Kirkjublaðið - 01.08.1897, Blaðsíða 13
125
reynt til að flnna, af hverju árangurinn af starfi presta
og guðfræðiskennara er minni en við mætti búast.
Það getur vel verið að örðugra sje nú en fyr á öld-
inni að kippa kirkjulífinu í gott lag, en samt mun sigur
vinnast, ef trúlega er unnið af mörgum mönnum, sem
kristindómurinn er heitasta hjartans mál. Vjer höldum
þessu föstu, að kristindómsboðskapurinn hefir dregizt
voðalega aptur úr öðrum framförum, og eina ráðið til að
bæta úr ástandinu, sem er, verður það, að vjer eignumst
betri presta og betri prestaskólakennara; þá mun nýrt
líf færast i söfnuðina, og guðfi æðisnemendurnir verða
meiri áhugamenn. Lífið andlega í söfnuðunum mun þá
aptur verka til baka, upp á við, svo að enginn prestur,
sem er hálfvolgur eða hallast að únítaratrú, verður liðinn
í embætti. Þá munu prestarnir eigi þui fa að berjast
einir fyrir góðu málefni, og án þess að fá nokkurt berg-
mál, þegar þeir hrópa, eins og nú á sjer svo títt stað,
heldur munu þá risa upp í söfnuðunum öflugir samliðar í
útbreiðslu guðsrikis.
Það er aldrei nóg að standa nokkurn veginn jafn-
fætis fyrirrennurum sínum eða litlu einu framar, heldur
er nauðsyn að láta sjer fara fram, svo lengi sem beim-
inum fer fram. Og ekki nóg með það. Kristindómsboð-
endurnir þurfa að vera eiginlega á undan heiminum og
athuga breytingar þær, sem heimslífið tekur, til þess jafn-
an að geta verið á verði móti vantrú og andlegum dauða;
vera viðbúnir að finna sifellt upp ný ráð á móti nýjum
árásum og fá sigur.
Það mun, sem betur fer, vera röng ákæra, að all-
margir ísienzkir prestar prjediki Krist út úr hjörtunum,
eða sjeu vantrúaðir, og að dregið sje bæði úr lögmálinu
og gleðiboðskapnum á prjedikunarstólnum. Flestir prest-
ar vorir munu prjedika Guðs orð ómeinguð, og allir, sem
jeg þekki til kringum mig, gera það. En það mun satt
vera, að prjedikanir vorar eru eigi nógu kraptmiklar,
margra hverra, og vjer eigi nógu duglegir orðsins boð-
endur í og utan kirkju. Fáeinir kunna þeir að vera til,
því miður, sem eru bilaðir í trúnni, en þeim mun vonandi
L