Sunnanfari - 01.01.1896, Side 4

Sunnanfari - 01.01.1896, Side 4
nóg með það að gera að annast mjaltir og bú- verk, og sem geta má nærri hlaut allt að ganga í ólestri. Smalinn var lasinn, en hélt sér uppi, líklega af því hann sá að annað dugði ekki. þ>órður gamli var brjóstumkennanlegur. þ>að vantaði ekki að allir nágrannar hans sæu það; þeir kendu allir í brjóst um hann, og húsfreyj- urnar lýstu tilfinningum sínum við hvern gest. Slátturinn var byrjaður alt í kring. En svona var nú ástandið á Bakka. — Guð minn góður! J>órður einn í túnina, gamall og las- burða eins og hann var nú orðinn. Og hann vaið að skjótast til orfsins hálftíma og hálftíma í senn milli annara starfa, því mart kallaði að og hann var einn um að gegna öllu. Dýri drottinn! Fullvaxið tún, sílgrænar eingjar; — grasið gekk í bylgjum fyrir sumarvindinum og dreymdi um Ijá og hrífutinda. þ>að hafði sýnt sig svo átakanlega áður að veikin var næm. Reyndar var það alment við- kvæðið, að þeir veiktust sem ætlað væri að veikjast, þeir dæju sem drottinn hefði ákvarðað til þess o. s. frv.; en þó gat fólkið ekki al- mennilega gert að því, að fremur stóð því stuggur af þeim, sem komu frá veikindaheimil- unum. fórður var sjálfur fullkomlega þeirrar trúar, að forsjónarinnar hönd stýrði veikindunum eins og öðru, en ekki hugsaði hann frekara út í það, hversvegna hann yrði svo hart úti í þetta skipti. En þessa dagana kom lítils háttar atvik fyrir, sem hér er vert að geta. Svo stóð á, að |>órður þurfti að bregða sér ferð í næstu sveit, hvort það nú var til að ná í lækni eða í einhverjum öðrum erindagjörðum. Hann reið í hlað á Steinstöðum og gerði boð fyrir f>orkel bónda. þ>orkell gekk til dyra. ]?eir f>órður voru málkunnugir. þ>að var síðla um kveld. þ>órður hugðist að hvíla sig þar um lágnáttið, en ætlaði heim snemma næsta morgun; hann var þreyttur af ferðinni og svefnþurfi. þ>orkell var mikill maður vexti og hranalegur, svartskeggjaður og svartbrýndur; hann var mektarbóndi. Nú var hann nýkominn inn frá vinnu, gekk hann út á bæjardyrahelluna og var snöggklæddur; hey og mosi sat í hári hans og skeggi. þ>órður var maður lítill og lágur, gildur sívalningur; faslaus var hann og flaðurmáll og leit iafnan út undan sér, er hann talaði við menn. Hann stóð a miðju hlaði og ræddi við smala- mann J>orkels. En er hann leit þ>orkel á bæjar- dyrahellunni vék hann þegar að honum, tók húfuna í vinstri hönd og var auðséð ætlan hans, mundi hann leggja hægri hönd á öxl J>orkatli, klappa honum á herðarnar og heilsa með kossi svo sem góð venja var til. En f>orkell brást við hvatlega og vék sér snúðugt undan, og áður hann tæki kveðju f>órðar hreytti hann nokkrum ávítunarorðum til smalamanns, kvað hann vera að snapa eptir veikinni og bannaði börnum sínum tveimur, er þá komu út á hlaðið, að nálgast f>órð eða taka kveðju hans. Stóð þórður karl þar allmjög hissa. En brátt blíðkaðist þ>orkell nokkuð og bað hann þ>órð ganga út í varpa, bauð að láta færa honurn þangað góðgjörðir og frétti eptir erindi hans. Svaraði |>órður fáu og þáði ekkert. Kvaðst þ>orkell verða að verja bæ sinn fári og sagðist ekki þora að bjóða þ>órði inn, en bað hann virða á betra veg. þ>órður hafði eingin orð um þetta, en sté í ístaðið, lypti hatt- barðinu lítið eitt hægra megin um leið og hann sneri dróginni til götu, sló keyri við nára og lét Gránu dulla út traðirnar. En J>orkell gekk í bæinn og var í illu skapi það sem eptir var kvöldsins. ]>au kíttu dálítið um þetta hjónin, en þ>orkell bóndi var nú húsbóndi á sínu heim- ili og varð þetta að vera eins og hann vildi, enda var nú ekki hægt úr því að bæta. En það er frá þ>órði að segja, að honum þótti sér mikil óvirðing gerð í þessu, en varasemi þ>orkels virtist honuin hlægileg, og er einginn til að skýra frá því, hvort hann ekki óskaði þ>orkatli, að hann feingi að komast í nánari kunningsskap við veikina. þ>egar þ>órður var heim kominn og hafði sagt frá sögunni eins og hún gekk, þá var allt búið. P'réttin flaug bæ frá bæ eins og hvalsaga. Atferli þ>orkels bónda þótti óhæfilegt, þótti samvizkulaust. Og þó menn væru lafhræddir við veikina og hugsuðu með sjálfum sér að þetta væri eini vegurinn til að forðast hana, gat einginn feingið af sér að kveða upp úr með slíkt. Konurnar úthúðuðu þ>órkatli og höfðu jafnvel orð á að guð mundi hefna annarar eins harð- ýðgi, — með því að senda þangað pláguna var auðvitað hugsunin. Meðaukvunin með þ>órði óx í hvert sinn er sagan var sögð, og menn sóru og sárt við lögðu, að þeir hefðu ekki hjarta til að breyta svona. þ>órður átti opt erindi á ná- grannabæina og menn keptust við að taka honum sem allra bezt og láta hann á öllu sjá, að ekki væru þeir svo heimskir að hræðast hann. »Komið þið ekki nærri mér, — jeg kem úr veikindum,— má ekki umgangast fólk«, sagði f>órður að jafnaði áður en hann heilsaði, lagði undir flatt og setti upp alvörusvip. »Jeg vil einguin mein gera...« En hann komst aldrei leingra. J>á þusti fólkið að honum, heilsaði honum með handabandi og kossi. »Blessaður karlinn, aumingja karlinn!« suðaði kvenfólkið. »Blessaður karlinn, aumingja karlinn«. J>etta suðaði inóti J>órði í gaungunum meðan hann var leiddur inn, út úr búrdyrunum, út úr eldhúsdyrunum, svo að segja út úr hverju skoti í gaungunum. Ekki tjáir að neita því, að sönn hluttekning var með í spilinu, en hitt réð líka miklu: að sýna hjartagæzkuna. þ>órður tók klökkur móti öllum þeim góðvilja, sem menn sýndu honum; hann sagði frá viðtökunum hjá

x

Sunnanfari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnanfari
https://timarit.is/publication/140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.