ast. Eftir þetta gekk hann í
háskóla Metodista í Ameríku,
þar sem honum fannst hann
fá svar við mörgum vafa-
spurningum, sem til þessa
höfðu ónáðað hann og valdið
honum nokkrum áhyggjum.
Nokkru síðar gerðist Svein-
björn prestur Metodista, og er
það enn. Sveinbjörn á því láni
að fagna, að vera vakandi
maður í starfi og sívaxandi,
virtur og viðurkenndur, enda
vinnur hann af allri orku, er
sífellt veitir meiri styrk og
unað, um leið og það magnar
aðra til manngildis og góðra
verka.
Presturinn og boðskapurinn,
er honum allt, og þar af sprett-
ur hið giftudrjúga starf, sem
í söfnuði hans vekur ást og
virðingu fyrir manngildi hans
hans og fórnfúsu heilshugar
starfi. Þannig er síra Svein-
björn traustur verkamaður í
víngarði Drottins, þar sem
hann laðar og leiðir yngri og
eldri honum á hönd, svo að
þeir öðlist frið hjartans, og
gæfu og gengi á braut lífsins,
sem aftur leiðir til víðtækari
blessunar einstaklinga og kyn
slóða. Þannig lætur einlægt
heilshugar starf sig ekki án
vitnisburðar. í því er falinn
frjóvgunarkraftur og fyrir-
heit, sem vinnur stóra sigra og
veitir umbun bæði hér og
annars heims.
Fullreyndir menn fara
venjulega fremstir, og þeim
verður mest ágengt í lífinu.
Þeir vinna stærsta og varan-
legasta sigra hvort sem það er
gert í fámennum söfnuði í frið
sælum reit, eða í víðari verka
hring, þar sem þrumuraust
skekur heilar þjóðir og færir
þeim frið ,og andlegt frelsi.
Þegar síra Sveinbjörn var
hér heima á sinni pílagríms-
göngu 1949, sagði hann mér
ýmislegt af starfi sínu »og
starfstilhögun. Hann — og
aðrir prestar Vestanhafs —
haga því mjög á annan veg
en hér heima. Hann er fyrst
og fremst prestur — eingöngu
prestur. — Það er ekki auka-
starf eða eyðufyllir — einn
dag í viku, — frá litlu eða
engu prestlegu starfi hina sex
daga vikunnar. Nei, sunnu-
dagurinn er hámark starfsins
yfir vikuna, undirstrikun þess,
og oft glampi þess geisla, sem
upp af því sex daga starfi hef-
ir vaxið. Raunveruleg prédik-
un og boðskapur, sem nær til
hjarta safnaðarins, fyrst og
fremst af því að hún er til
orðin fyrir innsæi, það sem
presturinn öðlast af beinni
snertingu við fleiri eða færri
í þjónustu hans á vegum safn-
aðarins umliðna viku. Alla
daga, vikur og ár, er góður
prestur þannig að byggja með
söfnuði sínum sameiginlegt
heilagt starfshús, vígt virki-
leikanum í lífi fólksins og
starfi, af fingri Guðs sjálfs,
sem hvorki lætur prestinn eða
það, án vitnisburðar. Þetta
sameiginlega hús er líf og
starf fólksins, heimili þess,
sorg þess og sæla, en það
kemur svo saman ásamt prest-
inum í kirkju sinni — sem er
helgidómur hins sameiginlega
húss — til að styrkjast í
trúnni, og þakka Guði fyrir
vernd og varðveizlu, og fyrir
heilshugar starf góðs prests,
sem aldrei ann sér hvíldar frá
köllun sinni, vegna Guðs og
mannanna. Upp af slíku starfi
vex mikill meiður, sem mörg-
um gróðri hlífir og markar
mikil og djúptæk spor í lífi
manna og þjóða á þessari jörð.
Nokkru eftir að síra Svein-
björn var hér á ferð, varð hann
fyrir þeirri raun að missa
sjón á öðru auga. Varð hann
þá að taka sér hvíld um sinn,
og hélt jafnvel' um tíma, að
starfstíma sínum væri að fullu
lokið á hinum prestslega vett-
vangi. Söfnuði Sveinbjarnar
varð þetta ef til vill enn
þyngri raun en honum sjálf-
um, ef svo ætti að fara. Hvað
átti hann að gera? Hann hefur
sjálfsagt ráðgast um þetta við
Guð sinn. Þangað hefur hann
sótt ráð og styrk, sem heldur
lét hann ekki án vitnisburðar.
Öðru auganu hélt hann. Þó
er styrkur þess ekki meiri en
svo, að hann getur helzt ekki
lesið eða skrifað, a. m. k. ekki
neinu sem nemur- Hann getur
þó keyrt bíl sinn, og þetta
gefur honum meira og betra
tækifæri til að lifa í nánara
samfélagi og snertingu við
söfnuð sinn, sjúka menn og
heilbrigða, börn og gamal-
menni. Af þessum sökum
hefur hann orðið að leggja
alla skrifaða ræðumennsku á
hilluna.
Þrátt fyrir allt þetta, sem
ýmsir prestar mundu hafa
talið nægjanlegt áfall og af-
sökun til þess að hætta starfi
og komast á eftirlaun, eftir
langt og vel unnið starf, hefur
Sveinbjörn ekki farið þannig
að. Hann heldur þvert á móti
áfram prestsskap eins og ekk-
ert hafi ískorizt. Hann vinnur
öll störf sín í söfnuðinum
eftir sem áður. í stað þess að
skrifa ræður sínar áður, flytur
hann þær nú blaðlaust.
