Alþýðublaðið - 24.08.1960, Qupperneq 3
vegna svika
útgerðarmanna
MIKIL ólga er nú meðal
sjómanna á dagnótabátum
frá Reykjavík þar eð þeir
telja útvegsmenn ekki fást
til þess að greiða það verð
fyrir dragnótaaflann, er
þeir hafi rætt um í upp-
hafi. Hefur einn bátur,
„Auðbjörg, þegar stöðv-
azt af þess.um sökum og
við stöðvum liggur hjá
fleirum.
AlþýðublaSið átti í gær tal
við nokkra sjómenn af drag-
nótabátum um þetta mál.
Sjómennirnir sögðu, að þeg-
ar þeir hefðu ráðið sig á drag-
nótaveiðarnar hefðu þeir geng-
ið út frá, að verð það, er frvsti-
húsin mundu greiða fyrir drag
nótaaflann, yrði skiptaverðið.
Nú hefði það hins vegar skyndi
lega komið upp á teninginn, að
útgerðarmenn hyggðust aðeins
greiða fiskverð samkv. samn-
'FIMM ára drengur, Örn Ósk
arsson, varð fyrir bifreið á
horni Ránargötu og Garða-
strætis kl. 16.14 í gærdag.
Hann var fluttur á Slysavarð
stofuna. Drengurinn hafði
hlotið meiðsli á höfði, en þau
voru ekki alvarleg, að því er
séð varð.
Bana-
slys
ÞAÐ slys varð á mánudags
morgun, að 58 ára gamall mað
ur, Jón Valgeir Hallvarðsson,
féll úr stiga. Hann hlaut slík
meiðsli, að hann lézt nokkru
síðar af völdum þeirra.
Slysið varð með þeim hætti,
að Jón var við vinnu við hús
í Herskálahvierfi. Hann hafði
reist stiga upp við húsið og
stóð hann á búkka“.
Jón var efst í stiganum þe.g
ar, búkkinn" sveik. Fallið
sem Jón hlaut er um 2.50 métr
ar. Hann var fluttur á Slysa-
varðstofuna og þaðan að lok
inni bráðabirgðara'nnsókn á
Landakotsspítala.
Þar lézt Jón um þrem tím
um síðár af völdum meiðsl
anna sem hann hlaut við fall
ið.
ing ASÍ og LÍÚ um fiskverðið.
Telja sjómennirnir þetta svik
þar eð fiskverðssamningur ASÍ
gerí aðeins ráð fyrir flokkun
fisks eftir stærð og þyngd en
ekki eftir gæðum. Við flokkun
á kola er hins vegar lögð aðal-
áherzlan á flokkun eftir pæð-
ANNAÐ UPPGJÖR
ÚTI Á LANDI.
Sjómennirnir sögðu einnig,
að úti á landi væri öðru vísi
gert upp. Þar fengju sjómenn
víðast fullt verð. Þeir bættu við
að lokum, að auðskilið væri,
hvers vegna útvegsmenn hefðu
keppzt svo mjög eftir leyfi til
dragnótaveiðanna ef ætlunin
væri að hýrudraga sjómenn-
ina. Bentu þeir á, að dragnóta-
veiðar væru mjög kostnaðar-
litlar og því engan veginn sann-
gjarnt að leggja fiskverðssamn
inga ASÍ til grundvallar við á-
kvörðun skiptaverðs á dragnóta
veiðunum.
AFLI MINNI.
Alþýðublaðið spurði sjómenn
ina hvernig aflinn væri. Kváðu
þeir hann mun minni en ætlað
hefði verið. Menn hefðu búizt
við mokafla en svo væri ekki.
Heldur væri þetta rétt sæmi-
| legt, ef menn væru að allan sól-
i arhringinn og þræluðu sér út.
Þátttaka í
norrænni tón-
listahátíð
DAGANA 8.—11. september1
fer fram í Stokkhólmi norræn
tónlistarhátíð til að kynna ný
tónverk eftir núlifandi höf-
unda frá Danmörku, Finnlandi,
íslandi, Noregi og Svíþjóð.
ísland á fulltrúa á þremur
konsertum. Á kirkjuhljómleik-
unum 10. sept. kl. 15 verða í
Jakobskirkju fluttar „Íónízas-
jónir“ fyrir orgel eftir Magnús |
Bl. Jóhannsson, laugard. 10.
sept. verða á kammerhljómleik
um kl. 15 í litla sal konsert-
hússins leiknar „Fimm skitsur“
fyrir píanó eftir Fjölni Stefáns
son. Og á síðasta degi hátíðar-
innar, sunnud. 11. sept. kl. 20
flytur Fílharmoníska orkestrið
í Stokkhólmi í stóra sal konsert
hússins „Intrada og kanzóna"
eftir Hallgrím Helgason.
