Alþýðublaðið - 30.09.1960, Side 13
KASTLJÓS
Forseii aiisherjarljings SÞ
FREDERICK Henry Bo-
land, írski sendiherrann, sem
kjörinn var forseti yfir-
standandi Allsherjarþings
Sameinuðu þjóðanna, hefur
mikla aðdáun á einni tilvitn
un í Hóras, aequam, mem-
ento rebus in arduis ser-
vare mentem, en það þýðir
nánast: mundu að varð-
veita hugarró í erfiðleikum.
Allir eru sammála um, að
15. Allsherjarþingið verði
„erfitt“, enda eru á dagsskrá
þess 87 mál, sem mörg hver
eru hlaðin sprengiefni.
Þessi írski diplómat er 56
ára að aldri og val hans er
afleiðing þess hve Afríku
málin skipa mikinn sess á
þessu Allsherjarþingi. Bo-
land hefur mikla reynslu í
þeim málum, enda hefur
hann verið formaður vernd
argæzlunefndarinnar um ára
bil.
Afstaða íra til hinna nýju
ríkja á líka sinn þátt í vah
hans. írska ríkisstjórnin
hefur með stefnu sinni unn
ið hylli flestra ríkja Afríku
og Asíu. í deilu stórveld-
anna í austri og vestri hafa
írar jafnan verið hlutlaus
ir, eða réttara sagt fylgt sjálf
stæðri stefnu. Þeir hafa ver
ið ómyrkir í máli varðandi
Alsír, kommúnista-Kína og
borið fram afvopnunartil-
lögur upp á eigin spýtur.
Boland kann betur við að
kalla stefnu íra sjálfstæða
en hlutlausa. írar voru á-
samt Svíum þeir fyrstu, sem
sendu herlið á vegum Sam
einuðu þjóðanna til Kongó.
Starfsmenn Sameinuðu
þjóðanna segja, að Boland
sé ágætur ræðumaður, á-
kveðinn og laginn samninga
maður.
Boland er fæddur í Dublin
og gekk þar á skóla. Hann
nam klassisk mál og lög og
varð málfærslumaður. A
skólaárunum stjórnaði
hann danshljómsveit og
enn kemur það fyrir, að
hann skemmti gestum með
píanóleik. Hann gekk í
írsku utanríkisþjónustuna
1929, starfaði um hríð í Par
ís og varð 1935 formaður ut
anríkisnefndar Þjóðabanda-
lagsins. 1946 varð hann skip
aður ráðuneytisstjóri í ut-
anríkisráðuneytinu og 1950
varð hann sendiherra í
London.
il|WWWWW»WWM»»WMIW»iWWWHiHW>WWWMM*MMM»MMIwmi*WMMMMMWWMMW
Hesteyrarkirkju
„Þú skalf ekki girnast
hús hús náunga þíns"
Enn um
„Þú skalt eigi girnast hús
náunga þíns“.
BISKUP landsins hefur
talað. Álit hans á þeirri ráð-
stöfun að rífa Hesteyrarkirkju
og flytja til Súðavíkur við
ísafjarðardjúp er nú orðið op-
inbert. í grein biskups í Morg-
unblaðinu 20. sept. kemur í
ijós, að ekkert samráð var haft
við nokkurn þeirra, er hlut
áttu að máli.
Engrar afsökunar er beðizt
á slíku fljótræði. Álit pró-
fastsins á ísafirði, sr. Sigurð-
ar Kristjánssonar, var látið
nægja. Þess þótti ekki þörf að
kynna sér málið betur. Þeir
beita alræðisvaldi sínu — pró-
fastur og biskup — og við
fyrrverándi og núverandi
Sléttuhreppíngar hljótum að
fyllast lotningu og þakkláts-
semi, þegar við hugsum um
björgunarstarfsemi þessara
mætu manna.
Tilfinningar þeirra, sem
komnir eru á gamals aldur og
eiga þá ósk heitasta að fá að
hvíla í kirkjugarði meðal ætt-
ingja og vina eru fótum troðn-.
ar, og ítrekaðar óskir þeirra
einskir virtar.
