Sunnanfari - 01.07.1912, Qupperneq 5
53
Já, kvöl er að vera kona,
og seld eins og þræll og þý!
Hvers á jeg, guð minn, að gjalda?
Hví gafstu mjer hjarta’ og mál,
er minninga’ að njóta í náðum mjer
með nýju valdboði meinað er?
O, drep þú ei svo í dróma
dætranna minna sál!
VII.
Látið skíðin loga, svo skikkjuna hans
við skinið jeg sjái’ að rekja!
I hinnsta sinn vil jeg svipinn hans,
er syrgt hef jeg elskandi, vekja.
Og lofið mjer höfuð að hneigja
að hægindi. — Gott er að deyja!.........
Fjær, fjær
mjer himneskir brúðsöngvar hljóma!
Nær, nær
hann kemur í litbrigða Ijóma!
Við þennan síðasta sólskinsblett
fær sorg mín og ást sinn heilagan rjett.
Ogsveipiðmigskikkjunni!— Svonaerljett
að sofna — og elska — og deyja!
Jón skáld Thoroddsen.
Mynd sú af Jóni Thoroddsen (f. 1819, d.
1868), sem hér birtist, hefir áður verið ókunn
almenningi, og lílt verið þekt af honum önn-
ur mynd en sú, er fylgir kvæðabók hans, og
þólt liefir miður góð. Mynd þessi er frá
efstu árum Jóns, og er hún nákvæmlega gerð
eptir ljósmynd, sem nú er í eigu frú Bryn-
dísar Zoéga hér í Reykjavík. Skeikar því
ekld að myndin er lík Jóni eins og hann var
a r°sknum aldri, og hefir Sunnanfara þótt
aríðandi að ganga svo frá því, að hún geymd-
ist frá glötun úr þessu, enda má ætla, að
morgum sé mynd þessi kærkomin, því að
enn er Jón Thoroddsen hugþekkur lands-
fólkinu. Skáldsögur hans liafa verið og eru
enn einhver bezta skemlun landsmanna og
hollar lýðnum. Kvæði hans voru og á sinni
tíð lærð og sungin um land alt og i hinu
mesta afhaldi. Sum af þeim munu og seint
fyrnast. Kvæðabók lians var gefin út af Bók-
mentafélaginu 1871, og er nú ófáanleg og
uppseld fyrir laungu. Fátt mun vera til af
ljóðmælum eptir Jón, sem ekki sé prentað
í Ijóðabókinni. Ein vísa er þó tilfærð í
Sunnanfara I, 16, eptir Andrési Fjeldsted, er
Jón skáld Thoroddsen.
Jón orti 1866, þegar Andrés rauf Skallagríms-
haug, og ekki hafði verið prentuð áður.
En nú getur það, sem eptir fer komið i
viðhót, og er það alt tekið (23. júlí 1912)
eptir minni Margrétar Pálsdóttur, Guðmunds-
sonar prófasts á Staðarstað, systurdóttur Jóus
Thoroddsens. Er hún hér í Reykjavík og
komin á áttræðisaldur:
Brúðkaupsvisur til (foreldra Margrétar Páts-
dóttur) Jóliönnu Thoroddsen og Páls Guðmunds-
sonar á Regkhólum. Ortar i Kaupmannahöfn
18á0 og sendar til Islands.
Sem aldingarösmaður árla dags
aldina geingur beð,