Alþýðublaðið - 15.09.1960, Qupperneq 2

Alþýðublaðið - 15.09.1960, Qupperneq 2
 í Ritstjórar: Gísli J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fulltrúar rit- fitjórnar: Sigvaldi Hjálmarsson og Indriði G. Þorsteinsson. — Fréttastjóri: Björgvin Guðmundsson. — Símar: 14 900— 14 902 — 14 903. Auglýsingasími: 14 906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentsmiðja A_lþýðublaðsins. Hverfis- gata 8—10. — Áskriftargjald: kr. 45,00 á mánuði. I lausasölu kr. 3,00 eint. jfandi: Alþýðufiokkurinn. — Framkvæmdastjóri: Sverrir Kjartansson. Spumingar ti! Eysfeins (ÍSLENZKA ÞJÓÐIN býður nú eftir svari Fram sóknarflokksins vio þeirri spurningu, hver afstaða töns sé til utanríkismála þjóðarinnar. Stendur ílokkurinn enn við þá stefnu, er hann fylgdi í ríkis stjórn, að ísland eigi heima í sveit hinna frjálsu lýð ræðisríkja? Eða er flokkurinn, eins og Tíminn ibenair ótvírætt til, búinn að söðla um og genginn í lið með kommúnistum við að rífa landið úr vest- ráenum samtökum og gera það hlutlaust? ; Tíminn í gær þagði um þetta mál. Þess vegna er ástæða til að beina spurningunni persónulega til Eysteins Jónssonar, varaformanns flokksins. Hann var áhrifamikill ráðherra, þegar ísland gerð- ist aðili að Atlantshafsbandalaginu, tók þátt í Mar shallhjálp og óskaði eftir varnarliði. Verk Eysteins tála skýru máli, en hver er afstaða hans í dag? Sérstakt tilefni til að beina þessari spurningu til Eysteins gefst, ef lesin eru nöfn þeirra manna, sem tekið hafa sæti í héraðsnefndum hlutleysis- hreyfingarinnar á Austurlandi, sem er kjördæmi fians Kunnugum mönnum virðist sem í flestum iréraðsnefndum Austurlands, til dæmis í Jöku-lsár hlíð, Hjaltastaðaþinghá, Beruneshreppi, Stöðvar- hreppi, Breiðdalshreppi, Djúpavogi, Skriðdal og Vallahreppi, svo nokkrir séu nefndir, séu 80—100 1 /C nefndarmanna kjósendur Eysteins. Er það með vituntl og vilja Eysteins, að stuðn ingsmenn hans á Austurlandi bera uppi þessar nefndir, sem hafa það takmark að kollvarpa utan- ríkissíefnu, er Eysteinn hefur framkvæmt í ára- tug? Er bað hin nýja stefna Framsóknarflokksins, að kjósendur hans styrki hreyfingu, sem stillir ná lega eingöngu kommúnistum upp á fjöldafundi í Keykjavík og gefur Moskvuútvarpinu nokkrum klukustundum síðar efni í áróður? Hefur Eysíeinn með glöðu geði afhení Sigríði Eiríks og Valborgu Bentsdóttur forustu Framsóknarflokksins? Þessum spurningum verður að svara. Það er ekki hægt að bera kápuna á báðum öxlum í slíku máli sem þessu. Lofsamlegir dómar um Guðmund Jónssors í Vín GUÐMUNDUR JÓNSSON, óperusöngvari, heldur söng- skemmtun 1 Gamla bíói n.k. iþriðjudag. Undirleikari verð ur Fritz Weisshappel og á tfnisskránni verða verk eftir 'Schubert, Grieg, Emil Thor- oddsen og Verdi. Guðmund ur hefur dvalizt í Vínarborg í fast að því eitt ár, að und- anskildum þeim tíma, sem hann var hér heima til að syngja í Rigoletto. Áður en Guðmundur fór frá Vínar- borg söng hann á hljómleik um í Schwartzenberghöíl þar i borg. Alþýðublaðinu hafa borizt Bridgefélag kvenna hóf vetrarstarfsemi sí.na rneð ein- menningskeppni mánudaginn 12. þ, m. í Skátaskólanum. Spilaðar verða 3 umferðir, og næsta umferð fer fram í Skátaskálanum mánudaginn 19. þ. m. Keppnisstjóri er Agnar Jörgenson. Eftir fyrstu umferð eru þessar 10 konur efstar: 1. Dór.a Sveinbjarnard. 112 2. Sigríðiu’ Bjarnad. 