Öldin - 01.03.1896, Blaðsíða 28

Öldin - 01.03.1896, Blaðsíða 28
60 ÖLDIN. Þeir höfðu nýlega étið sig sadda af pödd- um og æddu saman með ofsagrimd. Á hverjum tveimur eða þremur mínútum skildu þeir hanana, báru meiri svertu á lappirnar á þeim, og slógu ]peim svo laus- um aftur á vígvellinum. Eftir tuttugu mínútna sókn höfðu hanarnir margkrassað ofan í hvern fingurgómsstóran blett á papp- írnum og var þeim þá gefin lausn. For- maðurinn tíndi saman arkirnar, númeraði þær og klóraði svo eins líkt Greeley’s skrift og hann gat efst á 1. blaðið þessi orð, sem fyrirsögn greinarinnar : “ Augsæ skylda congressins,” svm merkti hann alt saman : “Brevier—tvær milliskotslínur,” og liengdi svo syrpuna á handritakrókinn ! Eftir litla stund fóru prentararnir að tínast inn, en þeir voru allir búnir að frétta hvað til stóð, sáu arkirnar moð hanafdrun- um og — þeir sneiddu hjá þeim, en leit- uðu að öðrum handritum. Að tímakorni liðnu kom Larkway labbandi. Hann hafði rétt lokið við að gera sér nýja pípu úr ein- um stærsta maisstönglinum ú.r Cayuga-hér- aði, og úr illilega boginni svínsrófu frá Brattleboro í Vermont. Var hann því, að okkur virtist, venju fremur “upp með sér.” Hann skar í pípu sina, slóg eldi í tóbakið, setti upp gleraugun og gekk svo að hand- ritakróknum. “Hey ! Þið eruð í feluleik enn, piltar, er ekki sem rnér sýnist ?” sagði hann, “Hræddir við handrit gamla mannsinsenn, Hey! Treystið ykkur illa að glíma við það, en skiijið það eftir handa Larkvvay gamla, eða hvað ? En það gerir ekkert til. Mér þykir vænt um það. Þið gerið mér þægt verk þegar þið eftirlátið mör hand- rit hans.” Svo tók hann hina “ augsæu skyldu congressins,” gekk yfir að kassa sínum, slengdi örkunum niður á efri lcassann, fcrgði þær undir handfylli af milliskotslín- um og tók upp hakann. Prentaramir all- ir héldu niðri í sér andanum til þess að skellihlægja ekki, því nú áttu þeir vissa von á að sjá gamla stcingervinginn mátað- ann — loksins. En ég sver það við sann- leilcsgyðjuna, að hann fór að setja — setja eftir hanaförunum! Já, hann virkilega fór að setja. En við lok annarar línunnar í hakanum kom vandræðasvipur á liann. Nú vorurn við sannfærðir um að sigur okkar var í nánd. En það varð nú ekki af' því. Ilann bara blótaði dálítið, Jagði frá sér hakann, sló öslcuna úr pípunni, fylti hana aftur og kveikti í með strcngsli af hisminu utan á henni, tók hakann aftur og — hélt áfram að setja. Það fór að verða lítið úr okkur. Eg held það hefði mátt hnoða okkur öllum í eina liattöskju, svo litlir urðum við. Karluglan, þessi eldgamli hellisbúi, spann sig áfram og leit einu sinni ekki upp fyrri en hann var koininn nærri því neðst á seinustu síðuna. Ilann strandaði þar loks- ins, á bletti þar sem annar haninn hafði slegið vængfjöður niður á pappírinn, cn hún einnig mökuð í svertu. Karl var lengi að rína í þessa klessu, en sagði að lyktum við formanninn : “ Skollinn taki það ! Það getur kom- ið fyrir okkur alla að uppgefast við eitt- hvcrt orð, endur og sinnum. Ilvaða orð heldur þú að þetta sé ?” “Blessaður spurðu mig ekki!” svar- aði formaðurinn. “Þú veizt að ég get ekki lesið þetta klór. Farðu bara til gamla mannsins sjálfs og spurðu hann !” 0g Larlcway gamli lagði af stað og virtist okkur andlit hans í lengra lagi, svo alvörugefinn var hann, með blaðið í ann- ari liendinni en pípuna í hinni. Hann fór inn til Grceley’s og sagði við liann^ hálf- feimnislega: “Mr. Greeley ! Eg er strandaður! Hvaða orð er að tarna ?” Greeley þreif af honum blaðið óþoi inmæðislega, horí'ði á það um stund og sagði siðan, í enda mjórri og hvellari rónii en venjulega : “ Uneonstitutional,* Sir /” *) Gegnstríðandi stjórnais'a'ánni.! :

x

Öldin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.