Öldin - 01.01.1896, Qupperneq 30

Öldin - 01.01.1896, Qupperneq 30
30 ÖLDIN. greiðasamri.og gestrisinni eins og eru Vene- zuelamenn, hvort heldur mentaðir eða ómentaðir. í höfuðborginni eru auðvitað tiltölu- lega margir menn mentaðir, en mentunar- leysi fjöldans í ríkinu er ægilegt. Hug- mynd um ástæðurnar í því efni hafa menn er þess er getið, að 90 af hverjum 100 mans í ríkinu kunna hvorki að lesa eða skrifa. En svo er rétt að geta þess jafn- framt, að ráðvendni fólksins er rétt yflr- gengileg og drykkjuskapar helzt enginn nema meðal útlendinga og Evrópnmanna. Sem dæmi upp á ráðvendnina má geta þess, að einn einasti bóndamaður eða þjónn er sendur með langar lestir af hest- um eða múlösnum, sem kiyfjaðir eru með afrakstur námanna. Og öllu þessu er ó- hætt hvar sem er. Eina undantekningin er : byssur og skotfæri. Það væri ekki hættulaust að senda þesskyns varning verjulausan, því alt slíkt er álitið rétt og löglegt herfang stjórnai’andstæðinganna. Það fylgir líka vanalega heill herflokkur öllum lestum með vopn og skotfæri. Hér má þess geta að “stjórnarandstæðingarnir” í Venezuela eru æfinlega uppreistarmenn. Þ. e., sá fiokkurinn sem í minnihluta verð- ur umhverfist undireins í uppreistarmanna- fiokk. Önnur pólitislc flokkskifting er þar helzt ekki til. Stafar þetta meðfram af afþví, að Venezuela-menn, sém fyr var frá sagt, eru lítt hneigðir til verzlunar, iðnaðar eða enda jarðyrkju. Það sem mentaðir og halfmentaðir Venzuelamenn aðallega hugsa um, er stjórnmálaþrætur og uppfindingar til að skemta sér. Af þessu og af eðlilegu örlyndi þjóðarinnar leiðir það, að uppreistir og byltingar eru altaf í bruggi. Þar sem svona er ástatt má virðast meira en lítið hættulegt, að gefa öllum þessum mentunarlausa sæg atkvæðisrétt. Lín hvað sem um það er, þá heimilar stjói’narskráin hverjum lögaldra karl- manni í Venezuela atkvæði. Þessi almenni atkvæðisréttur gerir stjórninni eiginlega ekki ncitt til, hefir helzt enga þýðingu. Því fjöldinn, ef ekki bókstaílega allir þessir óupplýstu menn, hefir ekki allra minstu hugmynd um þýðingu atkvæðis- réttarins, og skilur ekki til hvers alt þotta kosninga umstang er. Af því leiðir að þeir kjósa ávalt eins og presturinn, land- eigandinn eða húsbóndinn segir fyrir. Þeir menn allir fylgja hinni ríkjandi stjórn og er þarafleiðandi óbætt að treysta því, að það eru stjórnarsinnarnir, sem ávalt sigra á kjörþingi. Það er miklu efasamara hvor “skjöldinn ber” þegar byssukúlum og eggjárnum cr beitt í stað atkvæða. Þó er það sannast að mikið gengur á um kosningar. Þegar sóknin er hafin, eða iaust áður, er ekki óalment, að tíu eða tólf umsækjendur séu í boði í einu kjördæmi. Er þá regla hvers einasta um- sækjanda að rjúka til að gefa út fréttablað, með mikilfenglegu og viðeigandi nafni, er á að básúna stefnu hvers fyrir sig. Er þá tækifæri fyrir verzlunarmenn að auglýsa vörur sínar fyrir lítið og að kosningum af- stöðnum er bezta tækifæri að kaupa prentvélar og áhöld fyrir óvenju lágt verð. Kvennfólkið er sörlega trúrækið, cn það verður ekki sagt um karlmennina. Mentaðir karlmenn sjást helzt aldrei í kirkju nema þegar þeir kvongast og þegar þeir liggja í ifkkistunni. Svo langt er gengið í þessa átt, að málsmetandi menn og mikilhæfir, sem hafa unnið landi og þjóð mikið og margt til gagns, eru hundr- uðum saman jarðsungnir án þess prestur komi nærri. Eru þeir þá grafnir í frí- múrara kyrkjugörðum, sem álvarlega keppa við kyrkjuna í að búa út sem veg- legastar grafhvellingar, er sumarhverjar kosta svo skiftir þúsundum doliars. Það er talið að trúfrelsi sé í ríkinn, en ekki þekkjast þar aðrar kyrlgur cn kaþólskar. Protestanta prestar og cnda kristniboðar þeirra, eru þar fáir og sjaldséðir. Prest- arnir auðvita kvongast ekki, cn ekki er það ósjaldan að að þeim safnist barnalýður

x

Öldin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.