Öldin - 01.03.1896, Page 5

Öldin - 01.03.1896, Page 5
ÖLDIN. 37 Höll mun fœrri glöpum gerð G-eymi’ hún eigin skjöld og sverð. Sanngjarnt mæla Avergi kann Kaupið, sá er aldrei vann. “Brjöt ei dóttir bág við Rögn ! Buðu svo in helgu mögn : Sveini—ríki, sverð og bál— Svanna—fegurð, þráð og nál.” “Mót þér aldar-andinn rís, Uppþotum er sneypan vís ; Kvenna heift og karla háð Kjark þinn brjóta, snild og Aáð.” Mundi’ ei framgjarn faðir, þér Finnast hóf, að skift svo er, Teldu þjóðir þráð og nál Þyngri hnoss en sverð og bál. Kvenna-heift frá hraustleik snýr, Ilæðni manns við sigur flýr— Til að sækja Tyrflng þinn Til þín kem ég, faðir minn. “flonum liggja álög á—• Aldrei máttu Tyrfing fá ! Ilann er vopn svo voða hætt, Veldur tjóni í hverri ætt.” “Með þeim grimma geir ég vann Glapvíg, sern ei bætast kann ; Og- á mína sögu sett Sverð það hefur Ijótan blett.” Kaðir, trautt mun takast þér Tyrfing geyma fyrir mér; Af þér heimta’ hann heilög Rögn, Iieimsins yngstu goða-mögn. Völd og sigur meiða menn— Máttur stjórnar heimi enn, Og i skjóli blóðugs brands Búa grið og frelsi manns. •‘Dóttir, taktu Tyrflng þá: Tignar-grip og eftirsjá! Ættar vorrar voða’ og liapp Vinnur svo þitt ofur-kapp.” “Ilvar sem Elli’ og Æslca hér Eiga saman þannig fer. Urður verndar valinn forn, Verðandi er lífsins-norn.” * * Ein við hauginn Hervör stóð Hljóð í árdags-friði— Sólin mi!d og morgunrjóð Mændi’ úr Ránar-hliði. Sór í fangi’, í blíðum blæ, Báru hennar loga Margar öldur, yfir sæ Inn á Munar-voga. Nú fanst Hervör, eins og að Arfinn sinn liún hræddist, Og í kjarks og kappsins stað Kvíði’ og efi læddist. —Iíefir þú ei margoft mátt, Maður, þetta finna, Sem frá tálrnun tekið átt Takmark vona þinna? Ofseint lmfði' í hættu-ferð hugar-dirfskan bilað;, Nú gat hún ei ættar-erfð Aftur dauðum skilað. —Varstu aldrei var þess, að Var til sterkur kraftur, Sem með hjör þig hra-kti’ á stað, Haugum lokar aftur ? Loks var unnið alt, svo létt, Eftir sem var gengið: Sonar frelsið, souar rétt: Sverðið hafði’ hún fengið ! —Segðu vinur: Því ég þarf Þér að skýra bögu ? Ileimtar ekki heygðan arf Iíervör nú í sögu ? * * * Dóttir, or munt eitthvert sinn Eftir greítrun mína, Út við hrunda hauginn minn Ileimta arfleifð þína;

x

Öldin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.