Og svo segir biskup orðrétt
í grein sinni: ,,Ég skil það vel,
' að ræktarsömum mönnum,
sem eiga helgar minningar
bundnar við b°ssa kirkju á
sínum fyrri st-’* sé þetta við-
kvæmt mál“ vrév er talað um
helgar minr; Er það þá
skoðun biskup- að til þessara
helgu minni"!ra ~igi ekki að
taka nokkur+ "dnnsta tillit?
Er það í sam”æ'ni við Guðs
lög?
Biskup tal' urn þau ömur-
. legii afdrif m kirkjunni
hefðu verið ■ á Hesteyri.
Hér er talað lítt af kunnug-
leika, enda hefur biskup
aldrei þangað komið og heim-
ildarmaður hans sennilega
sami og áður.
Á hverju sumri hefur ver-
ið litið eftir kirkjunni og það
lagfært, sem þurfa þótti. Áuk
þess ber og að geta þess, að
kirkjan var mjög vel járnvar-
in og efniviður í alla staði
hinn bezti og ófúinn, svo að
engin hætta var 4 hinum öm-
urlegu afdrifum í náinni
framtíð.
Það er mál flestra, að átt-
hagatryggð hafi fremur auk-
izt heldur en hitt. Fjölmennt
„Átthagafélag Sléttuhrepps“
er starfandi hér í Reykjavík.
Þar hafði komið til tals m. a.
að fara til Hesteyrar og mála
kirkjuna upp að nýju. En við
erum látin losna við þá ívrir-
höfn af einskærri góðvild, til
þess að annað byggðarlag geti
á ódýran hátt notfært sér
handaverk annarra, komið sér
upp kirkju á annarra kostnað
og með því móti losnað að
miklu leyti við þann kostnað,
sem önnur byggðarlög verða
fyrir við smíði kirkjubvgg-
inga. —• Súðvíkingar geta
hrósað happi yfir því, að eiga
svo góða samverkamenn —.
Á hverju ári er hárri upp-
hæð varið til kirkna á landi
okkar. Hversu há skyldi upp-
hæðin vera t. d. til Skálholts-
kirkju? Það mætti gjarnan
hugleiða það, hvort nytsemin
sé í samræmi við þá fjárhæð,
sem til hennar hefur verið var
ið. Biskup hefur staðið fram-
arlega í hópi þeirra manna,
sem barist hafa fyrir endur-
reisn hennar sem veglegt
minnismerki á hinum þjóð-
helga stað, — og er það vel.
En minnisvarði okkar
Sléttuhreppinga, sem fengið
hefur að vera í friði í 61 ár,
handaverk fyrirrennara og
okkar sjálfra, er rifinn til
grunna, til þess að annað
byggðalag megi góðs af njóta.
Eða er það ef til vill ætlun
forstöðumanna verksins að
láta rífa kirkjuna á Hesteyri,
líkt og í Skálholti, til þess að
beita sér fyrir smíði annarrar
°g glæsilegri steinkirkju, er
fái staðið um aldur og ævi.
— Það var betra að taka
lamb fátæka mannsins en þess
ríka, og það var betra að hafa
ekki of hátt um það.
Kirkjan á Hesteyri var
bjrggð árið 1899. Hún var
mjög stór á þeirra tíma mæli-
kvarða og rúmaði 100 manns.
Norðmenn sáu um útvegun á
völdu efni til kirkjubyggingar
arinnar. Árið 1920 fóru fram
gagngerar endurbætur yzt
sem innst, og kirkjan var
sannarlega sómi sveitar sinn-
ar. Hún var að öllu leyti eign
safnaðarins án nokkurra opin-
berra styrkja.
Biskup vísar til laga til að
réttlæta málstað sinn. En við
þekkjum þess svo mörg dæmi,
að lög eru ekki einhlít. Laga-
breytingar eiga sér stað á
hverjum tíma og sum lög eru
jafnvel orðin úrelt, áður en
þau koma til framkvæmda. —
Það gæti þess vegna verið, að
lagabókstafurinn, sem biskup
vísar til, sé ekki hið eina rétta
í þessu máli.
