Kvennablaðið - 01.11.1896, Qupperneq 1
Kvennablaöið.
2. ár. Reykjayík, nóvember 1896. Nr. 11.
Heilbrigðisreglnr.
•Wf-Mt sýuistþaðóskiljanlegt, hvernig
S5ttnæmi breiðist át, og viljum
vjer því hjer leitast við að benda á,
hvernig það berst oft manna á milli.
í fyrri daga þekktist sóttnæmi ekki.
Hitasóttin settist að hingað og þangað,
án þess nokkur grennslaðist eftir, hvaðau
hún kæmi eða hvert hún færi. Nú á
dögura er fólk fróðara. Við vitum að
hitasóttin kemur ekki að orsakalausu,
heldur er afleiðing af bakterium eða sótt-
næmi af sjúkdómi, sem borizt hefir
einhverstaðar að.
Það er skylda vor, sem þekkjum þetta
að vera varkárir í sjúkdómum. Sje
nauðsynleg aðgæzla við höfð í fyrstu er
oft hægt að stemma stigu fyrir útbreiðslu
sjúkdóma, og þannig koma í veg fyrir
sjúkdóma, bágindi og sorg á mörgum
heimilum.
Gætið vel að öllu.j í vatninu felast
oftar fyrstu efnin í taugaveikina og
marga aðra sjúkdóma. Drekkið því ekki
slæmt vatn, eða látið aðra drekka það.
Staðin, ósoðin mjólk er líka mjög hættuleg
að draga til sín sóttnæmi, þar sem
veikindi eru eða illt loft. Hana má því
alis ekki nota þar sem svo stendur á,
nema helzt soðna, eða ef mjólkað væri i
vel hreina „emaileraða4* fötu eða ieirkönnu;
þá mætti líklega drekka hana uýmjólk-
aða úr kúnni.
Loftið, sem vjer öndum að oss,er
fullt af sóttnæmi, ef vjer athugum ekki
að fá nægilegt hreint loft með því að
halda vel hreinu inni, opna dyr og glugga,
og sótthreinsa herbergin ef þess er þörf.
Fötin, sem vjer erum í, eru líka hætt-
uleg með að taka í sig sóttnæmi og
flytja það. Enginn ætti að gauga inn
til sjúklinga, án þess að hafa síðan slopp
utan yflr fötum sínum, sem svo væri
farið úr og hreinsaður þegar frá sjúk-
lingnum er farið. Bækur geta líka flutt
sóttnæmi. Þegar sjúklingurinn hressist,
langar hann oft til að lesa eitthvað, og
það er líka það eina, sem hann getur
þá getur gjört sjer til skemmtunar. Ef
hann nú ekki á bækurnar sjálfur, fær
hanu þær oftast að láni hjá kunningjum
sínum, eða á bókasöfnum.
Sje sýkin næm, er mjög hætt við að
bókin geti flutt með sjer sóttnæmi og
aðrir sýkist svo síðan af að lesa í henni.
Að minnsta kosti er hætt við því um alla
næma húðsjúkdóma og fleiri sjúkdóma.
Bezt væri því, þar sem svo stendur á,
að hafa ekki aðrar bækur eða blöð í sjúkra
herberginu enn þær sem skaðlítið mætti
brenna þegar í stað á eftir.
Barnagull flytjamjög oft sóttnæmi með