Þarna er manndómur á ferð,
traust og trúnaður, bjargföst
trú á föðurforsjón Guðs og
handleiðslu. Maður, sem auð-
sjáanlega telur sig kallaðan,
til starfs og þjónustu við
mennina, sem í fullreynd lífs-
ins fær aukinn styrk til áhrifa
ríkari þjónustu en nokkru
sinni fyrr. Hann er einn af
þeim, sem nægir náð Guðs, og
fær umbun í ríkum mæli í
samræmi við það, öðrum til
trausts og halds, jafnframt
því sem það fyllir sál hans
sjálfs friði og fögnuði, yfir því
að fá enn um stund að reka
erindi hins hæsta, meðal
þeirra, sem þess þurfa með.
I aprílmánuði s.l. voru hér
á ferð kona séra Sveinbjarnar
og dóttir, á leið sinni til Ev-
rópu. Þær máttu til að heim-
sækja föðurland Sveinbjarn-
ar, því að svo mikið hafði hann
sagt þeim um þetta undra-
land. „Þangað megið þið þó
ekki koma, án þess að sjá
Akranes“, sagði hann. Þær
stóðu hér aðeins við tvo daga,
þar af annan á Akranesi. Hann
gaf þeim ýmsar leiðbeiningar
í þessu sambandi og sérstaka
forskrift um það, hvað þær
ættu að skoða, og festa sér í
minni á Akranesi. Allt þetta
héldu þær dyggilega, sem
þegar heim kemur, veitir hon-
um mikla fróun og hugsvölun,
því að helzt lítur út fyrir, að
hér lifi hann til hálfs, þótt
hann hrærist í annarri heims-
álfu.
Kona Sveinbjarnar er
myndarkona, menntuð og
geðug. Það er dóttir þeirra
einnig, sem er nú útlærð
hjúkrunarkona. Báðar vinna
þær af alhug með síra Svein-
birni að hinum ýmsu verk-
efnum safnaðarins, sérstak-
lega meðal hinna ungu, sem í
Ameríku er lögð höfuð-
áherzla á. Þar eru þeir um-
fram allt á réttri leið, því að
þar sem engin rækt er lögð
við kristlegt uppeldi æsku-
lýðsins, og heimilin eru af-
skiptalaus um þá hlið undir-
stöðuatriða góðs þjóðfélags,
vex aldrei upp nema nafn-
kristin þjóð.
Þetta á að vera kveðja til
síra Sveinbjarnar fyrir sendi-
boða hans í heimsókn til Akra
ness, sem hann ann svo mjög
ásamt sínu föðurlandi- En um
leið á það að vera heillaósk
frá fæðingarbæ hans á sextugs
afmæli hans á komandi hausti,
með þökk fyrir dáðríkt ævi-
starf, fæðingarbæ hans og
landi til mikils sóma. Það er
ekki ónýtt að eiga slíka sendi-
herra með framandi þjóðum.
Að eiga marga slíka fulltrúa,
sem sá og uppskera undir
merkjum Guðs, getur gert
hinar minstu þjóðir að stór-
veldi á hinum eina rétta vett-
vangi, mennta og mannlegra
dyggða.
Þökk fyrir manndóm, dyggð
og drengskap, kæri vinur.
Ól. B. Björnsson
—AKRANES
VÉR BROSUM —
Tveir prófessorar ræddu
um verðbólguna.
— Allt stígur upp úr öllu
valdi. Þetta vex okkur allt
yfir höfuð, áður en lýkur,
sagði annar.
— Ég er þér ekki sammála,
sagði hinn. — Það vex ekki
allt. Ekki vex virðing mín
fyrir þér, og ekki vex virðing
þín fyrir mér, og ekki vex
virðing stúdentanna á okkur-
—0—
Öldruð kona ein hafði feng-
ið peningaávísun frá frænda
sínum, og fór nú með ávísun-
ina í bankann, til þess að fá
hana útborgaða.
— Viljið þér vera svo vænar
og skrifa á ávísunina, sagði
gjaldkerinn.
— Hvernig á ég að gera
það? spurði konan.
— Þér skulið bara skrifa
nafnið yðar aftan á ávísunina.
Skrifið þér bara alveg eins og
þér gerið þegar þér skrifið
undir bréf.
Konan gekk að næsta borði
og skrifaði hægt og vandlega
aftan á ávísunina og fékk
gjaldkeranum hana síðan. —
og þar las hann eftirfarandi:
„Með hjartans be^ztu kveðju,
frá Agnesi frænku.“
— Konur geta verið mjög
ósanngjarnar, sagði eiginmað-
urinn angurvær. .
— Nú, hvernig þá? spurði
kunningi hans.
— Fyrst sagði Elsa, að ég
meðhöndlaði sig eins og hund
— og svo beit hún mig.
—0—
— Ég vinn fyrir sex, sagði
maðurinn, sem var að sækja
um nýja atvinnu.
— Nú held ég að þér gortið,
svaraði forstjórinn.
— Það er dagsatt, svaraði
maðurinn. — Ég á konu og
fimm börn.
Dremys
M.D. 388