í upphafi greinar sinnar um
Hesteyrarkirkju getur biskup
þess, að nokkurs misskilnings
gæti í greinum tveggja. Hest-
eyringa, sem höfðu um málið
skrifað. Þennan misskilning
segist hann vilja reyna að leið
rétta, Það skyld ekki vera, að
misskilningurinn væri hjá
öðrum aðilum? Hvaðan hefur
biskup upplýsingar sínar? —■
Hann talar urn sveitina, sem
verið hefur 1 eyði í hálfan ann-
an áratug. Er hér rétt með far
ið? Lítum á staðreyndir, Síð-
asti ábúandinn á Hesteyri, —
Sölvi Betúelsson fluttist til
Bolungarvíkur 1. nóvember
1952.
Samkvæmt okkar útreikn-
ingi verða það átta ár hinn 1.
nóvember n , k. Þetta skvldi
biskup athuga, áður en hann
fer að reyna að leiðrétta mis-
skilning annarra.
Aðeins átta árum eftir að
byggð hefur flutzt frá Hest-
eyri er kirkjan með velþókn-
un aðila svipt af grunni til
brottflutnings. Slíks munu fá
eða engin dæmi. Engin vissa
er heldur fyrir því, að byggð
eigi ekki eftir að færast aftur
í Sléttuhrepp innan tíðar. Ef
svo yrði, myndi þá biskup og
prófastur verða forgöngu-
menn um að rífa kirkjuna á
nýjan leik. Að þessu sinni í
Súðavík, til þess að flytja
hana aftur til Hesteyrar til
sinna réttu og einu eigenda?
íslendingar líta á handritin
sem sína eign, þótt þau eitt
sinn hafi verið flutt til Dan-
merkur. Á sama hátt lítum
er víst, að gleðin yfir lambi fá-
tæka mannsins verði óskipt?
Þess ber að geta, að fyrir
nokkrum árum var þess 'far-
ið á leit við viðkomandi
kirkjuyfirvöld þ. e. a. s. pró-
fast og biskup, að kirkjan.
fengi að standa. Þessu til stað-
festingar eru bréf dagsett 14.
október 1952 og 27. september
1953. Svar núverandi biskups
við þessari málaleitum hefur
nú fengizt á mjög svo skýran
hátt í samráði við prófastinn
á ísafirði sr. Sigurð Kristjáns-
son.
Níunda boðorðið er á þessa
leið: „ÞÚ SKALT EIGIGIRN-
AST HÚS NÁUNGA ÞÍNS“.
Hvað er það? Svar: „Vér eig-
um að óttast og elska Guð, svo
að vér eigi sækjumst eftir arfi
eða húsi náunga vors með vél-
um, né drögum oss það með
YFIRVARPI RÉTTINDA,
heldur styðjum hann og
styrkjum að halda því“.
Á þennan hátt eru skýring-
ar Lúthers á níunda boðorð-
inu. Hér eru það lög Guðs,
sem tala, ekki manna lög. Við-
komandi aðilar mættu gjarn-
an athuga það, áður en næsta
björgunarafrek verður unnið.
Að lokum tvær spurningar
til prófasts og biskups:
Er það rétt, að altaristaflan
úr Hesteyrarkirkju, sem flutt
var til ísafjarðar, hafi stórlega
skemmst vegna vanhirðu og
trassaskapar?
Er það ætlun kirkjuyfir-
valdanna að veita af enn meíri
rausn með því að gefa Súðvík-
ingum eignir Hesteyrarkirkju,
þ. e. kirkjugripi og peninga. í
sjóði?
Við mótmælum allir í nafni
sóknarbarna Hesteyrarkirkju,
v -Birgir G. Albertsson,
Bjarni Guðmundsson,
Hesteyrarkirkja.
við sóknarbörn Hesteyrar-
kirkju á þennan helgidóm
sem okkar lögmætu eign,
þrátt fyrir flutning hennar til
hins hrörnandi Súðavíkur-
þorps, þar sem íbúum hefur
fækkað, eins og víða annars
staðar.
En Súðvíkingum er nokkur
vorkunn. Þeir vita, að allt
efni til bygginga hefur stór-
lega hækkað undanfarið — en
Eiríkur Benjamínsson,
Guðmundur Guðmundsson
Guðmundur J. Guðmundsson,
Guðni Jónsson,
Hans Hilaríusson,
Hilaríus Haraldsson,
Hjálmar Gíslason,
Jón S. Guðjónsson,
Jón Guðnason,
Kristinn Gíslason,
Sigurjón Hilaríusson,
Reidar G. Albertsson,
Alþýðublaðið — 30. sept. 1960 £3