Sunnanfari - 01.01.1896, Blaðsíða 1

Sunnanfari - 01.01.1896, Blaðsíða 1
>^\^í\'r5\S\S\S\S\S\ r i U Verí 2 kr. í jjj 50 anra árg., \ f. horgist fvrir % 0 ■ fram. 0 I I \s\s\s\s\s\s SS\S\S\S\S\S\S i Aiiglýsingar | íl 20 a. megin- J) í' niiílsiina; 25 S aara smáleínr. V, T’ j^3sttt.a_:r. 1896 Brynjólfur biskup Sveinsson, (f. 14. Sept. 1605, d. 5. Aug. 1675) Brynjólfur biskup er einn af þeim mönnum, sem allir þekkja, þó fáir viti eiginlega hvað eptir þá liggur. Persóna slíkra manna og hætlir hafa einhvern veginn prentast svo inn í samtíðar- inenn þeirra, að minning þeirra geingur frá kyni til kyns í meðvitund manna ósjálfrátt. Minningin um þá er þó opt nokkuð óljós og dularfulþeneingu að síður lifandi. pað er með slíka menn eins og þegar maður sér fjöll gegnum þoku, að þau sýn- ast miklu stærri en ella. Mönnum hættir við að sýnast miklir menn, er maður eygir óljóst í fjarska gegnum móðu margra alda, miklu stórfeldari en þeir í raun og veru voru. Svo hefir það verið um Brynjólf, að öll alþýða manna á íslandi hefir alt þangað til fyrir svo sem 16 árum lítið um han vitað annað en það, að hann liafi verið mikill og harð- rýndur maður og forvitri einhvern tíma í fyrndinni, og hefir kunnað um hann margar sögur. En síðan Torfhildur Hólm ritaði um hann skáldsögu sína og Pétur biskup Pétursson nokkrum árum síðar skrif- aði æfisögu hans hefir al- menningi orðið alt svo miklu ljósara um hann, að hér er eingin þörf að rekja æfisögu hans út í neinar æsar. Mynd sú af Brynjólfi biskupi er hér birtist, er gerð eptir litmynd frá 17. öld, sem frú Katrín porvaldsdóttir, ekkja Jóns bókavarðar Árna- sonar, gaf ábyrgðarmanni Sunnanfara sumarið 1894. Er þar hár og skegg rautt og hár skorið um eyrun sem hér, en svo var hárferð bisk- ups. Ekki var frú Katrínu ljóst hver maðurinn væri, en ætlaði það einhvern biskup. En eg sá strax af lýsingu sagnaritara á Brynjólfi biskupi að hér gat um ekkert verið að villast. Sýndi eg sarnt myndina minnugum manni Páli sagn- fræðingi Melsteð, sem 1829 hafði séð mynd þá, er Dr. Sveinbjörn Egilsson átti, og sagt var að væri af Brynjólfi biskupi. Kvaðst hann að vísu nú óljóst muna þá mynd, en lét þó uppi, að ekki mundi fara því fjarri, að þessi mynd væri af sama manni, eptir því sem hann bezt myndi. Sýndi eg og myndina frú Torfhildi Hólm, og hún fullyrti strax sem sína sannfæringu, að myndin gæti ekki verið af öðrum en Brynjólfi biskupi. Fékk hún mér og í hendur lýsing ýmsra barna Sveinbjarnar Egils- sonar á mynd þeirri, er hann átti, en þau segja mjög sitt hvað og ber í ýmsu á milli, sem ekki er undarlegt, því að þau voru öll kornung þá, þegar þau sáu síðast myndina hjá föður sínum, áður hún týndjst. Háralitur getur vitanlega ekki komið hér út á þessari prentuðn mynd, svo að hún gefur mönnum því ekki alveg fulla hugmynd um frum- myndina, en það mun óhætt að segja það, að þyki þessi mynd önnur en sú, er Sveinbjörn átti, þá hefir hans mynd ekJci verið af Brynjólfi biskupi. Kvæði eptir Brynjólf biskup Sveinsson. I. V iðvörun og heilrœði.1) Hora novissima, tempora pessima sunt, vigilemus. Ecce minaciter imminet arbiter ille supremus. Imminet, imminet, ut mala terminet, æqua coronet, Recta remuneret, aspera liberet, æthera donet. ’) ÍBfél. 400 4to é lausu blaði í 8vó með hendi séra Einars Hálfdánarsonar á Kirkjubæjarklaustri (d. 17B2) og nr.HA/vw áÉkt dáfci ^ Al d4i /ék ti Brynjólfur Sveinsson.

x

Sunnanfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnanfari
https://timarit.is/publication/140

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.