Kvennablaðið - 01.11.1896, Blaðsíða 4

Kvennablaðið - 01.11.1896, Blaðsíða 4
84 inni í næði. og svo skal jeg vita, hvað jeg man um frú A. og æfisögu hennar". Við sátum nú glaðar og kátar í litla herberginu, sem sneri út að lystigarði bæjarins. Kveldgolan þaut í laufinu á linditrjánum. Klukkan sló sjö. Stúlk- urnar komu og sóttu vatnið í brunninn á ráðhússtorginu og spjölluðu gamansam- lega. Sólin gyllti húsaþökin með hinum síðustu geislum sínum og á öllu skein friður og híbýiaprýði. „Ó, þessi vangi! Jeg get aldrei gleymt honum. En hvað svipurinn var sorgblíður! Mig langar ógn til að heyra sögu hennar. Komið þjer nú fljótt með hana“. „Jæja. Hún er fædd hjer í borginni. Og þegar hún var 16 ára, var hún bæði hin fríðasta stúlka, sem sjezt hafði hjer, og saklaus og góð og búin mjög miklu andlegu atgjörvi. Faðir hennar var vel efnaður skipherra á gufuskipi og hún var einbirni. Móðir hennar var löngu dáin, og þess vegna fylgdist hún með föður sínum þegar eftir fermingu til Brasiííu og var þar lengi. Mjer er enn sem jeg sjái hana, þar sem hún stóð á þilfarinu veifandi kveðjum til vinanna á strönd- inni, brosandi, feimin, blíð og Ijúf eins og ilmandi blómin, sem hún hjelt á í hendinni. Hún hafði lítinn stráhatt með bláum böndum á fallega höfðinu sínu. Hún veifaði i allar áttir og brosti með tárin í augunum. Faðir hennar stóð hjá henni og horfði á hana með innilegum kærleika og stolti. „Velkomin! velkomin hingað aftur“, heyrðist kallað að minnsta kosti með hundrað muunum. í því var blásið í lúð- urinn og skipið brunaði á stað og hvarf fyrir nesið. — Þú skalt nú ekki halda, að þú fáir að heyra furðanlegt æfintýri með ótal hrífandi atvikum. Þessi saga er ef til vill algeng. En sömu viðburðirnir geta fengið dýpri þýðingu og gleggra mót allt eftir þeim, sem með þá fara. Ó, mjer finnst líf hennar svo fagurt og reynslu- fullt, þótt það sýnist kyrrlátt. Jeg hefi af ótöldum ástæðum fengið fullkomna þekkingu á því. — Eitt fagurt haustkveld nokkrum ár- um síðar var jeg á gangi niður við höfn- ina og hressti mig við hafgoluna og horfði á hvernig hinir gullnu, hverfandi, síð- ustu sólargeislar Ijeku sjer við öldurnar. Þá sá jeg hvar stórt og fallegt brigg- skip kom og brunaði inn á höfnina. En bráðum sá jeg það gleggra og þekkti að þetta var „Anna“, skip Bernts skipstjóra. Jeg flýtti mjer því nær til að geta heils- að Signýju Iitlu og boðið hana velkomna í átthagana aftur. Jeg hafði ekki frjett af henni lengi. Grannvaxin stúlka beygði sig út yfir borðstokkinn, og föla og fallega andlitið horfði upp í borgina. Það var hún. En hvað mjer sýndist hún breytt. „Gtóðan daginn, barnið mitt ogmarg- velkomin heim!“ kallaði jeg og veifaði sólhlífinni. Hún hrökk við, brosti lítið eitt og veifaði; en þá sá jeg að ókunnugur mað- ur stóð hjá henni. En þegar jeg tók betur eftir, sá jeg að það var enginn ókunnugur, heldur kapteinn A. hjeðan úr bænum, sem var álitinn mjög vel efnaður maður og hafði

x

Kvennablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.