Sunnanfari - 01.07.1912, Blaðsíða 8
56
þeirra (þ. e. íslendinga) hefði verið tíðkuð
þar (þ. e. á íslandi) í fornöld, en fallið í
gleymsku í langa tíð, og svo risið upp aptur
við þjóðvakningu síðasta áratugs«.
Samskonar bull hefir verið haft eptir þess-
um piltum áður hér og hvar í útlöndum.
Þessu þvaðri ættu þeir að hætta, og kynna
sér málið betur áður en þeir fræða útlend-
inga næst um glímurnar.
Glímur ha/a aldrei fallið niður hér á landi.
Menn hafa iðkað þær á öllum öldum og alla
tíma alt fram á vora daga, ekki hvað sizt
í skólunum og útverunum. Svo kvað síra Ei-
rikur Hallsson (d. 1688) í elli:
Eiríkur nú er mér sagt
eigi að kveða rímur,
en hann þykist af hafa lagt
útróðra og glímur.
En það er sómi vorra ungu manna, að
þeir hafa tekið að iðka glímurnar sem íþrótt,
og þann sóma verða þeir og eiga að láta
sér nægja.
45 ára stúdentar íslenzkir og eldri enn á lífi.
6i árs stúdent.
1851. Steingrímur Thorsteinsson rektor (f. 1831).
57 ára stúdent.
1855. Magnús Stephensen fv. landshöfðingi (f. 1836).
56 ára stúdentar.
1856. Ólafur Johnsen fv. yfirkennari ( Óðinsey (f. 1837).
Stephán Stephensen fv. prestur á Mosfelli (f. 1832).
Eiríkur Magnússon fv. bókavörður í Kambryggju
(f. i833>
Þorsteinn Þórarinsson prestur í Eydölum (f. 1832).
55 ára stúdent.
1857. Þorvaldur Jónsson fv. héraðslæknir (f. 1837).
53 ára stúdentar.
1859. Júlíus Havsteen fv. amtmaður (f. 1839).
Jakob Björnsson prestur í Saurbæ (f. 1836)').
52 ára stúdent.
1860. Þorgrímur Johnsen fv. héraðslæknir (f. 1838).
49 ára stúdentar.
1863. Matthías Jochumsson fv. prestur (f. 1835).
Benedikt Kristjánsson fv. prestur á Grenjaðar-
stað (f. 1840).
48 ára stúdentar.
1864. Jens Hjaltalín prestur á Setbergi (f. 1842).
1) 1859 útskrifuðust tveir synir Trampe’s stiptamtmanns. Þeir voru
fæddir i Danmörku og íleingdust þar.
1864. Lárus Benediktsson fv. prestur í Selárdal (f. 1841).
Eiríkur Briem prófessor fv. prestaskólakennari
(f. 1846).
47 ára stúdent.
1865. Tómas Björnsson fv. prestur á Barði (f. 1841).
46 ára stúdentar.
1866. Dr. Jón Bjarnason prestur í Winnipeg (f. 1845).
Sveinbjörn Sveinbjörnsson tónskáld í Edinborg
(f. 1847).
45 ára stúdentar.
1867. Þorvaldur Jónsson prófastur á ísafirði (f. 1847).
Jónas Hallgrímsson prestur á Kolfreyjustað
(f. 1846).
Af þessum mönnum eru enn 6 í embættum hér á
landi. Elztur allra íslenzkra „lærðra" manna er nú
Steingrímur Thorsteinsson.
Síra Magnús Hákonarson og Friðrik VI,
Vísa sú eptir síra Magnús, sem prentuð var í Maí-
blaði Sunnanfara, kvað ekki vera um Friðrik konung
ung VII., heldur um Friðrik VI., er lézt 3. Dec. 1839.
Vísan þykir og réttari svona:
Þá var úti frost með fjúki,
er Friðriks öndin skrapp úr búki,
vistaðist hún á himna hnúki
hærra en Jovis ales kemst,
er ekki flýgur fugla skemst.
Kroppurinn liggur kaldur í dúki.
Krunka hrafnar úti
sem yfir hrúti, —
sem yfir dauðum hrúti.
Lá síra Magnús þá í mislingum á spítala í Khöfn.
Og enn kvað hann:
Friðrik sjötti fallinn er
fylkir hvítur Dana;
var á ferli geira grér
gráan fram í bana.
Meðan hallar húsa þjón
hilmi dró á plástra,
eptir liðið æfinón
animus rupit claustra1)-
Um Vilhelminu það vitnað er,
vífið frfða með andann sæta2),
að hún svo núi augu á sér
ilmandi tár að kinnar væta.
Karólína hið fríða fljóð3)
feldi á vörina neðri
af trega svo mikið táraflóð,
að tognaði á hökuleðri.
(Sögn Magnúsar landshöfðingja Stephensens 3/6 1912).
1) rauf (braut) andinn lokurnar (frá).
2) Þótti andftíl.
3) Þótti ófríð.
Prentsmiöjan Gutenberg.