Öldin - 01.01.1896, Blaðsíða 32

Öldin - 01.01.1896, Blaðsíða 32
32 ÖLDIN. hans frægast, er lieiðursmerkið: Busto del Liberator, en sein alment er lcallað “Bolivars orðan”, sem viðtekið var á stjórnarárum Falcons íorseta, fyrirrennara Blancos. Þetta heiðursmerki og “heiðurs- fylkingar’'-merkið á Frakklandi, eru ei-nu heiðursmerkin, sem lýðstjnrnir enn hafa viðtekið til sæmdar sínum framúrskarandi mönnum. Lýðveldið samanstendur af 8 sjálf- stjórnarríkjum og mörgum liéruðum (Territories), er lúta sambandsstjórninni. Samliandsþingið samanstendur af tveimur þingdeildum, öldungaleild og fulltrúa- deild. Tekjur stjórnarinnar eru um 7 milj. á ári, meginl. tollur, semlagður er á varning bæði útfluttan úr ríkinu og að- fiuttrn. Ríkisskuldin er um $63 milj. og eru nú afgjöld þess fjár greidd reglulega, þó fyrir nokkru síðan væri tekið fyrir alla vaxtagreiðslu, er þröngt var í búi fyrir róstur í ríkinu. Verzlun ríkisins við er- lendarþjóðir nemur núorðið sem næst $37 milj. á ári og má útflutti varningurinn betur en sá innflutti, svo nemur nálægt $3 milj. á ári. Að því leytinu stendur þess vegna hagur ríkisins vel. Ilerinn samanstendur af 30,000 mönnum, en á ófriðartíma. margfaldast hann fljótt og óendanlega. Sú ein aðferð er þá viðhöfð, að hver maður, sem auga verður á fest er umsvifalaust gripinn og honum á augnablikinu umhverft í her- mann, hvert sem hann vill eða ekki. Af þessu leiðir, að á ófriðartíma sést naumast karlmaður, að undanteknum útlendingum. Hver maður, sem borið getur byssu eða sveðju (Maehete), erþá í liði annaðtveggja stjórnarinnar eða andstæðinga hennar. Viti stjórnin, eða njósnarar hennar af ein- hverjum manni, sem ekki hefir gengið í lið með öðrum hvorum, en sem hún hefir grun á að sé andvígur sér, iætur hún um- svifalaust hremma hann og kasta honum í fangelsi og þar má hann sitja þar til stríð- inu er lokið. Þó er hús hvers mans kast- ali hans. Haldi einhver sig inni — vilji hvorugum veita — er það hef'ð, sem aldrei helir verið brotin, svo kunnugt sé, að þann hinn sama getur stjórnin ekki tekið. Samkvæmt þeirri liefð raá liún engan mann taka fastan inni í sínu eigin liúsi l'yrir nokkrar póltiskar sakir. Venezuela- menn eru skyttur góðar, enda gengur enginn maður út, í bæ eða i sveit úti, nema marghleypa sé í vasa hans, svo framarlega sem hann lieflr efni á að kauþa gripinn. Sem áður hefir verið umgetið, eru Venezueiamenn ekki hneigðir fyrir verzl- un í neinni mýnd. Mentuðu mennirnir leggja þvf ekkert þvílíkt fyrir sig, heldur liekningar, og þeir eiga líka marga nafn- togaða lækna, suma í Evrópu,— málaflutn- ing, hermensku, mælingafræði eða vísindi. Máfafiutningsmenn eru líka fleiri í Caracas en í Toronto. Vitanlega hafa þeir ekkert að gera, og leggja því fyrir sig stjórnfræði og leita eftir stöðu hjá stjórninni. Fáiþeir hana bráðlega, fer alt vel, en fái þeir hana ekki, ganga þeir í lið andstæðinganna og fylgja örugt að vígi þeim, sem fyrst skera upp úr með að taka til vopna, til að bylta stjórninni. Leiðrétting. í kvæðinu “Nýársgjöf,” á fyrstu bls., í fyrstu línu, 9. erindi, stendur : “Þá færðist mér allheitur ylur í blóð,” en á að vera : Þá færðist mér állmikill ylur í blóð, o. s. frv. láfiti : Kr. Stefansson : Nýársgjöf. — St. Gr. Stefiianson : Kvæði (Myndin— Hestavísur — Mannsöngur — Jóiavaka — Gróðamaðurinn — Bókvitringurinn). — T. M. Holland : Tuttugasta öldin. — Dr. J. G. Bourinot : Sambandsþing Ca- nada. — Steinolía. — St. G. Stephansson, Kr. Stefánsson (íneð myndum). — Skáld- sagnagerð íslendinga. — B. Laurence : Venezuela og Venezuelamenn. Ritstjóri : Eggert Jóiiannsson. Heimskuingla Putg. & Publ. Co.

x

Öldin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.