Öldin - 01.03.1896, Blaðsíða 15

Öldin - 01.03.1896, Blaðsíða 15
ÖLDIN. 4Ý eftir að rnæla breiddina, upp og ofan eftir fjallinu og það er vandinn meiri. Það er ágizkun ein hvar liið gull-blandna grjót- belti stendur lengst í jörð niður, og þar kemur œfingin, þekkingin á þeim efnum, leitarmanninum að gagni. Eftir að hafa merkt sér ferhyrninginn, á leitarmaður- inn eftir að merkja sér fund sinn, sam- kvæmt lögunum. Fyrsta atriðið í þeirri athöfn er, að reka niður stólpa eða stjaka, einmitt þar sem aðal-beltið er. Heitir sá stólpi á iagamálinu “fundar-stjaki” (dis- covery post). Tvo samskonar stjaka þarf hann að reka í jörð niður, sinn í hverju liorni lóðarinnar, en í beinni línu við fundar-stjakann. Á þá tvo stjaka þarf finnandinn að rita nafn sitt, lýsingu á takmörkum lóðarinnar, sem hann nú lielgar sér, o. fl., sem lögin heimta. Að þessu búnu er verkinu lokið. Lögunum er fullnægt og finnandinn má halda til mannabygða aftur. Náman er hans eigin eign sem enginn getur frá honum tekið, eftir að hann borgar stjórninni lögákveðið verð fyrir landskikann. En þó nú þessu verki sé lokið, flýtir námamaðurinn sér ekkert af stað heim- leiðis. Hann er rólegur nú og meir en það og í stað þcss að hraða ferðum burt, fer hann nú að líta í kringum sig á ný, að líta eftir meira gulli í grendinni. Eftir nokkra stund sannfærist hann um, að á þessum stöðvum er ákjósanlegasti staður fyrir námabæ að rísa upp. Að öllum þess- um athugunum loknum leggur liann af stað aftur þá leið sem hann kom, léttfætt- ur og alira manna ánægðastur og—með létta byrði, því nestispokinn er að mestu tómur orðinn. En svo lieíir hann þá með sér mola úr hinu gull-blandna kristalla- grjóti, ti! sýnis, þcgar í kaupstaðinn kem- ur. Og það má trúa því, að liann velur þá inola ekki af verri endanum. Þegar hann kemur að lækjarmynninu þar sem hann gróf vistaforða sinn og huldi bátinn í skóginum, er eins víst að hann grípi í tómt að því er vistaforðann snertir. ‘Bangsi’ hefir eins víst orðir fyrri en hann að “kös- inni” og þarf þá ekki að sökum að spyrja. Það er liver sjálfum sér næstur.. En svo tárast hinn sigrihrósandi málmleitarmaður ekkert um það, enEiraðar ferðujn til næsta kauptúns, þar sem vinir og undantekn- ingaiiaust allir fagna honum eins og bróð- ur úr heiju heimtan. Sýnishornin af hinu gull-blandna grjóti laumast hann nú með til efnafræð- ings, sem uppleysir ákveðna hluta af molun- um og mælir þannig hvað mikið er af gulli í hverri “ton”-þyngd (2,000 pund) af grjóti. Efnafræðingurinn gefur skrif- legt vottorð um að náman sé svo og svo mikils virði. Finnandinn fer með það vottorð á þar til ætlaða skrifstofu stjórnar- innar og fcstir sér þetta námaland að lög- um. Um leið og hann festir sér landið verður það almenningi kunnugt, að þarna, í áltveðinni fjallshlíð er fundíð ógrynni af liinum “dýra” málmi. Áður en þetta verður opínbert kallar íinnandinn venju- lega vini sína á fund og segir þeim frá fundi sínum. Áður þess vegna en al- menningi er þetta kunnugt, er ákveðinn flokkur manna kominn af stað til gull- landsins. Og af því þeim hefur verið sagt svo vel til vegar, gengur þeim ferð- in fljótt og vel. Af þessu leiðir, að innan fárra daga frá því gullið var fyrst fundið í fjallsblíðinni er þar risin upp bygð manna, sem eykst á liverjum degi. Og fjailshlíð- in auða og tóma, þögul eins og nóttin, nema þegar hamrabeltin IxSfgrnáluðu þrumubrestina, glymur nú dag eftir dag undan höggum hraustra handa og hamra- beltin bergmála nú látlausa hrfð af skot- dynkjum, er púðurflaugarnar mylja hið gull-blandna grjót í öllum áttum og knýja. liið st.olta fjall til að framselja ögn af sín- um huldu fjársjóðum. Fregnin um þessar nýju nánmr flýgur stað frá stað eins og hvalsaga, og tugir, hundruð, þúsund manna flykkjast að gull-

x

Öldin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.