Kirkjublaðið - 01.08.1897, Blaðsíða 15
127
Fólksþingið samþykkti með miklum meiri hluta frumvarpiS
eins og það kom frá nefndinni, og hefir því máli áður eigi skilað
jafnlangt áfram á þingi Dana.
Stór dánargjöf.
Hin þjóðkunna ágætiskona, ekkjufrú Herdís Benedictsen, sem
andaðist hjer í Reykjavík 23. þ. m., hefir með arfleiðsluskrá gefið
3/4 hluti skuldlausra eigna sinna til stofnunar kvennaskóla á Vest-
urlandi, sem á sínum tima á að heita »Minning Herdísar og Ingi-
leifar Benedictsen«. Gjöfin stendur undir stjórn landshöfðingja,
skal eigunum komið í konungleg skuldabrjef og vextir lagðir við
sjóðinn í 10 ár, og má aldrei skerða þann höfuðstól. Þá skal enn
leggja upp vexti, þangað til landshöfðingi í samráði við amtsráð
vesturamtsins álítur fjeð nægilegt til að setja skólann á stofn,
þannig, að hann geti tekið til starfa án þess, að höfuðstóllinn sje
skertur.
Akveðið er í arfleiðslnskránni að fyrirkomulag skólans skuli
vera líkt kvennaskólanum á Ytri-Ey. Skólinn á helzt að verða
reistur í einhverri af sýslunum við Breiðafjörð. Allar ráðstafanir
til að koma skólanum á fót og álcveða fyrirkomulag hans skulu
gjörðar af landshöfðingja í samráði við amtsráð vesturamtsins, og
undir sömu stjórn stendur skólinn með öllum eignum sínum eptir
að hann er stofnsettur. Skólinn á að varðveita í einni kennslu-
stofunni myndir þeirra hjóna frú Herdísar og Brynjólfs heitins
kaupmanns Benedictsens í Flatey og Ingileifar heitinnar dóttur
þeirra.
Gjöfin mun vera um 40,000 kr. og verður því eigi mjög langt
að bíða fram yfir hin ákveðnu 10 ár, að stofnun þessi komist á fót
og taki til starfa.
Frá sama húsinu hjer í bæ er þá komin önnur stærsta dán-
argjöfin á þessum mannsaldri til almennings þarfa, því hús frú
Herdísar heitinnar var áður eign og bústaður sjera Haunesar Arna-
sonar, sem ljet eptir sig fullar 30,000 kr. til eflingar heimspeki-
legum vísindum á íslandi.
Tvær vestfirzkar merkiskonur ha.fa á síðustu árum gefið land-
inu eigur sínar eptir sinn dag, hin konan er frú Katrín Þorvalds-
dóttir (Kbl. VI. 4). Slík dæmi eru svo lofsamleg og eptirbreytn-
isverð, að skylt er að halda þeim sem mest á lopti.'