Kvennablaðið - 28.01.1901, Blaðsíða 3

Kvennablaðið - 28.01.1901, Blaðsíða 3
KVENNABLAÐIÐ. 3 skuli hafa kosningarrétt til hreppsnefnda, sýslunefnda, bæjarstjórnar- og safnaðarnefnda, ef þær væru 25 ára, og fullnægðu að öðru leyti öllum þeim skilyrðum, sem lögin ákveða fyrir þessum réttindum. 12. maí 1882 náðu þau staðfestingu konungs. Litlu seinna var konum veitt leyfi til að. ganga und- ir 4. bekkjar próf og burtfararpróf í latínu- skólanum, og til að hlusta á fyrirlestra við læknaskólann. En ekki gátu þær fengiðembætti fyrir það. Vorið 1897 * miðjum júní byrjaði fyrsti hússtjórnarskóli hér á landi, stofnaður af frú Eh'nu Eyjólfsson hér í Reykjavík, og veitti þingið til hans þá um sumarið 2000 kr fjárstyrk. Næsta þing 1899 veitti honum IOOO kr. styrk. Sumarið 1899 samþykti þingið lög um fjármál hjóna. Aðal-réttarbótin í lögunum er: að giftar konur skuli hafa sama fjár- forræði og ógiftar. Með lögunum er ætl- ast tii að hægra verði að gera kaupmála milli hjóna en áður hefir verið, en með honum má á ýmsa vegu tryggja fjárhagslega hags- muni konunnar í hjónabandinu. Þau tak- marka að nokkuru leyti rétt húsbóndans til að ráða yfir félagsbúinu án samþykkis kon- unnar. Þau setja ýmsar ákveðnar reglur um séreign hjóna, einkum til hagsmuna fyrir kon- una, þegar svo á stendur. Þau veita hjón- unum, og þó einkum konunni, rétt til að geta slitið félagsbúiuu, án þess þó að það hafi skilnað hjónanna í för með sér, og trygg- ja eigur konunnar gagnvart skuldunautum mannsins. Þegar vér athugum þetta alt, getum vér ekki neitað, að hagur vor hefir breyzt nijög til batnaðar á þessari liðnu öld. Allur við- búnaður hefir batnað að miklum mun. Ment- unin hefir aukist margfaldlega, og það sem mest er um vert: hugsunarhátturinn hefir gersamlega breyzt. Um leið og mentun karlmannanna jókst, fóru þeir að finna, að eðlilegt var, að konurnar vildu fá einhvern snefil af henni lika. Þegar kemur fram um miðja öldina, fara menn að lata kenna dætr- um sínum að draga til stafs, eða að minsta kosti skifta sér ekki af því, þó þær reyni það sjálfar. í einstöku stöðum eru heimil- iskennarar handa öllum börnunum jafnt. í kaupstöðunum, eða einkum í Reykjavík, fara barnaskólar að koma upp, og stöku konur fara að halda privat-skóla fyrir ungar telpur og stúlkur. Svo koma kvennaskólarnir, og með þeim útbreiðst námfýsin út um alt land. Barnaskólarnir fara að þjóta upp bæði í bæjum og sveitum, og á síðustu árum um- gangskensla. Löggjöfin rýmkar um einstöku höft, nýir atvinnuvegir opnast, t. d. barna- kensla, músik-kensla og verzlunarstörf, fata- þvottur, fatasaumur og kjólasaumur. Stöku stúlkur komast lítillega að öðrum störfum. Þær fara að semja skáldrit í bundnu og óbundnu máli, halda fyrirlestra og gefa út blöð. Jafnvei æðri mentastofnanir landsins lúka upp dyrunum í hálfa gátt fyrir konunum til náms, þó því fylgi ekki rétt.indi til þess að nota sér það verulega á eftir. í barna- skólunum fjölgar kvenkennurum ár frá ári, og víðsvegar um landið úir og grúir af kon- um, sem lært hafa skraddaraiðn, og reka þá atvinnu eins og karlmenn gera. í stöku stöð- um eru konur póstafgreiðslumenn til sveita, og þykir farast vel. — Konurnar hafa stofn- að ýms félög og standa sjálfar fyrir þeim, stjórna fundum sínum, og leysa þau störf sæmilega af hendi. — Þetta mundi hafa þótt varla hugsanlegt fyrir fáum áratugum, og vér sjáum að það er Hka í raumnni gagngerð breyting á öllu því ástandi, sem var um alda- mótin 1800—1801. En verulegasta breyt- ingin er hugsunarháttur kvennanna sjálfra. Áður tóku þær flestu með þögn og þolin- mæði. Nú heimta þær allar meiri mentun, meira jafnrétti og meira frjálsræði. Áður þóttist hver stúlka mest verð, sem mest verk gat leyst af hendi, en nú þykjast allar fræg- astar, sem bezt geta sloppið hjá vinnunni. Þetta er gagngerðasti munurinn á skoðunum og hugsunarhætti fyrr og nú, og þaðan koma hinar ólíku lffsstefnur. Þegar vér aðgætum þetta, þá hljótum vér betur að skilja nútímann og stefnur hans en áður. Vér sjáum, að kvenfólkið hefir áð- ur verið svo mjög fyrir borð borið um lang-

x

Kvennablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.