Öldin - 01.06.1894, Qupperneq 8

Öldin - 01.06.1894, Qupperneq 8
88 ÖLDIN. kylfa þann svikaref. “Bíðum við,” sagði þá Hans Kranki frá Limitiigó, fyrirliði okkar, “hýðum úlfskömmina úr húðinni.” Síðan dustaði luinn Abraham svo duglega, að hann varð að sleppa kjörgrip sinum, stakkinum. Kranki var snöggklæddur en kalt var í veðri, þótti honum feldurinn fé- legur og fór í. Og nú með því að þetta var í rökkri, tókum við hinir ckki eftir því að Hans hafði farið í feldinn, og byrjuðum nú á nýjan leik að dangla og dengja okkar varg, og víst var það, að þá var tekinn hrollurinn úr honum Kranka. En það er frá Abraham að segja, að þégar hann komst úr hýðinu, varð hann svo léttur á sér, að hann tók til fótanna og hljóp snögg- klæddur hálfa þingmannaleið til Húseyjar. Þar var hann tekinn af Sáku-Jakobi í Karlabý; var fanturinn síðan fluttur til Stokkhólms, cn ckki fékk liann lcngi næði til að syrgja feldinn góða, því hertoginn lét innan stundar ganga milli bols og höf- uðs á honum.” “Já,” sagði Larson, sem jafnan hélt taum Flemings og lians manna, “I það sinn höfðuð þið betur. Ellcfu svcina höfðu eft- ir verið á lífl, cn látist vcra dauðir; þá flettuð þið bera. Og um miðnætti skriðu þeir hálfdauðir af kulda til hringjarahúss- ins, og fengu þar liæli, en um morguninn ætluðuð þið að troða þcim lifandi undir ís- inn, eins og þið gjörðuð á Lappfjarðará. Þið voruð vargar cn ckki menskir menn. Áin var svo grunn, að þið ýttuð mönnun- um með stöfum inn undir vakarbarminn, og þcgar hvergi gekk, börðu konur ykkar þá með vatnsfötum á höfuðin.” “Haltu þér saman, Lassi, þú veist ekki alt og alt, sem hann Sviðu-Kláus hafð- ist að,” svaraði Bertila og varð æfur ; ég nefni ekki á nafn alla þá, sem hann og lians liðar liafa drepið og lifandi lijólbrotið, en manstu hann Severín Sigfreðsson við Sorsankoski ? Þcgar hann hafði slegið hring um bændurna, skijiaði hann fylgdar- svcini sinum að ‘höggva þá einn og einn með öxi, en sveinninn gafst upp þegar hann var búinn með 24 og bað jungherrann sjálfann að höggva hina. Þá reiddist jung- herrann, lét bændurna fyrst höggva svein- inn í stykki, en þröngdi þeim síðan sjálf- um til að búta í sundur hvor annan, á með- an nokkur þeirra stóð lífs uppi.” “En hvernig fórst ykkur við garðinn hans Péturs Gumsa, ilsku-fantarnir ykkar? Fyrst rændu ykkar menn garðinn, brutu gluggana, slátruðu öllum fénaðinum, röð- uðu höfðunum með uppspertum ginum í gluggana eins og draugum. Síðan söguð- uð þið í sundur alla máttarviði í skálanum nema fjórða jiartinn, til þess að liúsið skyldi hrynja ofan yflr fólkið þegar það kæmi hcim. Og live nær sem þið náðuð einhverjum riddaranum, höfðuð þið hann fyrir skotmark til að hæfa með örfum.” “Eltki er það ráð fyrir þig, Larson, að taka málstað hans Sviðu-Kláusar. Manstu eítir konunni, sem varð fyrir einum af riddurunum hans Axel Kurks, þegar hann drap börnin hennar fyrir framan augun á henni ? Það stóðst konugarmurinn ekki, heldur tók þennan drukkna dóna hrvgg- sjiennu og kom honum undir með tilstyrk dóttur sinnar, liálfvaxinnar lelpu; síðan barði hún hann í rot með burðarstöng og stakk lionum svo í vökina. I því bar þar að Sviðu-Kláus og lét hann hluta konu þessa í tvo parta.” “Tómur þvættingur, sem aldrei heflr verið sannaður,” sagði Larson önugur. “Þeir dauðu þegja eins ogþægu börn- in. Fimm þúsundirnar, sem drepnarvoru við Ilmóla, kvarta ekki.” “Þú skyldir heldur hafa spurt liðs- manninn frétta frá syni þínum og mínum, heldur en að fara í ilt við hann,” sagði Larson nú til þess að komast frá þeirra sí- felda þrætuepli, Kylfustríðinu. “Já.... satt er það, ég hlýt að fá meira að heyra um strákinn og um stríðið. Fg bregð mér í ferð til Yasa á morgun.”

x

Öldin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.