112 3. Lilja Guðnadóítir 109 4. Ása Jóhannsdóttir 108 5. Alda Hansen 108 6. Eggrún Arnórsdóttir 105 7. Anna Aradóttir 104 8. Fríða Austmann 102 9. Guðbjörg Andersen 101 10. Elín Jónsdóttir 100 Spilað er í 3 16 manna riðl- um. Meðalskor eftir 1 umferð er 90 stig. Tafl og bridgeklúbburinn hóf einnig starfsemi sína með einmenningskeppni mánu- daginn 12. þ. m. í Sjómanna- skólanum. Spilaðar verða 4 umferðir í 3 16 manna riðlum og næsta umferð fer fram í Breiðfirð- ingabúð mánudaginn 19. þ. m. kl. 8 e. h. Keppnisstjóri er Guðmund ur Kr. Sigurðsson. Meðalskor eftir 1 umferð er 330, og efstu 10 eru; 1. Kristján Guðm. 405 2. Ingi Jónsson 399 3. Hafsteinn Ól. 396 4. Tryggvi Þorfinr.ss. 393 5. Hjörtur Ingþórsson 392 6. Bjarnl. Bjarnleifss. 382 7. Reynir Sigurðsson 378 8. Guðl. Nielsen 371 9. Vilberg Jónsson 367 10. Guðni Þorfinnsson 361 Önnur umferð í einmenn- ingskeppni Bridgefélags Reykjavíkur var spíluð á þriðjudagskvöldið og er röð efstu manna þannig að henni lokinni: 1. Ásbjörn Jónsson 1062 2. Ásm. Pálsson 1049 3. Klemens Björnsson 1038 4. Ingólfur Isebarn 1033 5. Hallur Símonarson 1015 6. Torfi Ásgeirsson 1008 7. Örn Guðmundsson 1006 8. Agnar Jörgensson 996 9. Gunnar Jónsson 991 10. Ólafur B. Theódórs 990 11. Guðjón Kristjánsson 972 12. Gissur Guðm. 963 13. Agnar Einarsson 958 14. Árni M. Jónsson 955 15. Guðjón Tómasson 951 16. Stefán S'tefánsson 948 Þriðj.a umferð verður spil uð í Skátaheimilinu í kvöld kl. 8. -fo- Washington, ágúst (UPI) FORSETAkosningarnar í Bandaríkjunum munu hafa kostað milljónir dollara áður en um lýkur_ Þetta vekur þá spurningu: Hvaðan fá flokkar allt þetta fé? Bæði Demúkratar og Rebú- blikanar segjast þurfa á meiia fé að 'haldá. Samkvæmt banda rískum lögum má enginn stjórnmálaflokkur eyða meira en þrem miUjónum doilara í pólitísku markmiði' £ sam- bandi við kosningar, en enginn getur bannað einstaklingum að leggja fram fé til stuðnings ákveðnum flokki' eða frambjóð anda, Af þessari ástæðu reyna ibáðir stóru flokkarnir að frySgja sér stuðning fjár- ■sterkra aðila og stofnana, sem aðstoða við fjársöfnun. Þá er einnig { undirbúnigi' að skrifa beint til fólks og biðja um framlög. Nútímakosningabarátta er fjárfrekt fyrirtæki, kaupa verður sjónvarps- og útvarps- tíma, gefa út bæklinga og kosn ingaspjöld, greiða ferðakostn- að frambjóðenda og annan óhjákvæmilegan kostnað í samabndi við kosningarnar. Kennedy og Nixon ætla báð Framhald á lö. síðu. dómar um söng Guðmundar á hljómleikum þessum og eru þeir mjög lofsamlegir. Ber gagnrýnendum öllum saman um raddgæði Guðmundar og láta ýmis þsirra í ljós löngun til að heyra Guðmund syngja í oratoríi, en þá ósk taka ís lenzkir tónlistarvinir vafa- laust undir. Hér verður aðeins lítillega minnzt á dómana og þeir birt ir lauslega þýddir og endur- sagðir. T. d. segir Österreic hischer Neu Tageszeitung, að maður hefði haft það á tilfinn ingunni, er maður heyrði hina 'hljómmiklu rödd Guð- mundar, að salurinn væri of lítill og hann þyrfti að þeim sökum að draga af sér. Neues Österreich byrjar á að segja, að Guðnumdur sé þekktur í Skadínavíu en ætti að vera þskktari í Austurríki og segir þetta er „fojört1 hljómmikil rödd, bæði í hæð og dýpt, með lýrískum hljóm . . . dásamleg ar fraseringar. Maður hefur það á tilfinningunni, að söng varinn, sem minnir dálítið á hina góðu daga Edelmanns, viti nákvæmlega hvað hann er að syngja . . ■ Og að lokum 'hafði maður það á tilfinning unni að Jónsson gæti sungið í heila klukkustund í viðbót . . mjög góð tilfinning í sam foandi við söngvara“. Og loks sagði Arbeiter-Zieitung að hin volduga barítónrödd Guð- mundar klingi á öllum „reg- istrum“ allt u.pp í mestu hæð:. en lýrísk hlýja skíni ávalt £ gegn. „Með fyrirmyrdar söngmennt og músíkaiíteti túlkaði þessi ágæti listamaS ur viðfangsefni sín“. The worlds finest RAZOR BLADE Heildsölubirgðir ÍSLENZK ERLENDA VERZLUNARFÉLAGH> H.F. Tjarnargötu 18, símar 15333 og 19698.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.