Alþýðublaðið - 30.09.1960, Síða 1

Alþýðublaðið - 30.09.1960, Síða 1
A BAKIÐ SVIPMYND úr bæjar- lífinu. Vörður laganna síg- ur áfram með þungum, hnitmiðuðum skrefum. Ekkert fer fram hjá arn- araugum hans — nema ljósmyndari Alþýðublaðs- ins að sjálfsögðu, sem læddist aftan að honum og skaut af honum þessari mynd. 41. árg. — Föstudagur 30. sept. 1960 — 221. tbl, Sjálfkjörið FRAMBOÐSFRESTUR við Alþýðusambandskjör í Sjómannasambandi ís lands er útrunninn og kom aðeins fram einn listi, er varð sjálfkjörinn. Komm únistar buðu ekki fram. í Sjómannasambandi ís lands eru 7 félög og félags deildir og fá þau 24 full trúa á þing Alþýðusam bandsins. í því eru, fulltrúa beint á Al- þýðusambandsþing, en nú kýs Sjómannasambandið fulltrú- ana og að sjálfsögðu eru full- trúar valdir frá hinum ýmsu félögum. Þessi félög og fé- lagsdeildir eru nú í Sjómanna sambandi íslands: Sjómannafélag Reykjavíkur, Sjómannafél Hafnarfjarðar, Matsveinafélag Sjómanna- sambands íslands, Sjómannadei'ld Verkalýðsfél. Akraness, — Sjómannadeild Verkalýðsfél. Grindavíkur, Sjómannadeild Verkalýðsfél. Keflavíkur — og Vélstjórafélag Keflavíkur. Samanlögð meðlimatala þeirrá er 2361. Þessir aðalfulltrúar voru kjörnir fyrir Sjómannasam- band íslands á þing Alþýðu- sambandsins: Bjarni Hermundars., Hafn Björn Páisson, Rvik, Einar Jónsson, Hafn. Garðar Jónsson, Rvík, Guðm. H. Guðm. Rvík, Haraldur Ólafsson, Rvík, Hilmar Jónsson, Rvík, Hjalti Gunnlaugsson, Rvík Jón Helgason, Rvík, Jón Júníusson, Rvík Jón Sigurðsson, Rvík, Karl E. Karlsson, Rvík, Kristján Guðmundsson, Rv, Magnús Guðm., Garðahr. .Ólafur Björnsson, Keflav. - Qlafúr 'Sigurðsson, Rvík, Pétur Sigurðsson, Rvík, Ragnar Magnússon, Grind. Frh á 5. síðu. pHMI Sjómannasamþand íslands var samþykkt inn í .Alþýðu- samband íslands á síðasta Al- þýðusambandsþingi, — Áður kusu hin einstöku félög, sem WMimÍSm mmmsmím NEW YORK, 29 sept. (NTB-REUTER), MACMILLAN, forsætisráð- herra Breta hélt ræðu sína á Allslierjarþinginu í gæ.r, Meðan hann var að <?ala gerðist það í þingsal, að Krústjov ókyrrðist all mik- ið, unz svo fór, að hann lamdi hnefui.n j borðið, hrópaði að ræðumanni, og gekk berserksgang, meðan fulltrúar risu hálfvegis úr sætum sínum til að geta sem bezt horft á hann í þess um ham. Dynjandi lóíaklapp kvað við í salnum, er Macmillan stóð upp og gekk að ræðu- stólnum. Einnig dundj lófa- klappið við .öðru hverju meðan hann talaði, en Krustjov klappaði aldrei, enda mun honum hafa ver- ið annað í hug, eins og fyrr greind viðbrögð hans sýna. Krústjov skók vísifingur að Macmillan, þegar hann ræddi um endalok Parísav- fundarins og svipur Krúst- jovs formyrkvaðist, þegar MacmiHan staðhæfði, að Rússum einum hefði verlð um að kenna, að svo fór þá. Brezki forsætisráðherrann sagði í ræðu sinni, að nú yrði að skapa nýjan sam- komulagsanda milli austurs og vesturs, o^ er það skoð- un vestrænna stjórnmála- manna, að ræða hans í heild hafi verið verðugt og af- dráíttar^aust sviar við árás KrústjoVs síðastliðinn föstu dag. Macmillan ræddi stefnu Vesturvelda í heims málum og svaraði þar lið fyrir lið ásökunum Krust- jovs um heimsveldastefnu. Hann lagði að Krustjov að taka þáft í að skapa að nýju það iandrúmsloft, sem gerði hinum fjóru stóru fært að ákveða stórveldafund í Par- ís á sínum tíma. Macmillan tók þvert fyrir þá tillögu KrustjoVs að Hammarskjöld yrði vikið Framhald á 3. sfðu.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.