Að tónlistarhátíðinni standa
Tónskáldafélagið, sænska
„STEF“ og Sænska útvarpið.
onn af kota
með leiguflugvél
UM KLUKKAN hálf-tólf í
gærkvöldi kom hingað til lands
flugvél frá þýzka flugfélaginu
Continental. Flugvél þessi hef-
ur verið leigð af nokkrum að-
ilum í Vestmannaeyjum, til
flutnings á nýjum kola til
Þýzkalands og Sviss.
Flugvélin var leigð aðeins til
þessarar einu ferðar, þar sem
ekkert hefur verið ákveðið um
áframhaldandi flutninga. Flug-
vélin getur tekið 7 tonn og 300
kg. af kola, sem kominn verður
á markaðinn erlendis 36 klst.
eftir að hann hefur verið veidd-
ur.
Kolinn, sem valinn var í send
inguna, er eingöngu 1. flokks
sólkoli, sem aðeins hefur verið
hafður í kæli í Vestmannaeyj-
um. Kaupendur að kolanum eru
vissir aðilar í Þýzkalandi og
'Sviss, sem hafa dreifingarkerfi,
sem koma kolanum á markað-
inn á svipstundu.
Það háir þessum flutningum
mikið, að ekki skuli vera hægt
fyrir flugvélina að lenda í V^st-
mannaeyjum. Verður því1 að
flytja allan kolann hingað; til
Reykjavíkur, og er það Herj-
ólfur, sem flytur hann. Tefur
þetta allt að 10 klukkustundúm,
að kolinn komist á markaðinn
sem ferskastur.
Einhverjar ráðstafanir er nú
verið að gera í Vestmannaeyj-
um til stækkunar á flugvellin-
um. Þar er aðeins ein flug-
braut, sem ekki er hægt að nota
nema á stundum. Er nú verið
að mæla út fvrir, og athuga að-
flug að nýrri þverbraut.
Fertug bóka-
verzlun á Ísafirði
Skemmtiferð
starfsfólks
ALÞÝÐUBLAÐIÐ kem
ur ekki út á morgun,
vegna skemmtiferðar
starfsfólksins. Blaðið kem
ur næst út á föstudag.
WWIMWWWIMWMMWWW
FL0.KKURINN
SKRIFSTOFUR Alþýðu
flokksins verða lokaðar
í dag vegna skemmtiferð
ar starfsfólks.
ivwttwwwwmwwwM
BOKAVERZLUN Jónasar
Tómassonar var stofnsett 20.
ágúst 1920, og átti því fertugs-
afmæli síðastl. laugardag. —
Stofnandi verzlunarinnar var
Jónas Tómasson, sem rak hana
til 1953, fyrstu árin í Aðalstr.
26, en síðan 1928 í Hafnarstr.
2, þar sem hún nú er í nýend-
urbættum og stækkuðum húsa-
kynnum. Núverandi eigandi og
verzlunarstjóri er Gunnlaugur
Jónasson.
í tilefni af 40 ára afmælinu
var s. 1. laugardag opnaður stór
bókamarkaður í Góðtemplara-
húsinu, þar sem á boðstólum
eru mörg hundruð góðra og
eigulegra bóka. Eru margar
þeirra aðeins til í örfáum ein-
tökum, enda ekki verið fáan-
legar í bókaverzlunum í lang-
an tíma. Allar eru bækurnar á
mjög hagstæðu verði.
Þá verður í næsta mánuði í
samvinnu við bókaforlágið
Helgafell haldin sýning á 30
málverkaeftirprentunum eftir
íslenzka listmálara. Ennfremur
verða á þeirri sýningu nokkrar
frummyndir eftir einn af beztu
málurum landsins og hafa þær
að sjálfsögðu ekki sézt áður á
ísafirði. Uppsetningu mynd-
anna annast Björn Th. Björns-
son, listfræðingur. Mun hann
halda fyrirlestur við opnun
sýningarinnar og ræða þar um
og útskýra hverja mynd fyrir
sig. Er þess vænst, að ísfirðing-
um þyki fer.gur að slíkri sýn-
ingu.
WWWWMWWWWWW
Mynd þessi er úr Bóka
verzlun Jónasar Tómas-
sonar á Isafirði eins og
liún Iítur út í dag. Þar
er Alþýðublaðið afgreitt
ásamt fjöída annarra
blaða.
Alþýðublaðið — 24. ágúst 1960 * J