Öldin - 01.06.1894, Síða 5

Öldin - 01.06.1894, Síða 5
ÖLDIN. 85 ferð, sem íýrir líkamsvöxt og fjör mcð andlegri ofreynslu nær aldrei tilgangin- um. Kennarar, sem þreyta sína ungu nemendur með lærdómi, en hugsa ekkert urn líkamsþroskann, gleyma því augsýni- lega, að sigur í stríði lífsins er ckld síður kominn undir þreki og fjöri, en lærdömi,. Viljinn og ástundunin, sem líkamshreysti framleiðir, jafnast að vissu leyti á móti því tjóni, er leiðir af mentunarskorti. Þeg- ar þá að sameinast þróttmikill líkami og nægileg menntun, og nægilega menntun gctur hver maður fengið án þcss lfkaminn sé sýktur, þá er það trygging þeirra, sem hvorttveggja hefir, fyrir sigri vfir þcim, sem ofreynsla hefir veikt í ungdæminu, enda þótt hann sé framúrskarandi lærður maður. Þcssi menntastefna er einnig af misskilningi sprottin að þvi leyti, að fyrir liana mæla menn velferð manna á falskann mælikvarða. Hvaða ánægja er að auðn- um, ef honum fylgir sífelt heylsuleysi ? Hvaða ánægja að nafnbót fyrir lærdóm, ef henni fylgir þunglyndi ? Sannarlcga sjá allir og vita, að hraustur liltami, fullur af fjöri, hefir í sér fólgin meiri ánægjuefni, en nokkrir aðfengnir hagsmunir geti vegið á móti. Viðvarandi vesöld kastar skugga á hinar björtustu framtíðarvonir, þar sem fjörið, er fylgir heilum og hraustum lík- ama, gillir jafnvel sorg og raunir. Vér höldum því þess vegna fram, að of mikil uppfræðsla á unga aldri sé i alla staði skaðleg, skaðleg af því hfin fellur í gleymsku; orsakar óvilja til að lesa og læra; hindrar niðurröðun og skifting þess, sem lært er, en sem meira er um vert er það, hvað mikið er numið; veikir eða eyðileggur þann líkamsvöxt eða þroska, scm mentun andans þarf að vera samfara, ef uppfræðingin á að koma að fullum not- um; leiðir af sér heilsuleysi, er meira en vcgur móti árangrinum af uppfræðingunni og er þess vegna þeim mnn þyngra að bera. aðalstörf þjóðféiagsins, var líkamsþrek og hugrekki æðsta takmark allrar mentunar. Mentunin var þá Öll líkamleg og um and- lega fræði lítið hirt, sú mentagrein enda forsmáð. En nú, þegar friður er yfir höf- uð ríkjandi, þegar líkamsafl útheimtist ekki nema við óbrotnustu vinnu, en þegar nálega alt er komið undir andlegu atgerfi, að minsta kosti í áliti þjóðfélagsins, þá liefir mentastefnan breyst samkvæmt þeirri kröfu. Gengur það svo langt, að í stað þess, er frumbyggjarnir vegsömuðu líkam- ann en lítilsvirtu andann, vegsömum vér nú andann en lítilsvirðum líkamann. Hvorttveggja þessi stefna er röng. Vér viðurkennum ekki enn þann sannleika eins fyllilega og þarf að eins sannarlega og and- legt atgervi er komið undir llkamlcgum þroska, eins sannarlega er skaðlegt að of- þjaka andanum, mcð því að svipta líkam- ann vaxtar og þroskaefni. Meðalhófið ligg- ur í að sameina forntíðar og nútíðar menta- stefnurnar í eðlilegum, réttum ldutfoll- um. Að líkindum sýnist ekkert meðal ein- hlýtt til að breyta núgildandi steí'nu og fá menn til að leggja rækt jafnt við líkama og sál, nema ef útbreidd verður sú sann- leiksgrein, að verndun heilsunnar er skylda. Sannlcikurinn er, að hvert einasta brot lieilbrigðislaganna er synd gegn eðli mannsins. Þegar menn alment viður- kenna þennan sannleika, þá, en ef til vill ekki fyrri, hugsa menn að vændurn meira um líkamsbygging barnanna en nú. í fornöld, þegar sókn og vörn voru

x

Öldin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.