Öldin - 01.01.1896, Blaðsíða 25
ÖLDIN.
25
fylgja sér, er hann fari að tala um þessar
3 skáldskaparstefnur íslendinga og getur
þess að hér sé ekki að tala um afturför
neina, heldur sé alt í blóma og séu skáld
enn starfandi á Islandi, er telja megi með
hinum fremstu skáldum heimsins.
Þá er til hins lyriska skáldskapar
kemur, kveðst hann einkum muni taia
um það, er verulegt gildi hafl. íslend-
ingar séu þjóð af lyriskum skáldum, því
að þíir megi segja að hver maður yrki, en
þó að menn geti rímað saman bögu, þá sé
vandara að gefa hverjum einum skáldnafn
fyrir það. Að endingu biður hann menn
virða á betri veg tilraun sína að skipa
hinum íslenzku skáldum sæti í menningu
heimsins, og óskar að menn aðeins sýni
skáldskap eyjarskeggja þessara, sanngirni
og réttsýni.
Af þessari lauslegu þýðingu inngangs-
ins, vonum vér að menn sjái að bókin á
sem mesta útbreiðslu skilið. Að því von-
um vér líka að allir þýzkulæsir Yestur-
íslendingar styðji, að þeir sjái sóma sinn
og gagn ættlandsins í að kaupa eitt eintak
og láta hérlenda þýzku-læsa kunningja
sína sjá hana og um leið hvetja þá til að
kaupa hana. Það er hvorttveggja, að
Ameríku-menn ættu að hafa löngun til að
fregna eitthvað um bókmentir íslendinga
og liitt að íslcndingar ættu að vera allra
manna fúsastir til að rétta þeim hjálpar-
hönd í því efni. Það geta þeir gert með
því að benda þeim á þennan “lykil’, að
söguskáldskap Islendinga, og íslenzkum
bókmentum ytír höfuð. Bókin kostar 60
cents og geta þeir er vilja, fengið hana með
því að senda Eggert Jóhannson, Box 305
Winnipeg, Man., peningana og greinilega
utanáskrift sína, er þá sendir peningana
og pantanirnar til Leipzig.
l/enezue/a
og Venezue/a-menn.
Kftir Massey’s Magazine.*
Venezuela er nyrðsti hlutinn af Suður-
Ameríku austanverðri. Er ríkið að því
leytinu betur sett en önnur Suður-Ameríku
lýðríkin, og enda þau í Mið Ameríku, að
það liggur betur við Evrópuverzlun og er
nær Evrópu, West-India eyjunum og enda
nær Bandaríkjum Norður-Ameríku. Strand-
lengja ríkisins er um 2000 mílur, en því
miður eru þar fáar góðar hafnir. Beztu
hafnirnar eru að Cumana og Puerto Cabello,
en stærstu sjóstaðirnir eru: Laguayra,
Puerto Cabello, Ciudad Bolivar og Mara-
caibo. Inn í landinu eru samgöngurnar
tregar og stendur það ríkinu fyrir þrifum.
Af því landið er fjöllótt og ógreitt yflr-
ferðar, en lítið um járnbrautir og enda ak-
vegi, eru samgöngur milli hinna ýmsu hér-
aða alt að því ómögulegar.
Höfuðstaðurinn, stjórnarsetrið, heitir
Caracas, og er Laguayra hafnstaður hans.
Á milli bæjanna eru eftir beinni línu að
eins sex mílur enskar, eða um það bil.
Caracas er á hjöllunum, nærri efst uppi á
fjallabálki þeim, er myndar meginhluta
ríkisins og nyrðst á þeim fjallabrúnum.
liísa þau fjöll 8000 fet yfir hafið og sjást
70 milur af sjó utan. 0g þar beint niður
undan, niður við sjóinn, er hafnstaður höf-
uðborgarinnar, Laguayra. Milli bæjanna
liggur járnbraut og er hún ein hin undra-
verðasta af mannaverkum í járnbrautar-
mynd. Þó vegalengdin eftir beinni línu
sé að eins sex mílur, er lengd járnbrautar-
innar 26 mílur. Á þessari leið rís brautin
yfir 3000 fet og verður því meðalhallinn á
*) Höfundur greinarinnar, sem hér er í
einstöku stað lítið eitt frábreytt frumritinu,
er fyrverandi konsúll Venezuelamannaí Mont-
real, Mr. B. Laurence. liitstj.