Kvennablaðið - 28.01.1901, Qupperneq 8
8
KvENNABlAÐI©.
hvítna, þá er nokkurum dropum af rósa-olíu eða
bergamotts-oliu hrært vel saman við, og þetta lát-
ið svo í litlar krukkur með loki eða korktappa í.
Si>rungnar og harhir hendur geta á skömm-
um tíma orðið mjúkar og hvítar, eí þær eru vel
hirtar. Ef lítið eitt af buris er látið í þvottavatn-
ið, þá verður hörundið mjúkt og hreint, og ef
ofurlítið af haframjöli er saman við, þá verða
hendurnar hvítar. Gott er líka að nudda hafra-
mjöli vel inn í þær á kveldin, og sofa svo með
hanzka. Annað ráð er að nudda eggjahvítu, sem
einn hnífsoddur af pulveríseruðu álúni er leyst
upp í, vel um hendurnar.
Að pvo Ijósadúk og borðrefla (Bordlöber), sem
saumaðir eru með mislitu silki, á að gera eftir þess-
ari forskrift, svo litirnir upplitist ekki eða bland-
ist saman: Leysa skal 6 kvint. af burís upp í 3 pel-
um af volgu vatni. í þessu er dúkurinn svo þveg-
inn, að hann er kreistur milli handanna og skol-
aður svo í köldu vatni, sem einn hnefi af salti
er leystur upp í. Sfðan er dúknum skolað innan
um edik, til þess að litirnir skýrist upp, og kreist-
ur upp innan í tveimur handklæðum eða klútum.
Síðast er hann sléttaður á úthverfunni með vel
hreinu og heitu sléttunarjárni.
Barnab laðið
1. tölubl. þessa árs kemur ekki út fyrri en
2. tbl. kemur í febrúar.
Þrlíln og myndarleg húsvön stúlka,
sem kann dálítið að sauma léreftasaum og get-
ur gert laglega við föt, getur fengið vist frá 14.
mal næstk. í góðu húsi í Reykjavlk. Gott kaup
er í boði. Nánari upplýsingar fást á skrifstofu
Kvbl.
K ven n ablaðið,
5. og 6. árgangur, fást nú innbundnir í
logagylt skrautband á
3 krónur.
Þeir sem vilja sæta þessu kostaboði eru
beðnir að senda pantanir sínar sem fyrst.
Þeir, sem eru kaupendur blaðsins, eða verða
það framvegis, fá þessa innbundu árganga
kostnaðarlaust senda með skipum á næstu
höfn. Aðrir verða að borga burðargjald.
Kvennablaðið
Barnablaðið.
Af því ég veit að mjög margir kaupendur
Kvbl. og Barnabl. halda blöðunum saman og
binda þau inn, þá hefi ég til reynslu fengið mér
fáein bindi á blöðin. Það eru skrautbindi
með gyltu nafni blaðsins bæði á kili
Og frítmspjaldinu. Mjög lík bindunum á
kvæðum Gröndals. Bindin eru á 2 árganga af
Kvennablaðinu, svo þeir sem eiga það frá upp-
hafi þurfa þrjú bindi, ef þeir vilja binda þá alla
inn. Hvert bindi á hvort þessara blaða kostar
50 aura. Nýir kaupendur að Kvennablaðinu,
sem vilja kaupa sér 2 af eldri árgöngunum (þó
ekki þann fyrsta) geta fengið þá innbundna í
skrautbandi fyrir að eins þrjár krónur
og Barnabl. frá upphafi fyrir tvær krónur.
Bæði Kvennablaðið og Barnablaðið í skraut-
bandi eru einkar hentugar aímælis- og sumar-
gjafir og verða nokkur eintök innbundin handa
kaupendum, en þeir verða þá að sæta færi, af því
ekki hefir verið fengið af þeim nema svo lítið í
bráðina, en verður pantað meira síðar ef menn
vilja.
Bríet Bjarnhéðinsdóttir.
Ódýrustu vefnaðarvörur
fást hjá undirskrifuðum, svo sem tilbúin
karlmannsföt, yfirfrakkar, jakkar, kjólatau, svuntutau,
prjön-nærföt fyrir börn og 'fuliorðna, sirs, léreft allskonar, fatatau alls-
konar, enskt vaðmál, klæði.
Verðlisti yfir vefnaðarvörur sendist ókeypis hverjum þeim sem óskar.
Reykjavík, Vesturgötu 4.
Björn Kristjánsson.
Útgefandi: Bríet Bj a r n h é ð i n sd ótti r.
Glasgow-prentstniðjan.