Kvennablaðið - 01.11.1896, Page 6
86
verið — 50 álnir. Þó var það æði hátt
og rajög vatnsmikið. Jeg Jjet bera sápu
í Strokk og ókyrðist hann þá og sauð
upp undir barraa, en sápan var svo lítil
—ekki neraa 2—3 pd.— og við máttum
ekki bíða lengur til að vita árangurinn,
eða láta sækja meiri sápu. Skrítið er að
sjá 8máholurnar þar á völlunum, sem
bakað er brauð í og soðinn ýmis konar
matur. — Strokkur er nú hættur að
gjósa síðan í jarðskjálftunum i haust, en
Geysir gýs daglega síðan.
Frá Geysi íengum við fylgd að Gkill-
fossi, sem er víst allra fossa vatnsmest-
ur hjer á Iandi og mjög tignarlegur. En
veðrið var dimmt með þoku og regui,
svo hann sýndist ekki jafnfríður og ella.
Þaðan fórum við ofan með Hvítá og yfir
á ferju hjá Tungumúla. Það er stutt
sund, en voðalega strangt fyrir hestana.
Frá ferjunni fórum við sem Ieið liggur
kirkjuveginn að Hruna. Þar er víða sagt
mjög fallegt, en við sáum ekkert frá
okkur fyrir óveðri, og komum að Hruna
mjög illa til reika. Þar býr ejera Stein-
dór Briem, og tóku þau hjón okkur svo
alúðlega, eins og við hefðum verið þeim
gagnkunnug og höfðum við þar hinn bezta
beina. Sjera Steindór og frú hans eiu
mjög giaðvær og skemmtin, og finnur
ferðafólk mjög, hvílíkur munur er að
koma þar sem gestrisnin er svo mikil, að
líkast er sem heimafólki þyki vænt um
gestakomur, án tillits til fyrirhafnar og
eyðslu þeirrar sem þeim fylgja. Sjera
Steindór ætlaði að láta fylgja okkur, en
þá vorum við svo heppin, að þar bar að
mann nokkurn, ungan bónda, sem átti
heima austan Laxár og fylgdi hann okk-
ur alla leið aðStóra-Núpi; þarvorum við um
nóttina. Yið komum hvergi við frá Hruna,
nema að Hlið til Lýðs bónda, sem er bú-
höldur góður og tók okknr vel. Þar var
verið að byggja stórt frarahýsi, stofu o.
fl., sem líklega hefir hrunið aftur í jarð
skjálftunum.
Á Stóra-Núpi áttum við hinar beztu
viðtökur, enda er þeim hjónum viðbrugð-
ið fyrir alúð og gestrisni við alla, hvort
sem meiri eða minni háttar eru. Okkur
var sagt til dæmis um látleysi og ljúf-
mennsku sjera Yaldimars, að aldrei fyndi
neinn gestur hann svo, ef hann hefði
nokkra viðdvöl hjá honum, að hann fylgdi
honum ekki til dyra. Frúin er systir
sjeraSteindórs og dóttir sjeraJóhannssál. í
Hruna. Þar hafði verið staðið í bygg-
ingum og sýndist okkur baðstofan myndi
vera nýbyggð og eitthvað af frambænum.
Stofan var falleg og nýleg að sjá. Þar
hrundu flest bæjarhús í jarðskjálftanum
26. ágúst s.l.
Frá Núpi fórum við yfir Þjórsá á
ferju í Þjórsárholti. Þar er snnd breitt,
eu áin lygn, og óðu hestarnir lengi ána
austan til. Frá Þjórsá riðum við um
Landið og fórum dálítiun krók aðHvammi
til Eyjólfs bónda, sem er einn af merk-
ustu mönnum þar. í Hvammi er mjög
fallegt, enda hefir Eyjóifur bæði bætt þar
túnið og grætt það mikið út. Þá hafði
hann í smíðum stórt timburhús, og eru
þó aðflutningar þar mjög erfiðir. Húsið
skemmdist talsvert í jarðskjálftunum og
túnið að sögn líka. Eyjóifur fylgdi okk-
ur að Svínhaga, sem er að austanverðu
við vestari Rangá. Mjög þóttu mjer eyði-
legar sandbreiðurnar á Landinu og Rang-